Tíminn - 11.05.1945, Blaðsíða 4
DAGSKRÁ er bezta íslenzUa tímaritið um
þjjóðfélaysmúl.
REYKJAVÍK
Þeir, sem riljja kynna sér þjóðfélagsmál, inn-
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
11. MAÍ 1945.
35. blað
?
MMLL TIIHMS
3. mai, fimmtudagur:
Hamborg tekin.
Evrópustyrjöldin: Þjóðverjar
lýstu Hamborg óvíggirta og fór
brezkur her inn í borgina, án
þess mótspyrna væri veitt. Þýzk-
ur her þar og víðar í N. Þýzka-
landi gafst upp. Kiel var einnig
lýst óvíggirt. Bretar og Rússar
náðu saman í Norður-Þýzka-
landi. Bandaríkjamenn sóttu
hratt fram í SuðurÞýzkalandi
og Austurríki.
Btirma: Bretar fóru inn í
Rangoon.
4. maí, föstudagur:
Uppgjöf í Danmörkn.
Evrópustyrj öldin: Herst j órn
Þjóðverja í Norður-Þýzkalandi,
Hollandi og Danmörku undir-
ritaði samninga um skilyrðis-
lausa uppgjöf fyrir her Mont-
gomery, Uppgjöfin gildir frá
því kl. 6 að morgni 5. maí. í
Suður-Þýzkalandi tóku Banda-
menn Berchesgaden og í Aust-
urriki Salzburg og Innsbruék.
5. maí, laugardagur:
Póllandsdellau.
Bandaríkin: Tilkynnt 'var í
San-Francisco, að Eden og
Stettinus hafi lýst yfir, að
samningar um Póllandsmálin
myndu falla niður, a. m. k.
fyrst um sinn, þar sem von-
laust væri um samkomu,lag.
Yfirlýsing þessi var birt eftir
að Molotoff hafði skýrt frá því,
að samningamennirnir, er
pólska stjórnin í London hefði
sent til Rússlands, hefðu verið
fangelsaðir af Rússum. Þeir
voru 15.
Evrópustyr jöldin: Tveir
þýzkir herir gáfust upp fyrir
Bandaríkjamönnum í Austur-
ríki. Bandaríkjamenn tóku Linz.
í Prág hófst uppreisn gegn
Þjóðverjum. Bandaríkjamenn
hófu sókn inn í Tékkóslóvakíu
og var lítil mótspyrna veitt.
Danmörk: Brezkt fallhlífarlið
lenti í Kaupmannahöfn og hóf
undirbúning að brottflutningi
þýzka hersins. Ný stjórn, sem
Kristján konungur myndaði,
tók við völdum, Forsætisráð-
herra hennar er W. Buhl,
Nokkrar óeirðir urðu í Dan-
mörku, aðallega milli frelsis-
hersins og danskra nazista.
6. maí, sunnudagur:
Frlður væutanlegur.
Bretland: Tilkynnt var að
vænta mætti yfirlýsingar um
frið í Evrópu innan tveggja
sólarhringa.
Evrópustyrjöldln: — Sókn
Bandaríkjamanna í Tékkósló-
Drengur verður fyr-
ir bifreíð
Síðastl. miðvikudag vildl það
hörmulega slys til á Suðurlands-
braut, að sex ára drengur, Egg-
ert Matthias Kaaber, Lúðvíks
heitins Kaabers bankastjóra,
varð fyrir vörubifreið og beið
þegar bana. Drengurinn var að
leika sér með öðrum dreng og
mun hafa hlaupið á vinstri hlið
bifreiðarinnar.
Fjársöfnunardagur
Slysavarnafél.
Fjársöfnunardagur Slysa-
varnafélagsins er í dag. Merki
félagsins verða seld á götunum
og lögð verður áherzla á að fá
sem flesta til að gerast félags-
míenn í slysavarnadeildunum og
styrkja þannig þetta þjóðþrifa-
mál með árstillaginu, sem er að-
eins fimm krónur. Eitt af aðal-
áhugamálum félagsdeildanna er
að koma upp björgunarstöð í
Örfirisey. í dag mun mönnum
verða gefinn kostur á þvi að
fara með björgunarskútunni
Sæbjörgu út fyrir hafnarmynn-
ið fyrir lítið gjald.
vakíu miðaði hratt áfram. Þeir
tóku verksmiðjubæinn Pilsau og
héldu þaðan áleiðis til Prab. í
Prag barst frelsisher Tékka
hjálp frá Kosakkaher Vlasor
hershöfðingja, er barizt hafði
með Þjóðverjum. Margir frægir
fangar voru frelsaðir i Þýzka-
landi, t. d. Leopold Belgíukon-
ungur, Daladier, Reynaud,
Blumm, Horthy, Schussnigg og
Bor yfirhershöfðingi Pólverja.
Dönitz lét útvarpa áskorun til
þýzka kafbátahersins um að
koma til hafnar og gefast upp.
7. maí, mánudagur:
Þjúðverjar gefast upp.
Evrópustyrjöldin: Upplýst var,
að kl. 2.41 árdegis hefðu fulltrú-
ar þýzku herstjórnarinnar und-
irritað samninga um allsherjar-
uppgjöf þýzka hersins. Samn-
ingurinn var undirritaður í
Rheims í aðalbækistöð Eisen-
howers. Uppgjöfin skyldi ganga
endanlega í gildi frá 9. maí.
Bardagar héldu því áfram á
vígstöðvum Rússa, eii engin telj-
andi vopnaviðskipti áttu sér stað
milli Bandamanna og Þjóðverja.
í Prag voru tíðar orrustur milli
Þjóðverja og frelsishers Tékka.
Þýzkaland: Rússar tilkynntu
að þeir hefðu fundið í Berlín
lík Göbbels, konu hans og barna.
Höfðu þau öll tekið inn eitur.
8. maí, þriðjudagur:
Evrópustríðinu loklð.
Evrópustyr jöldinni lokið: —
Churchill lýsti því yfir í þing-
ræðu kl. 13, að Evrópustyrjöld-
inni væri lokið. Truman foreti
gaf samhljóða yfirlýsingu sam-
tímis. Jafnframt var lýst yfir, að
Rússar myndu birta samhljóða
tilkynningu daginn eftir, þar
sem bardagar þeirra og Þjóð-
verja héldu áfram til miðnættis.
í Berlín var undirritaður end-
anlegur uppgjafarsamningur
Þjóðverja. Gerði það Keitel
hershöfðingi af hálfu Þjóðverja,
en Inhov marskálkur af hálfu
Rússa og Tedder flugmarskálk-
ur af hálfu Bandamanna. Rúss-
ar tóku Dresden og sóttu hratt
fram i Tékkóslóvak^. BÍarizt
var áfram í Prag. í Bretlandi
og annars staðar í Vestur-Ev-
rópu voru haldin-mikil hátíða-
höld í tilefni af stríðslokunum.
Noregur. Sendinefnd frá
Bandamönnum kom til Oslóar
til að ganga frá uppgjöf Þjóð-
verja. Þar var ríkjandi mikill
fögnuður. Kvisling hafði verið
settur í gæzluvarðhald.
Þýzkaland: — Bandamenn
handtóku Göring og Kesselring
í Suður-Þýzkalandi.
Óspektirnar í Reykjavík
á þríðjudagskvöldið
Þýzkír ílugmenn
nauðlenda nyrðra
Hinir fjórir þýzku flugmenn,
sem nauðlentu hér við norður-
ströndina í seinustu viku, hafa
nú verið fluttir til Reykjavíkur
og verið yfirheyrðir af hernað-
aryfirvöldunum.
Flugmennirnir voru á flugvél
af tegundinni Junkers 88. Komu
þeir frá Norður-Noregi og voru
í veðurkönnunarflugi á svæðinu
milli íslands og Jan Mayen, er
vélbilun neyddi þá til að nauð-
lenda hér við norðaustur-
ströndina.
Þrír flugmannanna eru Þjóð-
verjar, en sá fjórði Austurríkis-
maður. Þeir eru frá 23—29 ára
gamlir. Einn þessara manna var
flugstjóri (pilot), annar veður-
fræðingur, þriðji loftskeyta-
maður og sá fjórði skytta.
Flugmennirnir voru ekki sam-
mála um sambúð Norðmanna og
þýzka hersins. Þeir voru fáfróðir
um gang styrjaldarinnar í
Þýzkal., en höfðu þó grun um
að þar væri ekki allt með felldu,
og töldu Þjóðverja ekki geta
unnið stríðið úr því sem komið
væri. Aðallega vegna skort á
hergögnum og matvælum. Þeir
voru fullvissir um það, að
Hitler hefði dáið hetjudauða.
í tilefni þeirra óspekta, er
áttu sér stað hér í bænum á
þriðjudagskvöldið, hefir lög-
reglan í Reykjavík sent blöðun-
um svohljóðandi greinargerð:
— Eftir að hátíðarhöldum
vegna friðaryfirlýsingar i Ev-
rópu var lokið síðd. á þriðjudag,
safnaðist mikill ^ mannfjöldi
saman á götum bæjarins, þ. á
m. stórir hópar brezkra sjóliða.
í fyrstu var mannfjöldinn ró-
legur, en allmargir sjóliðar voru
talsvert undir áhrifum víns og
söfnuðust þeir í hópa í miðbæn-
um, sem gengu síðan um bæinn
með söng ogháreysti.Brátt safn-
aðist að þeim mikill hópur
manna, sem slóst i för með
þeim, aðallega drengir og ung-
lingar. Um kl. 16 fór hópur þessi
upp á Arnarhólstún og klifruðu
nokkrir brezkir sjóliðar þar upp
á styttu Ingólfs Arnarsonar í
þeim tilgangi að hengja þar upp
brezkan fána. Var því afstýrt
af brezkum lögreglumönnum.
Við atburð þennan kom nokkur
ókyrrð á þá, sem viðstaddir
voru, án þess að til verulegra
ryskinga kæmi Hélt hópurinn
því næst niður í miðbæ og varð
þar þröng mikil og hávaði. ís-
lenzku og brezku lögreglunni
tókst að afstýra óspektum þar
að mestu leyti. Ákveðið hafði
verið að Lúðrasveit Reykjavíkur
léki á horn á Austurvelli kl.
20,30, en þar eð lögreglan taldi
vafasamt að takast mætti að
verja Austurvöll skemmdum af
hálfu óspektarmanna lék Lúðra-
sveitin á Arnarhólstúni, í stað
Austurvallar. Fór hún þangað á
tilsettum tíma, svo og lögreglu-
sveit, er ruddi svæðið um-
hverfis styttuna en þar hafði
safnazt saman hópur frið-
samra borgara. Um þetta leyti
náðu óspektir, er höfðu verið um
skeið' á Lækjartorgi, hámarki
sínu. Sinn fulla þátt í þeim áttu
ungir menn, sumir hverjir undir
áhrifum víns sem leituðust við
að koma á stað, óspektum með
hrindingum, ópum og alls konar
óhljóðum. Sjóliðar, sem þarna
höfðu verið, gengu nú í stórum
hóp noður Kalkofnsveg, en á
eftir þeim fór hópur íslenzkra
manna og unglinga. Hóparnir
staðnæmdust við Varðarhúsið.
Hófust þar ryskingar milli her-
manna og íslendinga og skömmu
síðar grjótkast. íslenzkum lög-
reglumönnum, sem þarna voru,
og brezkum, tókst brátt að skilja
hópana að, en grjótkastið hélt
áfram. Varð lögreglan að beita
kylfum í viðureign þessari, sem
stóð yfir á aðra klykkustund.
Mannfjöldinn dreifðist þá um
miðbæinn, en ókyrrð hélzt. Lög-
reglustjóri brezka hersins fór
fram á það við lögreglustjórann
í Reykjavík að notað yrði tára-
gas, en lögreglustjórinn í
Reykjavík færðist undan því í
lengstu lög. Skömmu seinna fór
brezka lögreglan að nota tára-
gas á sitt eindæmi til þess að
dreifa mannfjöldanum. Um kl.
23.00 hófust enn óspektir á Arn-
arhólstúni og voru þar bæðí ís-
Tvo dauðaslys
Aðfaranótt fyrra miðviku-
dags vildi það slys til, að mann
tók út af botnvörpungnum
„Sindra“ frá Akranesi og
drukknaði. Var það Árni Björns-
son til heimilis á Sleipnisvegi 15.
Akranesi. Skipið var að veiðum,
er slysið vildi til, og sýndi skip-
stjórinn, Jónmundur Gíslason,
frábært snarræði, er hann kast-
aði sér fyrir borð og tókst að
ná manninum, en hann var þá
örendur.
Árni heitinn var 34 ára gam-
all, ókvæntur, en lætur eftir sig
móður og systur.
Fyrra fimmtudag varð það
slys í Vestmannaeyjum, að
Tryggvi Ingvarsson bifreiðar-
stjóri beið bana, er hann var
að vinna við ískvörn í Hrað-
frystihúsinu.
Tryggvi heitinn var kvæntur
og átti fjögur börn.
lendingar og hermenn. Þar eð
óspektir voru viðar í bænum og
vænta mátti alvarlegra óeirða
á ýmsum stöðum, tók stjórn lög-
reglunnar í Reykjavík þá
ákvörðun að nota táragas.
Dreifði lögreglan fyrst óeirðar-
mönnum á Arnarhólstúni en síð-
ar smærri hópum víða í mið-
bænum Þessar aðgerðir lögregl-
unnar báru þann árangur, að
óspektum linnti með öllu í bæn-
um á tiltölulega skömmum tíma.
Lögreglunni er ekki kunnugt um
að alvarleg slys hafi orðið í sam-
bandi við framangreindar óeirð-
ir, en nokkrir menn urðu fyrir
minni háttar . meiðslum vegna
ryskinga og grjótkasts. Einna al-
varlegust var skothríð brezkra
sjóliða, er átti sér stað við her-
búðir í grennd við sænska frysti-
húsið. Til lögreglunnar kom
unglingspiltur, sem fengið hafði
skot í gegnum báðar buxna-
skálmarnar og bifreiðarstjóri, er
tjáði lögreglunni að skotið hafi
verið í gegnum hjólbarða á bif-
reið sinni.
Eignaspjöll urðu allmikil, að-
allega rúðubrot. Lögreglan
handtók fjölda óspektarmanna
og ^yar fangageymsla lögregl-
unnar yfirfull. Auk þess var
fjöldi unglinga, undir lögaldri
sakamanna, handtekinn og stór
hópur þeirra geymdur í réttar-
sal lögreglunnar. — , .
Hér lýkur frásögn lögreglunn-
ar. Til viðbótar má geta þess,
að brezkir sjóliðar gengu með
grjót og barefli um götumar og
brutu rúður fyrir tugþúsundir
króna. Eru sum verzlunarhús
þannig útleikin, að ekki er til
ein einasta heil rúða í þeim.
Þess má geta, Bandaríkjaher-
mönnunum til verðugs lofs, að
þeir héldu sig algjörlega utan
við öll ólæti og komu í hvívetna
mjög prúðmannlega fram.
Óspekklir á mid-
vikudagskvöldið
Nokkrar óeirðir urðu enn í
Reykjavík á miðvikudagskvöld,
en þó smámunir hjá þeim, sem
urðu kvöldið áður. Lögreglan
þurfti þó nokkrum sinnum að
nota táragas til að dreifa mann-
fjöldanum, er safnazt hafi sam-
an utan um ölvaða íslendinga
og hermenn. Tveimur bifreiðum
var velt um koll og tvlvegis réð-
ust erlendir menn á lögregluna.
Ekki hefir frétzt af neinum *al-
varlegum meiðslum.
Guðmundur Kamban
myrtur
Borizt hafa fréttir um það
hingað til lands, að Guðmund-
ur Kamban rithöfundur hafi
verið myrtur í Kaupmanahöfn
síðastl. laugardag. Mun það hafa
atvikázt þannig, að fjórir menn
komu til hans þar sem hann var
staddur á matsöluhúsi, og ætl-
uðu að taka hann fastan og
hafa hann með sér. Guðmundur
neitaði að fara með mönnum
þessum og skutu þeir hann þá
umsvifalaust.
Guðmundur Kamban var
fæddur að Litlabæ í Garðasókn
8. júní 1888. Hann las bók-
menntir og fagurfræði við
Kaupmannahafnarháskóla, og
þótti snemma óvenju efnilegt
rithöfundarefni. Guðmundur
hefir skrifað mörg leikrit og
hafa sum þeirra verið leikin í
Reykjavík, en frægastur mun
hann hér á landi vera af skáld-
verki sínu um Ragnheiði Bryn-
jólfsdóttur, er hann nefndi Skál-
holt.
Á miðvikudag hafði engin
skýring borizt frá Danmörku á
morði Guðmundar og er því
sennilegt, að þar hafi danskir
æsingamenn verið að verki.
Tilkynnt hefir verið að lík
Guðmundar Kambans verði flutt
til íslands
G A M L A B I Ó
DÁIÆIDDU
MORÐUVGJAIUVIR
(Flngers at the Window)
Brasil Rathbone
Loraine Day
Lew Ayres
Sýnd kl. 7 og 9.
'
Stjörnarevýan
Betty Hutton
Bob Hope
og 15 frægir kvikmyndaleikarar.
Sýnd kl. 5.
*-
N Ý J A B f Ó »««
ÆVINTÝRI
SVEITAPILTS
(Fellow the Band)
Fjörug og skemmtileg söngva-
mynd með:
Eddy Quillan.
Sýnd kl. 5.
UPPREISN
UM RORÐ
Aðalhlutv. leika:
Humphrey Bogart,
Michele Morgan
Sýnd kl. 6,30 og 9.
Fjallið
EVEREST
írásagnir um hæsta fjall jarð-
arinnar og tilraunir manna til
að brjóstast upp á hæsta tind-
inn.
Skemmtileg og fróðleg bók,
prýdd mörgum fallegum mynd-
Fæst í flestum bókaverzlun-
i m, en upplagið orðið mjög
takmarkað.
TJARNABBÍÓf
EUVRÆÐIS-
HERRAM
(The Great Dictator)
Gamanmynd eftir Charles
Chaplin. Aðalhlutverk:
Charles Chaplin
Paulette Goddard
Sýning kl. 4, 630 og 9.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn í F eneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýning næsta sunnudagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 á morgun.
ATHS. Ekki svarað í slma fyrr en eftir kl. 4%.
Aðgangur bannaður fyrir börn.
Beztu þakkir fyrir vinsemd og hluttekningu við andlát
og jarðarför mannsins míns,
Jóns Sigurðssonar, Syðri-Gróf.
Fyrir hönd mína, barnanna okkar og annarra vandamanna
RANNVEIG LINNET.
Ú R B Æ N U M
Blaðamannafélag íslands
sendi síðastliðinn mánudag skeyti til
danska blaðamannafélagsins í tilefni
af frelsun Danmerkur. Var látin í ljós
aðdáun á hinni lietjulegu baráttu
Dana á hernámstímunum.
Lík Baldurs Guðmundssonar
skrifstofumanns frá Seyðisfirði
fannst í höfninni í Rvk fýrir seinustu
helgi. Enginn áverki sást á líkinu.
Baldur heitinn hvarf eins og kunnugt
er 2. febr. slðastl.
I
Verða sett upp umferðaljós?
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefir
lagt til að keypt verði umferðarljósa-
tæki, er sett yrðu upp á gatnamótum
í bænum, þar sem umferð er mest.
Umferðarljós hafa verið notuð i flest-
um erlendum borgum um margra ára
skeið og aukið öryggi í umferðinni.
Bæjarráð ákvað að óska eftir nánari
greinargerð um þetta, en lá fyrir fund-
inum.
Trúlofun
sína hafa nýlega opinberað Jó-
hanna Benths Guðjónsdóttir, Bræðra-
borgarstíg 1 og Jón Eiríksson, Eiríks-
götu 29.
Nýtt kvennablað.
1. og 2. tölubl. 6. árg. er nýlega komið
út. Af efni þess má nefna: Kvenna-
skólinn í Reykjavík 70 ára, Gunnþór-
un Halldórsdóttir leikkona eftir Þóru
Borg Einarsson, Þjónusta, eftir Jónas
Baldm-sson, Stjörnuljóð kvæðí eftir
Ingibjörgu Þorgeirsdóttur. í blaðinu
er auk þess grein urp skáldkonuna
Torfhildi Hólm, minningargreinar,
sögur, fréttir og margt fleira.
Hestamannafél. Fákur
í Reykjavík hefir sótt tll bæjarráðs
um að fá til leigu fyrir starfsemi sína
hús og tún að Laugalandi. Hestaeign
bæjarm^nna hefir á síðustu tímum
aukizt stórkostlega, og Tunguhúsin
hafa því reynzt of lítil, menn eru í
vandræðum með hesta sína og orðið að
hafa þá hingað og þangað í skúrum,
Bæjarráð vísaði málinu til bæjarverk-
íræðings til athugunar.
Kjarvalshús.
Á seinasta fundi bæjarráðs Reykja-
víkur var það samþykkt, að gefa kost
á lóð undir fyrirhugaða byggingu
handa listmálaranum Jóhannesi
Sveinssyni Kjarval, við Skólavörðu-
torg, eða nánar tiltekið við Mímisveg /
og Eiríksgötu. Það skilyrði er þó sett
fyrir leyfinu, að byggingin verði fram-
vegis notuð fyrir safn og verði í sam-
ræmi við aðrar fyrirhuðaðar bygging-
ar við Skólavörðutorg. .
Amerískir blaðamenn
komu til Reykjavíkur siðastl. mánu-
dag. Voru þeir á heimleið eftir að hafa
skoðað fangabúðir Þjóðverja í Þýzka-
landi. Þeir höfðu hér aðeins skamma
viðdvöl og héldu áfram ferð sinni vest-
ur um haf samdægurs. Meðal þeirra
voru margir víðkunnir blaðamenn
og ritstjórar, svo sem: Joseph Pulitzer,
útgefandi St. Louis Post-Dispatch, E.
Z. Dimitman, ritstjóri Chicago Sun,
Ben Hibbs, ritstjóri Saturday Evening
Post, Stanley High, ritstjóri Readers
Digest, William Chepery, útgefandi
Colliers Magazine, Ben McKelway rit-
stjóri Washington Star, John Hearst,
sonur William Randolph Hearst.
Danska sýningin.
frá baráttu Dana var opnuð í Sýn-
ingaskála myndlistarmanna kl. 15 síð-
astliðinn miðvikudag, að viðstöddum
forseta íslands og forsætisráðherra,
ásamt sendiherrum erlendra ríkja og
fulltrúum blaða og útvarps. Ludvig
Storr konsull bauð gesti velkomna,
síðan flutti danski blaðafulltrúinn
stutt ávarp og þá var sýningin opnuð
af sendiherra Dana de Fontenay. Að
lokum lék strengjahljómsveit nokkur
dönsk lög undir stjórn dr. Urbants-
chitsch.
TíMINN
Vegna frídaganna í
vikunni er Tíininn
ekki nema f jórar sið-
nr í da£.
/