Tíminn - 31.12.1941, Page 2

Tíminn - 31.12.1941, Page 2
\ ukablað TllirVX. migvikadagfim 31. des. 1941 Ankablað með nokkrar nýjungar, sem les- endum ætti að falla vel í geð. En það er ekki nóg. Allir, sem kirkjunni unna, ættu að styðja málgagn hennar sem bezt, bæði með því að skrifa í það og út- breiða það. Jakob Jónsson. Náttúrufræðingurinn 3.— 4 h. 11. árg. Útgef.: Hið íslenzka náttúrufræðafé- lag. Ritstjóri Árni Frið- riksson. Guðmundur heitinn Bárðar- son og Árni Friðriksson hófu útgáfu þessa rits upp á eigin spýtur. Stöan Guðmundur féll frá hefir Árni jafnan verið rit- stjóri o_g lengst af útgefandi ritsins. í því hefir smám sam- an verið birt flest það, sem auk- ið hefir verið við þekkingu á náttúru landsins síðasta áratug- inn. Enda þótt frágangur hafi oft borið vott um vanefni, er Náttúrufræðingurinn í röð hinna merkustu tímarita, sem út hafa komið hér á landi. Þetta síðasta hefti er snoturt að frágangi og margar merki- legar ritgerðir í því. Má þar helzt til nefna Beitusmokkinn eftir ritstjórann, Frá fsafjarð- ardjúpi, eftir Steindór Stein- dórsson og Kleifarvatn, eftir Pálma Hannesson. Öll lestrarfélög ættu að halda Náttúrufræðinginn og svo allir þeir, sem hafa gaman af nátt- úrufræði. J. Ey. Skinfaxi, tímarit U. M. F. í„ 2. h. 32. árg. Ritstj. Eiríkur J. Eiríksson, prestur og kennari að Núpi í Dýrafirði. Þetta er mjög snoturt hefti, bæði að efni og frágangi. Það hefst á ritgerð eftir Jóhann Frímann: Snorri í Reykholti. Um eitt skeið var Skinfaxi aflvaki í íslenzku þjóð^fi, sem Iangdrægt mætti líkja við Fjölni á sinni tíð. Þá var ritstjóri Jón- as Jónsson, en hann var þá lítt eða ekki farinn að gefa sig við opinberum stjórnmálum. Þá börðust ungmennafélagar fyrir eldheitum áhugamálum, t. d. fánanum, og voru hvergi hræddir, þótt móti blési. Ennþá eru Ungmennafélögin merki- legur og drengilegur þáttur í þjóðlífinu, en varla eins í far- arbroddi vegna þess, að önnur og fleiri samtök starfa nú við hlið þeirra að sömu áhugamál- um, svo sem íþróttafélög og bindindisfélög. Ungmennafélögin leggja fulla stund á að vera óháð öllum stjórnmálaflokkum og er það vitanlega rétt. Þetta má þó ekki ganga svo langt, að þau þori ekki að gera mun á hvítu og svörtu. Það er t. d. erfitt að sjá, hvernig þeir menn geta átt samleið með ungmennafélög- um, sem aðhyllast öfga- og ofbeldisstefnur, en dæmi munu til að slíkir menn hafi jafnvel verið og séu í formannssæti. Og dekri félögin við slíka menn, en afneiti þeim, sem mest hafa unnið að stefnumálum félag- anna, þá hlýtur mörgum að koma í hug hið fornkveðna, að eigi beri skepnunni að rísa upp gegn skapara sínum. Það ligg- ur við að manni detti í hug vanmáttarkennd í því sam- bandi. Núverandi ritstjóri og sam- bandsstjóri er maður elnarður og drengilegur, enda mun starf og vegur U. M. F. í. vera vax- andi undir stjórn hans. J. Ey. Guðmundur G. Hagalín: Barningsmenn. Útg.: Sjó- mannadagsráð ísfirðinga. 390 bls. 8vo. Verð í kápu kr. Þetta eru sögur og þættir um sjómenn og sæfarir. Höfundur- inn er alinn upp á skútuöldinni á Vestfjörðum. Sjálfur hefir hann verið skútukarl, þekkir skúturnar og skútukarlana af eigin reynd. Hann kann að sigla nauðbeitt, Ijúfara og lið- ugt, ef í það fer og hann „gef- ur“ skútunni segl eftir því, sem hún þolir, þekkir allt á þilfari og reiða eins og rúmið sitt. Á milli bregður hann sér ofan í hásetaklefann og spjallar við karlana um sæfarir og mann- lega náttúru, eins og gengur og gerist. Enda þótt flest, sem í þessari bók er, hafi áður verið prentað, fer vel á því, að hafa það í einu safni. Það fer varla hjá því, að sögur og frásagnir Hagalíns um sæfarir og sægarpa verði sí- gildur þáttur í íslenzkum bók- menntum þessarar aldar. J. Ey. K O T i 9 S J A F IV A R Stangasápu Hreinlætisvörur frá SJÖFN mæla með sér sjálfar — Þær munu spara yð- ur mikið ómak við hreingerningarnar O P A L RÆSTIDUFT Allt frá Sjofn 4ÚTBREIÐIÐ TÍ M ANN ♦ r Oskum öllum samvinnumönnum og öðrum viðskiptavinum gleðilegs nýárs og þökkum samstarfið á liðna árinu Samband ísL samvinnufélaéa. GLEÐILFGT \tÁR! Niðursuðuverhsmiðja S. t. F. GLEÐILEGS AÝAííS! óskum vér öllum viðskiptavinum vorum. V erhsmiðjjuútsalan Gefjun — Iðunit, Aðalstrasti. GLEÐILEGT IVÝAU! Ruftíehjaverhsmiðjjan h.f. GLEÐILEGT NÝAlI! Prentsmiðjan Edda H.F. GLEÐILEGT AÝ\R! -1 H I =<;!»!! I ?! I I.Tl Shipaútfierð ríhisins þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. GLEÐILEGT NÝAR! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Kexverhsmlðjan Frón h.f, GLEÐILEGT IVÝAlI! Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. \erzlun O. EUinffsen h.f. GLEÐILEGT IVÝAR! Þökkum viðskiptin á iiðna árinu. Smjörlíhisfferðin Asffarður h.f. GLEÐILEGT IVÝAR! Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Litír & Lökk í GLEHILEGT IVÝÁR! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. EMarverhsmiðjan Gefjun. GLEÐILEGT IVÝAR! Þökk fyrir liðna árið. Sláturfélaff Suðurlands. Óshum öllum viðshiptavinum FARSÆLS IVÝARS! Jón Loftsson, byffffingurefnaverzlun, Vihurfélaffið h.f. GLEÐILEGT IVÝAlI! Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Bræðurnir Ormsson. (Eiríhur Ormsson). GLEÐILEGT IVÝ ÍR! 1 *fl \ og þökk fyrir viðskiptin á árinu, sem er að líða. Eimshipafjelaff tslands. - —— Nýársdag 1. jan. 1942. Heiðruðu viðskiptavinirZ Um leið og vér þökkum fyrir góðar viðtökur og viðskipti á hinu liðna ári og óskum yður farsældar á hinu nýja, leyfum vér oss að tilkynna, aö heildverzluninni Jóh. Karlsson & Co., sími 1707, pósthólf 434, hefir verið veitt söluumboð fyrir allar framleiðsluvörur vorar frá og með 1. janúar 1942, og eru skrif- stofur hennar í sambandi við skrifstofur vorar og á sama stað og áður. Vlrðingarfyllst. pr. pr. VERKSMIÐJAN MAGNI H.F. Jóh. Karlsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.