Tíminn - 28.04.1942, Page 4
148
TÍMIM, þriðlndaglnn 28. apríl 1943
38. blað
ÍJ R B Æ IV U M
Aðalstjórn
Eauða Kross íslands hélt fund þ.
18. þ. m. Á fundinum var kosin stjórn
og framkvæmdanefnd fyrir Rauða
Kross Islands. Fyrv. formaður, Gunn-
laugur Einarsson læknir, hafði eindreg-
ið beðizt undan endurkosningu sem
formaður. Formaður var kosinn Sig-
urður Sigurðsson berklayfirlæknir og
varaform. Jóhann Sæmundsson trygg-
inearyfirlæknir. í framkvæmdanefnd
voru auk þess kosnir Þorsteinn Schev-
ing Thorsteinsson, Magnús Kjaran,
Bjöm B. Árnason, Haraldur Árnason
og Sigurður Thorlacius. Á fundinum
var ákveðið að senda fyrverandi for-
manni, Gunnlaugi Einarssyni þakkar-
ávarp fyrir frábæran dugnað og á-
huga í starfi sínu, sem formaður
R. K. í. á árunum 1938—1942.
Sex lítil lög
til söngs og leiks eftir Hallgrím
Heleason tónskáld eru nýkomin út.
Þá hefir tónskáldið jafnframt fært í
búning og gefið út 22 þjóðlög. Hall-
grímur hefir fengið nokkurn styrk frá
Alþingl til þessarar starfsemi, sem
er mjög nauðsynleg. Það er lítið til
sóma, hversu ýms þjóðleg verðmæti
á sviði tónlistarinnar hafa verið van-
rækt til þessa. Hallgr. Helgason er ung-
ur maður, sem hefir mikinn áhuga
fyrir að verða að liði í þessum efn-
um og má því vænta góðs af þessari
starfsemi hans.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Þórey Magnús-
dóttir frá Hruna í Vestur-Skaftafells-
sýslu og Magnús Þórðarson, Ingólfs-
stræti 7, Reykjavík.
Eldspýturnar komnar.
Undanfarið hefir mikill hörgull verið
á eldsnvtum hér í bænum. Hefir vönt-
un á þessari vöru orðið víða til óþæg-
lnda. Blaðið hefir frétt eftir góðum
heimildum, að talsvert miklar birgðir
af eldspýtum séu komnar til landsins,
sem nægja munu langt skeið. Hver
stokkur af þessum nýju eldspýtum
kostar 10 aura, en eldspýturnar, sem
seldar hafa verið undanfarið, kostuðu
13 aura hver stokkur.
Gjöf til blindraheimilis.
Formanni Blindravinafélags íslands
voru færðar kr. 1000.00 að gjöf til
Blindraheimilissjóðs félagsins þ. 22. þ.
m. og vill gefandinn ekki láta nafns
síns getið. Fyrir þessa höfðinglegu
gjöf vill stjórn félagsins færa gefand-
anum sínar innilegustu þakkir og óska
honum gleðilegs sumars.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
Laufey Guðjónsdóttir frá Fremstuhús-
um í Dýrafirði og Magnús Kristjáns-
son starfsmaður hjá Kaupfélagi Hall-
geirseyjar.
Aðalfundur
Blindravinafél. íslands
var haldlnn 20. þ. m. Starfsemi fé-
lagsins var f'ölbreytt á árinu. Þrettán
blindir menn unnu lengri eða skemmri
tíma á vinnustofu félagsins. Auk þess
voru 4 mönnum útvegað heimavinnu
o- þeim séð fyrir efni. Tíu nýjum við-
tækjum var úthlutað meðal blindra
manna á árinu, 6 viðtækjum var end-
urúthlutað og 3 viðtæki, sem félaginu
voru ánöfnuð, voru lánuð, aðallega hér
í bænum. Miklir erfiðleikar voru á að
fá gömul viðtæki endumýjuð. Félagið
hófst handa um fjársöfnun til blindra-
heimilis á árinu. Ónefndur kaupsýslu-
maður og kona hans gáfu kr. 10.000 til
þessarar stofnunar. Auk þess bárust
félaginu samtals 2000 krónur í heim-
ilissjóðinn. Stjóm félagsins skipa: Þor-
steinn Bjamason, Þórey Þorleifsdóttir,
Helgi Tryggvason, Helgi Elíasson og
Guðm. R. Ólafsson.
Bálfarafélag' íslands
hélt aðalfund sinn 18. þ. m. Bygging-
arsjóður félagsins óx um rúmar 50 þús.
krónur á árinu. Gjaldkeri félagsins gat
þess á fundinum, að félagið hefði vil-
yrði fyrir fjárstyrk að upphæð 70 þús.
kr. úr bæjarsjóði Reykjavíkur og ríkis-
sjóði, sem væntanlega yrði greiddur
félaginu innan skamms. Þá gat for-
maður félagsins þess, að félagið hefði
sótt um leyfi til kaupa á byggingar-
efni til viðskiptamálaráðuneytisins.
Ef leyfið verður veitt, er fyrirhugað að
hefjast handa hið bráðasta um bygg-
ingu bálstofunnar á Sunnuhvolstúni,
en þar hefir bæjarráð Reykjavikur á-
kveðið bálstofunni stað.
Umferðin í bænum.
Eins og kunnugt er, hefir lögreglan
lagt sig fram um það undanfarið. að
kenna gangandi vegfarendum að fara
eftir reglum, sem settar eru varðandi
umferðina í bænum. Eftir heimildum,
sem blaðið hefir frá lögreglunni, er
mikill misbrestur á, að fólk taki nægi-
lega tillit til eða virðist skilja bend-
ingar lögregluþjónanna, sem stjórna
umferðinni. Þessi merki eru þó flest
mjög auðskilin. Hér skal til fært eitt
dæmi. Lögregluþjónn, sem stjórnar
umferð á krossgötum, stöðvar umfereð
fótgangandi manna á götu frá norðri
til suðurs, en umferð ökutækja held-
ur áfram eftir götunni. Lögregluþjónn-
inn snýr brjósti og baki eftir götunni,
sem umferð ökutækjanna er stöðvuð
á, sem í þessu tilfelli er gatan frá
vestri til austurs. Fótgangandi vegfar-
endur mega hins vegar fara yfir gang-
brautina á götunni frá austri til vest-
urs, því að á þeirri götu er umferð
ökutækjanna stöðvuð. í stuttu máli
er reglan þessi: Gangandi vegfarendur
mega aldrei fara yfir götu sem umferð
ökutækja er leyfð á þá tíma dagsins
eða á þeim stöðum, sem lögreglan
stjórnar umferðinni. Slíkt getur váldið
stórslysum. Þar sem umferðinni er
ekki stjórnað af lögregluþjóni, verða
gangandi veefarendur og þeir, sem
stjórna ökutækjunum, að hafa sam-
vinnu um að umferðin á götunni verði
sem skipulegust.
Aðalfundur
Ferðafélags íslands verður i Odd-
fellowhúsínu í kvöld kl. 8,30. Fyrst
vierða venjuleg aðalfundarstörf, en
síðan dans.
Ráðníngfarstofa
landbúnaðarins
tekur til starfa þriðjudaginn 28. þ. m. og verður opin fyrst um
sinn kl. 9—12 f.h. og 12 y2—6 e.h. í húsi Búnaðarfélags íslands,
Lækjargötu 14 B, sími 2718. —
/
VERKAFÓLK, konur, karlar og unglingar, sem vilja vinna að
landbúnaðarstörfum, ættu að snúa sér til skrifstofunnar sem
allra fyrst. — Ráðningarstofa landbúnaðarins.
Börn, unglingar eða eldra lólk
óskast til að bera Tímann til kanpenda
I bænnm frá næstu mánaðamótnm.
Upplýsingar í afgreiðslunni, Llndar-
götn 9 A — Sími 2323
Dvöl
kemur út eftir nokkra daga. í því hefti
verða sögur eftir Friðrik Ásmundsson
Brekkan, vestur-íslenzká rithöfundinn
Boga Bjarnason og Jón Óskar, kvæði eftir Jón Magnússon, Guð-
mund Inga Kristjánsson, Jónas Tryggvason í Finnstungu og
fleiri, lausavísur eftir ýmsa, merkilegar og skemmtilegar greinar
eftir Þorstein Jósepsson, Stefán Jónsson skólastjóra og fleiri,
umsagnir um nýjar bækur eftir Þórarin Guðnason lækni, Aðal-
stein Sigmundsson kennara og fleiri. Einnig eru í heftinu þýddar
úrvalssögur eftir Jacinto Octavio Picón, R. B. Cunninghame Gra-
ham, Unto Seppánen og Pár Lagerkvist. Sérstaklega skal bent á
sögu Cunninghame Grahams, er gerist á íslandi nokkru fyrir
síðustu aldamót. — Heftið er prýtt mörgum myndum.
Gerizt áskrifendur að Dvöl!
Simi 2353.
TtMARITIÐ D VÖL.
Pósthólf 1044. Lindargötu 9 A. Reykjavík.
Ungmennasamband ...
(Framh. af 1. síðuj
ungmennafélaganna í Borgar-
firði.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hefir verið á margan
hátt þýðingarmikið fyrir hérað-
ið frá fyrstu tíð. Það hefir jafn-
an gengizt fyrir héraðsmótum
á hverju sumri síðan það var
stofr^ið og borið hita og þunga
af þeim. Það hefir gengizt fyrir
fræðslustarfsemi, íþróttaiðkun-
um, söngstarfsemi, skógrækt o.
s. frv. En stærsta átakið gerði
það, þegar það beitti sér fyrir
að reisa héraðsskólann í Reyk-
holti. Lagði sambandið sjálft til
fyrstu 20 þús. krónurnar í
skólann og áhugaeldinn, er
hratt málinu í framkvæmd,
þótt þar væru einnig ýmsir
góðir framfaramenn héraðsins
að verki, ásamt hinum ötula og
áhugasama þáverandi mennta-
málaráðherra.
Nú á nýafstöðnum aðalfundi
U. M. S. B. hét sambandið 5000
kr. til styrktar því, að hús-
mæðraskóli verði reistur í hér-
aðinu. En fyrir því máli eru nú
kvenfélögin í Borgarfirði að
vinna. í fyrra, á aðalfundi sín-
um, hét sambandið 100 dags-
verkum til fegrunar í umhverfi
Reykholtsskóla, þá styður það
að því, að heimavistarbarna-
skólar verði reistir í héraðinu
og yfirleitt hvers konar menn-
ingarmál, sem á dagskrá eru í
Borgarfirði.
. Öll ungmennafélög héraðsins
hafa jafnan verið í U. M. S. B.,
nema félagið á Akranesi, sem
þar starfaði vel um eitt skeið.
En þó að þar sé flest fólkið, þá
varð það skammlífasta félagið,
þrátt fyrir nokkra ágæta menn,
sem það félag átti innan sinna
vébanda.
Bendir margt á það, að U. M.
S. B. hafi verið ómetanlegur
tengiliður ungmennafélaganna
í Borgarfirði undanfarin 30 ár,
aukið kynningu og félags-
þroska manna á milli og örvað
til dáða og framkvæmda í hér-
aðinu. V. G.
Aðalfundur
Ferðafélags fslands er
í kvöld (þriðjudag)
kl. 8I/2 í Iðnó.
STJÓKMTV.
Kaupendur Tímans
sem eiga 12., 13. eða
60. tbl. af sl. árgangi
og geta látið þau af
bcndi, ern vinsamlega
beðnir að senda þau
afgreiðslu blaðsins
með fyrstu ferð.
Verðlagseftirlitíð
(Framh. af 2. siBu)
irlitsins, bæði að því er snertir
erlendar vörur og innlendar
iðnaðarvörur.
Gróði verzlunarinnar
eðlilegnr, þrátt fyrir
verðlagseftirlitið
Sumir láta í ljósi undrun yfir
því, að verzlunum skuli hald
ast uppi að græða allveru-
lega. En geta þessir menn bent
á dæmi í nokkru landi, að verzl
anir ekki græði, þar sem eftir-
farandi skilyrði eru fyrir hendi:
1. Mikil umsetning og trygg
sala á öllum vörum, sem tekst
að útvega.
2. Stöðugt hækkandi verð og
því erfitt að híndra að
verzlanir fái ekki einhvern
gróða á verðhækkun birgða.
3. Engin skuldatöp eða töp á
verðhruni enn sem komið er.
Starfsemi Kaupfélags
Eyfirðinga . . .
462 Victor Hugo:
Jacqueline Rouge-Oreille. Verst er, að
þú skulir vera sköllóttur! — Halló! Ég
heiti Jóhann Frollo og erkidjákninn er
bróðir minn! Fjandinn hirði hann!
Hvert orð mitt er satt! Með þvi að
ganga í félagsskap ykkar, hefi ég af
fúsum vilja afsalað mér hálfu húsi í
himnaríki, sem bróðir minn hafði heit-
ið mér! Dimidiam domum in paradiso.
Ég vitna 1 hið ritaða orð. Ég á lén 1
Tirechoppestræti, og allt kvenfólk fellir
ástarhug til mín. Það er eins satt og
St. Floy var frábær gullsmiður! Kristur
og Múhameð. Hvað er þetta annars,
sem ég legg mér hér til munns? Halló,
kerlingarfjandi! Hárið, sem vantar á
stelpuskjáturnar þínar fínnur maður í
eggjakökunum þinum! En mér gezt nú
bezt að sköllóttum eggjakökum! Það
eru svo sem meðmæli eða hitt þó held-
ur með veitingahúsum, að þernurnar
greiði sér með göfflunum!
Er hann hafði þetta mælt, kastaði
hann diskinum i gólfið og rak upp
trylltan hlátur.
Þegar hér var komið • sögu, hafði
Klopin Trouillefon lokið við að miðla
vopnunum. Hann gekk þá til Gringo-
ires, sem virtist sitja í þungum þönkum
og hafði lagt fæturna upp á þrífót.
— Pétur! mælti konungurinn af
Esmeralda 463
Thunis. — Um hvern andskotann ertu
að hugsa?
Gringoire sneri sér að honum, og
þunglyndislegt bros lék um varir hans.
— Ég dáist að eldinum, kæri herra.
Ekki sökum hinna hversdagslegu nota,
sem hann veitir okkur eins og þeim, að
hann vermir fætur okkar og yljar
grautinn, heldur vegna þess, að hann
gefur frá sér neista. Stundum uni ég
mér tímunum saman við að horfa á
neistana. Ó, ég sé þúsundir hluta 1
þessum stjömum, sem blika á arnin-
um. Þær eru líka heimur fyrir sig.
— Fjandinn hafi það, að ég skilji
orð af því, sem þú segir, mælti um-
renningurinn. — Veiztu hvað klukkan
er?
— Nei, svaraði Gringoire.
Nú lagði Klopin leið sína til hertog-
ans af Egyptalandi.
— Félagi Matthías! mælti hann. —
Tíminn er ekkl skynsamlega valinn.
Það er mælt svo, að Lúðvík konungur
ellefti sé staddur í París.
— Þá er þeim mun meirl ástæða til
þess að hrifsa systur okkar úr lílóm
hans! mælti gamli Tatarinn.
— Þú talar bara eins og maður,
Matthías! hrópaði konungurinn af
Thunis. — Það er svo sem engin hætta
á ferðum. Við þurfum ekki að óttast
(Framh. af 1. siðuj
Þörfin fyrir byggingu sjúkra-
hússins er mjög brýn og verður
þessari málaleitun þvi vafa-
láust vel tekið á Alþingi.
St j órnarkosning.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga: Einar Árnason og Tngi-
mar Eydal. Voru þeir báðir end-
urkosnir. Einar hefir átt sæti í
stjórninni síðan 1906 og Ingi-
mar í 25 ár. Auk þeirra eiga sæti
í stjórninni Bernharð Stefáns-
son alþm., Kristján Sigurðsson
kennari, Dagverðareyri og Þór-
arinn Eldjárn hreppstjóri,
Tjörn í Svarfaðardal.
Að loknum störfum fyrri
fundardaginn, fóru fundarmenn
i boði kaupfélagsins að sjá sjón-
leikinn „Nýársnóttin“ eftir
Indriða Einarsson, en seinni
daginn, eftir að fundinum var
slitið, hlýddu fundarmenn á
söng hjá Karlakór Akureyrar í
Akureyrarkirkju. Ennfremur
flutti Jóhann Frímann ritstjóri
erindi um samvinnumál þar í
kirkjunni fyrir fundarmönnum.
Vinnið ötullcga fyrir
Tímunn.
Crtbreiðlð Tímann!
r rsAUT.* ntrt. __ NÝ.T» RtÓ
Fjórar hjúkrimarkonnr. (Four Girls in White). Amerlsk kvikmynd með FLORENCE RICE, ANN RUTHERFORD, ALAN MARSHALL. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. Sýnd kl. 7 og 9. Eyja hinna fordæmdu (Island of Doomed men). Spennandi sakamálamynd leikin af: PETER LORRE og ROCHELLE HUDSON. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang.
Framhaldssýning 314-614: Sýning kl. 5:
GÖTULÍF í NEW YORK. GÆFUBARNIÐ.
(Streets of New York) Söngvamyndin með
með Jackie Cooper. GLORIA JEAN.
i
Tilkynning:
um ínnkaup á járni og stáli.
Þar sem auknir örðugleikar eru nú á að fá járn og
stál afgreitt frá Bandaríkjunum, og telja má víst að af-
greiðsla þessara vara út á forgangsleyfi verði annað-
hvort engin, eða svo sein, að algerlega verði óviðunandi,
er hér með, að gefnu tilefni, öllum þeim, sem eiga
óafgreiddar pantanir á þessum vörum, bent á að snúa
sér nú þegar til Viðskiptanefndarinnar, ef þeir vilja
fela henni að annast kaup á þeim, þar sem heppnazt
hefir að fá útflutnings- og framleiðsluleyfi og fyrir-
heit um fljóta afgreiðslu á þessum vörum, ef þær eru
keyptar fyrir milligöngu nefndarinnar.
Sömuleiðis eru þeir, sem innflutningsleyfi hafa feng-
ið en ekki hafa enn gert pantanir, aðvaraðir um að
senda þær án tafar til Viðskiptanefndarinnar.
Viðskiptamálaráðuneytið, 27. apríl 1942.
Síýkomið
gott úrval af sportfata-
og drengjafataefnum. —
Gefjun - Iðunn
Aðalstræti
nrelnlætisvöror
frá SJÖFN
mæla með sér sjálfar —
Þær munu spara yð-
ur mikið ómak við
hreingerningarnar
O P A L
RÆSTIDUFT
Krystalsápn
A O T I Ð
Allt frá S j öf n
Framsóknarfélögf
sem enn hafa ekki sent skýrslur, eru beðin að gera
það með fyrstu ferð,
Skrifstofa Framsóknarflokksins
Lindargötu 9 A