Tíminn - 24.09.1942, Blaðsíða 2
AukablaSS
TÍMIAX. finimtudagiim 24. sept. 1942
Aukablað
Farmenn og fiskímenn lýsa
andúð sinni á upplausninní
- Frá 6. biugi F. F. S. í. -
6. þing Parmanna og fiski-
mannasambands íslands er ný-
lokiö hér í bænum. Voru þar
rædd ýmis mál, er varða stéttir
þær, sem samtök þessi mynda.
M. a. voru samþykktar áskor-
anir um stóraukin framlög til
Fiskveiðasjóðs og endurskoðun
á rekstri og stjórn ríkisverk-
smiðjanna.
Þá voru gerðar samþykktir
um kaupgjalds- og verðlags-
málin og má á þeim marka, að
lítil ánægja hafi ríkt yfir stefnu
og aðgerðum ríkisstjórnarinnar
í þeim málum, þótt flestir full-
trúarnir muni áður hafa staðið
nálægt flokki hennar. Sam-
þykktir þingsins í þeim málum
fara hér á eftir:
„1. Að skipuð verði ráðgefandi
nefnd manna frá stærstu at-
vinnustéttum landsmanna, til
þess að ákveða sanngjarnan
grundvöll um það, hver skuli
vera launastigi í hverri at-
vinnugrein, og hvernig hlut-
föllin skuli vera milli hverrar
sérgreinar innan stéttanna.
2. Einnig sé í þessu sambandi
athugað, samræming á kaup-
gjaldi og verðlagi.
3. Skattstigi verði eigi auk-
inn á launastéttunum. Ný-
byggingarsjóður fiskveiðiflot-
ans, Fiskveiðasjóður, verði auk-
inn samkvæmt tillögum sam-
bandsþingsins, sjávarútvegnum
til eflingar.
Ástand það, er nú ríkir í þess-
um efnum, er að vorum dómi
algjörlega óviðunandi, og
stefnir í beinan voða fyrir þjóð-
félagið, og teljum vér því nauð-
syn á, að nú þegar séu gjörð-
ar víðtækar ráðstafanir til þess
að stemma stigu við hættum
þeim, er í áðurnefndu ástandi
felast. Lítum vér svo á, að þetta
sé í alla staði kleift, nema að
því er viðkemur utanaðkomandi
áhrifum. Við þetta vinnst það,
að kapphlaup það, er á sér stað
innanlands milli kaupgjalds og
verðlags, hyrfi, og þegnunum
yrði auðveldara að gera sér
ljóst hvernig málum þeirra og
fjárhagslegri afkomu væri
háttað á hverjum tíma.
4. Áður umgetinni nefnd yrði
einnig falið að koma fram með
tillögur um einkasparnað. í því
sambandi má benda á, að í Sví-
þjóð viðgengst það, að allt að
helmingi áhættuþóknunar sjó-
manna er af útgerðarmönnum
lagðúr á vöxtu og ber útgerð-
armaður ábyrgð á upphæðinni
gagnvart viðkomandi sjómanni
og ríkinu, og sé upphæðin
skattfrjáls, má eigi snerta þessa
upphæð fyrr en tímarnir hafa
breytzt í venjulegt horf.
5. Vegna þess hve skipakostur
landsmanna er takmarkaður,
en hins vegar á vitorði allra,
hve mjög hann er notaður til
óþarfa flutninga á óþörfum eða
lítt þörfum varningi, þá teljum
vér gildar ástæður/að settar séu
skorður einnig um þetta efni.“
í stjórn sambandsins voru
kosnir: Ásgeir Sigurðsson skip-
stjóri (formaður), Hallgrímur
Jónsson vélstjóri, Júlíus Ólafs-
son vélstjóri, Guðbjartur Ólafs-
son hafnsögumaður, Halldór
Jónsson loftskeytamaður, Kon-
ráð Gíslason áttayitasmiður og
Haraldur Guðmundsson skip-
stjóri.
Héraðsmót U. M. S.
Norður BreíðSírðinga
Héraðsmót Ungmennasam-
bands Norður-Breiðfirðinga var
haldið á Barðaströnd 2. ágúst
síðastl.
Á mótinu var keppt í eftir-
töldum íþróttagreinum: 100 m.
hlaupi, 3000 m. hlaupi, boð-
hlaupi, knattspyr'nu og reip-
drætti.
Þátttakendur voru frá öllum
félögum sambandsins. Sigur-
vegarar urðu þessir:
100 m. hlaup:
Samúel Björnsson, U. M. F.
Afturelding, Reykhólahr., 11,5
sek. Sæmundur Óskarsson, U.
M. F. Hvöt, Gufudalshr., 12 sek.
Helgi Elíasson, U. M. F. Barð-
strendinga, Barðastrandarhr.,
12,5 sek.
3000 m. hlaup:
Þórarinn Kristjánsson, U. M.
F. Vísir, Múlahr., 10 mín. 22 sek.
Guðjón Gunnarsson, U. M. F.
Unglingur, Geiradalshr., 10 mín.
37 sek. Torfi Eysteinsson, U. M.
F. Unglingur, Geiradalshreppi,
10 mín. 46 sek.
Boðhlaup milli þriggja félaga:
U. M. F. Barðstrendinga
Barðastrandarhr., U. M. F. Hvöt,
Gufudalshreppi, og U. M. F. Aft-
urelding, Reykhólahreppi.
U. M. F. Afturelding vann
hlaupið.
Knattspyrna
milli U. M. F. Barðstrendinga
og U. M. F. Flateyjar annars
vegar og U. M. F. Hvöt, Gufu-
dalshr. og U. M. F. Afturelding-
ar, Reykhólahr. hins vegar. —
U. M. F. Hvöt og U. M. F. Aft-
urelding sigruðu með 1 marki
^egn engu.
Reipdráttur
milli U. M. F. Barðstrendinga,
Barðastrandarhr. annars vegar
og U. M. F. Vísis í Múlahr. hins
vegar, fór svo, að U. M. F. Barð-
strendinga sigraði.
Afgreíðslustulkur
Vegna fyrirhugaðra breytinga á vinnutíma og frí-
dögum afgreiðslustúlknanna í mjólkurbúðum vorum,
þurfum vér nú að ráða nokkrar stúlkur til viðbótar.
Föst atvinna. — Allar upplýsingar í skrifstofu vorri.
M j ólkur samsalan.
Kaupendnr Tímans
utan Reykjavlkur
eru minntir á, að gjahldagi 26. árgangs var 1.
júlí síðastl. Eru þeir því vinsamlega beðnir að
greiða ársgjaldið. kr. 15.00, sem fyrst, til inu-
heimtumanns blaðsins, eða beint til afgreiðsl-
unnar, Eindargötu 9A, Reykjavík.
Allar góðar húsmæður
þekkja hínar ágætu
SJAFNAR-vörur*
Þvottaduftið
PERLA
ræstiduftið
I £
0PAL
kristalsápu og
stangasápu
Innheímtumenn Tímans
um land aUt!
¥innið eftir fremsta megni að iiinlieimtu Tím-
ans. — Gjalddaginn var 1. júlf.
INNHEIMTA TÍMANS.
Dvöl
Dragið ekki lengur að
gerast áskrifendur aS
Dvöl, þessu sérstœða
tímariti í islenzkiun bókxnenntum. —
Ykkur mun þykja vœnt um Dvöl, og
því vænna um hana sem þið kynnizt
henni betur.
Úthreiðið Tímann!
Framséknarmenn
um land allt!
E! þið eruð ekki á kjörskrá,
er kærufrestur til 26. sept.
Framsóknarmenn, sem farið að heiman fyrir kjördag, 18. október,
munið að kjósa áður en þið farið, hjá næsta hreppstjóra eða sýslu-
maiini.
Framsóknarmenn, sem eruð f jarvcrandi og verðið það fram yfir
kjördag, 18. október, munið að kjósa hjá næsta hreppstjóra, sýslu-
manni eða skipst jóra ykkar, svo að atkvæðið komizt heim sem allra
fyrst. —- Kosning utan kjörstaða hófst I gær.
Lcitið allra upplýsinga og aðstoðar hjá kosningafulltróum flokksbis,
kosningamiðstöðvum kjördæmanna og kosningaskrifstofuni I Rvík,
Edduhósmu, Lindargötu 9 A.
Nímar: 50^3 og 2323,
Hreinlætisvörur
frá SJÖFN
mæla með sér sjálfar —
Þær munu spara yð-
ur mikið ómak við
hreingerningarnar
IVOTIð
S J A F IV A R
tangasápu
O P A L
RÆSTIDUFT
r y s t a I s á p n
P E R L F
VOTTADUFT
Allt frá S j öfn
Stúlkur
óskast til fiskflökunar í vetur. — Hátt kaup og frítt húsnæði.
Finar Sigurðsson,
Vestmannaey j um.
TilkynDing
frá landbónaðarráðuncytinu um slldarmjöl
til fóðurbætis næsta vetur.
Vegna orðróms um skort á nægilega mikiu síldarmjöli til
fóðurbætis, vill ráðuneytið gefa eftirgreindar upplýsingar.
í síðastliðnum ágústmánuði áætlaði Búnaðarfélag íslands
væntanlega fóðurbætisþörf á komandi vetri um 6500 smálestir af
síldarmjöli alls handa öllum búpeningi.
Þar sem síldarmjölsbirgðir eru nú i landinu rúmlega 8000
smál. og auk þess um 2500 smál. af fiskimjöli, eða um helmingi
meira en notað hefir verið undanfarin ár, er engin ástæða til
að óttast að skortur verði á nægilegum fóðurbæti næsta vetur.
Vegna hins hagstæða verðs til bænda á síldarmjölinu, hafa
verið gerðar meiri pantanir en ráð var fyrir gert og þess vegna
verður fyrst um sinn hafður hemill á afhendingu mjölsins. Enn-
fremur getur orðið nauðsynlegt að hafa hönd í bagga með út-
hlutun mjölsins og ef til þess kemur, verða ráðstafanir í því
augnamiði gerðar í samráði við Búnaðarfélag íslands. Jafnframt
skal bent á, að ekki er ástæða til að óttast, að flutningur á síld-
armjölinu til hafna út um land verði bundinn frekari örðug-
leikum en undanfarin ár.
LandbónaðarráSSiuieytlö,
21. september 1942.
Næstu daga fáum við:
Svið MLöp
Lifnr Hjörtn
Einnig heil slátur.
Frystihósíd Herðubreíð
Fríkirkjuveg 7. Sími 2678.