Tíminn - 20.12.1941, Page 4
526
TlMKVN, langardagiim 20. des. 1941
132. blað
ÚR BÆNPM
Jólatrésskemmtun
Pramsóknarfélaganna í Reykjavík
verður 4. janúar í Oddfellowhúsinu.
Þátttöku barna er nauðsynlegt að til-
kynna sem fyrst á afgreiðslu Tímans
(sími 2323) og í síðasta lagi á gamlárs-
dag. Að lokinni barnaskemmtuninni
verður áramótaskemmtun Pramsókn-
armanna og gesta þeirra. í
Jólablaö tímaritsins Freyr
er nýlega komið út. Blaðið er prýtt
myndum og flytur auk þess margar
greinar eftir ýmsa landskunna menn.
Meðal annars eru þar greinar eítir:
Sigurð Nordal, ávarp til Vestur-íslend-
inga eftir biskup Islands hr. Sigurgeir
Sigurðsson og Jólahugleiðing dalbónd-
ans eftir Þorbjörn Björnsson bónda að
Geitaskarði. Auk þess eru í blaðinu tvö
kvæði eftir Guttorm J. Guttormsson
og Landnemaljóð eftir Einar P. Jóns-
son. Frágangur blaðsins er allur hinn
smekklegasti.
Dæmdur fyrir hylmingu og
bruggun.
í gær var Einar Ágústsson dæmdur
1 lörétturétti Reykjavíkur til 30 daga
fangelsisvistar óskilorðsbundið. Einar
haíði gerst sekur um óleyfileg við-
skipti við setuliðsmenn, yfirhylming og
bruggun.
Stal bókum og seldi fornsala.
Nýlega var í aukarétti Reykjavíkur
kveðinn upp dómur yfir manni, sem
stal bókum af Bæjarbókasafninu og
seldi þær fornsala. Maðurinn laumaði
bókunum smám saman á sig og tókst
að stela 23 bókum á þann hátt. Fyrir
þetta var hann dæmdur i 30 daga
fangelsi skilorðsbundið.
Dæmdur fyrir fölsun.
Fyrir skömmu kom maður nokkur
með skrifaðan miða til heildsala hér í
bænum og kvaðst hafa verið beðinn
fyrir hann af bónda í nágrenni bæjar-
ins. Á miða þessum var heildsalinn
beðinn að afhenda bréfberanum 25
kr.,' sem bóndinn kvaðst skyldi greiða
honum næst þegar hann kæmi til bæj-
arins. Heildsalinn greiddi komumanni
þessa fjárupphæð. En síðar kom í ljós
að miðinn var falsaður. Náunginn,
sem falsaði miðann, hefir náðzt og
verið dæmdur í 45 daga fangelsi óskil-
orðsbundið.
Loftvarnaræfingin
fór fram eins og auglýst hafðl ver-
ið, í gærkvöldi. Um ll leytið var gefið
loftvarnamerki og litlu síðar var bær-
inn myrkvaður. Sveinn Einarsson,
framkvæmdastjóri loftvarnanefndar lét
svo um mælt í viðtali við blaðið, að
yfirleitt hefði æfingin farið vel fram,
Sérstaklega tókst myrkvunin vel. Æf-
ingunni var að öllu leyti hagað eins
og um loftárás væri að ræða. Lögreglu-
lið, hjálparsveitir og slökkviliðið áttu
hvor um sig í höggi við þær raunir,
sem búast má við að þær lendi í, ef til
árásar kemur á bæinn. Tíðindamaður
blaðsins var í fylgd með þeim Sveini
Einarssyni og Axel Helgasyni lögreglu-
þjóni um Austurbæinn, en þar fór
fram verkleg kennsla í hvernig skuli
gera eldsprengjur óskaðlegar. Virtust
hverfisstlórarnir og aðrir, sem þátt
tóku í þessari æfingu, komast furðu
fljótt upp á að ráða niðurlögum eld-
sprengjanna. Væri mjög æskilegt að
almenningur gæti fengið verklega leið-
beiningu í þessum málum. En vegna
þess hve erfitt er að fá eldsprengjur
til slíkra æfinga í stórum stíl, ætti fólk
að legja kapp á að læra sem mest
í þessum efnum af hverfisstjórunum
og öðrum þeim, sem sérstaka æfingu
hafa fengið i meðferð eldsprengjanna.
Ef til loftárásar kemur, ríður einna
mest á því, að allir kosti kapps um að
slökkva eldana, sem eldsprengjurnar
kunna að valda, því að gera má ráð
fyrir að slökkviliði yrði að einbeita sér
að stærri eldsvoðum, sem að öllum lík-
Svíldartími . . .
(Framh. af 2. síðu)
legar verur, eða litasamsafn,
sem sýnist vera af marglitum
tuskum, sem saumakona hefir
jaðrað saman. Þegar ég sé hvað
eftir verður í geymslustaðn-
um, koma mér oft í hug mynd-
ir úr æskuendurminningum.
bar sem toppur af hrossanál
stóð eftir í haganum, af því að
grængresið í kring þótti hundr-
aðfalt betri beit. Óróleiki
hina markaðslausu listamanna
kemur að verulegu leyti af því,
að þeir fá hvorki fé né álit fyr-
ir verk sín, en halda að þeir
séu hins vegar í samræmi við
strauma listarinnar úti í lönd-
um. Einn slíkur málari hafði
sýningu i hálfan mánuð á
sæmilega góðum stað. Pélagar
hans hrósuðu list hans dag
eftir dag í blöðunum. Menn
komu til að sjá sýninguna, en
enginn keypti neitt. Hrossanál-
in stóð ósnert í haga lista-
mennskunnar. Út úr slíku von-
leysi kemur svo kuldinn ti!
brautryðjandanna í listinni,
sem verður vel til um viður-
kenningu, og hin leiða afbrýði-
semi við aðra myndgerðar-
menn, sem túlka viðfangsefnin
eins og þau koma smekkmönn-
um fyrir sjónir.
Tíunda sakargiftin er sér-
kennileg að efni til. Höfundarn-
ir ráðast á menntamálaráð fyr-
ir að hafa ekki forgöngu um að
veita listamönnum atvinnu við
að skreyta byggingar, gera
teikningar í bækur o. s. frv.
Eftir alla hina hörðu dóma um
menntamálaráð, fyrir ranglæti,
fáfræði og aulaskap, koma sömu
menn og biðja það að velja þeim
verkefni. Hvernig ættu blindir
menn að velja slík viðfangs-
efni. Kennir allmikillar van-
kunnáttu í því, að menntamála-
ráð ræður ekki yfir þeim verk-
efnum, sem hér er rætt um. En
ásökunin sýnir, að höfundana
langar í meirá fé. Og þeir
væru jafnvel til með að láta
hina útskúfuðu stofnun,
menntamálaráð , segja fyrir um
gerð listaverkanna, ef með því
væri unnt að fá auknar tekjur
handa mönnum, sem endranær
éru órólegir í skapi, og ógætn-
ir í orðræðum.
XXI.
Ellefta sakargiftin á hendur
menntamálaráði er fyrir, að
það hafi valið lítt hæfar mynd-
ir til að sýna á heimssýningu
í New York. En menntamálaráð
kom þar hvergi nærri. Kaup-
maður einn hér í bænum, sem
vann að sýningunni, valdi þær
myndir, sm hér ræðir um, og
sendi þær vestur. En höfund-
unum mun hafa þótt meiri
slægur í menntamálaráði held-
ur en kaupmanninum og þss-
indum mynduðust, ef árásir yrðu gerð-
ar á bæinn.
S A V O N
de
P A R I S
varðveita hörund yðar
— gera það mjúkt og
heilbrigt og verja það
öllum kvillum. SAVON de PARIS
er mjúk sem rjómi og hefir
yndislegan hressandi rósailm. —
Noíið beztu otj vönduðustu sápuna!
- Notið SAVON de PAIUS -
OPIÐ VERÐUR UM JÓLIIV, eins og hér segir:
(kl 7,30 f. h. — 3 e. h. Fyrir bæjarbúa.*
Mán. 22. des. (kl. 3 e. h. — 5 e. h. Fyrir hermenn.
(kl. 5,15 e. h. — 10 e. h. Fyrir bæjarbúa.
Þri. 23. des. (kl. 7,30 f.h. — 7,30 e. h. Fyrir bæjarbúa.*
(kl. 7,30 e. h. — 10 e. h. Fyrir hermenn.
Mið. 24. des. (kl. 7,30 f.h. — 12 á h. Fyrir bæjarbúa.
(kl. 1 e. h. — 3 e. h. Fyrir alla karlmenn.
Fim. 25. des. Lokað allan daginn.
Fö. 26. des. (kl, 9 f.h. — 12 á h. Fyrir bæjarbúa.
Mið. 31. des. (kl. 7,30 f. h. — 3 e. h. Fyrir bæjarbúa.*
(kl 3 e. h. — 5 e. h. Fyrir alla karlmenn.
Fim. 1. jan. Lokað allan daginn.
ATH. Aðra daga opið sem venjulega. — Látið börnin koma fyrri-
hluta dags. — Miðasalan hættir 45 mínútum fyrir her-
manna- og lokunartíma. — * kl. 7,30—10 f. h. einnig fyrir
yfirmenn úr hernum.
Geymið augiýsinguna! Sundhöll Reykjavíkur.
______GAMLA BÍÓ
Rófadrottnlngin.
(Persons in Hiding).
J. CARROL NAISH
PATRICIA MORISON
LYNNE OVERMAN.
Aukamynd: þ
HÆTTAN Á
ATLANTSHAFINU
(Crisis in the Atlantlc).
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd kl. 7 og 9.
Áframhaldssýning
kl. 3V2—6V2:
BLAÐAMAÐURINN, SEM
VISST OF MIKIÐ!
(Grand Jury Secrets)
_______NÝJA BÍÓ ------i
Með frekjnnni
hefst það.
(HARD TO GET).
Fyndin og fjörug amerísk
skemmtimynd.
Aðalhlutv. leika:
DICK POWELL,
OLIVIA DE HAVILLAND
BONITA GRANVILLE
CHARLES WINNINGER.
Sýning kl. 7 og 9
Lægra verð kl. 5.
—-------------
vegna beint árásunum þangað,
sem síður skyldi.
Tóifta og síðasta atriðið er
stórorð áskorun til þings og
þjóðar, að láta enga nema
listamenn koma nærri mynda-
kaupum ríkisins. Er þeirri á-
kæru fullsvarað áður. Mætti, ef
á þyrfti að halda, sýna opin-
berlega það eina málverk, sem
landið hefir eignazt, þannig að
listamaðurinn valdi handa
væntalegu listasafni. Þar má
segja, að verkin geti talað.
Þegaf litið er í heild yfir ásök-
unarskjal hinna óánægðu mynd
gerðarmanna, má segja, að það
sé nokkuð einstakt í sinni röð.
í því er nokkuð mikið af ó-
sannindum, en hitt er þó miklu
meira að fyrirferð, sem er efnis-
lega rangt sökum fáfræði
þeirra, sem sömdu bréfið. Um
þessa fáfræði má segja, að hún
er óvenjulega víðtæk. Höfund-
arnir vitna til hinna fornu
bókmennta og handritagerða
og vita þó ekki um undirstöðu-
atriði málsins. Þeir leyfa sér að
bera saman ófrumlegar nú-
tímastælingar í viðvaningslegri
myndagerð íslenzkra kommún-
ista við brautryðjendastarf
þeirra, sem rituðu snilldarverk
fornbókmenntanna á íslenzku,
þegar aðrar þjóðir lítilsvirtu
tungur feðra sinna.
Síðan bæta þeir við þeirri fá-
ránlegu lífsskoðun, að allir
nema listamenn séu blindir,
þegar dæma skal um gildi lista.
En ef þessi kenning væri sönn,
yrðu myndgerðamennirnir að
mynda heim út af fyrir sig og
lifa hver á öðrum. Lítið myndi
um logndaga í því einkennilega
þjóðfélagi. Menn geta stórlega
undrast, að svo lítið skuli verða
úr tylft röskra manna, er þeir
leggja út á leikvöll mannfélags-
ins, og myndu ókunnugir hafa
búizt við meiru. En hér kemur
margt til greina. Sóknarskjalið
á hendur hinu íslenzka mann-
félagi er stílfært af þrem kom-
múnistum í hópnum, og síðan
borið til annarra og þeir hvatt-
ir til að skrifa undir, án þess
að kynna sér vel efnið. Sást
það bezt, að Kjarval vildi ekki
vera með í hópnum, er hann
hafði kynnt sér málið til hlítar.
Kommúni&tar þeir, sem kom-
ið hafa af stað þessum um-
ræðum, hafa þó gert nokkurt
gagn með atferli sínu.
Öllum má nú vera ljóst, að
gæfa myndgerðarmannanna er
að stunda sína list með trú-
mennsku og samvizkusemi og
að muna vel, í hvaða landi þeir
eru fæddir og við hvers konar
lífsskilyrði þjóðin á að búa. Er
gott til þess að vita, að forustu-
menn íslenzkrar myndlistar
hafa vel varðað þá leið, svo að
þar þarf ekki að vera villu-
gjarnt.
En að öllu samtöldu eru
myndgerðarmenn vanalega lítt
fallnir til að ráða fram úr
mannfélagsmálum. Þar er
heimur, sem þeir þekkja frem-
ur lítið, og er þess að vænta,
þar sem hugur þeirra er tengd-
ur allsólíkum viðfangsefnum.
Einar Jónsson hefir skapað hin
djúpsæju og merkilegu verk í
listasafni sínu, en Bjarni frá
Vogi og ýmsir athafnamenn i
landinu létu reisa húsið yfir
þessi listaverk og höfund
þeirra. Þannig verður þessi
verkskipting bezt og fullkomn-
ust. Menn með listagáfur og
þroskaðan fegurðarsmekk skapa
myndir þær, sem lifa, og vekja
hrifningu og aðdáun allra, sem
kynnast þeim. En þorgarar
landanna eru æðsti dómstóll
um gildi listaverkanna. Þeir
myndgerðarmenn, sem ekki
treysta sér til að standast þenn-
an dóm eiga enga von annarra
forlaga en að vera „teknir úr,
Börnín bidja um
Mýsnar og myiluhjólið
bókína með gatínu.
umferð“ og skjótlega gleymast.
XXVI.
Þau listamannaefni, sem hafa
mótast undir þunga ægilegra
styrjalda hafa nokkra afsökun,
þó að ójafnvægi ríki í sál
þeirra. Má glögglega sjá mun-
inn á vonsælli lífsskoðun, sem
dafnað hafði í skjóli langvar-
andi friðar, og hinna truflandi
áhrifa taugastríðsins. Nokkrum
misserum fyrir heimsstríðið
1914—1918 lætur skáldið frá
Laxamýri móður syngja við
barn sitt:
„Sofðu unga ástin mín,
úti regnið grætur.“
Eftir stríðið lætur skáldið frá
Laxnesi syngja yfir vöggu
barnsins:
„Sofðu nú svínið þitt,
svartur í auga.“
í þessum fjórum ljóðlinum
liggur skýringin á straumhvörf-
unum í heimi listarinnar. Stór-
ir og ægilegir landskjálftar hafa
gengið um mannheim. í stað
þess að áður fyr var leitað að
fegurð, þá skapast sú tizka, að
gera ljótleikann að hugsjón. Að
því leyti, sem sá skoðunarhátt-
ur nær tökum á mannssálun-
um fæðir hann af sér tómleik
og andlegan vanmátt. Einar
Jónsson myndhöggvara óraði
fyrir komu þessa aðsteðjandi
stórveðurs, þegar hann lét orð
falla um, að nú myndi i aðsigi
nokkur hvíldartími í heimi
listanna. J. J.
Ingolfsbúð
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
A
◄
◄
é
Hafnarstræti 21.
Sími 2662.
Nú eru leikföngin komin í hundruðum tegunda, en aðeins
lítið af hverri.
Handa DRENGJUM:
Cowboybúningar, strætisvagnastjóra- og hermannabún-
ingar, smíðatól, útsögunartæki, mekkanó, kubbakassar,
fallbyssur, trumbur, hestar, hundar, bangsar, boltar o. fl. o.fl.
Handa TELPUM:
Brúður í fjölbreyttu úrvali, allskonar saumakassar, sem
ekki hafa fengist hér áður, brúðurúm, hjúkrunarkvenna-
búningar, bolla- og matarstell úr gleri og aluminium, hús-
gögn í brúðuhús í fjölbreyttu úrvali o. fl. o. fl.
JÓLAPAPPÍR — JÓLAKORT — JÓLASTJAKAR.
Gleðjið vini yðar með jólagjöf úr
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
Ingólfsbíið. ►
r -v -v 'v 'v'w'w'w'w yr "v vv'ww'v v vv ^
Tilkynning:
frá Baðhúsi Reykjavíkur
Baðhúsið verður opið fyrir jólin sem hér segir:
Mánudag 22. des. fyrir almenning frá kl. 8 f. h. til 10 e. h.
Þriðjud. 23. fyrir bæjarbúa eingöngu kl. 8 f. h. til 12 á miðn.
Miðvikud. 24. fyrri bæjarbúa ingöngu kl. 8 f. h. til 2 e. h.
Aðeins tekið á móti pöntimum á kerlaug-
rnn, sem afgreiðast samdægurs.
KAUPI CULL
langhæsta verði
SIGURÞÓR,
Hafnarstr. 4.
ÞÚSUXDIR VITA
að æfilöng gæfa fylgir hringum
frá
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4.
♦ ÚTBREIÐIÐ TíMANN ♦
Þeir, sem neyta sódavatns hér
á landí, nota nær eíngöngu
Eéils
sódavatn