Tíminn - 21.05.1943, Blaðsíða 1
RITSTJÓr.I:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN. j
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
í Símar 3948 og 3720. j
RITSIJ ÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
J
\ AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
' OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
j EDDUHUSI, Lindargötu 9A.
) Sími 2323.
27. ár«g.
Reykjavík, föstndagiim 21. maí 1943
55. blað
Undirlægjuháttur íhaldsior-
6BK'
kólianna við sósíalista
HELZTU FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI:
Það er enginn munur gerandi á Moskva-
klíkunni og Kveldúlísklikunni
Seinustu dagana hefir Morgunblaðið látizt vera stór-
hneykslað yfir því, hversu mikinn undirlægjuhátt Fram-
sóknarflokkurinn hafi sýnt með viðræðunum við social-
ista á síðastl. vetri. Hefir blaðið birt hverja greinina á
fætur annari um þetta mál.
Nýir kaupíélags-
sijórar
Vísitalan. — Hjálmar Björnsson
á förum. — íslendingafélag.
Kaupfélagsstjóraskipti hafa
orðið við ýms kaupfélög að
undanförnu.
Við Kaupfélag Reykjavikur
og nágrennis hafa nýlega* verið
ráðnir þrír framkvæmdastjórar.
Eru það ísleifur Högnason, sem
var framkvæmdastjóri Kaupfé-
lags verkamanna í Vestmanna-
eyjum, Árni Benediktsson, sem
var skrifstofustjóri Áfengis-
verzlunarinnar, og Hermann
Hermannsson, sem áður var
deildarstjóri hjá félaginu.
Vegna aukinnar starfsemi fé-
lagsins var ákveðið að fjölga
framkvæmdastjórunum. Jens
Pigved, sem hafði verið fram-
kvæmdastjóri félagsins frá
byrjun, baðst lausnar fyrir
nokkru.
Við Kaupfélag Hvammsfjarð-
ar, Búðardal, hefir verið ráð-
|inn kaupfélagsstjóri Jónas Ben-
-ónýsson, sem áður var bókari
hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarð-
ar. Jón Þorleifsson, sem áður
var kaupfélagsstjóri, lézt fyrir
nokkru.
Við Kaupfél. Austur-Skaftfell-
ínga hefir verið ráðinn kaup-
félagsstjóri Bjarni Guðm.son,
sem áður var starfsmaður fé-
Iagsins. Jón ívarsson, sem áður
(Framh. á 4. siðu)
Þiogeyska mæðiveík
ín komín vesfur á
Snæfellsnes
Kýlapest í Húnavatns-
sýslu. — Garnaveiki
Það væri raunar óþarft að
svara þessum kjánalegu skrif-
um Mbl., ef þau gæfu ekki
heppilegt tækifæri til að minna
á undirlægjuhátt Sjálfstæðis-
flokksins við sósíalista. Mættu
forkólfar Sjálfstæðisflokksins
vissulega una hlut sínum vel,
ef þeir hefðu eins hreinan
skjöld í þessu máli og Fram-
sóknarmenn.
Það hefir hingað til ekki þótt
bera neinn vott um undirlægju-
hátt, þótt tveir eða fleiri aðilar
reyndu að semja um ákveðið
mál, nema ef samningar tækj-
ust á þeim grundvelli, sem væri
niðurlægjandi fyrir einn aðil-
ann, eða hann hefði boðið skil-
mála, sem voru niðurlægjandi
fyrir hann, og þeim hefði verið
hafnað. Mbl. mun vissulega
ekki getað bent á neitt slíkt í
viðræðum Framsóknarmanna
við sósíalista á síðastl. vetri.
En þetta gildir öðru máli með
forkólfa Sjálfstæðisflokksins.
Fyrir ári síðan keyptu þeir
stuðning sósíalista við stjórn
sína því verði, að hún mætti
ekki gera neitt, sem ylli ágrein-
ingi við þá, þó allra sízt í dýr-
tíðarmálunum. Aldrei hefir
meira niðurlægjandi samning-
ur verið gerður á íslandi. Öllu
meira óhappaverk hefir heldur
ekki verið unnið hér um langan
aldur, þvi að með þessum
samningi voru rifnar niður all-
ar skorður gegn dýrtíðinni og
hið stórfelldasta dýrtíðarflóð
látið flæða yfir landið.
Þetta þótti þó forkólfum
Sjálfstæðisflokksins ekki nóg.
Allt síðastl. sumar fluttu blöð
Sjálfstæðisflokksins þann boð-
skap, að eini ávinningurinn við
stjórn Ólafs Thors væri sá, að
nú tækju sósíalistar þátt í
samningum, og væri þetta upp-
haf þess, að hægt yrði að fá þá
í allra flokka stjórn, sem nauð-
synlegt væri að koma á lagg-
irnar.
Seinasta verk Ólafs sem ráð-
herra var að óska þess við rík-
isstjóra, að hann fengi sósial-
ista til að tilnefna tvo menn í
nefnd, ásamt hinum flokkun-
um, er athugaði möguleika fyr-
ir myndun allra flokka stjórn-
ar. Þessi nefnd starfaði í 6—7
vikur, án þess að nokkur árang-
ur sæist af störfum hennar.
Ólafur gerði sitt ýtrasta til að
þóknast sósíalistum þar.
Eftir nýár var Ólafur á stöð-
ugum leynifundum með Brynj-
ólfi Bjarnasyni. Fyrst reyndi
hann að fá Sósíalistaflokkinn
til að mynda stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðu-
flokknum, en síðar til að taka
þátt I allra flokka stjórn.
Það má óhætt fullyrða, að
aldrei hafi nokkur maður elt
nokkurn flokk með meiri blíð-
mælum og fleðulátum en Ólaf-
ur Thors elti Sósíalistaflokkinn
síðastliðinn vetur.
Þá má nefna samstarf sósí-
alista og Sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Reykjavíkur. Þá
(Framh. á 4. siðu)
Kauptélag Árnesinga
Vörusala félagsins var um 7 milj. kr. sl. ár
austan Þjórsár
Hinnar svonefndu þingeysku
mæðiveiki hefir orðið vart á1
nokkrum bæjum á Snæfellsnesi |
langt vestan við varnargirðing-
una. Rannsóknir hafa leitt í
ljós, að hún hefir verið í sauð-
fé á Skógarnesi í Miklaholts-
hreppi, á Búðum 1 Staðarsveit
og 2—3 bæjum í Breiðuvíkur-
hreppi.
Fullvíst þykir, að ekki geti
verið um smitun að ræða frá fé
á sýktu svæðunum. Smitun frá
karakúlfé getur heldur ekki
verið til að dreifa.
Þessi vitneskja mun vafalaust
verða til þess að breyta tals-
vert skoðunum manna um upp-
runa og útbreiðslu veikinnar.
Þá hefir orðið vart svonefndr-
ar kýlapestar í sauðfé á Þverá
I Þverárhreppi í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Líkur benda til, að
hún muni á fleiri bæjum þar
I sveitinni. Kýlapestar hefir
ekki orðið vart síðan féð var
skorið niður í Hjaitadal í Skaga-
fjarðarsýslu og Reykjadal í
~Suður-Þingeyj arsýslu.
Þá hafa rannsóknir leitt í
ljós, að garnaveiki er í sauðfé á
tveim bæjum austan Þjórsár,
að Hvammi í Landsveit og Saur-
bæ í Holtum. Garnaveiki hefir
ekki orðið vart á þessu svæði
áður.
Kaupfélag Árnesinga hélt að-
alfund sinn að Þingborg í
Hraungerðishreppi, föstudaginn
; 14. maí. —
Vörusala félagsins á erlendum
og innlendum vörum nam um
7 miljónum króna. — Tekjuaf-
gangur var kr. 334.738.40, og var
samþykkt að greiða félags-
mönnum 1 arð samtals 9% af
ágóðaskyldri vöruúttekt, 6% til
útborgunar og 3% í stofnsjóð,
eða samtals kr. 232.647.24. í
varasjóði félagsins voru lagðar
kr. 102.091.16, — og eru nú sam-
eignarsjóðir félagsins samtals
kr. 1162.736.93. —
Félagsmenn eru nú 781 og
höfðu 103 bætzt við á árinu.
Félagið rekur útibú á Eyrar-
bakka og Stokkseyri, og eins og
að undanförnu, bifreiðaverk-
stæði, íshús og saumastofu á
Selfossi.
í stjórnina voru endurkosnir
Páll Hallgrímsson sýslumaður
og Gísli Jónsson á Reykjum. —
Endurskoðandi var endurkosinn
Helgi Kjartansson í Hvammi,
og fulltrúar á aðalfund Sam-
bandsins voru kosnir Bjarni
Bjarnason á Laugarvatni og
Gísli Jónsson á Reykjum.
Á fundinum var svofelld til-
laga samþykkt í einu hljóði:
„Vegna verðlækkunar þeirr-
ar, sem ákveðin var á landbún-
aðarafurðum um s. 1. mánaðar-
mót, lætur aðalfundur Kaupfé-
lags Árnesinga, haldinn að
Þingborg 14. maí 1943, eftirfar-
andi álit í ljós:
1. Fundurinn telur það var-
hugaverða 'stefnu að lækka
verð landbúnaðarafurða með
framlagi úr ríkissjóði, til þess að
minnka dýrtíð. Sérstaklega er
þetta áhættusamt fyrir bændur,
vegna þess að ef samningar
takast ekki um dýrtíðarráð-
stafanir og ríkissjóðstillagið
fellur niður, eiga þeir undir
högg að sækja að hækka vöru
sina aftur.
2. Sé þessi aðferð eigl að síð-
ur viðhöfð, eins og nú er, ber
skilyrðislaust að greiða ríkis-
sjóðsuppbótina beint til neyt-
enda. Ættu þá bændur minna á
hættu eftir á, enda er hér um
neytendastyrk að ræða.
3. Fundurinn bendir einnig á,
að sífellt skraf um lækkun
landbúnaðarafurða á þessu
stigi, muni draga úr neyzlu
þessara vara, einkum kjöts. Mun
það eitt valda bændum ekki
litlu tjóni.
4. Að þessu athuguðu telur
fundurinn, að stjórn Búnaðar-
félags íslands hafi veikt rétt-
mæta aðstöðu bænda, með því
að fallast á lækkun þá á kjöti og
mjólkurafurðum, sem fram-
kvæmd var í byrjun þessa
mánaðar."
Á öðrum stað í blaðinu er grein eftir Jón Eyþórsson um sýningu Norrœna
félagsins á hinu þekkta verki Ibsens „Veizlan á Sólhaugum". — Hér á mynd-
inni sjást tveir leikendurnir Valdimar Helgason í gerfi Bengt Gautasonar og
Soffía GauðlaugSdóttir í gerfi Margrétar konu Bengts.
Erlent yfirlii 21. maí ;
Fá kommúnistar inngöngu í
brezka verkalýðsflokkínn?
Á þingi brezka verkamanna-
flokksins, sem haldið verður um
hvltanunnuna, mun m. a. verða
tekin endanleg afstaða til þeirr-
ar beiðni Kommúnistaflokks-
ins, að hann megi ganga inn í
verkamannaflokkinn. Er nú
hlutur brezkra kommúnista
þannig kominn, að þeir telja sig
hafa lítil skilyrði til að halda
uppi sérstöku flokksstarfi. Þess
vegna hafa þeir leitað á náðir
verkamannaflokksins.
Fyrir styrjöldina áttu kom-
múnistar næsta litlu gengi að
fagna í Bretlandi, er m. a. sést
á því, að þeir áttu aðeins einn
fulltrúa á þingi. Á þeim tíma
voru þeir þó einna skeleggastir
I hópi þeirra, sem heimtuðu
baráttu gegn nazismanum. En
þessi áróður þeirra breyttist
skyndilega, þegar Rússar og
Þjóðverjar undirrituðu griða-
sáttmálann. Fyrstu mánuði
styrjaldarinnar héldu þeir því
fram, að heimskulegt væri að
halda styrjöldinni áfram og
verkamenn ættu því að krefjast
friðarsamninga tafarlaust.
Þennan áróður hertu þeir eftir
fall Frakklands og meðan Þjóð-
verjar gerðu sem harðastar
loftárásir á Bretland.
Eftir að þýzk-rússneska
stríðið hófst, breyttu brezkir
kommúnistar enn um áróðurs-
tón. Nú var ekki aðeins sjálf-
sagt að halda styrjöldinni á-
fram. Nú var styrjöldin orðin
heilagt stríð gegn nazismanum!
Hin hreystilega vörn . Rússa
hefir orðið til þess að breyta
mjög skóðun brezku þjóðarinn-
ar á Rússum og byltingunni þar.
Engum stjórnmálaflokki myndi
nú þolast að standa gegn sam-
vinnu Breta og Rússa. Hins veg-
ar hefir þeirri skoðun samt
ekkert aukizt fylgi, að Bretar
eigi að leggja niður aldagamla
stjórnarhætti sína, taka stjórn-
arfar Rússa sér til fyrirmyndar
og efla flokk innanlands, sem
eingöngu fylgir leiðsögu rúss-
neskra stjórnmálamanna.
Stríðsgengi Rússa hefir því
ekkert eflt brezka kommúnista-
flokkinn. Hin síbreytilega af-
staða hans til styrj aldarmál-
anna, sem sagt er frá hér að
ofan, hefir stutt að því meira
en nokkuð annað, að megin-
þorri brezkrar alþýðu litur ekki
á hann sem brezkan flokk.
Fylgi flokksins er nú svo lít-
ið, að hann hefir yfirleitt ekki
getað haft frambjóðendur í
kjöri í aukakosningum og þeir
(Framh. á 4. síðu)
Seinustu fréttir
Churchill flutti ræðu i ame-
ríska þinginu I fyrradag. Hann
sagði að loftsóknin yrði hert
og myndi hún bera mikinn ár-
angur. Þá sagði hann, að Banda-
menn yrðu að gera sitt ýtrasta
til að hjálpa Rússum í sumar,
því að Þjóðverjar myndu vafa-
laust hefja þar sókn innan
skamms. Hann lýsti yfir því, að
Bretar myndu veita Banda-
ríkj amönnum fyllstu aðstoð
gegn Japönum. Hann varaði við
of mikilli bjartsýni og bað menn
að vera undir það búna, að
ýmsir sorglegir atburðir gætu
gerzt næstu fimm árin.
Loftsókn Bandamanna gegn
■bjóðverjum harðnar stöðugt.
Fyrir nokkrum dögum voru tveir
stærstu stíflugarðarnir í Þýzka-
landi eyðilagðir (Möhne og
Eder) og hafa flóðin valdið
miklu tjóni. Er þetta talið eitt
mesta áfall Þjóðverja í styrj-
öldinni. Þá hafa hafnarborgir
Þjóðverja við Eystrasalt orðið
fyrir miklu tjóni. Miklar árásir
hafa og verið gerðar á Sikiley.
Bráðabirgðasamningarnir í
koladeilunni í Bandaríkjunum
hafa verið framlengdi? um
hálfan mánuð.
Á Attu hefir innrásarliðið
ameríska unnið mikið á. Setulið
Japana er talið í mikilli hættu.
Skipatjón Breta I styrjöldinni
til þessá er helmingi meira en
skipatjón Bandaríkjanna.
Við Novorossisk halda Þjóð-
verjar uppi gagnáhlaupum.
Tjón möndulveldanna í Afríku
styrjöldinni er 950 þús. her-
menn, 2.400 þús. smál. skipa-
stóll, 8000 flugvélar, 6400 fall-
byssur, 2550 skriðdrekar og 70
þús. flutningabifreiðar. Chur-
chill bilti þessar upplýsingar í
ræðu þeirri, sem hann flutti í
ameríska þinginu.
HVADA SKR0K-
SAGA KEMUR
NÆST?
Haraldur Guðmundsson hefir
nú tekið það skýrt fram í
greinaköflum sínum í Alþýðu-
blaðinu um störf níumanna-
nefndarinnar, að Framsóknar-
flokkurinn hafi aldrei borið þar
fram neina tillögu um lög-
þvingaða kauplækkun, en sósí-
alistar hafa haldið því fram, að
samningarnir um vinstri stjórn
hafi strandað á því.
í Alþýðublabinu 18. þ. m. far-
ast Haraldi þannig orð um dýr-
tíðartillögur Framsóknarflokks-
ins:
„Þær munnlegu skýringar
fylgdu þessum tillögum, að
ætlunin væri ekki að lögbjóða
Iækkun kaupgjalds og afurða-
verðs, heldur skyldi, ef orðið
yrði við kröfu Alþýðuflokks-
ins um lækkun dýrtíðarinnar
að ákveðnu marki, leitast við
að koma á samkomulagi milli
fulltrúa bænda og verka-
manna um að afurðir og
kaupgjald lækkuðu meira en
dýrtíðin, en þá yrði sú lækk-
un að vera hlutfallslega jöfn.“
Þá segir Haraldur á öðrum
stað í greininni:
„Það er því ekki rétt, að
Framsóknarflokkurinn hafi
gert það að skilyrði fyrir
stjórnarstarfi, að lögboðin
skyldi kauplækkun."
Þessi ummæli Haralds sýna
bezt, hversu fullkominn upp-
spuni það er hjá sósíalistum, að
Framsóknarflokkurinn hafi
(Framh. á 4. siðu)
Á víðavangi
VERÐUR UNNIÐ NÝTT
ÓHAPPAVERK í SJÁLFSTÆÐ-
ISMÁLINU?
Þegar Sjálfstæðisflokkurlnn
hefir verið kominn í málefna-
þrot, hefir hann jafnan gripið
til þess að hampa sjálfstæðis-
málinu.
Það var þó. talið, að sú með-
ferð, sem þetta mál hlaut fyrir
tilverknað flokksins á síðast-
liðnu vori, myndi nægja til þess
að flokkurinn misnotaði málið
ekki oftar.
En Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ir enn ekkert lært. Einu sinni
enn hyggst hann að misnota
sjálfstæðismálið. Nú þykist
hann ætla að hafa forgöngu í
atkvæðagreiðslunni, sem verð-
ur um málið fljótlega. Þetta
auglýsir formaður flokksins í
Mbl. í gær.
Þeim tilmælum skal enn einu
sinni beint til Sjálfstæðisflokks-
ins, að hann reyni að halda
hinum óhreinu loppum flokks-
formanns síns frá þessu máli
og hagi sér loksins á þá leið, að
þetta sé mál allrar þjóðarinnar,
en ekki eins flokks eða einnar
stjórnmálastefnu. Allir flokkar
eiga að standa saman í þessu
máli og áróðurinn í sambandi
við atkvæðagreiðsluna á að
vera í nafni allra flokkanna.
Enginn flokkurinn má skerast
úr leik og látast vera öðrum
fremri. Reynum að láta sundr-
unguna víkja og verða allir eitt
í þessu máli, þegar lokasporið
verður stigiZf.
Þess er því fastlega vænzt, að
greindari og gætnari menn
Sjálfstæðisflokksins komi í veg
fyrir, að óhappamennirnir og
gervi-íslendingarnir í flokknum
fái því áorkað, að samstarfið
um þetta mál fái annan og leið-
inlegri blæ en verða myndi, ef
flokkssjónarmiðið væri einu
sinni látið víkja.
HITAVEITAN.
Tröllasögur miklar hafa geng-
ið hér í bænum að undanförnu
(Framh. á 4. síðu)