Tíminn - 24.07.1942, Page 2

Tíminn - 24.07.1942, Page 2
TtMINN, föstiidaa'lim 24. júl. 1943 82. l»Iað Rafveitur ríkisins MerkUeg löggjöf seinasta Alþíngis í seinasta blaði var skýrt frá lögum um rafveitur ríkisins, er samþykkt voru á seinasta Alþingi fyrir atbeina Fram- sóknarmanna. Lög þessi marka þá mikilvægu stefnubreyt- ingu, að ríkisstjórninni er hér eftir heimilt að stofna og starfrækja rafveitur, en hingað til hefir verið litið á þetta sem hlutverk bæjar- og sveitarfélaga, ef ekki hefir verið um einkarafveitur að ræða. Hafa þess vegna aðeins hin fjölmennari bæjar- og sveitarfélög getað aflað sér þessara hlunninda. Hlutverk ríkisrafveitanna yrði fyrst og fremst að koma rafmagninu þangað, sem almenningur getur ekki aflað þess af eigin ramleik. Næsta sporið er, að tryggja fjármagn til framkvæmda þessum lögum og horfir nú byr- lega í þeim efnum, þar sem Mbl. hefir heitið rafveitumálum dreifbýlisins stuðningi Sjálfstæðisflokksins. Þar sem sam- þykktir Alþingis koma ekki fyrir nema fárra sjónir, en áhugi almenning fyrir þessum málum fer vaxandi, þykir Tímanum rétt að birta lögin um rafveitur ríkisins: 1. gr. Ríkisstjórninni er heim- ilt að setja á stofn og starfrækja rafveitur, er vera skulu eign rík- isins og reknar sem fjárhags- lega sjálfstætt fyrirtæki, með sérstöku reikningshaldi, undir umsjón atvinnumálaráðuneytis- ins. Stofnunin skal heita: Raf- veitur ríkisins. 2. gr. Rafveitur ríkisins skulu hafa það verkefni að afla al- menningi í landinu raforku með því að vinna hana sjálfar, kaupa eða taka við henni frá orkuverum eða öðrum orkuveit- um, veita orkunni um hreppa, sýslur eða jtærri landshluta og selja hana eða afhenda raf- orkuveitum í kaupstöðum, kauptúnum eða öðrum innan- héraös orkuveitum eða orku- veitufélögum, er stofnuð eru til þess að taka við orkunni og veita henni til neytenda innan héraðs eða á félagssvæði. Rafveitur ríkisins geta einn- ig gerzt meðeigandi í orkuverum og orkuveitum annarra eða tek- ið þær á leigu og starfrækt þær, eða tekið þátt í starfrækslu þeirra eftir sérstökum samn- ingi. Rafveitum ríkisins er heimilt að selja raforku beint til neytenda á þeim stöðum, þar sem innanhéraðsorkuveita eða orkuveitufélag er ekki til, eða annars staðar með samþykki innanhéraðsveitunnar eða orku- veitufélags. 3. gr. Til þess að hafa á hendi forstöðu fyrir rafveitum ríkisins skal atvinnumálaráðherra skipa framkvæmdarstjóra, er vera skal rafmagnsverkfræðingur, og kallast hann rafveitustjóri rík- isins. Ráðherra setur honum er- indisbréf.' Atvinnumálaráðherra skipar aðra starfsmenn rafveitna rík- isins, að fengnum tillögum raf- veitustjóra, eftir því sem ákveð- ið kann að verða í reglugerð. | 4. gr. Rafveitur ríkisins mega ! ekki reisa, kaupa eða taka á leigu orkuver eða orkuveitu, nema undangengnar rannsókn- ir og nákvæmar áætlanir sýni, að virkin muni gefa þær tekjur, sem nægja fyrir öllum rekstrar- kostnaði, þar með taldir vextir og afborganir stofnkostnaðar, eða nægilegt fé hafi verið veitt til virkjanna á annan hátt. Þá skal og, ef um er að ræða fleiri en eitt orkuver eða orkuveitu i senn, það orkuver eða orkuveita ganga fyrir um framkvæmd sem áætlanir sýna, að ber sig betur fjárhagslega. Enda þótt áætlanir sýni, að rekstrarhalli muni verða fyrstu árin á orkuveitu, skal hún talin með veitum þeim, sem bera sig fjárhagslega, ef hún samkvæmt áætlun rafveitustjóra hefir skil- yrði til þes sað vinna sig upp síðar og endurgreiða saman- safnaðan rekstrarhalla fyrstu áranna. 5. gr. Rafveitustjóri gerir, að undangengnum nauðsynlegum rannsóknum og athugunum, til- lögur til ríkisstjórnarinnar um það, í hvaða framkvæmdir skuli ráðizt til orkuvinnslu og orku- veitu. Hann gerir nauðsynlegar kostnaðaráætlanir um þær, at- hugar skilyrði fyrir orkukaup- um og orkusölu og gerir ná- kvæmar áætlanir um væntan- legar tekjur og gjöld af virkj- unum, til þess að séð verði, hvort þau fullnægja skilyrðum 4. gr. Að því er tekur til vatns- virkja framkvæmir þó vatna- málaráðunautur ríkisins nauð- synlegar mælingar og gerir kostnaðaráætlanir og annan undirbúning að þeim, nema öðruvísi verði ákveðið. Vega- málastjóri er fyrst um sinn vatnamálaráðunautur ríkis- stjórnarinnar, og skulu mæling- ar þessar, kostnaðaráætlanir og annar undirbúningur fram- kvæmdar af honum og fast- launuðum verkfræðingum vega- málaskrifstofunnar, án sérstaks endurgjalds, eftir því sem þeim vinnst tími til frá öðrum störf- um. Kostnað allan við þessar rannsóknir, svo og við annan undirbúning, skal greiða úr rík- issjóði, eftir því sem fé er veitt í því skyni. Þó er rafveitum rík- isins heimilt, með samþykki ráðherra, að verja fé af tekju- afgangi sínum til slíkra rann- sókna að svo miklu leyti, sem honum hefir ekki verið ráðstaf- að á annan hátt. Ef ráðizt er í | framkvæmdirnar, skal þessi undirbúningskostnaður talinn með stofnkostnaði þeirra. Nú telur atvinnumálaráð- j herra, að fengnum tillögum raf- veitustjóra, rétt að reisa ný orkuver eða koma upp nýjum j orkuveitum, eða að festa kaup á slíkum mannvirkj um, og leitar hann þá til þess samþykkis Al- þingis og gerir jafnframt tillög- ur um það, á hvern hátt fjár til þeirra framkvæmda skuli afl- að. Tillögum sínum til Alþingis lætur ríkisstjórnin fylgja ná- kvæmar áætlanir um væntan- legar tekjur og gjöld af þessum virkjum, sbr. 8. og 9. gr. 6. gr. Nú er ákveðið að reisa raforkuver eða koma upp raf- orkuveitu, og hefir þá rafveitu- stjóri stjórn þeirra fram- kvæmda. Að því er tekur til vatnsvirkja annast vatnamála- ráðunautur ríkisins fram- kvæmd verksins. Að öðru leyti ákveður atvinnumálaráðuneytið nánar verkaskiptingu milli þeirra. 7. gr. Atvinnumálaráðuneytið setur, að fengnum tillögum raf- veitustjóra, gjaldskrá um raf- orkusölu frá rafveitum ríkisins. Tekjum rafveitna ríkisins skal varið til greiðslu rekstrarkostn- aðar hinna einstöku rafoi^ku- virkja, þar með talið stjórn, gæzla, viðhald, vaxtagreiðslur og hæfilegar afborganir lána, miðað við fyrningu. Afgangur- inn leggist í sérstakan sjóð, raf- veitusjóð ríkisins, er rafveitu- stjóri varðveiti undir yfirumsjón atvinnumálaráðuneytisins. 8. gr. Rafveitusjóði ríkisins skal varið til aukningar raforku- (Framh. á 3. síðu) H8rí reísing[]| 1)103 yífOIS „Dæmd“ til tveggja ára dvalar í sveit Fyrir nokkrum vikum sann- aðist glæpur á unglingsstúlku eina í Reykjavík. Hafði hún brotizt í læsta hirzlu og stolið þar nokkrum þúsundum króna, sem hún svo sóaði á fáeinum dögum. Fleiri afbrot og marg- háttaðir siðferðisveilur í fari hennar komu og í ljós við rann- sókn málsins. Stúlka þessi var dregin fyrir lög og dóm og hlaut sína refsingu. Hún var að vísu ekki „dæmd“ í tugthúsvist í Reykjavík né vinnuhælið á Litla Hrauni, eins og venja er fyrir slík afbrot. Þessir staðir munu og vera einkum ætlaðir körlum til afpláningar saka sinna. En til allrar hamingju var til þriðja „stofnunin“, er virðist álitin nokkuð hliðstæð hinum tveim fyrrnefndu, eftir orðanna hljóðan í dómsúrskurðinum. Og þessi stofnun er „sveitin“ á ís- landi. Stúlkan var „dæmd“ í sveit. Vesalings brotlega barn! „Laun syndarinnar er dauðinn". „Dæmd“ til tveggja ára dvalar í sveit. Það er áhöld um hvað ofan á verður, að buga að einfeldninni eða hneykslast á óskammfeiln- inni. Á dögum rússnesku keisara- stjórnarinnar var það mjög tíðk- að, að afbrotamenn þeir, sem ríkinu þóttu hvað hættulegast- ir, voru „dæmdir“ í einskonar útlegð til Síberíu. Síðan þá er orðið Síbería í hugum margra einskonar víti hér á jörðu. Og nú er engu líkara en að margir kaupstaðabúar, einkum í höf- uðstaðnum, séu að fá samskon- ar álit á íslenzkum sveitum og sveitalífi, — að sveitin sé eins- konar útlegðarhæli, sem helzt hæfi afbrotamönnum. Fyrir nokkrum árum var sú nýbreytni upp tekin í atvinnu- bótavinnunni, að nokkrum reyk- vískum verkamönnum var gef- inn kostur á atvinnu austur í Flóa, fáa tugi kílómetra frá Reykjavík, til að ræsa fram spildu af því landflæmi, sem liggur þar óræktað og ónytjað. Þá gjörðu sum Reykjavíkur- blöðin óp að ríkisstjórninni fyr- ir þessa ósvífnu meðferð á verkamönnunum, og líktu henni þá þegar við þrælkunarvinnu í Síberíu. Hugsunarhátturinn er samur við sig. Nú ber ekki að skilja þetta svo, að hér sé gerð nokkur at- hugasemd við það í sjálfu sér, að stúlkuvesalingurinn var ekki látinn sæta venjulegri fanga- meðferð. Sá, er þetta ritar, get- (Framh. á 3. slðu) Brezk tundurdufl við Danmörku. Washington 19. júlí: Dansk- ameríska félagið tilkynnir, að Bretar hafi náð svo góðum árangri af tundurduflalagningu sinni á hafinu kringum Dan- mörku.að allar reglulegar skipa- ferðir milli dönsku eyjanna og Jótlands séu hættar: „Farþegar ferðast upp á eigin ábyrgð“. — Eftirtektarverð sönnun á árangri hinna ensku sprengju- árása má sjá af tilkynningu um, að ferjan milli Þýzkalands og Svíþjóðar sé stöðvuð. Sambúð Bandaríkjamanna og Finna kólnar. Fréttadeild norsku sendisveit- arinnar í Reykjavík hafa borizt þær fregnir, að utanríkismála- ráðuneyti Bandaríkjanna hafi | látið loka öllum ræðismanns- | skrifstofum sínum í Finnlandi 'og hvatt finnsku stjórnina til ' að loka finnskum ræðismanns- skrifstofum í Búndaríkjunum. Þessi ákvörðun er rökstudd með því, að hún sé óhjákvæmileg af- leiðing af samvinnu Finna og Þjóðverja. Met í skipabyggingum. London 20. júlí: Nýtt met var í skipabyggingum í Bandaríkj- unum í júnímánuði. Þénnan mánuð hófu 66 ný flutninga- skip siglingar. Samtals voru þau 731 þús. smál. Svíar lijálpa Norðmönnum. Stokkhólmi 21. júlí: Sænska „Noregshjálpin“ hefir nýlega veitt 100 þús. kr. til byggingar sjúkrahúss í Osló. Verður það undir stjórn sænska félagsins þar. Sama stofnun hefir einnig lagt fram fé til matgjafa handa börnum í Osló og fara þær fram undir sænskri yfirumsjón. Þá hefir þessi stofnun einnig veitt Norðmönnum í Svíþjóð ýmsa hjálp. Glæpir ítala í Júgóslavíu. Fréttaritari „Manchester Guardian“ í Ankara segir að þaðan berist hinar hörmuleg- ustu sögur um viðleitni ítala, Ungverja og Króatíumanna, sem hafa gengið í lið öxulríkj- anna, til þess að brjóta niður þrek og þrótt serbnesku þjóðar- innar. Fréttaritarinn nefnir sem dæmi, að nýlega hafi 45 skóla- stúlkur af góðum ættum í Ljubl- jana verið fluttar til herbúða ítala og afhentar hermönnun- unum. Serbneskir borgarar, vopnaðir bareflum, reyndu að ná stúlkunum og kom til harðra átaka. Féllu nokkrir menn af liði beggja. Aðalsteinn Gíslason, kennari: l Uin barnafræðNlu 322 ‘gímtrm Fiistudaginn 24. júlí I ógöngum Hvað gagnaði það íslending- um að eignast stórar fúlgur af stríðsgróða, en glata atvinnu- vegum sínum og missa sjónar á sjálfstæðishugsjón sinni og þjóðarheiðri? Meirihluti íslenzku þjóðarinn- ar virðist nú gripinn stríðs- gróðafíkn, sem ekki sést fyrir og ekki verður stöðvuð. í því efni er varla sjáanlegur munur á Stefáni Jóhanni og Ólafi Thors eða „félaga" Einari. Eft- ir þessum höfðum dansa svo limirnir. Það, sem virðist vera aðalá- hugamál þessarrar lofsælu þrenningar, er að hækka allt kaupgjald og verölag í landinu um ca. 30% 0|g fella kaupgetu og gildi krónunnar að sama skapi. Framsóknarmenn álíta heppi- legast að reyna að stöðva verð- lagið í landinu og halda því sem jöfnustu. Sífelldar verðlags- breytingar gera öll viðskipti erf- ið og áhættusöm. Alla eign ó- trygga. Með gerðardómslögun- um var gerð tilraun til að koma verðlagi og viðskiptum á fast- an grundvöll. Það hefir tekizt hingað til á yfirborðinu. En smám saman hefir stríðsgróða- fíknin grafið undan þessari ráð- stöfun, svo að nú er sjáanlegt aö síðustu stoðirnar eru að bresta. Stríðsgróðamennirnir hafa losað um skriðuna. Hún hlýtur að falla þá og þegar. Allir viti. bornir menn sjá og viðurkenna, að hvorki muni hagur þjóðfélagsins né einstakl- inganna b^tna við verðhækk- unaröldu þá, sem nú'er að rísa og bráðum mun ríða yfir með öllum sínum þunga. Úr því að stríðsgróðamenn- irnir virðast vera í meirihluta í landinu, er lítill vafi á, að þeir fái vilja sínum framgengt. En einhvers staðar munu jafnvel þeir vilja láta skriðuna nema staðar, annars verða þeir sjálf- ir undir henni. Við skulum gera okkur ljóst, að viff erum komnir í ógöngur. Annað hvort verðum við að vera samtaka um að. bjarga okkur úr þeim, eða hrapa í hyl- dýpi þjóðlegrar niðurlægingar og ánauðar. Þar mun okkur vegna líkt og ríka manninum í kvalastaðnum. Alþingi mun nú bráðum koma saman, væntánlega til að reka smiðshöggið á hina seinheppn- uðu úrlausn, sem unnt var að finna á viðkvæmu deilumáli. Stuðningsblöð stjórnarinnar hafa þegar ymprað á því, .að hlutverki núverandi stjórnar væri lokið, þegar kjördæma- málið væri afgreitt og haust- eða vetrarkosningar þar með tryggffar fólkinu í dreifbýlinu, sem nú vinnur hörðum höndum til að flosna ekki upp frá ból- festu sinni og til að framleiða nauðsynlegustu matbjörg handa þeim, er dansa ákafast í kring- um gullkálf stríðsgróðans á mölinni. Að þessu afreki loknu virðist ríkisstjórninni vera næst skapi að þakka fyrir sig og fara, en skilja við allar framtíðarvonir þjóðarinnar í ógöngum. Stjórn- in veit sem er, að hún hefir ekki einu sinni traust eigin flokksmanna og á vísan fjand- skap núverandi stuðnings- flokka, jafnskjótt og hún hefir framkvæmt óhappaverk sitt í kj ördæmamálinu. Út úr þessum ógöngum virð- ist ekki nema ein leið fær. Og hún er sú ,að stjórnin segi þeg- ar af sér, er þing kemur saman, en myndað verði nýtt stríffs- ráffuneyti með fulltrúum bænda Verkamanna og útgerðarmanna. ' ' + Skrifið eða símið til Tímans og tilkynnið honum nýja áskrif- endur. Sími 2323. (Niðurlag) Saga landsins er sá Mímis- bírunnur, sem aldrei verður þurrausinn. Uppeldisgildi henn- ar er ótakmarkað. Gunnar, Grettir, Kjartan og Egill verða barninu það, sem grísk list er myndhöggvaranum. Og saga Sturlungualdarinnar. Þar sést ranglætið, siðleysið og lægstu hvatir hins mannlega eðlis í ekki neinum spéspegli. Betra víti til varnaðar verður ekki fundið. Og enginn getur sagt, hvað það hefir hjálpað mörgum drengnum til manns og þroska að hafa lesið um Hallgrím Pét- ursson, Jón Vídalín, Eggert Ól- afsson, Skúla Magnússon og Jón Sigurðsson. Enginn veit, hvað margar ungar stúlkur hafa heitið með sjálfri sér, að vera eins trygglyndar og Bergþóra, einlægar í ást sinn og Helga fagra og stórar í raunum sín- um eins og Ólöf Loftsdóttir, þegar þeim voru orðin kunn nokkur æviatriði hinna íslenzku kvenskörunga. En hvernig verð- ur íslendingasaga bezt kennd? Aðferðirnar eru margar. En án landfræðikennslu verður öll sögukennsla lítils virði. Snorri segir, að úr Hliðskjálf hafi Óðinn séð um heim allan. Var honum því fátt hulið, en um flest kunnugt. Og svo að ég minni aftur á Þorstein Erlings- son. Hann segir einhvers staðar í „Þyrnum“: „Og guðirnir reka sinn brothætta bát á blindsker í hafdjúpi alda.“ Líklega hefir Óðinn kollsiglt. Hans er ekki lengur að neinu getið. Og fáir trúa nú á sæluvist í Valhöll með Einherjum, sem virtust vega hvern annan í bróðerni. En uppi í Hliðskjálf komumst við enn. í landafræðistímanum sjáum við um heim allan. Þá leiðir kennarinn nemendur sína um hæstu tinda Himalajafjalla og og sýnir þeim hina risavöxnu fjallgarða. Hann fer með þeim fram með stóránum Efrat og Tígrís og minnir þá á menn- ingarríkin fornu, Assyríuríki og Babýloníuríki, sem nú eru liðin undir lok. Ýmsar borgarrústir, sem hafa verið grafnar upp, skoða börnin. En í Kína undr- ast þau ekkert eins og fólks- mergðina. Það er svo ólíkt og hér heima, þar sem í einum dal, þótt hann sé að vísu engin smá- skora, búa fleiri en í Ameríku allri. Og nú er lagt af stað í mesta blíðviðri til Ástralíu og komið við í Japanseyjunum, sem sagt er, að Rússakeisari hafi ekki geta fundið á kortinu. Og þó að fullt sé nú af herskipum hér á höfunum, þá tefur það ekki fyrir ferðinni. Það er litið á hinar miklu skemmdir í Singapore. Og í Borneo og Su- matra sjá börnin í fyrsta skipti langa-langa-langafa sinn. Þar í skógunum koma þau auga á or- angúta og gibbon ásamt mörg- um öðrum áður óþekktum dýr- um. Og loks, seint um síðir, eftir marga smákróka, standa litlu ferðamennirnir í landi Ástra- líunegrans. Hér verður ekki sagt frá því, hvað bar fyrir augu í 5. heimsálfunni. En mér finnst ó- trúlegt, aö þegar börnin koma aftur heim úr ferðinni, að þau séu þau sömu og áður. Sjón- deildarhringur þeirra hlýtur að hafa stækkað og víðsýni þeirra aukizt. Nú sjá þau, að allt er af sömu rót runnið, þó að ólíkt sé við fyrstu kynni. Þeir eiga svo margt sameiginlegt: Mon- gólinn, Eraninn og Sverting- inn. „Og ég segi barkann," svar- aði Gvendur. Hann var spurður um, hvaða leið fæðan færi úr munninum og niður í aðalmelt- ingarfærin. Náttúrufræðisþekk- ing hans var af skornum skammti. En þess ber líka að gæta, að frá því að hann var 8 ára og fram að fermingu, var hugsað meira um, að ærnar væru allar m03 tölu hjá honum á kvöldin, jafnt vetur og sum- ar, en hann gæti sagt eitthvað, sem engum kemur við, „úr ormafræðinni“ hans Bjarna Sæmundssonar. Þeir, sem telja það koma að litíu gagni, sem lært er í nátt- úrufræði í barnaskóla, ættu að athuga, hvort það er viðkunn- anlegt að byrja lífsstarfið með náttúrufræðiþekkingunni hans Guðmundar okkar. Náttúru- fræðiskennslan reynir að út- rýma sem flestum fáránlegum skoðunum um viðburði hvers- dagslífsins úr hugarheimi barnsins. Náttúrufræðin eykur víðsýni barnsins, glæðir eftirtektargáfu þess, vekur athyglina. Náttúru- fræðin lyftir undir vængi í- myndunaraflsins. Gegnum sjón- auka hennar sjáum við nýja leyndardóma. Og við tökum undir með skáldinu: „Guð, allur -heimur, eins í smáu og háu, er opin bók um þig, sem fræðir mig. Já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu er bók, sem margt er skrifað á um þig.“ Ekkert vekur meiri hrifningu hjá barninu en náttúrufræðis- tíminn, ef vel er kennt. Náttúr- an hefir svo mörg gull að sýna. Enginn á fleiri léikföng en hún. Og öll náttúran ber vott um hina miklu sköpun. Huliðs- heimar hennar minna á ævin- týrin úr 1001 nótt. í návist þeirra höfum við sannfærzt um, að „í hverju blómi sefur sál“ og „hvert sandkorn á sitt leyndar- mál.“ En í náttúrufræðiskennslunni megum við ekki binda okkur of mikið við bækurnar, þó að þær séu ómissandi. Þær eiga að vera steinar í hinum mikla sjó til þess að stikla á yfir til megin- landsins, sjálfrar náttúrunnar. Þær eru stafirnir, sem við styðj - um okkur við í ferðinni. Og Grímur Thomsen kveður svo: „Af bókum létt ég læri nýtt og lestur iðka spart. Úr náttúrunnar nægtarbrunni er námið eins mér þarft. í svanahlíð um sumartíð ég sé og heyri margt.“ Og á þgleymanlegan hátt sýnir Matthías, hvernig nota má hina miklu kvikmynd, náttúru- fyrirbærin sjálf, til þess að snerta hinar dýpstu tilfinning- ar: „Þú bentir mér á hvar árdags- sól í austrinu kom með líf og skjól. Þá signdir þú mig og segir: „Það er guð, sem horfir svo hlýtt og bjart. Það er hann, sem andar á myrkrið svart og heilaga ásjónu hneigir.“ “ Kristindómsfræðsl^ barna hefir sízt tekið framförum þessa síðustu og erfiðu tíma. Þar hef- ir öllu fremur verið hnignun. Börnin þurfa ekki lengur að bera umhyggjuf fyrir ferming- unni eins og í gamla daga, nema ef þá telpurnar væla ef til vill eitthvað við mömmu sfna út af fermingarkjólnum, og svo getur verið, að drengjunum geðjist ekki nógu vel að nýja hálsbindinu. En lærdómurinn skipar ekki lengur öndvegið. Hver er ástæðan? Eru þeir hirðulausari nú en áður, sem þessi fræði eiga að annast? Þar er ég ekki réttur aðili sem dóm- ari. En hver man ekki eftir þess- um ma'rgraddaða, gamla söng um kverið? Það var ekki neinn smáræðis sálarvoði, sem börn- i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.