Tíminn - 04.10.1942, Qupperneq 3
112. blað
sunnudaginn 4. okt. 1942
443
Upplausn
(Framh. af 2. siBu)
þætti þörf, væri æskilegast, að
nefnd, skipuð fulltrúum fram-
leiðenda og launþega, gæti kom-
ið sér saman um þær. Að öðr-
um kosti yrði sérfræðinganefnd
að annast það. En aðalatriðið er
að kaupgjaldið og verðlagið sé
fest. Sú ráðstöfun er, að míny
viti, sjálfsagðasta leiðin til að
veita verðbólgunni viðnám. Án
hennar er hætt við, að aðrar
ráðstafanir kæmu aldrei að til-
ætluðum notum. Eftir því, sem
mér hefir skilizt.láta aðrar þjóð-
ir sér sæma að grípa til slíkra
ráðstafana. Hér hefir einnig
fengizt nokkur reynsla í þessum
efnum. Með lögunum um gerð-
ardóm í kaupgjalds- og verðlags-
málunum, var verðlag og kaup-
gjald í landinu bundið. Og hvort,
sem mönnum hefir verið vel eða
illa við gerðardóminn sáluga,
verða menn að viðurkenna þá
staðreynd, að sjö fyrstu mán-
uði ársins stóð vísitala fram-
færslukostnaðarins í stað. Hins
vegar hefir hún hækkað tvo
síðustu mánuði um 27 stig, eftir
að gerðardómslögin voru felld
úr gildi. Því skal ekki neitað, að
farið hafi verið í kringum gerð-
ardómslögin. En sú kenning að
afnema þessi lög vegna slíks, er
næsta nýstárleg, og ekki líkleg
til að hljóta viðurkenningu í
framtíðinni. Æskilegast er, að
þessi ráðstöfun sé gerð með
vitund og samþykki þeirra
stétta, sem hlut eiga að máli.
En þó að þa§ náist ekki, verður
löggjafinn að hefjast handa.
3. Ríkið taki innflutnings-
verzlunina í sínar hendur á með-
an á styrjöldinni stendur og
hert sé á ákvæðunum um smá-
söluálagningu. Ráðstöfun þessi
er allmiklum erfiðleikum bund-
in vegna þeirrar röskunar, sem
hún mundi hafa í för með sér
fyrir þær stofnanir, sem hingað
til hafa annast þessa starfsemi.
Yrði að reyna að tryggja það,
eftir því sem unnt væri, að
starfsemi þeirra gæti hafizt að
stríðinu loknu á svipuðum
grundvelli. Með þessari ráðstöf-
un ætti hæfilegt og sanngjarnt
verðlag I landinu að vera betur
tryggt en með nokkru verðlags-
eftirliti gæti orðið. Með þessu
myndi stöðvuð sú óheillavæn-
legra lofts heldur en inni. En
þegar gestirnir komu inn, var
skrifari Kristjáns sýslumanns
byrjaður að syngja kesknisvísur
um konur á Snæfellsnesi, og að
þær byðu gestum með sér út
í fjós. Þótti ballgestum nú skör-
in færast upp í bekkinn og gerðu
hávaða, svo að sýsluskrifarinn
náði ekki að syngja. Spurðu
ýmsir, hvar Magnús væri og
gerðu sig líklega til að þakka
honum sérstaklega fyrir spjöll
á skemmtuninni. Varð nú hlé á
skemmtuninni og nokkru rórra,
er menn vissu að guðspjalla-
maðurinn var endanlega'farinn
af leiksviðinu. Pétur óperu-
söngvari var nú látinn syngja
nokkur lög, og vegur hans gerð-
ur meiri en sýsluskrifarans.
Eftir það átti að dansa, en sam-
koman náði sér aldrei aftur.
Fólkið í Ólafsvík fann, að því
var sýnd óvirðing með því að
ætla að gefa því sannfæringu í
landsmálum með svo ógeðs-
legu gestaspili, sem hér var
sýnt.
önnum hlaðiim
borgarstjóri.
Menn vita, að Bjarni borgar-
stjórl er eitt af helztu framtíð-
arljósum Sjálfstæðisflokksins.
Hafa verið lagðar á hann þung-
ar byrðar, fyrst þungi alls höf-
- viðnáin
lega þróun, sem nú á sér stað í
viðskiptalífinu, að ný heildsölu-
og umboðssölufyrirtæki séu
á hverju strái og bæta þannig
stöðugt við þann fjölda, sem lif-
ir af milliliðastarfsemi. Slík ráð-
stöfun myndi draga úr innflutn-
ingi á alls konar óþörfum varn-
ingi, sem sjá má í búðarglugg-
um hér og þar. Ennfremur
mundi þessi ráðstöfun gera
nauðsynlegt skipulag á flutning-
um til landsins auðveldara.
Fleira mætti telja þessari ráð-
stöfun til gildis, en eigi skal það
þó gert hér. Þó að ráðstöfun
þessi geti átt við á styrjaldar-
tímum, tel ég hana engan veg-
in heppilega á friðartímum.
4. Sklpuleggja verður vinnu-
aflið í þarfir atvinnuveganna.
Sjálfsagt er að hafa samvinnu
við fulltrúa verkamanna um þau
mál, ef þeir vilja. Nauðsynlegt
getur orðið að lögleiða beinlínis
vinnuskyldu.
5. Skyldusparnaður verðl lög-
boðinn, þ. e. ef tekjur manna
fara yfir eitthvert ákveðið há-
mark, sé mönnum gert að skyldu
að leggja nokkurn hluta tekn-
anna fyrir. Með slíku væri að
einhverju leyti dregið úr hinni
auknu kaupgetu. Einstakling-
arnir safna sér varasjóðum, sem
ætla má, að þeir hafi fulla þörf
fyrir, að stríðinu loknu, þegar
erfiðleikar eftirstríðsáranna
gera vart við sig. Auk þess gæti
það leitt til þess, að þeir vendust
á holla lífsvenju, sem sé að eyða
ekki ætíð því, sem aflað er jafn-
harðan. Þessi ráðstöfun sýnist í
rauninni svo heilbrigð og sjálf-
sögð, að um hana þarf ekki að
fara fleiri orðum, enda mun hún
eiga nokkurt fylgi á meðal allra
flokka.
6. Þá ber að taka stríðsgróð-
ann úr umferð og þjóðnýta
hann, þ. e. verja honum til al-
menningsþarfa og heilla. Því
verður ekki neitað, að þegar
hefir verið gengið alllangt á
þeirri braut að skattleggja há-
tekjur. Eins og kunnugt er, verð-
ur að greiða 90% í tekju- og
stríðsgróðaskatt af þeim hluta
skattskyldra tekna, sem er fram
yfir 200. þús. krónur. Á venju-
legum tímum myndi slík skatt-
lagning sennllega vera talin
(Framh. á 4. slBuj
uðstaðarins, þingmennska og í-
gripavinna við Mbl. En öllum
má ofbjóða. Bjarni nær sýni-
lega ekki til fulls út yfir þessi
mörgu störf._ Hefir það komið
tilfinnanlega fram í skrifum
hans og ræðum um rafmagns-
mál byggðanna. Hann er þar of
ókunnugur staðreyndum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir ekkert
gert fyrir það mál. Mbl. andaði
köldu að Bjarna frá Hólmi,
eina manninum, sem hefir stig-
ið stór spor í rafmagnsmálum
byggðanna.Flokkurinn kom með
vanhugsað frv. 1929, þar sem
1—2 hreppar áttu að kría sér út
lán til að byggja orkuver, sem
kosta miljónir. Ekki fylgdl
frv. einn stafur um tekjuöflun
til framkvæmda. Málið var ber-
sýnilega hugsað sem kosninga-
bomba. Flokkurinn lagði það
gersamlega á hilluna. Næst
byggði Reykjavíkurbær orku-
ver við Sogið sér til handa.
Einn sveitabær í Árnessýslu
fékk rafmagn þaðan, og ekkert
af hinum fjórum þorpum sem
þar eru. 1939 tók Skúli Guð-
mundsson, með stuðningi alls
Framsóknarflokksins að beita
sér fyrir skipulegum fram-
kvæmdum í rafmagnsmálum
sveitanna. Hann hefir síðan
flutt málið á hverju þingi síðan.
Allur Sjálfstæðisflokkurinn, að
frátöldum Pétri á Ytra-Hólmi
Upton Ninclair
Hann hefir ritað fleiri orð en bæði testa-
mentin hafa að geyma.
4-
Upton Sinclair hefir ritað fjörutíu og átta bækur og meira
en fimm hundruð ritlinga. Tvær miljónir eintaka af bókrnn
hans hafa selzt i Þýzkalandi og þrjár í Rússlandi. Það er talið,
að Upton Sinclair hafi átt sinn þátt í rússnesku byltingunni
með bókum sínum. Enda þótt hann sé Amerikumaður, eru bæk-
ur hans mun vinsælli í Evrópu en Ameríku. Eg lagði leið mína
inn í litla bókaverzlun í frönsku Riviera einhverju sinni. Þar
voru á boðstólum fleiri bækur eftir Upton Sinclair en alla aðra
enska og ameríska rithöfunda til samans. Bækur hans hafa
verið þýddar á fjörutíu og fjögur tungumál. Sinclair sagði mér
einhverju sinni, að hann vissi ekki sjálfur nöfnin á öllum þess-
um tungumálum, eða hvar 'þau voru töluð. Hann er nú víðlesn-
astur rithöfundur í heimi.
Upton Sinclair er maður um sextugt, og hann hefir imnlð
fyrir sér með ritstörfum um fjörutíu og fimm ára skeið — allt
frá því að hann var sextán ára að aldri. Hann hefir ritað milj-
ón orð — fleiri orð en bæði Gamla og Nýja testamentið til
samans.
Hann líkist dálítið Woodrow Wilson í útliti — og hann er mik-
ill hugsjónamaður. Hann þráir, að öll örbirgð verði sigruð, því
að hann þekkir af reynslunni hversu hlutskipti hins snauða
manns er ömurlegt. Hann skýrði mér frá því, að um sex ára skeið
hefði-sjaldan liðið svo dagur að kvöldi, að hann liði ekki hungur.
Faðir hans var vínsali og ofdrykkjumaður. Þegar Upton Sin-
clair var ungur drengur í Baltimore og siðar í New York, gekk
hann löngum á kvöldin milli kránna og leitaði föður síns í því
skyni að hjálpa honum heim og koma honum í rúmið. Móðir
hans var þá vön að taka alla þá penínga, sem hún fann I vösum
hins ofurölva manns síns og fela þá, svo að hún gæti keypt eitt-
hvað í matinn daginn eftir. Þau voru svo fátæk, að þau urðu að
búa í ódýrum og óvistlegum íbúðum og flytja jafnan öðru
hvoru, þvi að það kom oft fyrir, að húsaleigan var eigi greidd á
gjalddaga.
Upton Sinclair er ákafur bannmaður, og það væru fleiri, eí
þeir hefðu haft sömu kynni af áfengisnautninni og hann. Hann
segir, að áfengið hafi valdið því, að tveir nánustu vinir hans,
Jack London og Eugene V. Debs, létust fyrir aldur fram. Upton
Sinclair neytir hvorki tes né kaffis og reykir ekki heldur.
Hann átti þess eigi kost að njóta skólanáms fyrr en hann
var tiu árá að aldri. Hann lærði að lesa af sjálfsdáðum, og áður
en hann hafði skólabekk augum litið, hafði hann lesið rit
Dickens og Thackerays, fjölda annarra bóka og verulegan hluta
af alfræðibókinni. Tveim árum eftir að hann settist í skóla í
fyrsta sinni, hafði hann lokið menntaskólanámi.
Þegar hann innritaðist í háskóla, átti hann ekki dollara í
vasanum — og hafði móður fyrir að sjá. Hann vann fyrir sér,
meðan hann nam við háskólana í New York og Columbia, með
því að selja skrítlur á einn dollara og skrifa framhaldssögur
fyrir ódýr tímarit. Hann las fyrir átta þúsund orð á kvöldi. Hann
samdi þannig með öðrum orðum tvær meðalstórar skáldsögur á
mánuði — auk þess, sem hann nam um átta klukkustunda
skeið daglega við Columbíaháskólann. Slíkt eru óvenjuleg af-
köst. Þetta myndi vart einn maður af miljón leika eftir.
Þegar Upton Sinclair hafði lokið háskólanámi, innvann hann
sér sjötíu dollara á viku með því að skrifa reyfarakenndar
sögur fyrir drengjatímarit. Þetta voru miklar tekjur fyrir rit-
höfund, sem hafði ekki enn náð tvítugsaldri. En Upton Sinclair
gazt eigi að því að skrifa fyrir peninga. Hann átti það fyrir hug-
sjón að útrýma skorti og óréttlæti. Enda þótt hann ætti
óhraustri konu og barni fyrir að sjá, hafnaði hann öllum tekj-
um sínum, sló tjaldi í New Jersey og hóf að rita áróðurs-
skáldsögur — skáldsögur, er fjölluðu um endurbætur heimsins.
Hann varði fimm árum til þess að vinna að fimm skáldsögum.
Þessar fimm bækur færðu honum þúsimd dollara í aðra hönd
— með öðrum orðum tvö hundruð dollara á ári eða minna en
sextíu cent á dag.
Hann átti því við næsta kröpp kjör að búa. Dag nokkurn
hugðist kona hans að leyfa sér nokkurn munað, lagði leið sína
inn í verzlun og keypti rauðan, köflóttan borðdúk fyrir þrjátíu
cent. En Upton lét konuna skila honum aftur og fá hann endur-
greiddan, því að fyrir þrjátíu cent mátti fá matarbirgðir, er
entust heimilinu heilan dag.
Sjötta skáldsaga Uptons Sinclairs var The Jungle (Frum-
skógurinn). Hún vakti almenna athygli og færði Sinclair þrjátíu
þúsund dollara í aðra hönd. Hann varði allri fjárhæð þessari til
þess að stofna fyrirmyndarnýlendu á bökkum Hudsonfljóts
ins í New Jersey — eins konar samvinnuheimili, þar sem rit
höfundar, málarar og tónlistarmenn gætu lifað áhyggjulausu
lífi í samherjahópi. Sinclair Lewis bjó þarna um stund og ann
aðist um ofninn, en sennilega hefir hann ekki rækt starfa sinn
sem skyldi, því að það kviknaði í húsinu á náttarþeli, og brann
það til kaldra kola. Slík voru endalok þessa máls.
Upton Sinclair hefir jafnan verið einlægur umbótamaður. Hann
veitti fyrstu kröfugöngunni, sem farin var í New York i tilefni af
kosningarétti kvenna, forstöðu ásamt Inez Mullholland. Hann
hefir jafnan barizt fyrir frjálsræði um takmörkun barneigna
og verið í hópi helztu jafnaðarmanna í Ameríku i hálfan fjórða
áratug.
Þegar hann ákveður eitthvað, linnir hann ekki látum, fyrr en
það hefir náð fram að ganga. Einhverju sinni datt honum það
til dæmis í hug að læra að leika á fiölu. Hann tók sig þá til og
æfði sig um átta stunda skeið á degi hverjum í þrjú ár. Þegar
nágrannarnir báru fram umkvartanir, tók hann fiðluna og hélt
út í skóg og lék þar fyrir fugla og íkorna.
Hann hefir tjáð mér, að hann hafi verið handtekinn fjórum
sinnum. Einu sinni var hann handtekinn í Wilmington í Delaware
og honum varpað i fangelsi og látinn hirast þar í átján klukku-
stundir fyrir að leika tennis á sunnudegi. Honum var og varpaö
í Tombsfangelsið í New York og látinn dvelja þar í þrjá daga,
sökum þess að hann gekk þegjandi fram og aftur framan við
skrifstofu John D. Rockefellers. Hann var einnig handtekinn fyrir
að selja lögreglunni í Boston eintak af heilagri ritningu, og
einhverju sinni var honum varpað í fangelsi fyrir það að lesa
stjórnarskrá Bandaríkjanna á einkalandareign, enda þótt hann
hefði skriflegt leyfi eigandans í vasanum.
Satnband ísl. samvinnufélaga.
Bréfaskóll S. I. S. er ætlaður jafnt ungum
sem gömlum. Nemendur geta innritast
hvenær sem er á árinu, og mega velja um
námsgreinar. Námshraði eftir óskum.
Lágt kennslugjald. Látið Bréfaskólann
hjálpa yður til sjálfsnáms.
Bréfaskóli S. í. S., Sambandshúsinu,
Reykjavík.
<•»
Tilkynnins:
Sendiherra Thor Thors verður til viðtals í Stjórn-
arráðinu mánudaginn 5. október og þriðjudaginn 6.
október, kl. 10—12 f.h. og 2—5 e.h.
aseBwsœasíS^í:
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ,
Reykjavík, 2. október 1942.
og báðir verkamannaflokkarnir
hafa sameinazt mn að kæfa
málið þing eftir þing. Eftir að
ég ritaði um tillögur Jóns Árna-
sonar í málinu í sumar, skrif-
aði Valtýr Stefánsson í Mbl.
um, að ef rafmagn yrði lagt í
þéttbýli sveitanna yrði að
leggja dreifbýlið í auðn að öðru
leyti. Þegar nú Framsóknar-
menn fluttu þingsályktun um
raflagnir um allt landið, hlupu
nokkrir uppbótarmenn Sjálf-
stæðisflokksins fram íyrir
skjöldu, gerðu snöggsoðið
(Framh. á 4. siOu)
Neítóbaksumbúðir keyptar.
Kaupum fyrst um sinn neftóbaksumbúðir sem hér segir:
1/10 kg. glerkrukkur ....... með loki kr. 0.50
1/5 — glerkrukkur ......... — — — 0.60
1/1 — blikkdósir ........ —r — — 2.25
1/2 — blikkd. (imdan ósk. neftób. — — — 1.10
Dósirnar mega ekki vera ryðgaðar og glösin verða að
vera óbrotin og innan í lokum þeirra samskonar pappa-
og gljápappírslag og var upphaflega.
Umbúðirnar verða keyptar í tóbaksgerð vorri í
Tryggvagötu 8, fjórðu hæð (gengið inn frá Vesturgötu)
alla virka daga kl. 9—12 árdegis.
TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS.
Saltkjöt
lnnau skamms fáum vcr spaðkjöt í mörgum
tuimustærðum.
Tökum á móti pöntunum
\ « *
í síma 1080 alla virka daga
og gerum ráð fyrir að getn hafið afgrciðslu
kjötsins cftir miðjan októbcr.
Samband ísl. samvínnufélaga.
Allar góðar húsmæður
þekkja hinar ágætu
SJAFNAR-vörur
Þvottaduftið
PERLA
ræstiduftið
0PAL
kristalsápu
stangasápu
Kaupendur Timans
utan Reykjavíkur
cru minntir á, að g jalddagi 26. árgangs var 1.
júlí síðastl. Eru ficir því vinsamlega bcðiiir að
greiða ársgjaldið, kr. 15.00, sem fyrst, til inn-
heimtumanns blaðsins, cða beint til afgreiðsl-
unnar, Lindargötu 9A, Reykjavlk.