Tíminn - 15.12.1942, Page 2

Tíminn - 15.12.1942, Page 2
590 Reykjavík, þrlgjiidaginn 15. des. 1942 149. blað t^ímirm Þriðjudag 15. des. Giaðjón F. Teítsson: Vansmiði á bifreiðafrnmvarpinn - Hrossakjötsverzlun og bifreiðaúthlutun - fyrrnefndum loforðum séu nokkuð síður óþægilegar fyrir þá, sem fyrir þeim verða, held- ur en vanefndir eða ógilding á hinum siðarnefndu, þ. e. inn- kaupaleyfunum? Væntanlega er þó alveg erfiðleikalaust fyrir menn, sem fest hafa kaup á umræddum bifreiðum erlendis, að losna við þær aftur, sér að skaðlausu, annað hvort á mark- aði þar eða til samlanda sinna, sem fá leyfi og teljast hafa meiri þörf eða r#tt til kaupa. Það er algengt að láta inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfi, sem af einhverjum ástæðum hafa ekki veriö notuð, falla úr gildi eftir vissan tímæ, t. d. á áramótum. ( Virðist því harla einkennilegt, ef umrædd leyfi til innkaupa á bifreiðum, sem veitt eru af algerðu forsjárleysi og mörg hver af vansæmandi handahófi og hlutdrægni, eiga að verða nokkurskonar eilífðar- leyfi. Og illa munu menn kunna því, að bifreiðir, fluttar gegn þessum leyfum, upptaki allt til- tækilegt skipsrúm um ófyrir- sjáanlegan tíma, enda er þá skotið allmjög á frest þeirri stjórnarbót, sem felast á í fram- angreindu frumvarpi. Með skírskotun til ofanritaðs, vil ég vænta þess, að flutn- ingsmenn nefnds frumvarps verði fúsir til að fella niður um- rædda undanþágu, enda þykist ég vita, að hún sé komin inn í frumvarpið af vangá þeirra. Sumum kann að virðast, að ég sé hér að framan óþarflega hvassorður (um ráðsmennsku þeirra manna, sem að undan- förnu hafa haft bifreiðaverzl- unina á sínu valdi. En hvergi mun samt ofmælt, og vil ég því til stuönirigs og viðbótar við það, sem ég hefi áður skrifað um þessi mál og ómótmælt stendur, hérmeð benda á eftir- farandi dæmi, sem telja má einkennandi fyrir það ástand, sem ríkt hefir að undanförnu. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis, almennt kallað Kron, er sem kunnugt er, stærsta smásöluverzlun í bæn- um, og selur fyrst og'fremst brýnustu nauðsynjavörur. Þessu fyrirtæki lá mjög á því á síðast- liðnu hausti að fá litla yfir- byggða bifreið til heimsendinga á vörum innanbæjar. En bif- reiðin var ófáanleg eftir eðli- legri viðskiptaleið, þ. e. beint frá einkasölunni eða skila- nefnd fjármálaráðherrans. Aft- ur á móti var hún fáanleg á annan hátt. Einn alþingismaður Sjálf- stæðisfl., Ingólfur frá Hellu, þurfti um þessar mundir að selja mikið af hrossakjöti, en markaðurinn í bænum var yfir- fylltur. Ingólfur var samt ekki á flæðiskeri staddur, því að hann hafði fríðindi að bjóða í sambandi við sitt hrossakjöt. Hann gat boðið Kron að selja því flúnkurnýja vörubifreið, beint frá skilanefndinni, sér- staklega byggða til innanbæjar- sendinga, gegn því, að Kron keypti af honum allt hrossa- kjöt hans. Og kaupin fóru fram. Ingólfur losnaði við hrossakjöt- ið, þó aðrir væru í vandræðum að selja, og Kron fékk bifreið- ina. Guðjón F. Teitsson. Tvær unglingabækur Þegar líður að jólum, er jafn- an sem flóðgátt hafi verið opnuð, þvílíkur hafsjór af bók- um kemur þá á markaðinn. Á hverjum degi koma nýjar bæk- ur í glugga bókaverzlananna. Ekki verður bókaflóðið hvað minnst*í ár. Eins og gefur að skilja, er þar margt góðra bóka, þótt mikið sé af lélegu rusli eins og gengur. Að þessu sinni finn ég hvöt hjá mér til þess að geta tveggja yfirlætislausra og ekki stórra unglingabóka, í þvi skyni að leiða að þeim athygli fólks, sem hefir í hyggju að kaupa bækur h'anda stálpuðum börn- um sínum og unglingum. Þessar bækur eru „Drengir, sem vaxa“, eftir Aðalstein Sigmundsson og „Smávinir fagrir“ eftir Kristján Friðriksson. Þessar bækur báðar eru með talsvert nýstárlegu yfirbragði. Og þær eru ekki aðeins dægra- dvöl þeim, er þær lesa, heldur eiga þær annað og meira er- indi, sem dulið er undir yfir- borði liprar og aðlaðandi frá- sagnar. Af bók Kristjáns, „Smávinir fagrir“, er það skemmst að segja, að hún er ein sú ungl- ingabók, sem líklegust er flestra þeirra, er ég þekki, til þess að glæða ást lesandans á dásemd- um náttúrunnar og leiða at- hygli þeirra að þeim. Undir yf- irborði skemmtilegrar frásagn- ar, er hún kennslubók í grasa- fræði, prýdd fjölda ágætra mynda af blómum og jurtum og með mörgum tilvitnunum í ljóð íslenzkra skálda um blómin. Og kostur hennar er einmitt sá, að Pálmi Emarsson. ráðwiiantiiri ^amgðu^nbætnr í Dalasýsln Getum víð fengið skípatjóníð bætt? í seinasta tölublaði sjómanna- blaðsins Víkingur ritar Ásgeir Sigurðsson skipstjóri grein um siglingar íslenzkra skipa og vek- ur þar m. a. athygli á mjög at- hyglisverðri tillögu. Farast hon- um orð á þessa leið: „Það ætti að vera lágmarks- krafa íslendinga, að öll skip, er töpuðust af völdum stríðsins, skyldu bætt með nýju, eða í það minnsta jafn góðu skipi, eigi síðar en mánuði til tveim mán- uðum eftir að skip tapast. Við höfum heyrt og séð frá því sagt, hve undursamlega skamman tíma taki nú að byggja skip. Náttúrlega hljótum við að trúa því, meðan að flytj- endur fréttanna sjálfir beria það eigi til baka. Okkar skipaflota mætti því tvöfalda á mjög skömmum tíma. En eins og nú hlýtur að fara að verða ljóst öllum þorra landsmanna, þá höfum við verið þátttakendur í stríðinu, með bandamönnum, í 2i/2 ár, og á þeim tíma misst, á okkar mælikvarða, allt of mörg skip, en engin skip fengið í skarðið ennþá, þótt við sízt allra þjóða þolum skipamissi. Oss er tjáð, að aðrar þjóðir, er fylgja bandamönnum að málum, fái skipamissi sinn bætt- an og það með nýjúm og betri skipum. Hví skyldum við þá eigi einnig fá okkar skip bætt, ef vel væri á haldið? Það er sjálfsögð sanngirniskrafa.“ Þessi ósk er áreiðanlega studd af öllum íslendingum. Þjóðin hefir þegar orðið fyrir verulegu tjóni af völdum sigl- inga, sem ekki hafa siður verið í þágu Bandamanna en okkar. Nokkur skip hafa sennilega far- izt á tundurduflum hér við land. Það er ekki nema rétt- mætt, að við fáum úr þessu bætt á þann hátt, að Banda- menn útvegi okkur með sann- gjörnu verði a. m. k. jafnmik- inn skipakost og við missum af völdum hernaðarins. Það er ekki óeðlilegt, að það dragi nokkuð úr áhuga okkar fyrir siglingum, ef við fáum ekki ný skip í stað þeirra, sem við kunnum að missa. Þetta munu Bandamenn áreiðanlega skilja. Þeir munu líka sjá, að það get- ur verið alveg eins mikið í þeirra þágu og okkar sjálfra, að siglingar eða fiskveiðar íslend- inga þurfi ekki að dragast sam- an vegna skipatjóns. Þetta atriði og ýms önnur, sem snerta siglingamál okkar, þarfnast þess að hafnir verði rækilegir samningar við um- boðsmenn Bandamanna hér um þessi mál. Við ættum áreiðan- lega ekki að þurfa að vænta annars en að óskum okkar yrði tekið með sanngirni. Það ástand, sem nú ríkir í þessum málum, að togaraflotinn sé bundinn í höfn, þegar bæði íslendingar og Bandamenn hafa þörf fyrir öll skip sín, get- ur vitanlega ekki haldizt til lengdar. Það verður að reyna tafarlaust ítrustu samkomu- lagstilraunir og er þá næsta líklegt, að sú lausn finnist, er allir aðilar mega sæmilega við una. Það virðist svo, að ríkisstjórn Ólafs Thors hafi verið næsta tómlát í þessum málum. En slíkt tómlæti má ekki vara lengur. Sú nýja ríkisstjórn, sem vonandi kemst á laggirnar næstu daga, verður að láta þessi mál verða meðal þeirra fyrstu, er hún tekur sér fyrir hendur. Þ. Þ. Lesendur! Vekið athygli kunningja yð- ar á, að hverjum þelm mannl, sem vill fylgjast vel með al- mennum málum, er nauðsyn- legt að lesa Timann. Skrlflð eða símið tU Tímans og tllkynnið honum nýja áskrlf- endur. Simi 2323. Þeir Sigurður Þórðarson og Finnur Jónsson hafa nýlega lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um einkasölu á bif- reiðum, bifhjólum, hjólbörðum, hjólbarðaslöngum og um út- hlutun bifreiða. Tilgangur flutningsmanna frumvarpsins mun vera sá, að koma viðunandi skipun á um- rædda verzlun í stað þeirrar hneykslanlegu óstjórnar og hlutdrægni, sem ríkt hefir að undanförnu. En einn lítt skiljanlegur galli er á nefndu frumvarpi, og hann er að finna í 8. gr. þess, þar sem beinlínis er ákveðið, að hin nýja úthlutunarnefnd skuli ekki hafa leyfi til að skipta sér af innflutningi og ráðstöfun þeirra bifreiða, sem keyptar eru út á gömul leyfi frá fyrrverandi Bif- reiðaeinkasölu og Gjaldeyris- nefnd. En ég hefi áður sýnt fram á það hér í blaðinu, að það er Bifreiðaeinkasalan eða ráð- herrann, yfirmaður hennar, sem ber alla ábyrgð á leyfisveiting- um þessum. Nú mun það vera svo, að í Ameríku liggi mikill fjöldi fólksbifreiða, sumir segja allt upp undir 100 og aðrir segja 150, sem keyptar hafa verið gegn slíkum leyfum, er að ofan greinir, án þess að nokkur skil- yrði væru á næstunni til flutn- ings yfir hafið. Er vitað, að leyf- isveitingarnar fyrir þessum bif- reiðum eru beint áframhald af því dæmalausa handahófi og hlutdrægni, sem ríkt hefir á þessu sviði að undanförnu, þannig, að leyfishafar muni ekki hvað sízt vera einkabif- reiðaeigendur, sem fengið hafa hverja bifreiðina á fætur ann- ari hin síðustu 1—3 árin. Vil ég nú leyfa mér að spyrja, fyrst á annað borð er fahð með lögum að hrófla við ósómanum, hvers vegna eru þá hinar fram- angreindu ófullnægðu leyfis- veitingar undanþegnar því að þurfa að endursamþykkjast af hinni nýju úthlutunarnefnd? Það mun ekki tilætlun, sam- kvæmt umræddu frumvarpi, að binda hina nýju úthlutunar- nefnd við að uppfylla hin mörgu og sviknu loforð Bifreiðaeinka- sölunnar og fjármálaráðherr- ans um bifreíðar til einstakra manna og fyrirtækja. En telja menn þessi loforð nokkuð ó- merkilegri en hin, sem veitt hafa verið einstökum mönnum til sjálfstæðra innkaupa? Eða halda menn að vanefndir á Dalasýsla hefir frá öndverðu verið álitin að hafa betri skil- yrði til búrekstrar heldur enn mörg önnur héröð landsins. Landgæði eru mikil í Dölum, afréttir góðar, og má án efa með réttu segja, að fjórir af niu hreppum sýslunnar séu með betri sauðfjársveitum landsins, og sýslan sem heild hafi skilyrði til sauðfjárræktar ofan við meðallag. Það mun leitun á jafngóðum ræktunarskilyrðum og eru í Dölum, þó telja megi að tveir hrepparnir, Saurbæjar- og Miðdalahreppur beri af hvað þeim viðkemur. Fyrir þrjátíu árum voru þessar staðreyndir viðurkenndar innan héraðsins, meðal annars með þeim stór- hug, sem fram kom i héraðinu til ræktunarumbóta. Á þeim ár- um voru þessir tveir hreppar langhæstir með jarðabótafram- kvæmdir allra hreppa á land- inu. Frumkvæðið að þessum framkvæmdum má rekja til forgöngu nokkurra ötulla for- ráðamanna í héraðinu. Ekki hvað sízt til Torfa heitins Bjarnasonar í Ólafsdal og á- hrifa frá skóla hans, og þá ekki síður til stórhugs og hvatning- ar Björns heitins Bjarnasonar sýslumanns á Sauðafelli. Fleiri mætti nefna, er urðu til fyrir- rpyndar öðrum bændum 1 hér- aðinu, eins og Ólafur Finnsson á Fellsenda. Hin síðari ár hefir þótt kenna meira kyrstöðu en efni stóðu til í jafngóðu landbúnaðarhér- aði og Dalasýsla er. Orsakir til þess eru án efa fleirþættar, en eitt meginatriði hefir þó án alls efa lagt þar þyngst lóð á meta- skálar. Það eru hin erfiðu sam- gönguskilyrði, er sýslan hefir haft við að búa. Eftir að mörg önnur héröð landsins höfðu fengið bílfæra vegi var Dala- sýsla án bílfæra samgangna út úr héraðinu. Það er fyrst eftir 1930, sem vegur kemur yfir Bröttubrekku fyrir atbeina sr. Jóns Guðnasonar, er um skeið var þingmaður héraðsins. Það er mjög mikið álitamál hvort vegamálastjórnin valdi þá hina heppilegustu leið til að tryggja vetrarsamgöngur við sýsluna. Eins og vegurinn er lagður, tekur fyrir alla flutn- inga um hann i fyrstu snjóum. Framtíðarlausn á því máli er, að dómi þeirra er bezt þekkja til staðhátta, vegur yfir Heydal. Það er 20 km. leið af veginum sunnan Rauðamelsheiðar yfir á Skógarstrandarleið. Fjallgarð- urinn er hvergi hærri á leiðinni en 160 metrar yfir sjávarmál, en Bröttubrekkuvegur liggur um 400 metra yfir sjávamaál. Það, sem ennfremur vinnst við veg um Heydal, er, að þá kemst Skógarströndin jafnframt í veg- arsamband við aðalveginn sunn- an fjalls. Til þess að koma akfæru sambandi á yfir fjallgarðinn, er yrði mun tryggari lengri tíma á árinu en vegurinn um Bröttu- brekku, þarf ekki mikið fé, þótt hins vegar í framtíðinni yrði að gera ráð fyrir lögðum vegj yfir fjallgarðinn. Innan héraðs hefir syðsti hreppur sýslunnar, Hörðudalur, átt við það að búa, að sækja allar sínar nauðsynjar yfir tvær óbrúaðar ár, Hörðudalsá og Miðá, sem báðar eru allvatns- miklar og á sumum tímum árs ófærar allri umferð. Það er mjög aðkallandi verkefni, er þarf að leysa, að þessar brýr verði sett- ar á hinum hentugasta stað fyrir þá, sem eiga að nota þær, en ekki eins og ráðamenn vega- málanna og þingmaður héraðs- ins hefir gert ráð fyrir að færa þær úr leið óg brúa aðra ána, Kaldar kirkjnr Eftir dr. Gnnnlaug Claessen. Eftirfarandi athugasemdir bið ég háttvirta ritstjórn taka í blaðið út af greininni „Heil- brigt líf“ í „Tímanum“ þ. 5. des. þ. árs. Sr. Sveinn Víkingur hneyksl- ast á ummælum héraðslæknis Öxfirðinga út af kirkjum í læknishéraði hans. Hafði land- læknir tekið þau upp í Heil- brigðisskýrslur, en ég svo getið þeirra í tímaritinu „Heilbrigt líf“. Ég hefi ekki skilið orð hér- aðslæknisins sem árás 4 krist- indóminn, eins og sr. S. V., held- ur sem aðfinnslur um óforsvar- anlegt viðhald og útbúnað kirkna. Fleiri héraðslæknar (Blönduós-, Húsavíkur- og Þist- ilfjarðarhérað) hafa getið þess í embættisskýrslum sínum til landlæknis, að kirkjur væru ekki nógu vel viðhaldnar, og jafnvel ekki embættisfærar að vetri til vegna kulda og lélegs viðhalds. En svo er til ætlazt, að á ári hverju sé í heilbrigðis- skýrslunum lýst skólum, sam- komuhúsum og kirkjum frá sjónarmiði heilsunnar. Að- finnslur læknanna ber því ekki að skoða sem árás á kristin- dóminn. En hitt er rétt, að um- mæli umrædds læknis hefðu lesandinn hlýtur að nema af bókinni, án þess að vita af því, að hann sé í rauninni að nema. Mín spá er sú, að þessi ný- stárlega bók eigi eftir að reyn- ast mörgum ungum lesendum, jafnt stúlkum sem drengjum, þarfleg og glæða til verulegra muna skilning þeirra á um- hverfinu og raunar sjálfu líf- inu. Kristján Friðriksson hefir þá gott og nytsamt verk unnið með bók sinni. Hin bókin, „Drengir, sem vaxa“, er talsvert annars eðlis. Hún er sér i lagi ætluð drengj- um, og mun verða vinsæl þeirra meðal. Þar eru lifandi frásagn- ir úr lífi drengja, sumar frum- samdar af Aðalsteini, aðrar þýddar. Eru þær allar mjög við hæfi þróttmikilla stráka og lík- legar til að efla áræði, dug og réttlætistilfinningu hjá þeim unglingum, er þær lesa. Ættu þeir, sem unglingabæk- ur skrifa, að temja sér að sneiða hjá víli og voli og leit- ast þess í stað við að stæla vilj- arin til athafna og afreka. Væri vel, ef Aðalsteinn skrif- aði fleiri bækur af þessu tagi. Það yrði vel þegið, bæði af unglingunum, sem þær væru ætlaðar ,og forsjármönnum þeirra og foreldrum. Báðar bækurnar eru skrifað- ar á hreinu, látlausu og tæpi- tungulausu máli. J. H. Miðá, fram í miðjum Miðdöl- um, langt úr leið fyrir alla not- endur í þeim hreppi, er mest þarf á brúnni að halda. í vestursýslunni eru allar ár óbrúaðar, og þó það eigi að heita bílfær vegur sé frá Ás- garði að Staðarfelli, þá eru á þeirri leið fjórar ár óbrúaðar. Kringum Klofning á að heita vagnfær vegur,en er þó ekki bíl- fær frá Staðarfelli að Skarði, hinu forna og nýja höfuðbóli. Milli Skarðs og Tjaldaness er enginn vegur, og ér Skarðs- hreppur án efa einn þeirra hreppa á landinu, sem verst er settur með vegasamband. Þar verða menn að hafa ‘klyfja- flutning við alla aðdrætti. Það er árlega lagt mikið fé til að bæta og auka vegakerfið í landinu. En þrátt fyrir það er langt frá því að vegakerfi landsins fullnægi þörf þjóðar- innar fyrir bættar samgöngur. Mörg héröð hafa mjög ófull- komið vegakerfi þótt talið sé að þau séu í bílfæru vegasambandi tvo til þrjá mánuði um hásum- arið. Það virðist mjög við brenna, að megináherzla sé lögð á að gera vegasambandið sem greið- ast vegna sumarferðalaga þétt- býlisins, en minna hafi verið á hitt litið, sem ætti að vera að- alatriði, að koma upp sem ör- uggustum samgönguleiðum vegna þeirra, sem við fram- leiðslu fást í sveitum landsins. mátt vera smekkvísari. Mér er ráðgáta, að söfnuðir hér á landi skuli una við kaldar kirkj- ur og ónotaleg sæti. Þau ættu að vera eins þægileg og í kvik- myndahúsum. Klerkastéttin má ekki held- ur skoða það sem fjandskap í garð kirkju og kristindóms, þó að skoðanamunur sé um bygg- ingamál. Og þannig er það um Hallgrímskirkju, sem sr. S. V. gerir líka að umtalsefni. Það er skiljanlegt, að söfnuðir vilji koma sér upp kirkjum til guðs- þjónustuhalds. En ég leyfi mér að efast um, að þeir menn séu einlægari kristindómsvinir, sem gleypt hafa við ráðagerðinni um byggingu Hallgrímskirkj u, held- ur en þeir, sem sjá ýmislegt aðfinnsluvert við þetta guðs- hús, frá byggingarlegu sjónar- miði. Þessir menn telja ráðlegt að sjá sig um hönd, áður en hrapað er að því að byggja kirkju, sem yrði jafnhá loft- skeytastöngunum á Melunum og það mikill geimur, að inni í kirkjusalnum mætti koma fyrir tveim húsum á stærð við stór- hýsi Eimskipafélagsins, skv. grein Einars Sveinssonar húsa- meistara, er nýlega birtist um þetta mál (Morgunbl. 28. nóv. “42). Rúmmál Hallgrímskirkju áætlar húsameistarinn 25 þús. rúmmetra, en Landakotskirkja er rúmlega 6 þúsund. Ég leyfði mér að kalla þetta „ævintýra- legt fyrirtæki“ og þykir mér leitt, að þau ummæli skuli hneyksla sr. S. V. Út af spítalabyggingum kemst sr. Sveinn svo að orði: „... . þar sem vitað er, að það eru ekki hvað sízt áhrif kirkju og krist- indóms, sem stutt hafa að og hrundið hafa af stað bygging- um sjúkrahúsa í öllum kristnum löndum, og einnig hér á landi“. Það er rétt, að hér á landi hefir kaþólska kirkjan komið upp þrem myndarlegum sjúkra- húsum í Reykjavík, Hafnarfirði og í Stykkishólmi, og rekur þau. Hins vegar er mér ekki kunnugt um, að þjóðkirkjan hafi hrund- ið af stað byggingu sjúkrahúsa. En vera má, að hér sé meðfram átt við, að hugsjónir kristin- dómsins hafi örvað Alþingi, bæjarvöld og aðra aðilja til þess að • koma upp slíkum stofnun- um. Að síðustu leyfi ég mér svo að þakka sr. Sveini Víkingi fyrir vingjarnleg og viðurkennandi orð í garð tímaritsins „Heil- brigt líf“. Mér þykir lofið gott, ekki sízt af munni dómbærs menntamanns. 11. des. 1942. Gunnlaugur Claessen. Það er almennt viðurkennd staðreynd og reynsla allra þjóða hefir sýnt það, að bættar sam- göngur eru fyrsta skilyrði þess að umbætur í framleiðslúhátt- um landbúnaðarins geti orðið arðbærar. Það er hægt að benda á fjölda dæma þess, jafnvel hér hjá okk- ur, að framleiðsluaðstaðan hef- ir gerbreytzt þar sem samgöng- unum hefir verið komið í það horf, að hvert býli hefir akfær- an veg heim til sín. Það gerir framkvæmd þeirra umbóta möguleika, er bændur þurfa að inna af hendi á jörðum sínum. Það gerir þeim einnig mögulegt að koma afurðum sínum til markaðsstaðanna, á þeim tím- um, sem hentugast er markaðs- skilyrðanna vegna. Það er ekki hvað sízt þetta, sem ræður um, hvort heil héröð geta rekið ræktunarbúskap eða ekki. Það er nákvæmlega sama að krefj- ast af bændum, að þeir stofni til fullkominnar tækni í búskap sínum, án þess að þjóðfélagið sjái þeim fyrir nauðsynlegum samgöngum, eins og ef heimt- ací væri, að togaraeigendur rækju útgerð sína á hafnlausum stað. Meðan samgöngur jafn- mikils landbúnaðarhéraðs og Dalasýslu er ekki komast í betra horf, er miklum erfiðleik- um bundið fyrir bændur að gera nauðsynlegar umbætur til að skapa sér arðvænleg búrekstr- arskilyrði.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.