Tíminn - 28.04.1942, Side 3
38. blaff
T\
10 11
þriðjndaginn 28. aprfl 1942
147
B Æ K U R
Jónas Hallgrímsson: LjóS
og sögur. Útgefandi Jón-
as Jónsson. Bókaútgáfa
MenningarsjóðS. Reykja-
vík 1941.
Namast verða skiptar skoðan-
ir um það, að Jónas Hallgríms-
son sé ástsælasta skáld íslenzku
þjóðarinnar, og það óskabarn
hennar, er hæst hafi náð I ríki
hins slípaða ljóðþroska. Á þeim
vettvangi er hann enn hin
glæsta fyrirmynd, og mun svo
verða í aldir fram.
Jónas alþingismaður Jónsson,
er búið hefir bók þessa úr garði,
heflr með því unnið þjóðjnni
hið mesta nytjaverk; val ljóða
og sagnakafla ákjósanlegt, og
stærð ritsins slíkt, 164 blaðsíð-
ur, að teljast verður jafnt við
allra lesenda hæfi.
Bók þessari fylgir útgefandi
úr hlaði með íturhugsaðri og
fágaðri ritgerð um fjölþætta
vakningarstarfsemi skáldsins
með íslenzku þjóðinni, og þau
andlegu umbrot, er Jónas, á-
samt öðrum Fjölnismönnum,
var frumkvöðull að. Er ritgerð-
in að öllu hin gagnmerkasta og
varpar eigi aðeins nýju ljósi á
þann kaflann úr lífi þjóðarinn-
ar, meðan Jónasar Hallgríms-
sonar enn naut við, heldur dreg-
ur og fram í dagsbirtuna djúp-
stæð áhrif skáldsins á andlegt
göfgi, málfar og fegurðarvit-
und íslendinga yfir höfuð fram
til vorra tíma. Það gengur
furðuverki næst, hve útgefanda
hefir lánazt að þjappa saman
í ekki lengri ritgerð, öðrum eins
feikna fróðleik um upprisu-
tímabil það í sögu landsbúa, er
með Jónasi Hallgrímssyni hófst,
eins og raun ber vitni um. Út-
gefanda hefir lánazt að lifa sig
inn 1 þetta áminnzta, símerka
vakningartímabil, og þess vegna
verða lýsingar hans á þvi að
lifandi ljósmyndum.
Þessari óvenjulega fögru og
drengilegu ritgerð um Jónas
skáld, lýkur nafni hans með
eftirgreindum orðum: „Ef til
vill líða að nýju nokkrar aldir,
þar til er slíkur fremdarmaður
fæðist á íslandi. En föðurlausi
drengurinn úr Öxnadal kom og
gekk fram í fylkingarbrjóst,
þegar hættan var mest. Hann
leiddi þjóð sina af eyðimörku
margra alda hnignunar áleiðis
til hins fyrirheitna lands."
(Úr Lögbergi. Ritstjóri þess
er Einar P. Jónsson, skáld).
Tilkynnið afgr. blaðsins tafar-
laust, ef vanskil verða á blaðinu.
Mun hún gera allt, sem í hennar
valdi stendur, til þess að bæta
úr því.
Svívirðing, sem
verður að hverfa
EíiSr Péfur Sígurðsson
Elnn er sá siður á landl vorú,
sem er hin mesta svívirða, og
verður að hverfa sem allra,
allra fyrst. Það eru skemmti-
samkomurnar I sambandi við
barnaskólana — i skólahúsun-
um, hvort heldur er um heima-
vlstarskóla að ræða eða aðra.
Mig undrar stórum, hvernig
nokkurt þjóðfélag, sem siðað
vill heita, getur umborið þetta
og búið starfsmönnum slnum,
kennurum eða skólastjórum
við þessa skóla, slíka kvöl. Fyrir
nokkru var ég sjálfur sjónar-
vottur að einni slíkri skemmti-
samkomu í húsakynnum heima-
vistarskóla. Nú vill svo til, að ég
er ekki einn til frásagnar um
samkomu þessa, þvi að fleiri
gesti bar að garði, auk sjálfra
skemmtunargestanna. Þarna
var ekki mikill drykkjuskapur,
því að þetta var eftir að áfeng-
isverzluninni var lokað, en
samkoman var fullkomin and-
styggð. Og ef nokkuð getur af-
mannað börn landsins, þá er
það slíkt skemmtanalíf. Menn
álpuðust áfram eins og væru
þeir fullir, og sumir voru fullir,
nóg er alltaf af öli og sígarett-
um á slíkum þingum, og menn
reyna að gerast ölvaðir af reyk
og ölþambi, ef ekki sterkara
býðst, að minnsta kosti svo ölv-
aðir, að þeir geti slagað út um
tún og sungið klámvisur og
slagara af verstu gerð. Öll kurt-
eisi og öll prúðmannleg fram-
koma er fyrir borð borin, flösk-
um er grýtt út um allt tún, og
menn ganga hver á annan I
göngum og forstofum eins og
blindir væru. Allt verður eins
drabbaralegt og frekast getur
orðið. — Ég reyni ekki að lýsa
þessu tll fullnustu. En ég sagði
við kunningja mína: Heldur
vildi ég fara tll Rússlands og
láta skjóta mig sundur og sam-
an, en að eiga yfir höfði mér
slíkar samkomur iðulega. Skóla-
stjórinn sagði líka við mig, að
þessu væri ekki hægt að una, og
það hlyti að reka sig burt frá
staðnum.
Þá hefi ég átt tal við ágætan
kennara, sem var skólastjóri á
einum slikum stað. Hann gafst
upp við þetta. Hann bauðst til
að koma heim til mín og segja
mér sögu sína, og sagði að hún
yrði Ijót. Það hefir þó ekki enn
orðið. En einn heimavistaskóla
heimsótti ég fyrir nokkru og
gisti hjá skólastjóra. Hann
sagðist mundi skrifa sögu sína,
er hann hefði látið af störfum
á þessum stað, og það yrði elnn-
ig ljót saga. Saga þessa skóla-
stjóra og konu hans gerði mig
ar ferðir frá Reykjavík til
helztu . hafna. Einhversstaðar
þætti það bágt á öld hraðans.
Og ekki prýðir einkasaga Mjóa-
fjarðar: Aukapóstur fer land-
veg með bréf í veg fyrir skipin
þegar þau koma að sunnan og
kemur með sunnanbréfin til
baka. Þá er sagan búin. Aðrar
samgöngur á vegum þess opin-
bera eru hér ekki. Fjörðinn
byggja þó hátt á annað hundr-
að sálir venjulegrat tegundar.
Er þetta til að hindra flótta
okkar úr dreifbýlinu?!
Á nýloknum fundi sýslunefnd-
ar Suður-Múlasýslu var sam-
þykkt einróma áskorun um
auknar skipaferðir milli Aust-
fjarða og Reykjavíkur. Mun það
mála sannast, að Austfirðingar
standi að samþykkt þessari allir
sem einn maður. Er þess að
vænta, að ráðamenn syðra
bregðist vel vlð og röggsamlega,
þrátt fyrir þá örðugleika, sem
nú eru um skipakost vegna
ófrlðarins. Fengjust þá viðun-
andi samgöngur við höfuðstað-
inn.
Hér með værl þó aðeins unn-
inn hálfur sigur. Þvi á sama
hátt og það telzt nauðsynlegt að
halda uppi reglubundnum bif-
reiðaferðum frá Reyðarfirði
víðsvegar um dreifbýli Fljóts-
dalshéraðs, á sama hátt og
önnur héruð þurfa sina flóa-
báta, þannig þurfa Austfirðing-
ar og að eiga sér hentugan far-
kost, sem bæti úr samgöngu-
þörf annesja og afskekktra
strandbyggða. Lausn þessa máls
hlýtur að byggjast á forgöngu
heima 1 héraði og stuðningi rík-
isvaldsins. Fæ ég ekki séð, að
hér sé um að ræða fjarlægt
hugsjónamál, sem hljóti að
þurfa áratuga baráttu. Þetta er
einföld en aðkallandi þörí, til-
tölulega auðleyst vandamál fyr-
ir samtök nokkurra dugandi
manna.
Meðan vertlð stendur yfir á
Hornafirði, hefir jafnan einhver
fleyta verið 1 förum milli Horna-
fjárðar og sjóþorpanna, þar
sem vermenn eiga heima. Hér
er um alveg sérstæða þörf að
ræða og aðra en þá, sem ég
drap á hér að framan. Þessar
ferðir eru ekki gerðar fyrir af-
skekktar strandbyggðir og bæta
því ekki úr þörf þeirra. Er vert
að gera sér þess fulla grein.
Að þessu sinni fjölyrði ég
ekki um málið, né geri tillögur
um einstök atriði. Vil þó láta
þá skoðun í ljósi, að okkur
mundi henta bezt fremur litill
bátur, t. d. röskar 20 smál. En
hann þyrftl að vera mjög gang-
mikill, og svo haganlega útbú-
inn, sem framast mætti verða.
Ætti hann svo að vera i stöðug-
um ferðum hér um firðina. Það,
sem ég tel einkum mæla með
litlum báti, er, hversu allsstaðar
er stutt á milll verzlunarstaða.
Sum verkefni mætti nefna:
Póstflutningar, og féllu þá niður
flestar eða allar landpóstferðir
með ströndum fram, farþega-
flutningar, sem til féllu, minni
háttar vöruflutningar fjarða á
milli, dreifing neyzluvara frá
verzlunarstöðvunum til af-
skekktra byggða, þar með fram-
haldsflutningurvörusendinga til
þessara staða, sem koma með
Erlendir ullarsokkar hafa verið auglýst-
lr hér undanfarið af miklu kappi. —
Vér höfum ávalt fyrirliggjandi fjöl-
breytt úrval af íslenzkum ullarsokkum,
sem eru alveg eins fíngerðir og þeir er-
lendu, en auk þess mjög hlýir, ódýrir og
endmgargóðlr. — íslenzku sokkarnir
eru seldir i verksmiðjuútsölu Iðunnar
og Gefjunar í Aðalstræti og ýmsum öðr-
um vefnaðarvöruverzlunum í Reykja-
vik. Út um land fást sokkarnir hjá
ílestum kaupfélögum og mörgum kaup-
mannaverzlunum. — í heildsölu hjá
Sambandi lsl. samvlnnuíéi., Reykjavik.
fullkomlega undrandi. Meðal
annars sagðist frúin telja það
guðsmildi, að hún hefði ekki
þurft að ala barn síðan maður
hennar tók við starfi á þessum
stað. Sér findist stundum, sem
væri hún stödd á skeri, sem
umflotið væri á alla vegu og þar
væri ekkert bjargráð. Þannig
hefir þetta gengið árum saman,
og ekki sízt þegar áfengissala
er frjáls og vissir menn, sem
þykjast ætla að kenna mönnum
að drekka, hafa getað stundað
þá áfengismenningu sína.
Á einni samkomu, sögðu þessi
hjón mér, voru aðeins tvelr eða
þrír menn algáðir um morgun-
inn, þegar hætta skyldi. Öllu
ægði saman, þar voru slagsmál
og vandræði. Einn lá á hnján-
um úti í snjónum og reyndi að
syngja „Ó, guð vors lands.“
Konan sagðist hafa horft á lög-
reglu úr Reykjavik berja menn
niður með kylfum sínum á
slíkum samkomum, og hefðu
menn þá orðið að slita samkom-
unni sökum ölvunar. Oft eru
þessar samkomur alla nóttina
fram á morgun, og þá á kennsla
að hefjast i skólanum eftir
stutta stund. Heimamenn eiga
að taka við húsinu, oít í ólýsan-
legu ástandi, og eru þá auðvitað
úrvinda af þreytu og svefnleysi.
Skólabörnin byrja þá ef til vill
daginn á því að tína saman öl-
flöskur í kringum skólahúsið,
og komið hefir það fyrir, að þau
hafa • komið hlaupandi með
getnaðarverjur og spurt, hvað
þetta væri.
Þessu verður víst ekki borin
of illa sagan, og skyldi nú eln-
hver hrökkva upp af standinum
og þykja þessl frásögn mín ljót
og ósennileg, þá er aðeins gott
að hann láti til sín heyra. Skeð
getur þá að fleira komi upp úr
kafinu. Þvi að þetta er svívirð-
ing, sem verður að kveðast nið-
ur, og er ósamboðin siðuöu
þjóðfélagi.
Annars er þetta skemmtana-
líf þjóðarinnar mesta vanda-1
mál, sem þyrfti að leysa á við-
unandi hátt. Ætli síðustu
Hvítasunnudagarnir verði ekki
mörgum minnisstæðir, er þar
komu? Eða verzlunarmanna-
samkoman þar fyrir nokkrum
árum? í öðrum landshluta
sagðist skólastjóri einn hafa
verið á samkomu, sem hefði
verið svo andstygglleg, að hann
hefði óskað þess, að hann hefði
aldrei verið sjónarvottur að
slíku. í fyrrasumar kom kona
ein, sem verið hefir ráðskona
við eina menntastofnun lands-
ins, á skemmtistað kl. 9 að
kvöldi dags. „Ég sá þar hrylli-
lega sjón,“ sagði hún, „þar var
ekki annað að sjá en fulla
menn og slagsmál, og niðurrif-
in veitingatjöld. Eitt tjald hékk
uþpi. Þar sátu drekkandi og
drafandi menn við borð, en veit-
ingastúlkurnar urðu að hafast
við með störf sin úti undir ber-
um himni, þvi að allt var nið-
urrifið.“ Ég skrifaði þessar setn-
ingar orðréttar eftir konunni.
Allar hafa þessar samkomur
farið fram undanfarin ár, þá
löglegt áfengi var á boðstólum
og andbanningar gátu stundað
sina áfengismeninngu. En hvað
sem þessu óleysta vandamáli
líður, þá getur þjóðin ekki ver-
ið þekkt fyrir að vígja til sam-
starfs drykkjusamkomur sínar
og heimavistarbarnaskólana.
Látið slíkt hverfa úr sögunni
sem allra fyxst.
Pétur Sigurðsson.
|\ Dragið ekki lengur að
|iVAI. gerast áskrifendur að
Dvöl, þessu sérstæða
tímariti 1 íslenzkum bókmenntum. —
Ykkur mim þykja vænt um Dvöl, og
þvi vænna um hana, sem þið kynnist
hennl betur.
Samband ísl. samvlnnufélaqa.
Að gefnu tílefni tilkynnist hér með, að fram-
kvæmdastjóri vor í New York, hr.- Helgl Þor-
steinsson og frú hans, taka ekki á móti neins-
konar beiðnum um vörukaup, nema að leyfi
vort komi til.
v
NIGLIWGAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanfömu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
CulliSord & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Kaupendur Tímans
Nokkrir menn i ýmsum hreppum landsins eiga ennþá eftir
að greiða Timann frá síðastliðnu úri, 1941.
strandferðaskipunum á hafn-
irnar, afurðaflutningar til
kaupstaðanna o. s. frv. Virðast
þetta ærin verkefni.
Nú eru fyrir dyrum margs-
konar kosningar. Þeim fylgja
jafnan fundahöld og mikil
ræðumennska, opinberlega og'
manna á meðal. Gefast þá
væntanlega mörg tækifæri til
að ræða áhugamál. Mundi engu
spilla að minnast þess mitt i öfg-
um stjórnmálanna, að til eru
sameiginleg áhugamál manna
úr öllum flokkum. Beini ég hér-
með þeirrl áskorun til áhuga-
manna hér I fjörðum, að þeir
hefjist handa um bættar sam-
göngur nú þegar. Láti í fyrsta
lagl rigna áskorunum um bætt-
ar samgöngur við höfuðstað-
inn yfir stjórnendur þeirra
mála syðra. Og svo í öðru lagi
og ekki síður: Taki til rækilegr-
ar meðferðar það mál, sem ég
hefi drepið á að framan. Ligg-
ur þar fyrst fyrir, að vekja al-
mennan áhuga og koma af stað
nokkurri hreyfingu. Efna síðan
til félagssamtaka, sem tækju
málið i sinar hendur og ynnu
markvlst að framgangl þess.
Vel má 1 þessu sambandi
minnast þess, að samgöngur I
nútíma þjóðfélagi eru hvort-
tveggja í senn, fjárhagsleg og
félagsleg nauðsyn.
Brekku I Mjóafirði á páskum ’42
Vilhjálmur Hjálmarsson.
Framsóknarmenn! Munlð að
koma 1 flokksskrifstofuna á
Lindargötu 9 A.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir I LANDSSMIÐJUNNI.
Það er fastlega skorað á þessa menn, að sýna skilsemi sína
sem fyrst með því að greiða blaðið annaðhvort beint til afgreiðsl-
unnar í Reykjavík eða til næsta umboðsmanns Tímans.
Auglýsið í Tímannm!
TSMI1\1V
er víðlesnasta anglýsingablaðiðl
464 Victor Hugo:
það, að okkur verði veitt viðnám í
kirkjunni. Munkarnir eru réttnefndir
hérar, og við erum mun fjölmennari.
Vikapilta þingsins gripum við svo í
fyrramálið, þegar þeir koma að sækja
hana. Ég sver það við páfans skegg, að
þessi undurfagra mey skal aldrei verða
hengd!
Klopin gekk út úr kránni.
Samtímis því æpti Jóhann hásri
röddu:
— Ég et og drekk, ég er ölvaður,
húrra! Ég er Júpiter! Heyrðu annars,
Pétur 1’ Assommeur! Ef þú hættir ekki
að glápa svona á mig, skal ég reka þér
bylmingshögg á nefið.
Gringoire, sem hafði verið vaklnn af
hugsunum sínum, tók nú að virða fyrir
sér það, sem fram fór umhverfis hann
og tautaði fyrir munni sér: — Luxuri-
osa res vinum et tumultuosa ebrietas!
Vissulega er það viturlega ráðið af mér
að drekka ekki. St. Benedikt hefir
fullkomlega á réttu að standa, þegar
hann segir: Vinum apostatare faclt
etiam sapientes!
í þessu kom Klopin inn og hrópaði
þrumandi röddu:
t- Miðnætti!
Þetta eina orð hafði þau áhrif, að
allir umrenningarnir, karlar, konur og
Esmerelda 461
fyrirfinna tvær myndastyttur. önnur
þeirra táknar Jóhannes skírara, hin
St. Antonius. Þær eru báðar úr skíru
gulli og geipiverðmiklar. Ég ætti svo sem
að bera skynbragð á slikt, þar sem ég
er gullsmiður.
í þessum svifum voru Jóhanni borin
matföng.
Hann vafði sessunaut sinn örmum og
hrópaði:
— Ég sver það vlð heilagan Voult-
de-Lucques, sem lýðurinn nefnir heil-
agan Goguelu, að nú er hamingja mín
fullkomnuð. Andspænis mér hefi ég
fávita, sem starir á mig, eins og hann
geri sér í hugarlund, að haxm sé her-
togl. Sá, sem situr mér til vinstrl hand-
ar, hefir tennur eins og stórhveli væri.
Mest er þó um það vert, að ég styð
hægri hendi á borð, eins og Gié mar-
skálkur í umsátrinu um Pontoise. Ja,
hver andskotinn! Þú lítur helzt út fyrir
að vera skransali og dirfist þó að setj-
ast við hlið mér! Ég er aðalsmaður,
vinur minn, og aðalsmaður og kaup-
maður njóta ekki sömu mannvirðinga.
Halló, þið þarna, viljið þið gera svo vel
og hætta að berjast? Hvað er þetta,
Kroque-Oison, ætlar þú að hætta þínu
fágra nafni undir heljarhramm þessa
dólgs? Non cuidam datum est habera
nasum! Þú ert sannarlega guðdómlegur