Tíminn - 01.08.1944, Síða 3

Tíminn - 01.08.1944, Síða 3
74. blatS TÓIITVX. þrlgjndagin 1. ágúst 1944 295 Scxtngur; Magaós Kristjánsson Sandhólum, Eyjafirdi Magnús Kristj ánsson bóndi í Sandhólum í Eyjafirði átti sex- tugsa-fmæli 7. júní s. 1. — Heim- sóttu hann þá nokkrir vinir hans og ættingjar, nutu gestrisni hans og árnuðu honum heilla. Magnús er fæddur 1884 á Ker- hóli í Sölvadal. Bjuggu þá for- eldrar hans þar, Kristján Jón- asson, Tómassonar og kona hans, Sigríður Ólafsd. frá Ána- stöðum, Stefánssonar. En Tóm- as afi Kristjáns var faðir Krist- ínar móður Páls Árdals skálds. Frá 15 ára aldri var Magnús á ýmsum stöðum, en þó lengst af á Möðruvöllum. Síðar fór hann að læra myndasmíði hjá Jóni Dahlmann ljósmyndara á Akureyri og stundaði þá iðn nokkur ár, þar til hann kvænt- ist 1917 Rut Lárusdóttur, hálf- systur Hjálmars Þorlákssonar í Villingadal, en alsystir Elín- borgar Lárusdóttur skáldkonu. — Keypti hann um þetta leyti jörðina Sandhóla og hefir búið þar síðan. — Til ýmissa mála hefir hann verið kvaddur fyrir sveit sína; verið í stjórn Bún- aðarfélagsins nokkur ár, full- trúi á Ræktunarfélags-fundum, fél.ráðsmaður við K.E.A og full- trúi á aðalfundi K. E. A., einnig tvisvar í sóknarnefnd og safn- aðarfulltrúi. — Hann átti og frumkvæði að því að koma á fót tveim ung- mennafélögum í hreppnum, var formaður þeirra um tíma, en nú heiðursfélagi. Magnús hefir far- ið 18 sinnum suður á Öræfi úr Eyjafirði, bæði sem leitarstjóri og einnig sem leiðsögumaður ferðamanna. — Á yngri árum átti hann góða hesta og var tamningamaður. Kom það sér oft vel, því að margir leituðu til hans, er lækni þurfti að sækja, og tók hann sjaldan eða aldrei borgun fyrir. — Þegar Magnús keypti Sand- hóla 1917 gaf jörðin af sér 50— 60 hestburði, og þótti sumum sveitungum hans hann djarfur að kaupa þetta kot fyrir hálft fjórða þúsund kr. — Kunningi hans einn var nokk- uð> efagjarn að þetta ráðalag Magnúsar bæri ávöxt, en Magn- ús sagði, að „eftir nokkur ár skulu Sandhólar gefa af sér jafn mikið af töðu og Möðruvellir gefa af sér nú.“ — Hefir þetta gengið eftir þrátt fyrir erfiðar kringumstæður, mest hefir hann fengið 300 hestburði. — Magnús var einn af þeim fyrstu i Saurbæjarhreppi, er keypti bil. Annaðist hann flutninga fyrir hreppsbúa um nokkurt skeið. — Verkstj. við vegavinnu í hreppn- um hefir hann verið í mörg ár. Magnús er sjálfmenntaður mað- ur, er hefir af sjálfsdáðun aflað sér þekkingar, og hann hefir ætíð haft mikinn áhuga á fræðslumálum sveitar sinnar. Hann hefir fyrir löngu viljað koma upp fullkomnum barna- skóla í hreppnum og hefir það alltaf verið hans hugsjónamál, þó að sumum öðrum hafi ekki þótt það tímabært. Magnús hefir ekki farið var- hluta af erfiðleikum og raunum í lífinu. 1924 missti hann hina ágætu konu sína frá 4 ungum börnum og síðan, er þau voru uppkomin, hefir hann misst 3 af þessum efnilega barnahóp. En Magnús hefir aldrei kvartað, þrek hans og bjartsýni hefir al- drei bilað og áhugi hans á öllum velferðarmálum er samur og jafn. Hjálpsemi hans er við- brugðið. Hann mundi eiga erfitt, ef hann gæti ekki á einhvern hátt greitt fyrir þeim, sem leita hjálpar hans. Að launum spyr hann ekki. Við vinir hans ósk- um, að við megum enn um stund njóta samvistar þessa bjartsýna og drenglynda manns. P. íslendiugahvöl Þjóð, í landi íss og elda, ógnum reynda, kúgunhrelda, frjáls nú fagna máttu! Frelsið áður fórst með blóöi. Fyrst það vanst án blóðs — í hljóði liœrra hlutverk áttu. Strengdu þá heit þín há heiðursdegi á: — Sœk í raun, í list, í Ijóði lengra en vonir ná. Vökul dáð og víðsýnn andi verði þér í fögru landi aðall bezti og auður. Tœkni nýja tímans veri töfrasproti, er ótœkt geri þegn hér þekkist snauður. Hugsjón merk veki verk, vefi landsins serk. Frelsismerkið fremst upp beri fámenn þjóð — en sterk. Leidd af manndóms stefnu í stafni stafi Ijómi af þínu nafni meðal merkra þjóða. Vit og göfgi, friður, festa fast þitt móti hlutverk mesta — giftuháttinn góða. Sigri prjál, sundrung, tál samtök þín — og mál. — Haltu jafnan hlutnum bezta lieil í starfi — og sál. — Minning hans og mynd þér sýni, merkið þinni í vitund skíni frelsisforingjans. Vilji svika blikur buga, bendi þér að vaka — duga lietjudœmið hans. Alla stund íslenzk lund eigi þá hans pund: Þorið mest og þolinn huga, þegar lokast sund. KOLBEINN HÖGNASON Gullbráðkatip Hjónin Halldór Magnússon og Rannveig Jónsdóttir, Ásakoti í Biskupstungum áttu 50 ára hjú- skaparafmæli 5. júní siðastl. Þau hafa dvalið allan sinn aldur i Biskupstungum. Rann- veig er fædd 21. jan. 1865 að Drumboddsstöðum og ólst þar upp, en Halldór er fæddur 26. jan. 1866, að Miðhúsum, en ólst upp í Bræðratungu hjá föður- systur sinni og manni hennar Halldóri Þórðarsyni. Þau Jiófu búskap í Ásakoti árið 1893 og hafa dvalið þar síðan. Fyrst við búskap í full 40 ár, en síðan hjá einkadóttur sinni og tengdasyni. Þau byrjuðu búskap með litl- um efnum, en búið blómgvaðist hjá þeim og varð að lokum með stærri búum í sveitinni. Þau hafa jafnan verið vinsæl og vel látin af sveitungum sínum, enda gestrisin og greiðvikin í bezta lagi. Sveitungar þeirra og vinir munu senda þeim beztu hamingjuóskir á þessum merk- isdegi i lífi þeirra. K. Ný margföldunarvél einfaldari og hagnýt- arí en eldri gerðir Árni Sigurðsson, eini íslenzki vélfræðingurinn í Chicago, hefir nýlega lokið við smíði á nýrri gerð margföldunarvélar, sem er einfaldari og hagnýtari en eldri gerðir. Árni hefir starfað að smíði vélarinnar í nokkur ár. Velþekkt fyrirtæki í Cleveland, Ohio, sem hefir alls kyns skrif- stofuvélar á boðstólum, hefir fest kaup á vél Árna. Árni er 36 ára að aldri, fædd- ur í Kanada, sonur Sigurðar Árnasonar, forseta íslendinga- félagsins í Chicago. Árni hefir starfað við vélfræði síðastliðin 16 ár. Nýlega lauk hann við um- bætur á vél, sem smíðar vír- kaðla. Tveir bræður Árna eru í Bandaríkjahernum i Normandí. (Frá amer. blaðaflltrúanum). Leldréltmg1 í klaufalega skrifaðri oflofs- (eða grín?) grein um Óskar Halldórsson, í síðasta hefti „Vik- ings,“ finnur Sveinn Benedikts- son ástæðu til að kasta að mér nokkrum hnútum og rangfærsl- um, sem ég sé ekki ástæðu til að láta óleiðrétt, þó um ómerkan höfund sé að ræða, enda myndi ég nú eins og endranær'hafa látið heimildarfalsanir hans ó- leiðréttar, hefði hann ekki blandað inn í rangfærslur þess- ar málefni, er snertir minningu látins heiðursmanns, Magnúsar Krist j ánssonar, alþingismanns, og afskipti hans af byggingu síldarverksmiðju ríkisins, sem Sveinn nú að öllu leiti eignar Óskari Halldórssyni. Það verður erfitt fyrir ritpeð eins og Sv. B. að draga þann heiður af Magnúsi Kristjánssyni að hann sé höfundur að síldar- bræðslum rikisins og get ég vel um það borið, því að ég var ein- dreginn fylgismaður Magnúsar í því máli og átti oft samræður við hann um það, og það er einn- ig rétt, að Óskar Halldórsson fylgdi því einnig fast eftir, að ríkið léti byggja síldarbræðslur en þar skildu leiðir þeirra tveggja, eins og eðlilegt er, því að Magnús vildi láta starfrækja verksmiðjurnar á samvinnu- grundvelli, og greiða sannvirði síldarinnar i hlutfalli við af- urðaverðið, og taldi, að með því móti myndi verða hægast að halda bræðslusíldarverðinu sem hæstu. Óskar Halldórsson vildi aftur á móti láta ríkið leigja eða selja útgerðarmönnum verksmiðj - urnar eða þá að öðrum kosti að kaupa síldina kostnaðarverði á hverjum tíma. Tilfærð ummæli um Óskar Halldórsson eru því ranglega eignuð mér, þar sem ég var fylgismaður þeirra Magnúsar og Óskars í þessu máli, en aftur á móti minnist ég þess, að Jón heitinn Ólafsson lét ummæli falla á umræddum fundi,-sem skilja mátti á þennan veg, þó að ég muni ekki nákvæmlega né hvernig þau voru orðuð. Með þökk fyrir birtinguna. Kristján Bergsson. Veízlan í Moskvu Að tilhlutun ríkisstjórnarinn- ar hélt Pétur Benediktsson sendiherra mannfagnað í Moskvu 17. júní síðastl. i tilefni af gildistöku lýðveldissjórnar- skrár og embættistöku fyrsta forseta íslands. Meðal innlendra gesta voru herra Vyshinsky, varaforsætisráðherra með frú og dóttur, hera Maisky, herra Dekanosov, herra Litvinov, herra Kavtaradze, herra Losovsky og herra Aliev, aðstoðarutanríkis- þjóðfulltrúar og frúr þeirra. Ut- anríkisþjóðfulltrúinn, herra Molotov, gat ekki komið því við að mæta, sökum anna. Einnig voru boðnir allir helztu fulltrúar erlendra ríkja, og mættu allir, sem eigi voru staddir utanbæjar, og sendu flestir þeirra sérstakar heilla- óskir. Meðal þeirra, sem við- staddir voru, má nefna ambassa- dor Breta og sendiherra Breta, sendiherra Bandaríkjanna, anV bassador Kanada, .Grikklands, Iran, Afganistan, Noregs, Hol- lands, Tékkóslóvakíu, Tyrklands og Júgóslavíu, sendiherra Ástra- líu, Abessiníu, Frakka og E- gyptalands og sendifulltrúa Belgíu, Svíþjóðar og Ítalíu. Var boðið mjög fjölmennt og fór vel fram. Leiðabók Póst- og símamálastjórnin hefir ný- lega gefið út Leiðabók II., þar sem gefnar eru upplýsingar um áætlanir sérleyfisbifreiða og bifreiða með und- anþágu, á tímabilinu 1. júní 1944 til 31. maí 1945, Er bók þessi hin hand- hægasta fyrir alla þá, sem eitthvað þurfa að ferðast. í þessari bók má fá vitneskju um allar áætlunarferðir, sér- leyfishafa, afgreiðslur bílanna, vega- lengdir og verð á leiðunum, viðkomu- staði, póstferðir o. fl. Er þessi bók bráð- nauðsynleg fyrir alla ferðamenn. Hún fæst á póststofunni og kostar eina krónu. íþróttafréttir Tímans (Framh. af 2. síðu) Flesta vinninga hlaut Stef- án Ásgrímsson Borg. Sigurður Finnsson iþrótta- kennari stjórnaði íþróttakeppn- inni. Mótið fór ágætlega fram og var sótt af miklu fjölmenni úr nærliggjandi sveitum. Var talið, að yfir eitt þúsund manns hefðu sótt mótið. Veðurblíða var allan daginn. Samband ísl. samvinnufélaga. SAMVINNUMENN! Dragið ekki að brunatryggja innbú yðar. Biðjið kaupfélag yðar að annást vátryggingu. Héraðsmót Ungmeima- sambands Kjalar- nessþlngs Tíðindi írá 7. flokksþingí var háð á Sólvallarbökkum í Mosfellssveit 16. júlí. Formaður sambandsins, Gísli Andrésson Hálsi, setti mótið. Leikstjóri var Stefán Runólfsson Reykjavík. Lúðrasveitin Svanur lék. Kepp- endur voru frá öllum félögum sambandsins, en þau eru þessi: Umf. Drengur í Kjós, Umf. Kjalnesinga, Umf. Afturelding Mosfellssveit og Umf. Reykja- víkur. Úrslit urðu þessi: 100 m. hlaup: Janus Eiríksson (A) 11,6 sek., Gunnar Helgason (R) 11,6 sek. 400 m. hlaup: Sveinn Guð- mundsson (A) 60,0 sek., Axel Jónsson (D) 62,2 sek. 3000 m. hlaup: Gunnar Tryggvason (K) 10,46 mín., Sigurður Jakobsson (A) 11,23 mín. Langstökk: Janus Eiríksson (A) 6,10 m„ Gunar Helgason (R) 6,09 m. Hástökk: Halldór Lárusson (A) 1,60 m„ Janus Eiriksson (A) 1,53 m. Þrístökk: Halldór Lárusson (A) 11,79 m„ Gunnar Helgason (R) 11,60 m. Kúluvarp: Halldór Lárusson (A) 10,72 m„ Axel Jónsson (D) 10,64 m. Kringlukast: Njáll Guðmunds- son (D) 30,62 m„ Eiríkur Sigur- jónsson (D) 29,03 m. Spjótkast: Halldór Lárusson (A) 37,40 m„ Njáll Guðmunds- son (D) 36,70 m. Sund, 100 m. frjáls aðferð karla: Sveinn Guðmundsson (A) 1,17,5 mín„ Jón Guðmundsson (A) 1,25,5 mín. Sund, 60 m. frjáls aðferð kvenna: Valborg Lárusdóttir (A) 56,8 sek„ Ljósbjörg Magn- úsdóttir (A) 57,0 sek. Flest stig hlaut Halldór Lár- usson (A), alls 22. Annar varð Janus Eiríksson (A) með 11 stig. Mótið fór vel fram og voru veðurskilyrði hin beztu. Héraðsmót liéraðssam- F ramsóknarmanna ásamt greluargcrð eftlr Hermaun Jónassou formann Framsóknarflokkslus og myndum frá flokksþinginu, fást í bókaverzlunum í Reykjavík og bókaverzluninni Eddu á Akureyri. Einnig send um land allt gegn eftirkröfu frá skrifstofu Framsóknarflokksins í Edduhús- inu, Reykjavík. Verð kr. 5,00. Allir, sem um stjórnmál hugsa, verða að eignast þetta rit. P A L Rœstitluft — é er fyrir nokkru komið á markaðinn og hefir þegar hlotið hið mesta lofsorð, því vel er til þess vandað á allan hátt. Opal ræstiduft hefir alla þá kosti, er ræstiduft þarf að hafa, — það hreinsar án þess að rispa, er mjög drjúgt, og er nothæft á allar tegundir búsáhalda og eld- húsáhalda. IVotlð O P A L rœstiduft 7 Raítækjavinnustofan Selíossi bands S.-Þingeylnga framkvæmlr aUskonar r a f v i r k j astörf. var haldið í Mývatnssveit 25. júni. Þessi félög tóku þátt í mót- inu: Umf. Mývetningur, Mý- vatnssveit, Umf. Efling, Reykja- dal, og íþróttafél. Völsungur, Húsavík. Úrslit uryðu þessi: 800 m. hlaup: Rafn Eiríksson (E) 2J6 mín„ Hákon Sigtryggs- son (V) 2,25 mín. 3000 m. hlaup: Rafn Eiriks- son (E) 10,36 mín„ Kristinn Jónsson (E) 10,55 mín. Stangarstökk: Steingr. Birgis- son (V) 2,85 m.„ Sverrir Sig- urðsson (M) 2,65 m. Langstökk: Rafn Eiríksson(E) 5,91 m„ Stefán Sörensen (V) 5,79 m. Þrístökk: Óli Kristinsson (V) 12,70 m„ Stefán Sörensen (V) 12,65 m„ Spjótkast: Lúðvík Jónasson (V) 48,10 m„ Stefán Sörensen (V) 45,10 m. Kringlukast: Gunnar Sigurðs- son (V) 33,75 m„ Lúðvík Jónas- son (V) 33,45 m. Kúluvarp: Gunnar Sigurðsson (V) 12,94 m„ Kristinn K. Al- bersson (V) 10,77 m. Hástökk: Gunnar Sigurðsson (V) 1,67 m„ Stefán Sörensen (V) 1,65 m. Völsungur í Húsavík vann mótið. Vinlr Tírnans Útvegið sem flestir ykkar einn áskrifanda að Tímanum og lát- ið afgreiðsluna vita um það sem fyrst. Áskriftargjald Timans utan Rvíkur og Hafnarfjarðar er kr. 30.00 árgangurinn. Vinnið ötullega fyrir Tímann. GÆFAN fylgir trúlofunarhringunum frá SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4. Sent mót póstkröfu. Sendið nákvæmt mál.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.