Tíminn - 03.03.1942, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAOUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON
ÚTOEFANDl:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÖRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÍJSI, Llndargötu 9 A.
Simar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AVGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Slmi 233S.
PRENTSMIÐJAN EDDA hj.
Símar 3048 og 3730.
26. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 3. marz 1942
Viðfangsefni þjóðarinnar,
sem krefjast bráðastrar úrlausnar
9. blað
Leitað að þremur
vélbátum
„Bliki44 fórst í fyrra-
dag. Mannbjörg varð.
„Aldan“ strandaði við
Grindavík I gær. Skip-
verjar björgnðnst.
Vélbáturinn eign Helga
Benediktssonar útgerðarmanns i
Vestmannaeyjum, fórst í fisk-
róðri í fyrradag. Skipsverjar af
„Blika“ björguðust allir í annan
bát, sem flutti þá til V.estmanna-
eyja. „Bliki“ var 22 smál.
Á sunnudagsmorguninn var
veður allsæmilegt í Eyjum og
réru því flestir fiskibátarnir
þaðan. En þegar kom fram á
daginn, gerði afspyrnuveður með
mikilli fannkyngi og stórsjó.
Kom þá mikill leki að mótur-
bátnum „Blika“ og sökk hann
eftir skamma stund. En bátverj-
um tókst að sigla „Bliku“ upp
að öðrum bát og komust þeir um
borð í hann við illan lelk. Var
það vélbáturinn „Qissur hvíti.“
Um miðjan dag í gær vantaði
enn þrjá báta frá Eyjum. Voru
það „Þuríður formaður“, „Ald-
an“ og „Ófeigur“.
,.Freyja“ var þá alveg nýkom-
in, en hana vantaði í einn sólar-
hring. í fyrrinótt hitti „Freyja“
„Ölduna“. Var hún þá mikið
biluð. Dró „Freyja“ hana áleiðis
til Vestmannaeyja, en hún slitn-
aði aftan úr og hvarf út í sort-
ann og rokið.
Síðdegis í gær barst sú frétt
frá Grindavik, að „Aldan“ hefði
strandað þar,. en mannbjörg
hefði orðið.
Slysavarnafélag íslands hefir
fengið allmörg skip til að leita
hinna bátanna, en þeir voru
ekki fundnir, þegar blaðið átti
tal við skrifstofu félagsins kl.
10 í gærkvöldi.
Vélbáturinn „Ægir“, sem fór
í róður frá Keflavík á laugar-
dagskvöldið, var ekki kominn
fram um tíuleytið I gærkvöldi.
Heyrðist til talstöðvar hans um
hádegisleytið í gær. Var þá
kominn leki að honum.
Slysavarnafélag íslands hefir
fengið skip til að leita að Ægi.
Gistihúsíð „Þrasta-
lundur" brann í
íyrrínótt
Gistihúsið Þrastalundur brann
til kaldra kola á 9. tlmanum í
fyrrakvöld. Brezka setuliðið
hafði húsið á leigu og starfrækti
þar hvíldarheimili fyrir her-
menn.
Um kl. 8,40 á sunnudagskvöld-
ið veitti Árni Jónsson bóndi að
Alviðru í Grafningi því athygli,
að stórkostlegan reykjarmökk
lagði upp af norðurálmu gisti-
hússins. Var strax augljóst að
þarna var um mikinn eldsvoða
að ræða. Á Alviðru er land-
slmastöð og brá Árni bóndi strax
við, er eldsins varð vart, og náði
tali af sýslumanninum í Árnes-
sýslu, Páli Hallgrímssyni, og
skýrði honum frá hvað væri að
gerast. Páll gerði setuliðinu að
Selfossi aðvart þegar í stað og
var samstundis sendur liðsafli
þaðan til þess að hjálpa til að
ráða niðurlögum eldsins. Húsið
brann til grunna á tæpum
klukkutíma og sluppu íbúar þess
allir lifandi út, en sumir nauðu-
(Framh. á 4. slOu)
Ályktun aðaliundar míðstjórnar Fram-
sóknarílokksins 19.-26. i. m.
Á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins, sem
haldinn var hér í Reykjavík dagana 19.—26. febrúar
síðastl., var samþykkt þessi ályktun um verekefni þau,
sem flokkurinn ætti að leggja á mest kapp að koma í
framkvæmd á næstunni:
„Um leið og; aðalfundur miðstjórnarinnar vísar til ályktana
flokksþings Framsóknarmanna 1941 um stefnu flokksins í lands-
málum, telur hann rétt að leggja áherzlu á, að nú verði sérstak-
lega unnið að framgangi eftirfarandi mála:
1. Miðstjórnin lýsir yfir því, að hún lítur svo á, að Framsókn-
arflokkurinn hafi af þjóðarnauðsyn tekið upp baráttuna gegn
sívaxandi dýrtíð. Telur hún rétt, að haldið verði uppi sam-
vinnu á þingi ög í ríkisstjórn við aðra lýðræðisflokka, ef
þeir vilja í alvöru og með festu vinna að því, að sem beztur
árangur náist í þeirri baráttu.
2. Skattalöggjöf landsins verði breytt á þá leið, að tryggja rík-
inu og bæjar- og sveitafélögum sem mestan hluta hins ó-
venjulega stríðsgróða, til að vinna gegn dýrtíðinni og tryggja
framtíðina.
3. Lagður sé til hliðar sem mestur hluti hinna óvenjulegu tekna
ríkisins, ,tii framkvæmda að styrjöldinni lokinni. Efcnnig
verði komið á almennum skyldusparnaði, er tryggi einstakl-
ingum nokkra sjóði til eigin notkunar, þegar að kreppir.
4. Hafizt sé handa um framkvæmd þeirra laga, er sett hafa
verið um landnám ríkisins, og sú löggjöf aukin og endur-
bætt, svo sem með þarf, til þess að sem mestur og skjótastur
árangur náist í því, að fjölga býlum í sveitum landsins handa
ungu fólki, er sveitirnar vilja byggja, en ekki á kost viðun-
andi jarðnæðis. Verð eindregið að því stefnt, að koma sem
mestum jöfnuði á kjör manna um híbýlakost og önnur þæg-
indi, hvar sem þeir eru búsettir á landinu, hvort heldur í
sveit eða kaupstað. — Til þess að greiða fyrir fjölgun býla,
telur fundurinn m. a. nauðsynlegt, að ríkið tryggi sér land
sem víðast, þar sem skilyrði eru góð um ræktun og sam-
göngur. — Þá telur fundurinn nauðsynlegt, að löggjöf verði
sett, er tryggi ríkinu forkaupsrétt að jarðhita og jarðhita-
svæðum, þegar sala á sér stað, og að heimildir til kaupa á
þeim eignum verði notaðar.
5. Haldið sé áfram viðleitni flokksins um að styrkja og auka
samvinnu útvegsmanna um viðskiptamál þeirra, svo og end-
urnýjun og aukningu skipaflotans og tryggingarmál út-
gerðarinnar. Jafnframt séu hafnar- og lendingarbætur í
veiðistöðvum styrktar svo sem verða má, enda séu lóðirnar
almanna eign, eða það tryggt, að umbæturnar komi al-
menningi að notum án óeðlilegrar verðhækkunar aðliggj-
andi lóða og landa. Ennfremur sé að því unnið, að koma fé-
iagsmálum útvegs- og fiskimanna í sem fullkomnast horf,
með því að endurskipuleggja Fiskifélag íslands á svipaðan
hátt og búnaðarfélagsskapinm
6. Hafinn sé undirbúningur að auknum iðnaði í sveitum og
sjávarþorpum, þar sem heppileg skilyrði eru talin til slíkra
framkvæmda. Jafnframt sé ungu fólki gefinn kostur á að
búa sig undir þau störf, sem aukin iðja í Iandinu hefir í
för með sér.
7. Fundurinn telur það brýna nauðsyn, að framleiðslugetu
aðalatvinnuveganna sé haldið óskertri, þrátt fyrir styrjöld-
ina, 'og beri því á allan hátt að vinna að því áfram, að tak-
marka sem mest þann vinnukraft, sem gengur til erlendrar
þjónustu. — Eins og nú standa sakir, munu atvinnuvegir
landsmanna sjálfra hafa þörf fyrir allan þann vinnukraft,
sem fyrir hendi er, enda munu þeir þurfa að sjá honum
farborða, er aftur þrengir að og því aðeins um það færir, að
þeir dragist ekki saman nú vegna skorts á vinnuafli.
8. Flokkurinn beiti sér fyrir því, að hafnar verði nú þegar at-
huganir og rannsóknir til undirbúnings framkvæmdum,
sem í verði ráðizt þegar efni og vinnuafl verður fyrir hendi,
og áætlanir gerðar um þessar framkvæmdir. — f þessu
sambandi vill miðstjórnin sérstaklega benda á rafmagn
handa sveitum og kauptúnum, ræktun og landnám í sveit og
við sjó, byggingar vega og brúargerðir, símalagningar, hafn-
arbætur og iðnaðarframkvæmdir, þar sem fyrst og fremst
yrði unnið úr innlendum hráefnum.“
Kosníngafrestiinm
Aðalfundurlnn samþykkti svohljóðandi tillögu um frestun
kosninga til Alþingis:
„Stjórnarflokkarnir komu sér saman um það á Alþingi svo að
segja einróma, að fresta almennum kosningum til Alþingis síð
astliðið vor. Skömmu síðar reis djúptækur ágreiningur milli
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins um það, hvernig bæri
að skilja og framkvæma samkomulag þetta um kosningafrest-
unina. Hafa þessir flokkar síðan krafizt kosninga sitt á hvað.
Frestun almennra kosninga til Alþingis er að áliti Fram-
sóknarflokksins því aðeins réttmæt og framkvæmanleg, að til
staðar sé, auk alveg sérstakrar knýjandi nauðsynjar á frestun-
inni, svo að segja einróma samþykki allra aðalflokka þingsins
Eins og þessum málum er nú komið, telur Framsóknarflokk-
urinn alveg óumflýjanlegt, að almennar Alþingiskosningar fari
fram á vori komanda.“
Allmargar fleiri tillögur voru samþykktar á fundinum, og
verður þeirra getið siðar.
Hin nýja sölubúð Kron í Keflavík.
„Yið byggjum aldrei nógu stórt“
Kron Iieflr relst í Keflavík eitt fullkomnasta
verzlunarhús landsins.
í fyrradag bauð Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis tið-
indamönnum blaða og útvarps
að vera viðstöddum vígslu nýs
verzlunarhúss í Keflavík. Auk
þess var stjórn félagsins. ásamt
mörgum gestum, viðstödd.
Hið nýja verzlunarhús Kron
í Keflavík mun að öllu saman-
lögðu, vera eitt bezta og full-
komnasta verzlunarhús landsins.
Húsið stendur á hornlóð Hafn-
argötu og Lækjargötu, og er 320
fermetra að flatarmáli. Það er
einlyft með kjallara undir
nokkrum hluta og byggt í þrem
álmum. Búðin sjálf er ca. 150
fermetrar og snýr að Lækjargötu
og Hafnargötu. Beint inn af inn-
gangi. búðarinnar er glervöru-
og búsáhaldadeild, skófatnaðar-
deild, vefnaðarvörudeild og
bóka- og ritfangadeild. Til
vinstri handar eru matvöru-
kjöt- mjólkur- og brauðadeild-
ir. — í sambandi við mjólkur-
og brauðadeildina verður rekinn
mjólkurbar, og er það fullkomin
nýjung í starfsemi félagsins. í
beinu sambandi við búðina eru
vigtunarherbergi, geymslur fyr-
ir matvörur, fóðurvörur og bygg-
ingarvörur. Auk þess eru í verzl-
unarhúsinu skrifst. og snyrtiher-
bergi fyrlr afgreiðslufólk. í stóru
porti, sem fylgir húsinu, er kola-
geymsla og bilskúr.
Öllum vörum búðarinnar er
fyrirkomið með einkar hag-
felldum hætti. Það vekur meðal
annars athygli, að þær vörur,
sem mest eru keyptar, eru sam-
eínaðar á aðgengilegustu stöð-
um búðarinnar. Búðarborðin
eru öll færanleg og byggð með
tilliti til þess, að hægt sé að
skipa þeim á mismunandi vegu
eftir því, sem kröfur tímans
kunna að heimta.
Teikningar allar að húsinu
önnuðust Halldór Jónsson húsa-
Uppvöðslusemí ame-
rískra hermanna
Árdegis á sunnudaginn stöðv-
uðu amerískir hermenn 1 Mos-
fellssveit i stóra fólksbifreið, er
var í áætlunarferð milli Reykja-
víkur og Reykja. Ráku þeir fólk-
ið, er í bifreiðinni var, inn í her-
mannaskýli og höfðu það þar í
haldi í margar klukkustundir.
Var því loks sleppt eftir mikla
vafninga og langdregna rann-
sókn, að því er blaðið hefir frétt.
Sama dag bar það og til að
Reykjum í Mosfellssveit, að
amerískir hermenn skutu að
manni, er var á gangi við gróðr-
arhús þar efra. Tóku þeir hann
síðan höndum og yfirheyrðu, en
létu hann að því búnu lausan
eftir nokkurt þóf. Fulltrúi sýslu-
mannsins í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu var uppi í Mosfellssveit
í gær að rannsaka málavexti.
Þeirri rannsókn er eigi lokið og
hefir ekkert verið látið uppi um
orsakir þessara atburða.
meistari og Sigurður Thorodd-
sen verkfræðingur. Byggingar-
meistari hússins var Þórður Jas-
onarson. Búðarborð voru smíðuð
af Friðriki Þorsteinssyni.
Keflavíkurdeild Kron tók
strax til starfa 1937, þegar Kron
var stofnað. Hefir starfsemi
hennar stöðugt eflzt og aukizt,
en þó aldrei eins og á síðastl.
ári. Þá fjölgaðl félagsmönnum
úr 143 í 231 og salan ókst úr 200
þús. kr. í 382 þús. kr. Með bygg-
ingu verzlunarhússins hefir
starfsaðstaða Keflavíkurdeildar-
innar verið stórum bætt og mun
það vafalaust reynast rétt, sem
félagsmálafulltrúi Kron sagði
við blaðam. Tímans i fyrradag:
ViS byggjum al.drei nógu stórt.
Svo ör hefir vöxtur Kron verið
hingað til, að húsnæði, sem
reyndist því nóg 1 fyrstu, hefir
verið orðið of lítið eftir stuttan
tíma. Sú mun og verða reyndin
við hið nýja verzlunarhús þess
í Keflavík.
Deildarstjórl Keflavíkurdeild-
ar Kron, er Ragnar Guðleifsson,
en í stjórn deildarinnar eru þeir
Guðni Guðleifsson, Guðni Magn
ússon og Valdimar Guðjónsson.
Erlendar Sréttir
Japanlr hafa sett lið á land
á þremur stöðum á Java. Á
föstudaginn geisaði mikil sjó
orusta við Java. Höfðu
Bandamenn orðið varir við
stóra flota Japana, sem nálg-
uðust eyjuna, og voru í þeim
hátt á annað hundrað skip
Herskip Bandamanna, aðallega
beitiskip og tundurspillar,
lögðu strax til orustu, studd
flugvélum. Eftir harða orustu
virðast þau hafa orðið að hörfa
og munu Japanir hafa notið
þess, að þelr höfðu meiri
skipakost. Japanir telja, að
Bandamenn hafi í þessari við-
ureign misst eitt beitiskip og
tvo tundurspilla, en Banda-
menn telja, að Japanir hafi
misst tvö beitiskip, annað
stórt, og þrjá tundurspilla. Auk
þess telja þeir sig hafa sökkt
tugum herflutningaskipa og
nemi manntjón Japana tugþús
undum. Á laugardaginn tókst
Japönum að setja herlið á land
á þremur stöðum, eins og áður
segir, auk mikilla hergagna, m.
a. skriðdreka. Hafa þeir sótt
talsvert fram. Sókn þeirra bein-
ist bæði til höfuðborgarinnar
Batavíu og flotahafnarinnar
Surabaya. Bæði brezkar og
ameriskar hersveitlr berjast
með Hollendingum. Framkoma
ameríska flughersins er mjög
rómuð 1 sjóorustunni við Java
og er talið, að hann einn hafi
sökkt um 20 skipum.
Hinn innikróaði her Þjóðverja
í Staraya Rússa hefir enga hjálp
fengið. Rússar segjast óðum
þrengja hringinn. Þeir tilkynna
sókn á öllum vígstöðvunum
Þjóðverjar láta mikið af sókn
Rússa á Krimskaga. Ýmsir telja
(Framh. á 4. siðu)
Á víðavangi
REYKVÍKINGAR!
Verum viðbúnir að mæta
verðhruni og atvinnuleysi eftir
ófriðinn. Greiðum skuldir bæj-
arsjóðs, — Treystum atvinnu-
vegina. Kjósum B-listann.
„AÐ VERMA SITT HRÆ
VIÐ ANNARRA ELD.“
Árni frá Múla gefur í skyn í
Vísi á laugardaginn, að Sogs-
virkjunin sé árangur af bar-
áttu Sjálfstæðisflokksins.
Vegna þessa tilefnis þykir
rétt að minna á eftirfarandl:
Árið 1928 bauð þýzkt firma
lán til að virkja Sogið íyrir
milligöngu Sigurðar Jónasson-
ar, Bæjarstjórnarmelrihlutinn
hafnaði boðinu.
Árið 1930 bauðst sænskt firma
til að vinna verkið. Enn hafnaði
bæjarstjórnin tilboðinu.
Þann 23. febr. 1933 felldu
Sjálfstæðisfulltrúarnir i bæjar-
stjórn eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórnin telur beztu
og sjálfsögðustu leið til þess að
bæta úr raforkuþörf bæjarins,
að bærinn sjálfur eða ríkið virki
og reki roforkustöð við Sogið.“
Öll þessi ár vann Sigurður
Jónasson kappsamlega að mál-
inu og fékk liðveizlu ýmsra
Framsóknarmanna og Sjálf-
stæðismanna. Meðal þeirra var
Hjalti Jónsson. En aðalmenn
Sjálfstæðisflokksins héldu á-
fram að vera á móti virkjun-
inni og töldú nóg að auka Ell-
iðaárstöðina.
Smámsaman snerust fleiri og
fleiri Sjálfstæðismenn á band
Hjalta Jónssonar. Það réði úr-
slitum að lokum, að Hjalti ætl-
aði að kjósa Sigurð Jónasson
fyrir borgarstjóra, ef Sjálfstæð-
isflokkurinn vildi ekki fallast á
Sogsvirkjunina. Er þessu ræki-
lega lýst í æfisögu Hjalta.
Þannig er sagan af baráttu
Sjálfstæðisflokksins í Sogsmál-
inu. Stöðugt a ndóf á árunum
1928—33. Þá varð hann að snúa
við blaðinu, þvi annars hefðl
hann misst borgarstj órann í
Reykjavík og verkið verið unn-
ið af öðrum.
Slík er venjulega saga aftur-
haldsins |í öllum umbótamál-
um. Langvinn mótstaða, en
síðan. er reynt að eigna sér um-
bæturnar, þegar sigurinn er
unninn.
HIN HEILAGA EINFELDNI?
Rétt fyrir helgina skrifar einn
af frambjóðendum Sjálfstæðis-
manna, Sigurður Sigurðsson
skipstjóri, grein í Morgunblað-
ið undir fyrirsögninni: „Aukin
útgerð i höndum Sjálfstæðis-
manna skapar hagsæld almenn-
ings í bænum." — Samkvæmt
þessu ætti bæjarfélagið að
vinna gegn því að nokkur mað-
ur ráði yfir fleytu, ef hann fylg-
ir ekki Sj álfstæðisflokknum að
málum, því að slík útgerð skap-
ar ekki hagsæld.
Ef fullyrðing Sigurðar skip-
stjóra er tekin bókstaflega,
virðist það eitt geta vakað fyrir
honum, að enginn flokkur nema
Sj álfstæðisflokkurinn eigi rétt
á sér. — í Þýzkalandi á aðeins
einn stjórnmálaflokkur rétt á
sér og sama máli gildir í Rúss-
landi.
Hvort er það heldur einræðis-
hneigð eða heilög einfeldnin,
sem stýrir penna þessa vænt-
anlega bæjarfulltrúa?
ALÞÝÐUBLAÐIÐ LÆTUR
DÓLGSLEGA.
Alþýðublaðið fárast yfir þvl,
að fjárve'itingarnefnd Alþing-
is hefir skorað á ríkisstjórnina
að leggja fram nokkurt fé til
þess að halda útsöluverði á er-
lendum áburði óbreyttu frá því,
sem var í fyrravor, — en inn-
kaupsverðið hefir hækkað til
stórra muna. Einn fulltrúi jafn-
aðarmanna i nefndinni krafð-
ist þess á móti, að landbúnað-
arvörur væru lækkaðar í verði
(Framh. á 4. síðu)