Tíminn - 01.08.1944, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEPPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURIN N.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
RITST JÓRASKRIFSTOPUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIPSTOFA:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A.
Sími 2323.
28. árg.
Reykjavík, þriðjudagmn 1. ágúst 1944
74. Iilað
Erlent yfirlit:
Gjo! Þjóðræknísíélagsins til
íslenzka lýðveldisíns
Sveínn Björnsson iorseti
á ferðalagi um landið
Hlýtur hvarvetna hjartanlegustu móttökur
Forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, hefir ákveðiff að ferff-
ast víða mn land í sumar. Lagði hann af staff á sunnudaginn var
og átti þá viffdvöl á Akranesi og í Borgarnesi.
Þjóðverjar í
úlíakreppu
í lok þess mánaðar, sem nú er
að byrja, eru fimm ár liðin síð-
an heimsstyrjöldin hófst. í fimm
ár hafa þjóðir barizt hatrammri
baráttu, ef til vill hatrammari
heldur en nokkur dæmi eru um
í sögu mannkynsins. Hundruð
miljóna hafa I fimm löng ár
búið við ægilegri þjáningar en
þeir geta gert sér í hugarlund,
er búa svo fjarri hörmungun-
um sem við íslendingar.
Manndráp og misþyrmingar,
hungur og þrældómur, hugar-
víl og hvers konar þrautir hafa
verið þeirra daglegt brauð.
En nú er það von manna, að
brátt fari að rofa til og þján-
ingabikar þjóðanna í Evrópu sé
senn tæmdur í botn. Á hverj-
um degi berast fregnir um nýja
sigra Bandamanna á öllum víg-
stöðvum, stóra eða smáa. Öll ít-
alía sunnan Arnófljóts er geng-
in Þjóðverjum úr greipum og
áframhaldandi sókn norður á
bóginn í vændum. Á austurvíg-
stöðvunum geysast Rússar á-
fram. Hver stórborgin og hvert
höfuðvígið af öðru er tekið. Mik-
ill þýzkur her er svo til innikró-
aður í Eystrasaltslöndunum, og
hersveitir Rússa nálgast Eystra-
salt óðfluga á fleiri en einum
stað. Til Ríga eiga þeir að eins
ófarna 20—30 kílómetra. Aust-
ur-Prússland er í sívaxandi
hættu, og sá dagur virðist ekki
fjarri, að rússneskar liðssveitir
ryðjist yfir landamærin. Þeir
eiga aðeins ófarna 10—15—20
kílómetra, og leiðir greiðar frá
Kaunas, höfuðborg Lithauen.
Varsjá, höfuðborg Póllands,
hlýtur fyrirsjáanlega að ganga
Þjóðverjum úr greipum innan
skamms, og suður við Karpata'-
fjöll eru miklir og óvígir herir
reiðubúnir að brjótast vestur til
Súdettahéraðanna og sækja
suður í gegnum fjallaskörðin
inn í Tékkóslóvakíu.
í Normandí hafa Bandamenn
þumlungað sig áfram jafnt og
þétt síðan þeir gengu þar á land
og sækja nú fram af auknum
krafti. Flugsveitir þeirra gera
hverja stórárásina af annari á
iðjuver, herstöðvar og sam-
gönguleiðir af slíku harðfylgi,
að Þjóðverjar fá vart rönd við
reist.
Suður i Júgóslavíu hafa harð-
skeyttar hersveitir lagt til atlögu
við þýzka setuliðið, sem mjög á
í vök að verjast í landi fjand-
manna sinna og sennilega er
fremur fámennt og vanbúið, því
að meira þarf við annars stað-
ar.
Ofan á þessa sókn úr öllum
áttum bætist svo það — sem
raunar er jafnframt afleiðing
hennar — að skemmdarverk bak
við víglínuna magnast mjög.
Þjóðverjar sjálfir snúast önd-
verðir gegn nazistum og stríðs-
rekstri þeirra og hlutlausar
þjóðir eins og Tyrkir, eru í þann
veginn að slíta við þá öllum
samskiptum. Hafa Tyrkir þó
fram að þessu haldið fast við
hlutleysi sitt, sem þeim er sjálf-
sagt vorkunnarmál. En nú þykir
þeim sýnt, að til úrslita dragi
áður en langt um líður, og fer
þá sem oft vill verða, að harð-
stjórinú veit fyrst, hve marga
óvini hann á, þegar han stendur
höllum fæti.
Seioustu fréttir
Þýzkar fregnir herma, að tyrk-
neska stjórnin hafi ákveðið að
slít.a stjórnmálasambandi við
Þjóðverja. Segja Þjóðverjar
þýzku og japönsku sendisveit-
irnar albúnar að flytja úr landi
og hafa jafnvel við orð, að svo
geti farið, að Tyrkir dragist í
stríðið.
Richard Beck prófessor hefir
afhent forseta íslands áletraða
eirtöflu aff gjöf til heimaþjóðar-
inar frá Þjóffræknisfélagi ís-
iendinga í Vesturheimi.
Á töflunni er mynd af víkinga-
skipi og beggja megin við það
þrír fánar, sveipaðir saman, og
ártölin '930 og 1944 — stofnár
hins forna þjóðveldis og nýjá
lýðveldis. Þar fyrir neðan er
letrað:
íslendingar í Vesturheimi
samfagna heimaþjóffinni í til-
efni af endurreisn hins íslenzka
lýffveldis 17. júní 1944.
Guð blessi fsland.
„Vér höldum allir liópinn,
Á síðastl. vori hóf nýtt tíma-
rit um þjófffélagsmál göngu
sína. Nefnist þaff Dagskrá og
stendur Samband ungra
Framsóknarmanna aff útgáfu
þess. Markmiff þess er aff
flytja sem hlutlausastar og
skilmerkilegastar yfirlits-
greinar um þjófffélagsmál,
bæffi frumsamdar og þýddar.
Ritiff mun koma út fjórum
sinnum á ári, um 320 blaffsíð-
ur alls í Skírnisbroti. Rit-
stjórar ritsins eru Hörður
Þórhallsson viffskiptafræffing-
ur og Jóhannes Elíasson lög-
fræffinemi.
í formála ritsins er tilgangi
þess m. a. lýst með svofelldum
orðum:
„Þeir, sem standa að tímariti
því, er hér hefur göngu sína.telja
það eitt meginskilyrði fyrir
heillavænlega þróun þjóðmál-
anna, að hafizt sé handa gegn
hinni vaxandi auglýsinga-
mennsku stjórnmálanna og þá
sérstaklega meðal yngri manna.
Þeir álíta það grundvallaratriði
þegnfrelsis og lýðræðis, að reynt
sé að þroska þann eiginleika
rnanna, að þeir íhugi málin sjálf-
ir og myndi sér skoðanir um þau,
sem mest af eigin ramleik. Tak-
ist eigi að þroska þann eiginleika
almennings, verður lýðræðið hér
aldrei annað en skrípam^id af
lýðræði og sönn menntun aldrei
sú almenningseign, sem hún
þarf að vera. Þá er lika hætt við
því, að íslenzk alþýða eigi fyrir
höndum að vera andlegur tjóð-
urþræll öfgafullra yfirgangs-
manna, er nota sér skoðanaþægð
hennar og undirgefni til þess
að skara eld að sinni köku, án
tillits til annars en þess, sem
þeim finnst sjálfum æskilegast.
Rúm rits þessa verður notað
til að flytja rökstuddar greinai’
um stjórnmál og félagsmál, þar
sem hægt er að gera efninu
stórum fyllri skil en í blaða-
greinum. Það mun verða reynt
þótt hafiff skilji löndin“.
Undir þessari áletrun, neðst
á töflunni.er síðan innsigli Þjóð-
ræknisfélagsins.
Björn Þórðarson, forsætisráð-
herra, og Vilhjálmur Þór, utan-
ríkismálaráöherra, voru við-
staddir er Richard Beck afhenti
forsetanum töfluna.
Forseti þakkaði gjöfina í nafni
þjóðarinnar og kvaðst viss um,
að tekið yrði við henni með sama
vinarhug og hún væri gefin. Bað
hann dr. Beck að bera kveðjur
sínar og allrar þjóðarinnar til
Þjóðræknisfélagsins og íslend-
inga vestan hafs, og óskaði hon-
um fararheilla heim.
að leiða athyglina að rökurn og
staðreyndum. Það mun verða
reynt að hjálpa mönnum til að
íhuga málin,- svo að þeim reyn-
ist síðan auðveldara að mynda
sér sinar eigin skoðanir.
Nafni ritsins er ætlað að gefa
hugmynd um tilgang þess. Hann
er ekki aðeins sá, að ræða þau
mál, sem éfst eru á dagskrá,
heldur einnig að fá ný mál tek-
in á dagskrá hjá þjóðinni, sem
henni eru talin nauðsynleg. Þá
mun og verða leitazt við að
kynna þær þjóðfélagsumbætur
og nýjungar, sem efst eru dag-
skrá hjá öðrum þjóðum og
mættu vera íslendingum til lær-
dóms á einn eða annan hátt.
Margt bendir til þess, að í ná-
grannalöndunum séu í sköpun
stórfelldar þjóðfélagsbreytingar,
sem hljóti og eigi að ná til okkar,
því að þar muni að finna hinn
heppilegasta meðalveg milli öfga
samkeppnisstefnunnar og komm
únismans. Munu að jafnaði birt-
ast tvær eða fleiri greinar um
þessi efni í hverju hefti. .
Meðal annarra þjóða er til
margt tímarita, sem flytja rök-
ræður um þjóðfélagsmál. Slíkt
tímarit vantar hér alveg. Ýmsir
hafa talið, að eigi tjáði að gera
slíka tilraun hér, því að menn
vildu ekki lesa nema stuttar og
auðmeltar greinar um þessi mál.
Sé þetta satt, er hugsunarhætti
þjóðarinnar illa komið, og lýð-
ræði hennar á sandi byggt. Þessu
verður heldur ekki trúað að ó-
reyndu, heldur verður því treyst,
að þessi tilraun einmitt sýni það,
að almenningi hafi hér verið
gerðar rangar getsakir."
Efni fyrsta heftis ritsins, er
nánar lýst í grein Guðbrandar
Magnússonar á öðrum stað hér í
blaðinu. í næsta hefti, er koma
mun í næsta mánuði, verða m. a.
grein eftir Ólaf Jóhannesson,
lögfræðing, um endurskoðun
stjórnarskrárinnar, grein eftir
(Framh. á 4. síSu)
í gær fór hann vestur í Dala-
sýslu og kom við í Búðardal, og
í dag er hans von til Blönduóss.
Hefir forsetanum hvarvetna ver-
ið fagnað af mikilli innleik, og
eru byggðir og bæir skreyttir
fánum, þar sem hann fer um.
Á Akranesi tók forseti bæjar-
stjórnar, bæjarfógeti og bæjar-
stjóri á móti forsetanum. Sýndu
þeir honum bæinn og nágrenni
hans, en síðan var kaffidrykkja
í Hótel Akranes. Undir borðum
héldu ræður formaður bæjar-
stjórnar, forseti íslands og Pet-
rína G. Sveinsdóttir.
Mannfjöldi hafði safnazt sam-
an framan við húsið. Héldu þar
ræður forseti íslands og bæjar-
stjóri. Bað bæjarstjóri menn að
hrópa ferfalt húrra fyrir for-
setanum, en í lok ræðu sinnar
bað hann menn að minnast
Akraness.
í Borgarnesi tók Jón Stein-
grímsson, sýslumaður Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, á móti hon-
um og sat hann kvöldverðarboð
hjá sýslumannshjónunum.
Kl. 9 um kvöldið var gengið
í Skallagrímsgarð, sem er fall-
egur skrúðgarður, er Kvenfélag
Borgarness hefir komið upp.
Þar gengu fyrir forseta iþrótta-
ínenp og konur, skátar og skáta-
stúlkur og báru 3 islenzka fána,
og var forseta heilsaö með fána-
kveðju. Síðan gekk ung stúlka
fram og afhenti forseta mjög
fagran blómvönd. Sýslumaður
bauð forseta velkominn til Borg-
arness með stuttri ræðu.
Forseti heilsaði síðan upp á
Hátíðahöld Færcy-
inga í Reykjavík
á Ólafsvökunní
Færeyingafélagið i Reykjavík
efndi til hátíðahalda hér í bæn-
um á Ólafsvökunni, þjóðhátíð-
ardegi Færeyinga, á svipaðan
hátt og síðastliðið ár.
Að þessu sinni hófust þau með
guðsþjónustu i dómkirkjunni,
þar sem minzt var feðganna, er
fórust út af Siglufirði nú fyrir
fáum vikum með hinum svipleg-
asta hætti, eins og öllum íslend-
ingum er í fersku minni. Séra
Jakob Jónssón prédikaði. Tónaði
hann á færeysku, en flokkur
Færeyinga söng færeyska sálmá
við undirleik Kristins Ingvars-
sonar organista. Bænina las
Færeyingur að nafni Daníel
Daníelsson, og var hann í fær-
eyskum þjóðbúningi.
Úr kirkjunni var gengið suð-
ur í kirkjugarðinn við Ljósvalla-
götu, og bar Daníel Daníelsson
færeyskan fána fyrir fylking-
unni. Voru lagðir sveigar á leiði
tveggja færeyskra skipshafna,
sem fórust hér við land fyrir
allmörgum árum og hlutu leg i
Reykjavíkurkirkjugarði. Var þar
flutt bæn og sungið.
Um kvöldið var samkvæmi í
Alþýðuhúsinu, og hófst það með
borðhaldi.
Klukkan 8,45 hófst útvarp,
sem Færeyingafélagið stóð að.
Ragnar Jóhannesson las erindi
Peters Wigelunds, formanns
Færeyingafélagsins, um grinda-
dráp í Færeyjum, og var felld
inn í það Grindavísan, sem
jafnan er kveðin í Færeyjum á
gleðisamkomum að loknu
grindadrápi. Kváðu Færeyingar
visuna.
(Framh. á 4. síSu)
gesti í garðinum, en meðal
þeirra voru sýslunefndarmenn,
hreppsnefndarmenn Borgar-
hrepps, framkvæmdanefnd
skrúðgarðsins og ýmsir aðrir.
Gisti forseti hjá sýslumanns-
hjónunum.
Forsetinn mun halda för sinni
áfram austur í Þingeyjarsýslu.
Er ráðgert, að hann fari um
Skagafjörð og komi við á Sauð-
árkróki á morgun og Þingeyjar-
sýslu 3. ágúst og komi við á
Húsavík. Hinn 4. ágúst verður
hann á Akureyri. Þar stígur
hann á skipsfjöl og verður hinn
5. á Siglufirði. Þaðan fer hann
vestur um til Hólmavíkur, og
mun verða kominn þangað ár-
degis 6. ágúst, en um kvöldiö
er ráðgert að hann komi til ísa-
fjarðar. 7. ágúst ætlar hann aö
vera í Patreksfirði og 8. ágúst
í Stykkishólmi. Þaðan fer hann
til Reykjavíkur, en eftir nokk-
urra dagá hvíld ætlar hann að
forfallalausu til Vestmannaeyja
og Austfjarða. Síðan ætlar hann
að ferðast um sunnlenzku hér-
uðin.
í fylgd með forsetanum á þess-
um ferðalögum verður Pétur
Eggerz, forsetaritari.
Hörmulegt slys
Bjarni Guðmundsson, bóndi
að Gaddsstöðum á Rangárvöll-
um, andaðist á mjög sviplegan
hátt síðastliðinn laugardag. Féll
hann á ljá í slægjunni og særð-
ist hann svo mjög, að hann dó
skammri stundu liðinni.
Bjarni heitinn mun hafa ver-
ið einn við slátt á túninu. Ætlaði
hann að brýna ljáinn, en missti
brýnið. Laut hann þá niður til
þess að taka það upp, en datt
fram yfir sig og stakkst ljárinn
í brjóstið á honum.
Börn, sem nærstödd voru,
gerðu fullorðnu fólki aðvart.
Sást þá aðeins lífsmark með
Bjarna, en er læknir kom á vett-
vang stuttu síðar, var hann ör-
endur.
Bjarni var tæplega miðaldra
og lætur eftir sig konu og þrjú
börn ung. Hann var ættaður úr
Fljótshlíð og bjó þar um skeið í
Vatnsdal, áður en hann fluttist
að Gaddsstöðum.
Nýir ræðismenn
Ríkisstjórnin hefir nýlega út-
nefnt fimm kjörræðismenn
Ameríku. Eru það þessir:
Kolbeinn Thordarson, Seattle,
Washington, séra Octavius Thor
láksson, San Francisco, ,Kali-
forníu, Stanley T. Ólafsson, Los
Angeles, Kaliforníu, Hjálmar
Björnsson, Minneapolis, Minne-
sota, Hálfdán Thorláksson, Van-
couver, B.C. Kanada.
t
Isleozk leikkona lýk
ur leiknámi í London
Hlaut viðurketmíngu
fyrir frammistoðu síná
Hildur Kalman, sem stundað
hefir leiklistarnám i konunglega
leikskólanum í Lundúnum, lýkur
námi sínu nú þessa dagana.
Hún fór utan árið 1941 og gekk
A víðavangi
SUNNUDAGSHU GVEK J A
MBL.-„MARSKÁLKSINS“.
Það er siður Morgunblaðsins
að bera á hverjum sunnudegi
svonefnd Reykjavíkurbréf á
borð fyrir lesendur sína. í þess-
um pistlum hefir birzt margt
pað, sem hraklegast hefir sézt í
3ví blaði, og er þó ekki hægt að
hrósa málflutningi þess al-
mennt.
Síðastliðinn sunnudag segir
meðal annars í Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsr itst j órans:
„Þeir (þ. e. kommúnistar)
heimtuðu, að Framsókn setti
formann sinn af. Framsókn
beygði sig, rak Jónas Jónsson og
setti Hermann í staðinn".
Svona ritmennska þarfnast
ekki langra athugasemda. Allir
vita, að það eru aðrir en kom-
múnistar sem ráða málum
Framsóknarflokksins til lykta.
En þeirri spurningu skýtur upp,
hvort óskammfeilni þeirra
manna, sem þessa dágana þykj-
ast vera sérstakir friðarpostular
í þjóðfélaginu, sé svona tak-
markalaus og virðingarleysi
þeirra fyrir réttu og röngu svona
algert, eða hvort þetta sé aðeins
blaðamennska af svipuðu tagi og
getur að líta á fremstu síðu
þessa sama tölublaðs Morgun-
blaðsins, þar sem það birtir eft-
irfarandi frásögn til aö fræða
lesendur sína um atburði í
Þýzkalandi og hjálpa þeim til
þess að glöggva sig á því, sem
þar er að gerast:
„Meðal þeirra þýzkra liðsfor-
ingja, sem teknir hafa verið af
lífi, eru marskálkar, segir í
fregnum, sem borizt hafa með
ferðamönnum til Stokkhólms.
Engir marskálkar, sem gegna
störfum í hernum nú, eru þó
meðal þeirra, sem líflátnir hafa
verið“.
ÁBYRGT BLAÐ.
Rétt þykir að birta hér kafla
úr forystugrein Þjóðviljans síð-
astliðinn þriðjudag. Hann hljóð-
ar svo:
„Þjóðviljinn eyðir í þetta sinn
nokkrum orðum að nöldri Morg-
unblaðsins, vegna þess að í ýms-
um leiöurum blaðsins undanfar-
ið hefir það komið fram sem á-
byrgt blað, og lagt áherzlu á
nauðsyn alþjóðarsamstarfs að
bjóðþrifamálum. Hvað eftir
annað hefir blaðið bent á, að
tvö blöð, Alþýðublaðið og Tím-
inn, vinni markvisst að því
að tortryggja alla §líka við-
leitni áður en hún er reynd (og
ekki ætti að gleyma garminum
honum Vísi). En í þessum rit-
stjórnargreinum hefir Þjóðvilj-
inn ekki verið talinn til slíkra
skemmdarafla, end^ væri það
ekki hægt“.
Tíminn óskar svo Valtý til
hamingju með það, að kommún-
istar kalla Mbl. „ábyrgt blað“
og betra en Alþýðublaðið og
Tímann, og eins með það, að
hann skuli ekki telja kommún-
ista önnur eins skaðsemdaröfl
og Alþýðuflokkinn og Fram-
sóknarmenn.
í þjónustu sendiíáðsins í Lund-
únum og hóf leiknám litlu síðar.
Hætti hún störfum í sendiráð-
inu, er fram í sótti, og helgaði
sig einggöngu leiknáminu. Hefir
Menntamálaráð veitt henni
nokkurn styrk til námsins.
í marzmánuði 1 vetur hlaut
Hildur viðurkenningarskjal fyr-
ir frammistöðu sína við hina ár-
legu leikkeppni skólans.
Hildur Kalman hneigðist ung
að leiklist, enda á hún til þeirra
að telja. Var móðir hennar
Marta Indriðadóttir (Indriða
Einarssonar) góðkunn leikkona
og starfaði mikið að leiklistar-
málum í Reykjavík.
Nýtt fímarit um íélagsmál
og stjórnmál