Tíminn - 21.05.1943, Page 4
220
TÍMEVIV, fösinclaglnn 21. maí 1943
55. blað
fj- R BÆNCN
Grieghlj ómleikar.
Tónlistarfélagið hefir ákveðið að
halda hátiðartónleika í tilefni af 100
ára afmæli norska tónskáldsins Edvard
Grieg bann 23. þ. m. Tónleikarnir
verða haldnir í Gamla Bíó og hefjast
kl. 13,30 e. h. Hljómsveit Reykjavíkur
leikur undir stjórn dr. Viktors Urbant-
schitsch. Árni Kristjánsson leikur
einleik á píanó og Sigurður Markan
syngur.
Trúlofanir.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
uncrfrú Una Þorgilsdóttir, Þorgilsstöð-
um, Ptóðárhreppl og Guðmundur Sig-
mundsson, Hofsós.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Guðrún B. Sigurðardóttir,
Biörnssonar frá Veðramóti, Fjólugötu
23, og Sigurður Benediktsson, Björns-
sonar fvrv. skólastjóra á Húsavík,
Þingholtsstræti 27.
Trúlofun sina opinberuðu síðastl.
sunnudag Þorbjörg Jónsdóttir frá
Brekku í Núpasveit og Kjartan Helga-
son kennari.
Ungmennafélag Reykjavíkur
sem nú er rúmleea ársgamalt, efnir
til samkomu I Listamannaskálanum i
kvöld (föstudag) kl. 8%. Á samkom-
unni mun Árni Óla, blaðamaður halda
ræðu, Þorsteinn Heleason syngja ein-
söng o" Guðjón Benediktsson segja
endurminningar frá starfi ungmenna-
félaea í Skaftafellssýslum. Að lokum
verður stiginn dans. Hljómsveit Bjarna
Böðvarssonar leikur.
*
Hjónaband.
Fyrir skömmu voru gefin saman í
hiónaband ungfrú Katrín Ólafsdóttir,
Brekkustig 14, og Elías Guðmundsson
frá Vorsabæjarhjáleigu i Flóa.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Björg Jónsdóttir frá Öl-
valdsstöðum og Eiríkur Erlendsson, af-
greiðslumaður i prentsmiðjunni Eddu.
TjarnarboðhlaupiS
fór fram síðastl. sunnudag. Sigurveg-
arinn var A-sveit K. R. á 2 : 44,4 mín.,
önnur var Fimleikasveit Hafnarfjarðar
2 : 47,2 mín. og þriðja sveit í. R. 2 : 48,4
mín.
Ellilaun og örorkubætur.
Framfærslunefnd Reykjavíkurbæjar
hefir nú úthlutað styrkjum til þeirra
manna, er njóta ellilauna og örorku-
bóta. Styrkþegar voru alls 1631, en féð.
sem úthlutað var samtals krónur
2.070.691,00.
Deila
stendur yfir milli viðskiptaráðs og
kjólasaumastofu. Vilja saumastofurnar
ekki hlýta því hámarksverði, sem við-
skiptaráð hefir ákveðið, og stöðvað
sölu á framleiðslu sinni í mótmæla-
skyni. Slíkt er þó ekki samrýmanlegt
lögum og hefir því viðskiptaráðið kært
þær.
•
Brot á verðlagslögunum.
Eftirgreindar verzlanir hafa nýlega
verið sektaðar sem hér segir, fyrir
brot á verðlaksákvæðum: Guðni Reyn-
dal & Co. (brauðgerð), 500 kr. sekt fyr-
ir að selja of létt brauð. Verzl. Guðrún.
ar Þórðardóttur, 300 kr. sekt fyrir að
selja vefnaðarvöru með of hárri á-
lagningu. Veitingarstofan, Bergþóru-
götu 2, 100 kr. sekt fyrir að selja öl og
gosdrykki of háu verði. Veitingastofan
Alma, 200 kr. sekt fyrir að selja bjór
of háu verði. Veitingastofan Svalan,
1500 kr. sekt fyrir að selja bjór og gos-
drykki of háu verði.
A víðavangl.
(Framh. at 1. siBu)
um, að hitaveituefni hafi horf-
ið í stórum stíl og verið lánað
eða selt einstaklingum.
Vísir minnist á þetta nýlega
og þykir kynlegt, að þegar blað-
ið spurðist upphaflega fyrir hjá
borgarstjóra um sannleiksgildi
þessara sögusagna, kvaðst
borgarstjóri ekkert tím það vita.
En nú hefir hann allt í einu
lýst yfir því við blaðið, að þær
væru tómur uppspuni.
Hið sanna i málinu mun vera,
að borgarstjóri hafi sent rann-
sóknarlögreglunni kæru og beð-
ið um rannsókn. Virðast því síð-
ari ummæli borgarstjóra benda
til, að ekkert hafi komið fram
við rannsókn, sem gæti talizt
saknæmt, eða þess virði að gera
veður út af því.
En meðal annarra orða, því
segir borgarstjóri ekki hrein-
lega frá kæru sinni og niður-
stöðu af rannsókninni?
ÚTVARPIÐ 1. MAf.
Að kvöldi 1. maí voru þrjár
ræður fluttar í útvarpið á veg-
um hátíðanefndar dagsins. For-
seti Alþýðusambandsins, Guð-
geir Jónsson, hélt drengilega og
vel á sínum málstað. Sigurður
Thorlacius virtist vilja koma
þeirri skoðun inn hjá hlustend-
um, að starfsmenn ríkis og bæj-
arfélaga væru 1 röð helztu fram-
leíðanda landsins! En varafor-
seti Alþýðusambandsins flutti
hreinræktaða byltingaræðu án
þess að skera nokkuð við neglur
sér.
Undirlægjuháttur . . .
(Framh. af 1. siðu)
má nefna formannskosninguna
í menntamálaráði. Vilhjálmur
Þ. Gíslason hafði verið ákveð-
inn formaður þess. En sósíalist-
ar vildu hann ekki. Valtýr Ste-
íánsson var því látinn svíkja
Vilhjálm og kjósa sjálfan sig.
Hann fékk einnig atkvæði só-
síalistans og Alþýðuflokks-
mannsins. Fleiri atkvæði fékk
hann ekki.
Þetta er nóg, þótt fleira mætti
nefna, til þess að sýna undir-
lægjuhátt og sleikjuskap Sjálf-
stæðisforkólfanna við Sósíal-
istaflokkinn. Þeir-vita líka sem
er, að eina leiðin til þess að
koma í veg fyrir róttæka um-
bótastjórn, er að halda Sósíal-
istaflokknum frá samstarfi viö
Framsóknarflokkinn og Alþýðu-
flokkinn.
Morgunblaðið heldur víst, að
það geti þvegið Sjálfstæðis-
flokkinn af þessum undirlægju-
hætti við sósíalista með því að
áfella Framsóknarflokkinn fyr-
ir það sama. En þar er svo ólíku
saman að jafna, að slíkt er ekki
hægt. Slikt er svo fávitalegt, að
fátt hefir betur sýnt, að Morg-
unblaðið verðskuldar með sanni
nafnbótina' „málgagn heimsk-
unnar“.
Það er líka alveg óþarft fyrir
Mbl., að látast þurfa að innræta
Framsóknarmönnum þá hættu,
sem getur stafað af Moskvu-
klíkunni. Framsóknarmenn
þekkja hana vel. Þeir vita lika
meira. Þeir vita, að klíkan, sem
ræður Sjálfstæðisflokknum,
Kveldúlfsklíkan, er ekki síður
þjóðhættuleg. Vopnaburður
hennar er sízt heiðarlegri, sbr.
Kleppsmálið og \kollumálið.
Drenglyndi hennar er sízt
meira, sbr. drengskapareiður-
inn, sem Ólafur Thors vann í
kjördæmamálinu. Undirlægju-
skapur hennar við útlendinga
er sízt minni, sbr. þegar setja
átti íslenzku togarana undir
spánskan fána. Þannig mætti
lengi telja. Framsóknarmenn
þekkja vel innræti og fyrirætl-
anir beggja þessara klikna. Þeir
vita, að ekki verður skapað
heilbrigt stjórnmálasamstarf í
landinu fyrr en annarri hvorri
eða báðum þessum klíkum hef-
ir verið komið fyrir kattarnef.
Erlcnt yfirlit
(Framh. af 1. síðu)j
frambjóðendur, sem hann hefir
stutt, hafa jafnan náð litlu
fylgi. Flokksforustunni er því
ljóst, að fyrst stríðsgengi
Rússa megnar ekki að hjálpa
honum, þegar því er mest at-
hygli veitt, muni hann ekki
vænlegur til vaxtar í framtíð-
inni. Þess vegna hefir hún tal-
ið ráðlegast að sækja um inn-
göngu í Verkamannaflokkinn
meðan fylgið er þó ekki minna
en það er nú.
Afstaða brezku þjóðarinnar til
kommúnista virðist koma ljóst
fram í orðaskiptym, er urðu
milli Churchills og komAún-
istaþingmanns um það leyti, er
brezk-rússneski vináttusamn-
ingurinn’ var undirritaður.
Þingmaður kommúnista reis þá
upp í þinginu og tók að gefa
Churchill ýms ráð. Churchill
svaraði því einu, að hann sækti
ekki ráð til manna, er væru
háðir erlendri stjórn.
Líklegt þykir að þing. verka-
mannaflokksins muni fella inn-
tökubeiðni Kommúnistaflokks-
ins. Stjórn flokksins hefir þeg-
ar hafnað henni fyrir sitt leyti.
Forsendur hennar eru einkum
þær, að hún vilji ekki hafa
innan vébanda flokksins litla
klíku, sem lúti erlendum valda-
mönnum og muni því áreiðan-
lega ekki virða nein heit um að
halda ekki klofningsstarfinu á-
fram. Þetta tilboð kommúnista
byggist fyrst og fremst á því,
að þeir vilji fá bætta aðstöðu
til að reka áróður sinn, þar sem
þeir treystist ekki lengur til að
halda saman flokki. Flestir af
fulltrúum þeim, sem verka-
lýðssamtökin eiga í verkalýðs-
flokknum, hafa tekið undir
þetta. Er það athyglisvert, að
þeir forvígismenn verkamanna-
flokksins, sem frábitnastir eru
kommúnistum, hafa nær allir
komið úr verkalýðsfélögunum.
Þeir hafa fengið þar náin kynni
af vinnubrögðum kommúnista
og bera því ekki traust til
þeirra.
Frá aðalíundl
Ferðafélagsins
(Framh. af 3. síðu)
r
mönnum Kerlingarfjöll). Næsta
árbók félagsins verður um
Rangárvallasýslu og hefir Skúli
Skúlason ritstjóri samið hana
að mestu leyti. Mun hún koma
út með haustinu. Árbók 1944
ritar Gunnar Gunnarsson skáld
að Skriðuklaustri. Mun hún
fjalla um Fljótsdalshérað.
Nýtt íslandskort er í prentun
í Washington, mælikvarði 1:
750000.
Stjórnarkosning fór fram að
fundarlokum. Voru allir þeir, er
úr stjórninni gengu að þessu
sinni, endurkosnir, Geir G. Zo-
éga forseti, Steinþór Sigurðs-
son varaforseti, Jón Eyþórsson,
Gísli Gestsson, Lárus Ottesen,
Pálmi Hannesson og Guðmund-
ur Einarsson frá Miðdal með-
stjórnendur.
Helztu fréltir
(Framh. af 1 iriðu)
var kaupfélagsstjóri, baðst
lausnar fyrir nokkru.
Við Kaupfélag Hrútfirðinga
hefir verið ráðinn kaupfélags-
stjóri Kjartan Guðjónsson, sem
var kaupfélagsstjóri á Eskifirði.
Við Kaupfélagið Björk á
Eskifirði hefir verið ráðinn
Friðgeir Ingimundarson, sem
var starfsmaður hjá Kaupfélagi
Vonnfirðinga.
Við kaupfélagið á Bíldudal
hefir verið ráðinn kaupfélags-
stjóri Böðvar Pálsson, sem var
áður forstöðumaður Samvinnu-
félags Dalahrepps í Arnarfirði.
Loftur Jónsson, sem áður var
kaupfélagsstjóri, fórst með
Þormóði.
Tómata pasta 1.65
Mayonaise 2.50
Salad Dressing 2.25
Sandwich Spread 3.90
Ananassulta, 16 oz. gl. 5.75
Ananassulta, 2 lb. gl. 10.00
Appelsínumarmelade, 1 lb. gl.
5.75
Appelsinumarmelade 2 lb. gl.
10.00
Bl. grænmetissafi 12y2 oz. ds.
2.00
Eplasafi 12 y2 oz. ds. 2.00
Appelsínusafi 12 y2 oz. ds. 3.15
Ananassafi 12i/2 oz. ds 3.60
Piparrót 2.25
Ætisveppir 2.80
Capers 2J4 oz. gl. 3.95
Capers 4J/2 oz. gl. 5.85
Stúlkur
vantar að Vífilsstöðum.
Upplýsingar hjá yfirhjúkr-
unarkonunni í síma 5611 eða í
skrifstofu ríkisspítalanna.
Hugvekjur
Kauplagsnefnd hefir reiknað
út vísitöluna fyrir maímánuð.
Verður hún 249 stig eða 12 stig-
um lægri en aprílvísitalan.
Lækkunin stafar aðallega af
verðlækkunum þeim, sem ný-
lega urðu á mjólk og kjöti, sam-
kvæmt dýrtíðarlögunum.
Hjálmar Björnsson, viðskipta-
fulltrúi láns- og lei’gustofnun-
ar Bandaríkjanna, er á förum
héðan. í tilefni af því hélt Þjóð-
ræknisfélagið honum kveðju-
samsæti að Hótel Borg á þriðju-
dagskvöldið.
Hjálmar hefir getið sér bezta
orð hér. Munu beztu árnaðar-
óskir fylgja honum héðan.
íslendingafélag hefir verið
stofnað í London. Stjórn þess
skipa: Björn Björnsson, for-
maður, Karl Strand, Magnús V.
Magnússon, Brynhildur Sören-
sen og Bjarni Gíslason.
Hvaða skröksaga
kemur næst?
(Framh. af 1. siðu)
heimtað lögþvingaða kaup-
lækkun og þannig spillt fyrir
vinstri stjórn.
í níumannanefndinni var sá
ágreiningur í dýrtíðarmálinu, að
sósíalistar og Alþýðuflokks-
menn vildu minnka dýrtíðina
með lækkun afurðaverðsins ein-
göngu, en Framsóknarmenn
vildu minnka hana með jafnri
lækkun afurðaverðsins og kaup-
gjaldsins. J^að var þó aldrei
þrautreynt, hvort ekki gæti
dregið saman í þessum málum,
vegna þéss að ljóst var að sam-
komulag næðist ekki um önnur
mál, pólitísk verkföll, rafmagns-
málið, þingrofsákvæðið o. fl.
Samningarnir strönduðu því
ekki á dýrtíðarmálinu, heldur
skilyrðum sósíalista í öðrum
málum.
Þessu hafa sósíalistar viljáð
leyna. Þess vegna hafa þeir bú-
ið til skröksöguna um hina lög-
þvinguðu kauplækkun, sem
Framsóknarflokkurinn hafi
heimtað. Nú er hún naumast
haldbær lengur, þegar fulltrúar
Alþýðuflokksins háfa einnig
vitnað gegn þeim. Til hvers
verður nú gripið? Hvaða skrök-
saga skyldi koma næst?
Dvöl
Draglð ekkl lengur ae
geraat áskriíendur að
Dvöl, þessu sérstœBe
r.ímarlti i Islenzkiun bókmenntum. —
Vkkur mun þykja vænt um Dvöl, og
bvi vsenna um hana sem þið kynnlzt
Anglýsið í Tímanum!
(Framh. af 2. siðu)
blaði Tímans. Ég er honum
vissulega sammála um það, að
bændur eigi að standa saman.
En mér íinnst of mikill bar-
lómsbragur að kvæðinu. Hvaða
stétt, sem er, hvort heldur
bændur eða aðrir, gera sér ekk-
ert gagn með því að einblína
alltaf á það, sem miður fer.
Þeir eiga ekki síður að sjá það,
sem betur fer. Við bændur get-
um kvartað yfir ýmsu; það held
ég líka, að allir geti gert. En við
getum líka verið ánægðir yfir
mörgu. Við höfum sótt fram og
unnið mikið á seinustu áratug-
ina. Enginn sá, sem athugar
framfarirnar í sveitum, þarf að
láta hugfallast. Ég efa það, að
bændastéttin hafi nokkuru
sinni verið dugmeiri og betur
skipuð en í dag. Afkoma bænda
hefir líka oftast verið lakari.
Blessaður Kolbeinn, kveddu þvi
ekki meira um pestirnar, kar-
töflukláðann og. eymdina
Kveddu um móana, sem við höf-
um tætt í sundur og gert að
grænu túni, mýrarnar, sem við
höfum ræst fram og gert að
töðuvelli, hin nýju, stórvirku
verkfæri, sem við höfum tekið
í þjónustu okkar, kaupfélags-
skapinn, sem tryggir okkur
sanngjarnt verðlag, búnaðar-
samtökin, er bæta aðstöðu okk-
ar á ýmsan hátt o. s. frv. Berðu
þetta saman við fortíðina, svo
að sigrar okkar komi skýrt i
Ijós. Það er svona kveðskap, sem
við þurfum nú, kveðskapur, sem
eykur okkur bjartsýni og trú,
trú á okkur sjálfa, trú á landið.
Það er yrkisefni, sem er þér
samboðnara en vílið og volið,
Kolbeinn minn“.
Nokkur atriði úr hag-
sögu landbúnaðarins
(Framh. af 3. síðu)
lítilla fjármuna til stofnkostn-
aðar, en hann krefst mikils
vinnuafls. Hagnýting vinnu-
aflsins hjá honum getur valdið
miklu um hinn fjárhagslega á-
rangur. Tækni búskapar krefst
mikilla fjármuna í stofnkostn-
aði, og um leið gerir hann
miklu meiri kröfur til þekking-
ar og hagsýni í framkvæmdum,
en það eru hlutir, sem ávinn-
ast gegn um lífsreynslu kyn-
slóðanna.
Þeir, sem hafa tekið þátt i
byltingunni, er hér hefir átt
sér stað, hafá tileinkað sér
margt af gæðum tæknibú-
skapar, en eiga þó- enn langt í
land að hafa vald á verkefnum
hans á þann hátt, er starfs-
»*---- GAMLA BÍÓ FLJÓTAÍVDI GULL ■»■»..... „ NÝJA BÍÓ SIGUR
(Boom Town) f EYÐIMÖRKCVNI
CLARK BABLE, (Desert Victory)
SPENCER TRACY, Stórfeld ensk hemaðar-
CLAUDETTE COLBERT, mynd tekin á vigvöllimum
HÉDY LAMARR. 1 Afríku.
Sýnd kl. 7 og 9. Tunglsljós á
KL SVV— Ilawnii
NJÓSNARAR í SAN DIEGO (Moonlight in Hawaii) Söngvamynd með
Ray MacDonald. MICHA AUER og JANE FRAZER.
Bonita Granville. Sýningar kl. 4, 6,30 og 9
— j
ÚTBORGUN
tekjuafgangs er hafin. Félagsmenn í Reykjavík gjöri svo vel og
vitji hans í skrifstofuna á Skólavörðustíg 12 kl. 10—12 fyrir
hádegi alla daga nema laugardaga.
ATH. að skrifstofan er flutt í nýbygginguna á 3. hæð.
Auglýsmg um hámarksverð
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á nýj-
um laxi:
í heildsölu ..................... kr. 5.00 pr. kg.
í smásölu:
a) í heilum löxum .............. — 6.00 — —
b) 1 sneiðum ................... — 7.50 — —
Reykjavík, 19. mai 1943.
Verðlagsstjórinn.
Vcstfirðingafélagið.
2 Vestfjarðarlerðum
hefir Vestfirðingafélagið ákveðið að gangast fyrir í sumar, 1 júlí-
byrjun, ef nægileg þátttaka verður. —
Önnur ferðin með bíl um Kinnarstaði til ísafjarðar og víða um
Vestfirði. — Hin með skipi til Patreksfjarðar og á hestum suður
á Barðaströnd og víðar.
Áskriftarlisti í Hattaverzlun Sigríðar Helgadóttur, Lækjargötu
2, til 10. júní. STJÓRNIN.
Tílkynníng
Irá Kjötverðlagsneínd.
*
Samkvæmt tilmælum landbúnaðarráðuneytisins hefir kjöt-
verðlagsnefnd ákveðið eftirfarandi um verðlag á kjöti og vörum
unnum úr kjöti:
Hangikjöt í heildsölu .... . . kr. 7,70 hvert kíló
do. í smásölu . . — 8.80 hvert kíló
Saltkjöt í heildsölu . . — 530.00 hver 112 kg. tunna
do. í smásölu • • —- 5.20 hvert kíló
Ærkjöt i heildsölu:
kroppar 19 kg. og yfir . . . . — 4.40 hvert kíló
kroppar undir 19 kg. . . . . — 3.90 hvert kíló
Nautakjöt í heildsölu: 1/1 og 1/2 kroppar .... 5.60 hvert kíló
læri 6.90 hvert kíló
frampartar . . — 5.00 hvert kíló
Alikálfakjöt í heildsölu:
1/1 og 1/2 kroppar .-. — 6.40 hvert kíló
Ungkálfakjöt í heildsölu . . . . _ 3.00 hvert kíló
Smásöluverð lækki i samræmi við ofangreint heildsöluverð og
heildsölu og smásöluverð á kjötfarsi, pylsum, söxuðu kjöti og
kæfu lækki í hlutfalli við það.
bræður þeirra erlendis hafa náð
í gegnum aldarþjálfun.
Þetta atriði hefir gert það að
verkum, að kynslóðin, sem stóð
að þeim framkvæmdum, er
lýst hefir verið, hún leysti af
hendi skyldur sínar við þjóðfé-
lagið betur en henni tókst að
sjá sínum persónulega hag
borgið í gegn um fjárhagslegan
ávininng af búrekstri sínum.
Skal þeirri staðhæfingu
fundinn staður með athugun á
hagfræði landbúnaðarins, er
birtist í næsta blaði.
KAUPMENN, KAUPFÉLÖG OG
EINSTAKLINGAR!
Höfum ennþá nokrar birgðir
af gúmmískóm og gúmmilimi.
Sendum gegn póstkröfu um
lanS allt.
GÚMMÍSKÓGERÐ
AUSTURBÆJAR
Laugaveg 53 B Sími 5052
Munið
Verzlun H. T0FT
Skólavörðustig 5