Tíminn - 08.06.1943, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.06.1943, Blaðsíða 2
238 TlMIlVIV, þrlðjndagmii 8. jiiní 1943 60. blað ^ímirrn Þriðjudagtir 8. jtíní BRÉF T I L TÍMANS: Úthlutun ríthðfundanefndar Eígnaauka- skatturínn Nokkru áður en þinginu var frestað, var lagt fram frumvarp um eignaukaskatt. Frumvarpið var flutt af fulltrúum frá Al- þýðuílokknum, Framsóknar- flokknum og Sósíalistaflokkn- um. í frv. er gert ráð fyrir því, að leggja sérstakan skatt á eigna- aukningu áranna 1940, *1941 og 1942, er nemur meira en 80 þús. kr. Undanþegnir skattinum verða nýbyggingasjóðir útgerö- arinnar og varasjóðir samvinnu- félaga. Helztu rökin, sem frumvarpið hvílir á, eru þessi: 1. Meginhluti þeirra eigna- aukningar, sem skapazt heí'ir á þessum árum, hefir meira fallið' eigendunum í skaut fyrir óeðli- lega rás viðburðanna en dugnað og framtakssemi. Þessi gróði er því allt annars eðlis en venju- legur starfsgróði. Þess vegna ber að Iíta meira á hann sem sameign þjóðarinnar en séreign einstaklinga. 2. Hin óhóflega mikla auð- söfnun fárra aðila seinustu ár- in mun í framtíðinni skapa þeim óeðlilega mikil völd á kostnað almennings. 3. Það er engin tíygging fyrir því, að mikil auðsöfnun einstak- linga, t. d. kaupsýslumanna, komi atvinnuvegunum til góða og styrki viðreisnarstarfið, sem hefja þarf eftir styrjöldina. 4. Eftir styrjöldina skapast mörg fjárfrek vérkefni, sem rík- ið verður neytt til að leysa. Þess vegna þurfa fjárráð þess að aukast og er eitt öruggasta ráðið í þeim efnum að safna nú fé til þessara framkvæmda. í málgögnum stórgróðamann- anna er einkum notuð sú .rök- semd, að nauðsynlegt sé vegna atvinnuveganna að leyfa þeim ríflega auðsöfnun. En eins og áður er sagt, er auðsöfnun þeirra engin trygging fyrir at- vinnulífið. í fyrsta lagi má bú- ast við erfiðu árferði eftir styrj- öldina og er venja gróðamanna að halda að sér höndum á slíkum tímum. í öðru lagi fara menn jafnan ver með fjármuni sem þeir eignast meira. Óhófs- eyðslan eykst í hlutfalli við auð- inn. T. d. er talið, að einn hinna nýríku gróðamanna hafi reist sér „villu“ fyrir 500 þús. kr. Annar er sagður hafa' byggt sumarbústað fyrir 100 þús. kr. Frú þess þriðja er álitin að hafa keypt pelsa, danskjóla og annan fegurðarvarning á einu ári fyr- ir 40—50 þús. kr. Veizlufagnað- ir, er kosta 10—20 þús. kr., eru algengt fyrirbrigði hjá þessum mönnum. Þess eru dæmi, að ein fjölskylda hafi haft 2—3 luxus- bíla í einu. Þannig mætti lengi telja. Öll sýna þessi dæmi, að mikill hluti auðsöfnupar stór- gróðamanna er tekinn frá at- vinnurekstrinum og notaður í óþarfa eyðslu. Meðan rekstrar- fyrirkomulaginu sjálfu er ekki breytt, verður ekki spornað gegn þessu, nema með sköttum. Það er alveg sama hvernig lit- ið er á þessi mál, þá mæla öll rök með auknum sköttum á stórgróðanum. Hitt er annað mál, að skattar eru vafalaust þegar orðnir fullháir á einstakl- ingum með miðlungs tekjur og minni fyrirtækjum. Hæfileg fjársöfnun slíkra aðila er æski- leg fyrir þjóðfélagið og þess vegna verður að varast að hindra hana með sköttum. Slíkt var gert meðan Framsókn- arflokkurinn réði mestu um skattamálin, því að markmið hans er að veita mönnum að- stöðu til að verða bjargálna. En síðan Sjálfstæðisflokkurinn fór að hafa áhrif á skattamálin, hefir mjög verið höggvið í þennan hnérunn til að hlífa stórgróðanum. Vandinn er líka sá, að ríkinu verður að sjá fyrir nýjum tekjustofni, ef ívilnanir verða gerðar í þessum efnum, því að hinn mikli stríðsgróði helzt vart til langframa, og frekar má búast við aukinni fjárþörf ríkisins en hinu gagn- Um fátt hefir verið meira rætt að undanförnu en úthlutun rithöfundanefndarinnar svokölluðu á skáldastyrkjum. Nær allir, nema sauðsvörtustu kommúnistar, virðast á einu máli um það, að úthlutunin sé mjög misheppnuð og hafi þar mestu ráðið póli- tísk tillit og klíkuháttur. Einkum vekur það furðu og gremju manna, að skáld eins og Gunnar Gunnarsson og Davíð Stefáns- son skuli eigi sett á fremsta bekk. Merkur og víðlesinn Vestfirðingur hefir sent Tímanum hug- vekju þá um úthlutunina, er hér fer á eftir: Þótt það sé að sumu leyti að bera í bakkafullan lækinn að gera skáida-skömmtun rithöf- undanefndarinnar að umtals- efni, þá langar mig til að biðja Tímann fyrir eftirfarandi lín- ur. Málefni þetta, mat nefnday- innar á rithöfundum og skáld- um vorum, tekur til bóklesandi manna í landinu, frá fjallatind- um til fiskimiða. — Það er eng- an veginn sérmál hinna „skrift- lærðu“, höfunda í lausu máli og bundnu, eins og s.umir virð- ast gera sér í hugarlund, sem drepa vilja á dreif réttmætum ákúrum út af verknaðinum. Til þess eru vítin að varast þau. Og eftir því sem fleiri láta til sín heyra í þessu efni, bera fram kvartanir og réttmætar ásakanir, má Vænta þess, að svipuð spjöll verði eigi framin eftirleiðis af þeim er kunna að hafa forsjá skáldlaunanna með höndum. „Snemmá byrja barna mein“. Fyrst rekumst við á Halldór Laxness, langefstan á blaði. Hann er metinn þriðjungi verðmeiri en Gunnar Gunnars- son, svo hinn víðkunnasti í öðr- um flokki »sé talinn. Vel má vera, að Halldór sé orðinn um það jafn kunnur, en hann öðl- ast þó seint eða aldrei jafn ó- skipta hylli og Gunnar. Vanda- lítið virðist, frá leikmanns- sjónarmiði, að sigla fyrir alla ásteytingarsteina með því að gera þá Gunnar og Laxness jafna. — Þrátt fyrir klúryrði stæða. Meðal þeirra úrræða, er til greina koma, eru einkasölur á fleirum álagningarháum vör- um en tóbaki og áfengi. Sérstakri nefnd hefir nú verið falið að athuga eignaauka- skattsmálið fyrir haustþingið. Afstaða Framsóknarflokksins til þess máls er skýr og afdráttar- laus. Þess ber að vænta, að verkamannaflokkarnir standi nú við stóru orðin frá því í vor. Þ. Þ. og margvíslega ósmekklegan ofsahátt, er Halldór Laxness rithöfundur, sem engum leyf- ist að ganga fram hjá. Um 3600 króna höfundana vildi ég að öðru leyti segja það, að það ber vott um daufan bókmenntasmekk og skilning á gildi skáldverka, að taka ljóð- skáldið Tómas Guðmundsson í þenna hóp. — Tómas er að vísu listrænn og smekkvís, en yrkis- efni hans eru svo fábreytt, bera yfirleitt vott um skort á tilþrifum hins hugsandi manns, að hann getur alls ekki til þjóðskálda talizt. Noregskvæöi hans frá í fyrra er að vísu nokk- uð skarplega orðað, en líkist all- mikið rímaðri blaðagrein. Tóm- as hefir alls engan rétt til að setjast á bekk með Davíð Stef- ánssyni. Engum, nema hinni frægu nefnd, myndi heldur koma til hugar að skipa honum þar. Þó tekur út yfir, er Þórbergur Þórðarson er settur í þenna hóp. Þórbergur má ekki teljast sagnaskáld, og ljóðskáldstil- burði hans þekkja allir, held- ur söguritari. Hann hefir ekki færst það í fang að skapa per- sónur, heldur að sýna svip- myndir af mönnum, — helzt afkáraskap þeirra — í íslenzk- um aðli til dæmis. Láru-bréf hans, sem er listavel skrifað, getur heldur ekki talizt skáld- verk. Fyrir það hefir Þórbergur áður hlotið lof og laun. Þór- bergur er að vísu ágætur stílisti — þótt honum virðist nú veru- lega tekið að förlast stílsnilldin. Þó að slíkt megi vissulega til sannrar listar teljast, þá máttu ekki komast í dilk okkar fremstu söguskálda aðrir en af- bragðs höfundar. — Jafnvel þótt einhverjir óverðugir standi þar jarmandi við dyrnar. Þegar um stílsnilld er að ræða, má minnast margra manna, sem getið hafa sér góðan orðstír í tímaritum vorum. ,Má þar til nefna Helga Hjörvar, afbragðs smekkvisan og vandvirkan greinahöfund, Jónas Þorbergs- son útvarpsstjóra, tilþrifamik- inn og orðhagan, með skáldblæ yfir málfari sínu, svo og mælskumanninn sr. Sigurð Ein- arsson dósent. Marga stíl- snilldarmenn mætti og nefna meðal þjóðmálamanna vorra. í 2400 króna dilkinum situr herra Steinn Steinar einn! -r— Furðar alla bóklesandi menn landsins á þeirri- einurð nefnd- arinnar, að setja Stein á þenná hest. Fremur lágkúruleg ljóð, með sérvizkublæ, hafa birzt eftir þenna höfund á víð og dreif, og nokkru af því verið safnað í bók. í þetta sæti kvaðst smekkvís ljóðavinur hafa viljað vista Tómas Guðmundsson. í 1800 króna hópnum hittum við fremdarrithöfundinn Guð- mund Daníelsson, settan á bekk með Ólafi Jóh. Sigurðssyni meðal annara. Margir bók- menntamenn, og þá helzt þeir, er kynnt hafa sér til hlítar skáldverk höfunda þessara, og vita ennfremur um frábæra starfsorku Guðmundar Daníels- sonar, hafa látið ómjúkt orð falla til nefndarinnar fyrir þessa niðurjöfnun. — Þótt hún hefði ekki annað misgert, hefði nefndin með þessu f tiltæki drekkt virðingu sinni. ' í 1500 króna hólfinu kúra þau Þórunn Magnúsdóttir og Theo- dór gamli Friðriksson. Frú Þór- unn er markviss höfundur og á ýmsan hátt geðþekkur. — Theo- dór á líka gott skilið fyrir rit- störf sírx, -og einkanlega sjálfs- ævisöguna, þótt skáldsögur hans séu ekki mikils virði. Er hann Vel að því kominn að | hljóta styrk, sem ætti að verða | verulegur, það, sem eftir er ævi : hans. En þarna þurftu fleiri úr 1 lægri flokkunum að fá sæti. Er ' það hin mesta ósvinna, hvernig að sumum þeirra er búið af | nefndinni, eins og nú er sýnt. í 1000 króna dilkinn eru sett- ; ar skáldkonurnar Hulda og El- ! ínborg Lárusdóttir. — Hulda er afkastamesti kvenrithöfundur- inn, sem við höfum eignazt. . Ljóð hennar eru mikil að vöxt- um, og sum meðal okkar hug- ljúfustu Ijóða. Smásögur henn- ar ýmsar eru og undur fagrar, ! með þýðum rómantískum blæ, 1 en engum broddi af ádeilu. — Skáldsögur hennar hafa hlotið misjafna dóma, aðallega vegna þess, að hún þykir sýna persón- ur sínar í helzt til miklu ljósi, er ýmsir telja fjarri veruleikan- um. En sá rómantíski árdegis- Heimamuður: Baðstofuhjal ÉG HEFI DREGIZT A ÞAÐ við Þórarin Þórarinsson rit- stjóra að stofna til baðstofuhjals í Tímanum öðru hverju. Lesend- um Tímans verður þá boðið til baðstofu og þeir beðnir að vera eins og heima hjá sér og spjalla saman um áhugamál sín, en ég legg svo sem heimamaður orð í belg öðru hverju. Ég hugsa mér þetta þannig, að menn og konur h£r og þar um landið skrifi Tímanum nokkrar línur þegar þeir eða þær hafa ráð- rúm til, merki þær með orðinu „Baðstofuhjal" og þá komast þær rétta boðleið til mín. Það, sem þessi bréf segja, á að vera aðalefnið í baðstofuhjalinu, og svo berst auðvitað margt í tal í því sambandi, sem snertir nútíð og framtíð og endurminningar liðinna tíma, eins og gengur. Þá, sem taka vilja þátt í baðstofu- hjalinu, bið ég fyrst og fremst að segja mér tíðindi úr sveit sinni eða bæ, og þá skulum við minnast þess. Alls staðar og ævinlega er eitthvað í fréttum, ef eyra er til að heyra, auga til að sjá og tunga til að mæla. En svo vil ég gjarnan fá að heyra tillögur manna um hitt og þetta, innan héraðs eða utan, og eins, ef þeir vilja láta í ljós skoðun á einhverju í fáum orðum, þar á meðal því, "sem áður hefir borið á góma í haðstofunni. Stund- um verður getið um nöfn þeirra, sem skrifað hafa, þó ekki, ef annars er óskað, en frásagnir eða fréttir í nafnlausum bréf- um verða ekki teknar til greina. Sumum kann að Verða boðið til baðstofu, þegar þeir eru á ferð í Reykjavík, og kannske án þess að þeir viti. En ég skal ekki hafa neitt það eftir þeim, sem þeim kynni að leiðast að sjá á prenti. ! Þessi formáli verður að nægja. En þegar ég var barn, voru það mínár beztu stundir, þegar gest- ir og heimafólk röbbuðu sam- an í baðstofunni um alla heima og geima. Ég sat þá alltaf úti í horni og lét ekki á mér bæra. Og nú þætti mér bezt, að bað- stofuhjalið í Tímanum yrði þannig, að ég mætti sem oftast hlusta, en gestirnir segðu frá og ræddust við. „VORDAUÐA^íS SIGÐ er á lofti um allt land; hver lambs- feldur skelfur við heiði og sand“ ■----Svo kvað Einar Benedikts- son. Hann var að lýsa köldu vori. Þá lá hafís við land. Það hefir jafnan þótt geigvænlegt, þegar ísinn hefir rekið inn á út- mánuðum. Hins vegar segir máltækið: „Sjaldan er mein að miðsvetrarís". Nú hefir hafís ekki verið landfastur síðan 1918. En vorið, sem nú er að líða, hef- ir verið kalt og mörgum erfitt. Veturinn einn af hinum verri og gjafafrekari í seinni tíð. Það hittist illa á, því að ýmsir bænd- ur fengu ekki í haust eins mik- inn fóðurbæti og þeir ætluðu sér að kaupa. Um 25. maí kom til mín bóndi af Norðurlandi. Hann sagði þá sauðburð langt kominn í sinni sveit, og bætti því við, að flestar ær hefðu borið í húsi. Það getur verið nokkuð erfitt að fóðra lambær inni, svo að þær mjólki. Til þess er ekki nóg að hafa hey; heyin þurfa líka að vera góð. Þó er oft vafamál á hinum köldu vorum, hvort betra sé úti eða inni. Það er auðheyrt, að Einar hefir oft horft á lamb skjálfa norður á Héðinshöfða. Þið, sem alin eruð upp í sveit en nú búið í kaupstað, megið ekki gleyma að segja börnunum ykkar frá þeim þætti í starfi sveitafólks- ins, sem felst í því að bjarga lífi lambanna á vorin. Mörg bæjarbörnin, sem fara í sveit, koma ekki þangað fyrr en sauð- burðurinn er liðinn. En sveita- börnin læra að hjúkra hinum ungu málleysingjum, sem born- ir eru inn í óblíða veröld, bera þá í húsaskjól í óveðrum, renna ofan í þá volgri mjólk og verma þá við eldavélina þegar annað dugir ekki. Þar er oft barátta háð um líf og dauða, og mjótt á milli. Lambskinnaútflutning- urinn héðan á öldinni, sem leið, segir raunasögu í þessum efnum. Menn hafa mismunandi skoð- un á því, hvort réttara sé að láta ærnar bera seint eða Húsbyggingar í Reykjavík Innan um „ósannindi, rang- færslu og uppnefningu á mönn- um og flokkum“ í Reykjavíkur- bréfi Morgunblaðsins í vor fannst eins og ofurlítill ljós- depill í miðjum sortanum. Til- efnið voru hinar nýju bæjar- byggingar. Þar stóð: „Er hér nýr þáttur í byggingarmálum bæjarins að hefjast. Þegar spara þarf bæði efni og vinnu- afl, bæði við húsagerðina sjálfa, gatna og lokræsagerð, er það meira knýjandi en áður, að hafa byggðina sem samfelld- asta.“ Þarna segir þó Mbl. sann- leika, að öðru leyti en því, að þessi þáttur í byggingamálum bæjarins er ekki að hefjast með þessum bæjarbyggingum. En framkvæmdin er jafn nauðsyn- leg fyrir því. Þegar hinar stærstu sambyggingar, sem eru hér á landi hófust fyrir nokkr- um árum vestur við Hringbraut — verkamannabústaðirnir — fyrir samvinnu og atbeina þeirra flokka, er þá höfðu stjórn landsins. Þá var eitthvert gæfu- ríkasta spor stigið í bygginga- málum bæjanna. En Mbl. og flokkur þess hamaðist auðvitað á móti þeirri framkvæmd á meðan fært var. Sá, er þetta ritar, kom ný- lega til kunningja síns, sem býr í einni íbúð þessara verka- mannabústaða. íbúðin var þrjú herbergi og eldhús, ásamt öll- um nýtízku þægindum. Öll var hún hin snotrasta og vistleg- blær, sem Hulda bregður upp í Dalafólki, getur verið sannur, eins og að hinu leytinu sumar sagnir af Bjarti í Sumarhúsum eiga sér hliðstæður og for- dæmi að nokkru. Er ekki jafn leyfilegt að nota Ijósskrúð- ið, þótt það fjarlægist m^ske hið almenna, eins og að sýna myrkrið og sorann í þjóðlífinu í mynd Ólafs Ljósvíkings eða Bjarts? — Málfar á þessari bók Huldu er þýtt og ljóst. Þar eru engin óhrjáleg klúryrði né út- lend orð höfð til að „punta upp á“ lesmálið, eða tilfundin ný- yrði, heldur eðlilegt og lifandi alþýðumál. Þá hefir og Elínborg Lárus- dóttir eigi síður reynzt mikil- virk. Yfirleitt hefir hún og fengið lof fyrir sögur sínar. Fyrri hluti „Förumanna“ henn- ar fékk mjög lofsamlega dóma. Þótt henni kunni að hafa fat- azt nokkuð tökin í síðasta bindi sögunnar, þá ber slíkt eigi vott um skort á rithöfundarhæfileik- um, enda hendir oft færustu höfunda. Þar að auki. birti og fFramh. á 4. *íðu) asta og einkennilega mikið út- af fyrir sig í svona stórri bygg- ingu. Kunningi minn sagðist borga kr. 120,00 í húsaleigu á mánuði og þar væri meðtalinn hitun íbúðarinnar. En um leið og hann var að borga þetta, þá var hann að eignast þetta hús- næði. — í verkamannabústöð- unum — einni sambyggingu — kvað hann vera um 150 íbúðir, og myndu nú búa í þeim um 1000 manns. Byggingin er reist í ferhyrning, en innan í honum er allstór leikvöllur. Með endi- langri ytri hlið, mót suðri, eru trjágarðar framan við aðal- stofugluggana. Garðar þessir vita út að Hringbrautinni og þyrftu að vera stærri en þeir eru, þótt þeir séu mjög til bóta. Hvílíkur munur, hefðu ráð- andi menn í Reykjavík látið reisa höfuðstaðinn svipað og þessar byggingar. Allir Reyk- víkingar rúmuðust þá í 40 slík- um húsum! Og væru svo 20 hús svipuð að stærð fyrir skrif- stofur, verzlanir og iðnað, þá væri Reykjavík um 60 hús! Þó að þessar byggingar stæðu alllangt hver frá annarri, myndi vera óhemju mikill sparnaður á götum, lokræsum og ýmiskonar menningartækjum. Bærinn væri óútreiknanlega hægari, skemmtilegri og menningar- legri. Á milli þessarra stóru sambygginga væri sjálfsagt að hafa stóra og fagra trjá- og blómagarða. Matjurtagarðar gætu einnig verið í nálægð. En leik- og íþróttavellir fyrir börn og fullorðna ættu að vera við hverja sambyggingu og ennþá stærri sameiginlegir íþrótta- vellir skammt frá. Þó að fávíslega sé byggt á hverju ári í Reykjavík og bær- inn þaninn út um öll holt og mýrar á kostnað íbúanna og allra landsmanna, án þess þó að nokkurs staðar séu opin svæði fyrir Jeik- eða íþróttavelli fyrir börn né fullorðna, þá væri vel ef ráðamenn Reykjavíkur færu úr þessu að sjá að sér og bæta ráð sitt. Ennþá þarf að byggja mikið og mikil þörf væri að rífa niður fjölda húsa á ýmsum stöðum í bænum og láta þar rísa í stað þeirra stórar og góðar' sambygg- ingar. Það bíða mörg stórmál úr- lausnar á komandi árum. Eitt þeirra stærri er þó nýbyggð eða endurbygging Reykjavíkur. Og víst ber að fagna því, ef stærsta, þröngsýnasta og afturhalds- samasta, en þó um leið voldug- asta dagblað höfuðstaðarins, fer að vitkast í slíku máli. Kári. snemma. Það væri gaman að heyra álit einhverra og rök á því máli. NÚ ERU MISLING ARNIR að breiðast út um landið. í vetur hafa þeir gengið í Reykjavík og skarlatssóttin líka, sömuleiðis inflúenza. Það er hægt að verja fólk fyrir mislingum með því að dæla inn í það blóði úr þeim, sem nýlega eru búnir að hafa veikina. Margir, sem komnir eru á fætur úr mislingunum, hafa gefið sig fram í Reykjavík og látið lækna taka sér blóð. í sumum sveitum er svo ástatt, að svo að segja enginn maður hefir fengið mislinga. Þannig gátu bæir og byggðarlög varizt meðan samgöngur og ferðalög voru minni en nú. NÚNA í VIKUNNI hafði ég tal af manni við sjávarsíðuna. Hann var að reyna að festa kaup á 10 smálesta vélbát. Verðið átti að vera rúml. 50 þúsund krónur. Báturinn var ekki nýr og vélin ekki heldur. Út á svona bát er hægt að fá 10 þús. kr. lán í Fiskiveiðasjóði. Það er ekki þægilegt fyrir efna- litla menn að eignast fleytu eins og nú er komið. En fiskiflotinn íslenzki rýrnar ískyggilega. Síð- an stríðið hófst hafa sex botn- vörpungar farizt, þar á meðal sá stærsti og tveir þeir nýjustu. Fróölegt væri að heyra, hvað menn hafa að segja með því og móti að byggja skip eins og nú standa sakir. ÖLL REYKJAVÍK talar um hitaveituna óg rykið á götun- um. Það er vont að vera í Reykjavík á sumrin og verst, þegar þurkar eru. Eftir fjöl- förnustu götunum er stöðugur straumur bifreíða, og ef gatan er hvorki steinlögð né malbik- uð, geta menn séð hvernig fer. Stundum er reynt að sprauta vatni á göturnar og þá hjaðnar mökkurinn í bili. Úr sveitunum í kring sést móða yfir bænum. Um þennan tíma árs er það ekki reykur héldur ryk. — Utan við húsið mitt er verið að vinna í hitaveitunni. Fyrir tveim árum var steypt renna eftir endilangri götunni, niðurgrafin. Svo var mokað ofan í rennuna, því að vatnspípurnar voru ekki til. Nú í vor er aftur verið að moka þær upp og leggja pípurnar. Þær eru misjafnlega víðar, sumar eins og bolur á vænum ofni, aðrar eins og mannshandleggur, sumar eru mjórri. Það fer eftir því, hvernig gatan liggur í hita- veitukerfinu. Þegar búið er að ganga frá pípunum, er rennan fyllt með hraungrýti austan úr Rauðhólum og steypt yfir allt saman. En utan við hvert hús er dálítill laus hleri úr stein- steypu. Þar á heita vatnspípan að koma inn í húsið. Það var einu sinni áætlað, að hitaveit- unni yrði lokið í haust. En sum- ir halda nú, að hún komizt ekki nema í Austurbæinn. Það hafa ekki fengizt nógir menn í vinn- una, og nú er verið að ráða verkamenn í þorpunum við Faxaflóa. BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS ætlar að veita verðlaun fyrir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.