Tíminn - 07.10.1941, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.10.1941, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARPLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötn 9 A. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Sími 2323. Símar 3948 og 3720. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. 25. ár. Rcykjavik, þriðjudagiiin 7. okt. 1941 99. blað Það er byggt á rannsóknum Olafs Thors og Morgunblaðsíns í farmgjaldamálínu Geta Bretar unníð styrjöldína án hjálpar amerísks herliðs? Afstaða almennings vestra til styrjaldarinnar Lístsýningin Bandalag listamanna hefir efnt til myndlistarsýningar mikillar í skála Garðyrkjufé- lagsins við Garðastræti. Var hún opnuð í fyrradag og verður opin tvær næstu vikur. Eru þarna myndir flestra helztu listamanna okkar, þeirra er lita og móta, þótt ýmsa vanti að vísu, auk nokkurra, sem síður eru kunnir. Munu flestir sakna Jóns Stefánssonar og Ásgríms Jónssonar mest, en ekkert málverk er eftir þá á sýningunni. Var Ásgrími og Jóhannesi Kjarval boðin heið- ursþátttaka í sýningunni og á Kjarval þarna þrjár fagrar og auðugar myndir, er hanga á millivegg og blasa við, þegar inn er komið. Munu þær sjálf- sagt vekja meginathygli sýn- ingargesta, og má þær lengi skoða, ef til hlítar skulu kann- aðar. Fagrar myndir og sér- kennilegar eru þar að sjálf- sögðu eftir marga aðra málara og hefir þar hver sitt til ágætis, og yrði oflangt mál að fara mörgum orðum um hvern einn að þessu sinni. Mörgum mun mjög starsýnt á hinar glæsilegu myndir Gunnlaugs Blöndals, hinar hlýlegu blóma- og aldin- myndir Kristínar Jónsdóttur, starfslífsmálverk Gunnlaugs Schevings og Jóhanns Briem og málverk Finns Jónssonar og Jóns Þorleifssonar. Nýliðarnir á sýningunni eru Jón Guðmundsson, Baldvin Björnsson, Benedikt Guð- mundsson og Magnús Jónsson prófessor. Mun Baldvin vekja mesta athygli af þeim. Ekki verður þó um það dæmt, hversu gott yfirlit um íslenzka málaralist nú þessi myndsýning gefur. Myndirnar eru nokkuð einhæfar, hvort sem myndavalinu er um að kenna, eða hinu, að efni hafi eigi til þess staðið, að. fjöl- breytnin yrði meiri. Höggmyndir eru eftir Ás- mund Sveinsson, Ríkarð Jóns- son, Martein Guðmundsson og Guðmund Einarsson frá Mið- dal. Eru margar þeirra mjög fagrar. Andlitsmyndirnar á sýningunni eru margar mjög vel gerðar. Vcrðlag á líflömbum Eftir lögum um fjárskipti á fjárpestarsvæðunum, ber kjöt- verðlagsnefnd að ákveða hvaða verð skuli gefið fyrir lömbin, sem keypt eru til að flytja á fjárskiptasvæöin. Að haustinu skal áætla það og miða við þunga lambsins lifandi, en þeg- ar sölu sláturfjárafurða er lokið, skal verðið endanlega ákveðið, og þá þannig, að sá, er seldi, hafi hvorki hagnað né skaða af. Nú hefir kjötverðlagsnefnd ákveðið, að í haust skuli borga lömbin þannig, eftir þunga þeirra lifandi: í lömbum, 1.00 kr. fyrir kg. sem vega kg. 27 —31.5 1.05 — — — 31.5—33.5 1.10 — — — 33.5—34.5 1.15 — — — 34.5—35.5 1.20 — — — 35.5—39.5 1.25 — — — 39.5—41.5 1.30 — — — 41.5—44 1.35 — — — yfir 44 Ætla má, ef sala sláturfjár- afurðanna gengur líkt og menn gera sér vonir um, að á þetta verð komi síðar veruleg uppbót. Morgunblaðið birtir síð- astl. sunnudag forystugrein um tap það, sem ríkissjóð- ur verður fyrir af völdum áfengisbannsins. Segir blað- ið, að það muni alltaf nema 4—5 millj. kr. Morgunblaðið virðist enga aðra leið sjá til að bæta úr þessum tekjumissi ríkissjóðs en að opna áfengissöluna aftur. Aðrar tekjuöflunarleiðir virðast ekki koma til greina. Þar sem líklegt má telja, að Mbl. hafi aðallega haft gamal- kunnar tekjuöflunarleiðir í huga, þykir rétt að benda því á alveg nýtt úrræði, sem blaðið hefir vafalaust ekki íhugað. Það er þó byggt á rannsókn þess sjálfs og atvinumálaráðherrans, Ólafs Thors. Morgunblaðið og Ólafur Thors hafa iðulega skýrt frá því, að hinn mikli gróði Eimskipafé- lagsins síðastliðið ár hafi sama og engin áhrif haft á dýrtíðina í landinu. Hún hafi aukizt um eitthvað 6/7 úr stigi eða þar um bil, vegna þessa gróða Eim- skipafélagsins. Þessir útreikningar Mbl. hafa að vísu verið véfengdir af ýms- um. Það hefir ekki þótt trúlegt, að gróði Eimskipafélagsins, sem var 4.3 milj. kr. á síðastliðnu ári, hafi engin áhrif haft á dýr- tíðina. Það er svipuð upphæð og bændur á verðjöfnunarsvæði Reykjavíkur hafa fengið fyrir alla selda mjólk á síðastliðnu ári. í blöðum Sjálfstæðismanna hefir því einmitt verið haldið fram, að mjólkurverðið væri ein aðalorsök dýrtíðarinnar. í seinustu hagtíðindum birtust nokkrar helztu niðurstöðutölur úr reikningum bankanna. Samkvœmt þeim námu seðlar í umferð 39 millj. kr. í ágústlok s. 1., en seðlaveltan nam 13 millj. í ágústlok 1940 og hefir hún því þrefaldazt síðan landið var hernumið. Inneignir bankanna erlendis í lok á- gústmánaðar námu 143,8 millj. kr., en í apríllok 1940 námu skuldir þeirra er- lendis 9,6 millj. kr. í ágústlok s. 1. námu innlög í bönkunum 203,3 millj. kr., en útlán þeirra námu á sama tíma 92,7 millj. kr. Hafa útlánin staðið í stað síðan um áramót, en innlögin hafa hækkað um 63 millj. á sama tíma. t t t Fréttaritari blaðsins í Sandgerði hefir skýrt svo frá: Hlutafélagið „Garður" er að reisa hraðfrystihús hér í þorpinu um þessar mundir. Sildveiði í reknet hefir engin verið um tíma, sökum ótíðar, en nægar tunnur og saltbirgðir eru til. — Hér er fyrir skömmu lokið upptöku úr kartöflu- görðum og er uppskera með lang- bezta móti. Lítið sem ekkert bar á myglu í garðlöndum þorpsbúa í sumar, en stöngulsýki varð vart á stöku stað. Gulrófur spruttu svo vel í sumar, að miklar birgðir eru til af þeim í þorp- inu, en markaður er mjög tregur fyrir þessa tegund garðávaxta og lítur út fyrir að mjög illt verði að koma gul- rófunum í verð. Þá er heyfengur manna í Miðneshreppi meiri en hann En Ólafur Thors og Mbl. segj- ast hafa rannsakað það ná- kvæmlega, að 4.3 milj. kr. álag Eimskipafélagsins á farmgjöld- in hafa sama og ekkert aukið dýrtíðina, en 4 milj. kr. fyrir mjólkina til bænda hafa aukið hana stórkostlega. Ef þessi rannsókn Ólafs Thors og Mbl. er rétt, virðist það hægur vandi fyrir ríkissjóðinn að vinna upp tekjumissinn af áfengisbanninu. Ráðið er ekk- ert annað en að leggja 4—5 | milj. kr. álag á farmgjöldin hjá j Eimskipafélaginu. Enginn þarf að greiða neitt meira, ef það er gert. Það segja a. m. k. Ólafur Thors og Morgunblaðið. Morgunblaðið þarf því ekki að vera neitt stúrið yfir því, þótt ríkið missi tekjurnar af áfenginu. Það sparar mörgum manni óþörf útgjöld, ef áfeng- ið fæst ekki, og Reykjavík verð- ur friðsamari og fegurri bær, ef mar,jta má lýsingu Mbl. 29. júní síðastliðinn. Það hefir því verið sannkallað neyðarúr- ræði að þurfa að selja áfengið til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð — og er það þá ekki sízt við hliðina á því snjallræði, að afla 4—5 milj. kr., án þess að nokk- ur vérði var við það. En þannig yrði það með hækkun farm- gjaldanna hjá Eimskipafélag- inu, ef rannsókn Ólafs Thors og Mbl. reyndist rétt. Hér er því fundinn tekjuöfl- un, sem allir ættu að geta orð- ið sammála um, að væri að öllu leyti æskilegri og snjallari en áfengissalan — svo framarlega, sem enginn meinbugur er á rannsókn Ólafs Thors og Morg- unblaðsins. hefir verið um langan aldur. Alls eru sjö bændur í hreppnum, sem stunda eingöngu landbúnað. En um tuttugu heimilisfeður styðjast að meira eða minna leyti við garðrækt og búpen- ingseign. Undanfarið hafa bændur í Sandgerði stundað sjósókn á vertíðum, svo sem kunnugt er. En nú er þetta að breytast, aðallega af tvennskonar ástæðum. í fyrsta lagi er mikil at- vinna í landi, sem bæði er vel laun- uð og handhæg fyrir þá. í öðru lagi sækja nú stóru mótorbátarnir frá Sandgeröi á sömu mið og trillubát- arnir veiddu á, og hefir komið fyrir að þeir hafi stórskemmt veiðitæki smá- bátanna. Er búizt við að í vetur rói aðeins 2 trillubátar frá Sandgerði, í staðinn fyrir eina 10, sem undanfarið hafa stundað sjó þaðan. t t t Frá Danmörku hefir sú fregn borizt, aö Kaupmannahafnarháskóli hefði tekið gilda doktorsritgerð Óla P. Hjaltested, læknis. Vegna ófriðarins var fallið frá munnlegri vörn. Fjallar hún um rannsóknir 4 magavökva í berklaveiku fólki. Dr. Óli P. Hjalte- sted varð stúdent 1928 og tók læknis- próf 1934, og stundaði framhaldsnám við sjúkrahús erlendis árin 1934—1939. Vann hann þá að rannsóknum sínum og doktorsritgerð, er hann sendi Hafn- arháskóla snemma á ári 1940. r t t Undanfariö hafa slæmar gæftir í hinu þekkta enska vikuriti „New Statesman and Nation“ birtist fyrir skömmu síðan grein eftir H. N. Brailsford, sem var þá nýlega kominn úr ferðalagi um Bandarikin. Þar sem grein hans fjallar um viðhorf manna vestra til styrj aldarinnar, en afstaða Bandaríkjanna þykir nú mestu máli skipta, birtist hér útdráttur úr henni. — Ég kom með skipi, sem var í stórri skipalest. Samanlagt vörumagn, sem skipin fluttu, nam milljónum smál. Þar ægði saman öllum tegundum. Þar voru hergögn, flugvélar og mat- væli allskonar. Allt var þetta talandi tákn um vinarhug Bandaríkjaþjóðarinnar og vinnu hennar í okkar þágu. Jafnvel tundurspillirinn, sem fylgdi okkur, var að vestan. Enginn ferðamaður, sem kynnist slíku, efast um vilja Bandaríkjamanna til að styrkja okkur í baráttunni og styðja að sigri okkar. Án þessarar hjálp- ar myndi einangrunin hafa reynst okkur óbærileg. Hjálpin hefir aukizt stig af stigi og náði hámarki sínu með hertöku ís- lands, sem mæltist mjög vel fyrir vestra. En þetta hefir skapað þá trú hjá okkur, að þess muni skammt að bíða, að Bandaríkin taki beinan þátt í styrjöldinni. Dvöl mín í Bandarikjunum hefir sannfært mig um, að þetta er of mikil bjartsýni. Það má m. a. marka á því, að full- trúadeild þingsins samþykkti það með örlitlum atkvæðamun að lengja herþjónustutímann. Marshall hershöfingi, yfirmað- ur hersins, krafðist þess í ávarpi til þingsins, að leyfilegt yrði að senda ameríska herinn hvert þangað, sem nauðsyn krefði, og að herþjónustutíminn yrði lengdur úr einu ári og í þann tíma, sem reyndist nægilegur til að veita nauðsynlega þjálf- un. Tillögur þessar hlutu mikl- ar óvinsældir. Mennirnir, sem gegndu herþjónustu, töldu sig hamlað reknetaveiði í Faxaflóa. En er batnandi veður og má búast við að veiði hefjist á ný innan skamms tíma. Alls stunda 60 bátar veiðar við Faxaflóa og var búið að salta 21.740. tunnur af síld hinn 6. þ. m. miðað við uppsaltaðar tunnm-. Meiri iiluti síld- arinnar var magadreginn og kverk- aður. t r r Á Vífilsstöðum nam töðumagnið i sumar 2100 hestum og kartöfluupp- skeran varð um 80 tunnur að þessu sinni. Auk þess var ræktað mikið af grænmeti þar. En nokkuð af því var notað strax í sumar, jafnóðum og það óx. — Á Kleppi nam töðufengurinn 1800 hestum og kartöfluuppskeran 80 tunnum. Kartöflusprettan var góð, en nokkuð bar á sýki, og vegna ótíðar þeirrar, sem gengið hefir undanfarið, var erfit að þurrka kartöflumar. r t t Um þessar mundir er einmuna góð tið í Skagafirði. Slátrun stendur yfir þessa dagana, bæði á Sauðárkróki og á Hofsós. Garnaveiki hefir orðið vart á þremur bæjum í viðbót. Er það á: Syðri-Brekkum, Hofdölum og Hofsstöð- um. Allt eru þetta fjármörg heimili og er vafalaust að niðurskurður verði ekki umflúinn á þessum bæjum. Mæðiveik- in gerir nú mikinn usla norðan Vatns- skarðs-girðingar. Nýlega varð hennar vart í fé frá Illugastöðum í Laxárdal. (Framh. á 4. nðu) svikna. Einstaka deildir rufu agann og sendu mótmæli til Wheeler öldungadeildarþing- manns, eins aðalleiðtoga ein- angrunarmanna. Aðrar hengdu upp mótmæli meðfram vegum, sem þær fóru um. Roosevelt fór því ekki lengra en að fá seinni tillögu Marshall hers- höfðingja samþykkta. Hann sýndi þar enn stjórnmálahygg- indi sín og lægni. Frumvarp um lengingu herþjónustutímans var samþykkt með miklum meirahluta í öldungadeildinni, en rétt skreið í gegnum full- trúadeildina. En þetta er ekki eina merkið um að treysta ekki á styrjald- arþátttöku Bandaríkj anna fyrst um sinn. Meginmálið er það, að þótt alltaf sé verið að vara Bandaríkjamenn við hættun- um, þá finna þeir samt ekki nálægð þeirra og eru andvara- minni af þeim sökum. Banda- ríkjamenn finna ekki enn, að þeir þurfa að færa einhverjar fórnir til að tryggja framtíð sína og frelsi. Þess vegna fer enn ýms persónuleg eyðsla vax- andi. Sérhyggja einstakling- anna verður þess valdandi á þann hátt, að framtak þjóðar- innar í vígbúnaðarmálunum verður stórum minna en ella gæti orðið. Þýzk-rússneska styrjöldin ýtti undir mótspyrnuna vestra gegn styrjaldarþátttöku. Hoover greip strax tækifærið og sagði, að nú væru rökin fyrir styrjald- arþátttöku úr sögunni. Rök- semdir hans, sem eru mjög út- breiddar, eru m. a. þær, að Rússar hafi nóga menn til að berjast og nú sé því aðeins að framleiða nóg hergögn og vistir handa þeim þjóðum, sem berj- ast gegn fasismanum með vopn í hönd. Hitt sé fjarstæða, að Bandaríkin eigi að senda her austur um haf til að skakka leikinn. Sú skoðun virðist mjög út- breidd vestra, að hægt sé að sigra Þjóðverja með stóraukn- um loftárásum á Þýzkaland, traustara hafnbanni og öflugri áróðri. Margir þeirra, sem þessu (Framh. á 4. síðu) Erlendar iréttír Þýzki herinn hefir hafið stór- fellda sókn á öllum vígstöðvun- um í Rússlandi. Er þetta álitin sú sókn, sem Hitler boðaði í ræðu sinni fyrir skemmstu. Að- alsóknin beinist til Moskva og Kharkov. Til Moskva er sótt úr tveim áttum, að suðvestan og norðvestan. Virðist það einnig tilgangurinn með þessari tví- örmuðu sókn, að innikróa her Timoshenko á miðvígstöðvun- um. Þjóðverjum mun þegar hafa orðið talsvert ágengt. Á slétt- um Suður-Ukrainu hefir Bud- jenny hafið gagnáhlaup með góðum árangri. Við Leningrad hafa Rússar einnig haldið uppi gagnáhlaupum. Segjast þeir hafa sent aukið lið þangað. Curtin, foringi ástralska verkamannaflokksins, hefir myndað stjórn í Ástralíu. Áður fór með völd samvinnustjórn tveggja borgaraflokka, sem studdist við eins atkvæðis meirahluta. Beið hún ósigur í atkvæðagreiðslu um fjárlög og lagði því niður völd. Verka- mannaflokkurinn er lang- stærsti flokkur þingsins og eru nú allir ráðherrarnir meðlimir hans. Aðrir flokkar hafa heitið stjórninni stuðningi í vígbún- aðarmálum, en hún hefir lýst yfir fullu fylgi við Breta. Á víðavangi UMKVARTANIR, SEM STJÓRNARVÖLDUNUM BER AÐ ATHUGA. Ýmsir þeirra, sem hafa orð- ið fyrir því. að brezka setuliðið hefir tekið af þeim lóðir og lönd, vegna hernaðaraðgerða, telja að oft gangi mjög erfið- lega að fá greiddar réttmætar skaðabætur. Forráðamenn setu- liðsins fáist iðulega ekki til að samþykkja þær kröfur, sem gerðar séu, og beitt sé ýmsum vafningum og undandrætti. Þá er látið heldur illa af störfum brezk-íslenzkrar nefndar, sem átti að fjalla um þessi mál. Er þetta athugunarefni fyrir hlut- aðeigandi íslenzk stj órnarvöld. Ef þessar ásakanir reynast rétt- ar ber þeim að ganga fast eftir því, að hlutur íslendinga sé ekki fyrir borð borinn. HERNAÐARYYFIRVÖLDIN OG ÍSLENZKIR EMBÆTTIS- MENN. í því furðulega plaggi, sem brezku hernaðaryfirvöldin hafa afhent blöðunum til birtingar í tilefni af skýrslu “ástands- nefndarinnar“, er bersýnilega reynt að tortryggja íslenzka em- bættismenn og því t. d. haldið fram, að óhæft fólk hafi verið látið vinna að skýrslusöfnun- inni. Með þessu hafa hernaðar- yfirvöldin byrjað frekleg af- skipti af íslenzkum málum. Hernaðaryfirvöldin gætu vel sett sig í okkar aðstöðu og hugsað sér að íslenzk blöð færu að ráðast á ýmsa starfsmenn hersins, teldu þá ekki hæfa til starfs síns o. s. frv. Slíkt væri hliðstætt opinberum ádeilum hernaðaryfirvaldanna á ísl. em- bættismenn. Hernaðaryfirvöld- in myndu vafalaust taka slíkar ásakanir óstinnt upp, og geta þau þá ætlazt til annars en að íslendingar geri hið sama? Þess vegna skal þeim ráðlagt, ef þau vilja halda áfram góðri sambúð íslendinga og brezka setuliðsins, að vera ekki að skipta sér af störfum íslenzkra embættismanna. UPPGJÖF ÍHALDSBLAÐANNA. íhaldsblöðin hafa ekki getað svarað hinni rökstuddu grein forsætisráðherra, sem nýlega birtist hér i blaðinu, með öðru en fúkyrðum. Vísir heldur áfram að kalla embættisveiting- ar hans með „endemum hlut- drægnislegar og ábyrgðarlaus- ar“, án nokkurs frekara rök- stuðnings, en þessi ummæli notaði hann fyrst um veitingu skólastjórastöðunnar við Flens- borgarskóla. Mbl. lætur sér nægja að svara því, að ráð- herrann álíti sig stóran, en sé lítill! Slíkur málfluningur sýn- ir bezt, hveru algerlega ráð- herrann hefir hrundið hinum órökstuddu og óverðskulduðu árásum blaðanna. SMJÖRLEYSIÐ. Alþýðublaðið kvartar sáran undan smjörleysi hér í bænum. Telur blaðið að það stafi ein- göngu af því, að Bretar fái mest af smjörinu. Þetta er full- kominn misskilningur. Mjólkur- búin eða aðrir stærri smjör- framleiðendur munu ekki selja Bretum neitt smjör, en verið getur að þeir fái eitthvað lítils- háttar hjá einstökum verzlun- um. Slíkt er vissulega vítavert, en erfitt mun vera að fyrir- byggja það, nema með ærnu umstangi, ef verzlunarmenn- irnir hafa ekki þann þegnskap að selja frekar löndum sínum en útlendingum. Aðalástæðan til smjöreklunnar er sú, að sára- lítið er nú framleitt af smjöri. Mjólkurframleiðslan er ekki meiri en það á þessum tíma árs, að hún gerir ekki miklu meira en að fullnægja eftirspurninni eftir neyzlumjólk. Auk þess er mikil eftirspurn eftir rjóma, (Framh. á 4. síBu) .A IKIZR,O S S C3-ÖTTJ3VE Úr reikningum bankanna. — Frá Sandgerði. — Nýr doktor. — Síldveiðiri í Faxaflóa. — Ríkisbúin á Vífilsstöðum og Kleppi. — Úr Skagafirði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.