Tíminn - 30.11.1945, Page 2

Tíminn - 30.11.1945, Page 2
2 TÍMIM, föstndagiim 30. nóv. 1945 91. blað Föstudagur 28. nóv. Á móti öllu Þegar stjórnarblöðin eru í vandræðum með að verja helztu hneykslisverk stjórnarinnar, grípa þau til þeirrar afsökunar, að það sé ekkert að marka, þótt stjórnarandstæðingar gagnrýni þetta, því að þeir séu á móti öllu, sem stjórnin gerir. Nú seinast hefir Mbl. gripið til þess ráðs að nota þetta sem meginatriði í vörn sinni fyrir búnaðarráðslögin. Það er vissulega ástæða til, að þessi fullyrðing stjórnarbiað- anna sé tekin til nokkuð pánari athugunar. Það getur einmitt veitt athyglisverðar upnlýsing- ar um ólíka starfshætti stjórn- arsinna annars vegar og stjórn- arandstæðinga hins vegar. Staðreyndirnar í þessu máli sýna, að það er með öllu ósatt, að Framsóknarmenn hafi ,á- fellzt öll verk stjórnarinnar eða beitt sér gegn öllum málum hennar. Það má nefna lögin um nýju strandferðaskipin og varð- skipakaupin, sem dæmi um það. Framsóknarmenn hafa jafnan fylgt þeirri stefnu að ,styðja stjórnina að öllum góðum mál- um jafn eindregið og þeir áfell- ast þau verk hennar, sem þeir álíta stefna í gagnstæða átt. Staðreyndirnar sýná jafn- jafnframt annað, sem ekki er síður athyglisvert. Það gildir nær undantekningarlaust um öll umbótamál, sem Framsókn- armenn flylija á Alþingi, að stjórnarsinnar fylkja sér á móti þeim. Það má bendg, á jarð- ræktarlagafrv., raforkulagafrv., áburðarverksmiðjufrv., og til- löguna um framlag til byggða- hverfa á seinasta þingi. Meira að segja umbótatillögur, sem margir stjórnarsinnar hafá ver- ið hlynntir, hafa verið kolfelld- ar á Alþingi, ef Framsóknar- menn hafa borið þær fram. Því til sönnunar má nefna til- lögu um kaup á nýju strand- ferðaskipi, jafnstóru og Esju, sem Framsóknarmenn fluttu á þingi í fyrra. Sannleikurinn í þessu máli er því sá, að Framsóknarmenn eru með málum frá stjórninni, þeg- ar um raunhæfar umbætur er að ræða, og viðunanlega hefir verið á þeim haldið. Stjórnar- sinnar hafa það hins vegar fyr- ir fasta reglu að vera á móti öllum málum frá Framsóknar- flokknum og það engu síður, þótt um alviðurkennd nauðsynja- mál sé að ræða. Þessi framkoma stjórnarsinna lýsir slíkri ofbeldishneigð og ofstæki, að dæmi slíks er áreið- anlega ekki hægt að finna í lýðræðislöndunum. í einræðis- löndunum er hins vegar reynt að „þurrka minnihlutann út“, eins og það er kallað, með því að drepa öll mál fyrir honum og gera hann sem áhrifaminnst- an og réttminnstan. En slíkt hefir jafnan haft öfug áhrif við það, sem til var ætlast, og á slíkum einræðisstj órnum hefir jafnan sannast, að enginn getur drepið eftirmann sinn. íslenzka þjóðin mun áreiðanlega ekki dæma slíkt ofstæki og ofbeldi vægilegar en þær þjóðir, sem hafa hrundið því af höndum sér. Sænsku húsin Það er viðurkennt, að þús- undir manna í landinu búa við fullkomlega ónóg eða léleg húsakynni. Það er einnig viður- kennt, að ekki verði bætt úr þessum vandræðum með venju- legum aðferðum.þar sem skortur er á sérlærðum byggingaverka- mönnum í landinu og það þvi takmörkunum bundið, sem hægt er að byggja næstu árin. Aukin fjárhagsleg aðstoð til að koma upp íbúðarbyggingum, leysir þetta mál því ekki nema að tak- mörkuðu leyti. Mikill fjöldi fólks verður eftir sem áður að hýrast lengi enn í ófullnægj- andi húsnæði. Til þess að leysa þennan vanda, er ekki nema eitt úr- ræði. Það er að flytja ihn svo Ertent yfirlit FRIÐARTILLÖGUR RUSELLS Útvarpsumræðurnar. Útvarpsumræðurnar um Bún- aðarráðslögin voru ákjósanleg kynningarstarfsemi á viðhorf- um og störfum stjórnmálaflokk- anna. Jón Pálmason óskaði eft- ir því, að þær færu fram og hefir þá eflaust minnzt þess, að stjórnarliðið hefði þrefald- an ræðutíma á við andstæðinga sína. Hann hefir sennilega treyst því, að það yrði hægt að kæfa rök Framsóknarmanna í margföldu masi: Og eflaust hef- ir hann treyst því frá byrjun, að Jóni á Reynistað yrði meinað að koma fram í umræðunum, þó að hann sitji í landbúnaðar- nefnd neðri deildar. Það fór líka svo, að Sjálfstæðisflokkurinn skipaði Jóni á Reynistáð að begja þetta kvöld. Það út af fyrir sig er á við eina ræðu, því að þar með hefir Sjálfstæðis- flokkurinn sýnt að stefna hans er stefna Jóns Pálmasonar og Péturs Magnússonar og ekki önnur. Ósamhljóða vitni. Jón Pá sagði að bændur ein- ir hefðu verðlagningarvald á vörum sínum. Ásg. Ásg. hélt því fram.að það væri aldrei hægt að selja neinni stétt sjálfdæmi í verðlagsmálum. „Nú eru völdin komin í hendur bænda sjálfra og þá fyrst og fremst sjálfstæð- isbænda" sagði Jón Pá. “Ábyrgð ráðherra á þessum málum er ótvíráð," sagði Ásg. Ásg. Þannig var á málum haldið. Einn ræðumaður varði bráða- birgðalögin vegna þess, að þar með væri valdið lagt í hendur bænda. Undarlegir mega stjórn- arliðar vera í höfðinu, ef þeir geta fallizt á allar forsendur þessara tveggja málsvara lag- anna. Hér hafa þó hrafnarnir sannarlega kroppað augun hver úr öðrum og fer það að vissu leyti vel. Lýðræði Jóns Pá. Athyglisvert var skraf Jóns Pá um það, hver réttur stjórn- arandstæðinga ætti að vera. Hann talaði um það, að verð- lagningarvöldin væru nú komin í hendur bænda sjálfra og þá fyrst og fremst sjálfstæðis- bænda. í framhaldi af þvi sagði )hann m. a.: „Margir Tímamenn hafa það yfirsjónarmið að sundra stjórn- arsamstarfinu og slíkir menn mega engu ráða um þessi efni.“ Það var sannarlega gott, að þjóðin fékk að heyra af vörum þessa manns, að bráðabirgða- lögin eru byggð á þeirri hugsun, að það sé nauðsyn fyrir stjórn ríkisins, að svipta þær stéttir, sem ekki fylgja henni að mál- um, réttinum til að velja full- trúa sína sjálfar. Enginn, sem heyrði þetta getur efast um það, að hér er verið að skapa for- dæmi, sem opnar leiðir til þess, að leysa upp eða svipta rétti öll þau stéttarsambönd, sem eru á móti þáverandi ríkisstjórn. Þá geta menn sagt eins og Jón Pá. „Margir þeirra hafa það yf- irsjónarmið að fella stjórnina, og slíkir menn mega engu ráða um þessi efni.“ Kjósendur landsins verða að gera upp við sig, hvort þeir vilja skapa svona fordæmi. Víst þarf að reisa hömlur við ofríki stétt- anna, en það á ekki að gerast á þennan hátt. Það þarf viturleg- ar ráðstafanir til að draga úr öfgunum, en ekki kúgunarráð- stafanir og þrælalög til að aukn þær. Ríkisstjórn, sem lýsir því yfir, að hún leysi ekki mál nema í fullu samráði við vissa stétt og hefir svo vald til að skipa sjálf fulltrúa annarra stétta gegn vilja þeirra, er ekki líkleg til-þess að koma á friði, réttlæti og jöfnuði í samskiptum stétt- anna. En það er þetta, sem nú er um að ræða. Siðfræði Jóns Pá. Þessar umræður gáfu innsýn í sálarlíf Jóns Pálmasonar og birtu sið’ferðisskoðanir hans. Ástæða er til að dvelja ögn við niðurstöðu þeirrar sýningar. Jón talaði margt um það, að Frsm. hefðu gert „pólitískt verkfair og útilokað sig frá öll- um áhrifum á stjórn landsins. Allt skraf hans um þetta póli- tíska verkfall er vitanlega hel- bert rugl og óvitaskapur. Það er enginn verkfallsbragur á flutningi þeirra mála, sem Frsfl. hefir lagt fram á síðustu þing- um og er nú að berjast fyrir. Það má nefna breytinguna á jarðræktarlögunum í fyrra. Fyrir þessu þingi liggja frum- vörp og tillögur um eflingu Fiskimálasjóðs og Byggingar- og landnámssjóðs, Byggingarlána- sjóð, Iðnnám í sveitum, niður- færslu dýrtíðarinnar o. m. fl. og er þá gengið fram hjá öllum breytingum og lagfæringum, sem Frsm. beita sér fyrir á frumvörpum stjórnarinnar og annarra. Það þarf furðulegan mikið af tilbúnum húsum, sem fáanleg eru í Svíþjóð, að unnt sé að fullnægja þörfinni. Hér er líka síður en svo • um neitt neyðarúrræði að ræða. Eins og sjá má á frásögn Hauks Björnssonar kaupmanns á öðr- um stað í bi^iðinu í dag, eru hús þessi sérlega vönduð. Verð- ið er ekki heldur til fyrirstöðu. Samkvæmt útreikningum ýmsra húsameistara kostar tenings- meterinn í húsunum uppkomn- um 140—160 kr. eða miklu minna en hann kostar í nýjum húsum nú. Innflutningur þess- ara húsa myndi því ekki aðeins bæta úr húsnæðisvandræðun- um, heldur hjálpa til að stór- 'ækka byggingarkostnaðinn. í sambandi við þetta hefir Hermann Jónasson nýlega lagt fram tillögu í sameinuðu þingi, þar sem lagt er fyrir stjórnina að tryggja innflutning slíkra húsa og greiða fyrir því, að menn geti eignazt þau með skaplegum hætti, t. d. með tolla- lækkun, útvegun lóða og hag- stæðum lánskjörum. Hefir á- reiðanlega engin tiilaga, sem fram hefir komið um lausn húsnæðismálanna, vakið jafn- mikla athygli né hlotið jafn- mikið fylgi. Þótt furðulegt sé, hefir þessi tillaga fengið daufar undirtekt- ir hjá stjórnarflokkunum og þó sérstaklega hjá Sjálfstæðis- flokknum. Tillagan var ekki fyrr komin fram en Mbl. rauk upp til handa og fóta og upp- nefndi þessi hús flekahús í ó- virðingarskyni og líkti þeim við laxveiðiskúra. Borgarstjórinn í Reykjavík vaknaði jafnhliða, eins og úr svefni, og lagði fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórnin léti fara fram rannsókn á þvi, hvernig húsin væru og hvað þau myndu kosta. Þetta er hin gamla aðferð í- haldsins til að drepa umbóta- mál, því að það er lævíslegra að vísa þeim frá til málamynda- athugunar en ganga hreint til verks og fella þau. Það sýnir annars bezt sinnu- leysi borgarstjórans í Rvík í húsnæðismálunum, að hann skuli ekki hafa beitt sér fyrir slíkri athugun fyrir löngu, ef hann hefði talið hennar þörf. Það er þó ekki einu sinni svo gott, að hér sé eingöngu sinnu leysi til að dreifa hjá honum, því að hann er reyndur að því að reyna að spilla fyrir inn- flutningi þessara húsa á allan hátt. Bæði margir einstakling- ar og félagsheildir hafa orðið að hætta við kaup á þeim vegna bess, að borgarstjórinn hefir látið neita um aðgengilegar lóð- ir undir þau. Ekkert sýnir betur, að borg- arstjóranum og flokki hans er lausn húsnæðismálanna síður en svo áhugamál.. Áhrifamiklir stuðningsmenn hans, bygginga- og húsabraskararnir, græða líka stórfé á ríkjandi ástandi í hús- næðismálunum og því meir, sem það varir lengur. Kommúnistar kæra sig heldur ekkert um lausn húsnæðismálanna, því að beir vilja geta bent á sem mest- ar og stærstar misfellur í ríkj- andi þjóðskipulagi. Afstaða þessara flokka til sænsku hús- anna sýnir bezt, að ekki er að vænta frá þeim neinnar for- göngu um skjóta og hagkvæma lausn þessara miklu vandamála grautarhaus eða þá skeytingar- leysi um öll sannindi til þess, að geta kallað þetta „pólitískt verkfall." Það sér heldur ekki á, að Jón haíi nennt að lesa greinar þær, sem blað hans sjálfs hefir birt um stjórnar- andstöðu, nauðsyn hennar og störf, nema þá að hann bresti greind til að skilja þær.. Jón Pá viðurkennir ekki að það geti verið réttmætt að vera í stjórnarandstöðu. Það er verk- fall og þar með svik við kjós- endurna á máli hans. Einhvern veginn var það nú samt svo, að sjálfur byrjaði hann þing- mennsku sína með stjórnarandi stöðu. Samkvæmt hans kenn- ingu hefir hann oftar verið í verkfalli en ekki, síðan hann var fyrst kosinn á þing. Það er mál út af fyrir sig, hvort Jóni Pá hefir snúizt hug- ur síðan hann var á móti stjórn landsins, eða hvort hann blaðr- ar bara eitthvað, sem honum finnst vel fara á til að níða andstæðingana, og hirðir aldrei um hvort honum sjálfum finnst það rangt eða rétt. Kenningin sjálf er aðalatriðið en hún er þessi. Sá þingmaður, sem ekki fylgir meirihlutanum, útilokar sig frá áhrifum og svíkur þar með kjósendur sína. Þess vegna er fyrsta skyldan að styðja stjóúhina. Annað er verkfall. Engin skoðun eða sannfæring getur réttlætt það, að mæla gegn ríkisstjórninni og stofna málum sínum í þá hættu, sem þar af leiðir. íslenzk þjóð kannast við þessa lífsspeki. Hún hefir m. a. fellt hana í þetta máltæki: Heiðr- aðu skálkinn, svo að hann skaði þig ekki. En vel gæti farið svo, að kjósendur í Austur-Húna- vatnssýslu vildu minna þing- mann sinn á heilræði séra Hall- gríms Péturssonar: Vinn það ei fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans. Og það jafn (Framhald á 7. síOu) Um ekkert er nú meira rætt 1 heimsblöðunum en varðveizlu friðarins og kennir þar ólíkra skoðana og tillagna. Þótt ekki sé litið yfir, nema fátt af þess- um tillögum.ær það nóg til þess að gera það ljóst, að þeim mönnum, sem þurfa að ráða fram úr þessum málum, er meira en lítill vandi á höndum og meira en erfitt muni vera að finna þá lausn, sem allir geta sætt sig við. Af tillögum þeim, sem komið hafa fram nýlega, hafa tillögur enska heimsspekingsins og frið- arvinarins Bertrand Russells vakið mesta athygli. Veldur því ekki sízt, að hann er viður- kenndur einn mesti spekingur og mannvinur/Breta og hefir bví jafnan verið í fremstu röð þeirra, sem barizt hafa gegn hvers konar heimsveldisstefn- um og yfirgángi. Hafa fáir menn á þessari öld verið öruggari málssvarar mannréttinda og friðarhugsjóna en hann. í grein, sem Russel skrifar nýlega um friðarmálin, segir hann, að ekkert ríki eigi jafn- mikið undir því og Stóra-Bret- land, að friðurinn haldizt, því að styrjöld, þar sem atom- sprengjum .verði beitt, myndi leggja það í rústir. „Það gildi því raunverulega líf eða dauða Stóra-Bretlands að fá Banda- ríkin og Rúsland til þátttöku í varðveizlu friðarins. Bezta lausnin væri vitanlega sú, að komið yrði á fót alþjóðlegri Ör- yggisstofnun, sem réði ein yfir allri hergagnaframleiðslu í heiminum og væri nógu öflug til að brjóta hvers konar yfir- gang á bak aftur. Þótt þessi lausn sé áreiðanlega sú æski- legasta, er hins vegar þannig ástatt í heiminum nú, að litlar líkur eru fyrir því, að hún sé framkvæmanleg. Þess vegna verði að finna annað úrræði, sem-samrýmist betur raunveru- leikanum. Opinberun leyndar- málsins um atomsprengj una sé út af fyrir sig ekki slíkt úrræði, eins og margir haldi fram, nema síður sé. Það gæti að vísu eitthvað bætt sambúðina í bili, en hins vegar myndi það enn auka herradæmi Rússa á meginlandi álfunnar. Ágrein- ingurinn og samkeppnin milli stórveldanna gæti eigi að síður halclið áfram, heldur gæti meira að segja aukizt við þetta, og endirinn yrði vitanlega ekki annar en styrjöld og hrun. Það myndi heldur ekki vera nein lausn, heldur Russell áfram, að afhenda hinu ný- stofnaða Öryggisráði leyndar- málið, því að eins og þar er í pottinn búið nú, myndi það vera sama og opinbera það öll- um þjóðunum, sem taka þátt í því. Líklegasta lausnin virðist að vel hugsuðu máK sú, að Bandaríkin, sem ráöa yfir leyndarmálinu og eru sterk- asta herveldið nú, myndi eins konar hernaðarbandalag. Þau bjóði öllum þjóðum þáttöku í því, gegn ýmsum ströngum skilyrðum, t. d. að þær gangist uncíir eftirBt með hergagna- iðnaði sínum, framleiði ekki atomsprengjur og hefðu nána samvinnu við Bandaríkin um utanríkismál. E^andalagsþjóð- irnar skuldbindi sig og til þess að hefja ekki styrjöld, nema með samráði og samþykki Bandaríkjanna, en gegn því lofi Bandaríkin líka að veita þeim hjálp, ef á þær sé ráðizt. Gengju Stóra-Bretland og samveldislönd þess strax í slíkt bandalag, ef Bandarikin efndu til þess, væri líklegt að allar aðrar þjóðir myndu bæt- ast í hópinn, nema þá Rúss- land og leppríki þess. Þegar slíkt bandalag væri komið á, myndi friðurinn verða örugg- ur, því að hér væri risin upp (Framhald á 7. síOu) MDDIR N/Í6RANNANNA í Mbl. 27. þ. m. birtust pistiar, sem nefnast Milli hafs og heiða, og er Jón ?álmas. bersýnilega höfuðpaur þeirra. í pistlum þessum tuggast „forsetinn" 3inu sinni enn á atriði, sem mj^g er áberandi i blaðamennsku stjórnar- sinna og tæpast er veitt nógu mikil ithygli. „Porsetinn" segir í einum /istlinum: „Það er alkunnugt mál, að hús- kettir eru ævinlega kátastir þegar hríða og illviðra er von. — Einkum er þetta áberandi á vetrum. Þó undarlegt sé, er þetta kattareðli ótrúlega ríkt í sumum mönnum og hefir einna mest á þvi borið hjá þeim Tímaliðum síðan núverandi stjórn tók við völdum. Hvert ein- asta atriði, sem stefnt hefir til minnkandi velgengni þjóðarinnar hefir valdið mikilli gleði hjá þess- um undarlega hóp og er kjósendum þeirra út á landsbyggðinni fyrir löngu farið að blöskra. Nýlega var sú gleðifrétt birt innan breiðra ramma á fremstu síðu Tímans, að verzlunarjöfnuður þjóðarinnar við útlönd hefði orðið mjög óhagstæð- ur. Ef að togari selur illa, þá reka þeir Tímamenn upp gleðihlátur og ekki síður ef :kip ferst eins og þeg- ar vélskipið Haukur sökk. Ef ein- hvers staðar á landinu er stofnað til verkfalls, þá er það mikil gleði- frétt í herbúðum Tímans. Þá var það ekki lítill hvalreki fyrir hið Tímalega kattareðli, að sildveiðin skyldi bregðast á síðasta sumri. Á ölliun sviðum skin það 1 gegn, að þersum mönnum þykja það mikil tíðindi og góð, ef hagsmunir þjóð- arinnar bíða hnekki, aðeins ef von er til, að ríkisstjórninni geti stafað eitthvert áfall af. Örðugleikar eru betri en ekki neitt.“ Hér kemur ekki aðeins fram sú uppáhaldsiðja „forsetans" að líkja andstæðingum sínum við hunda og ketti, heldur er einnig reynt að eigna þeim þá mannvonzku, að þeir gleðjist v) ir óförum þjóðarinnar. Þegar gagr- rýnd eru kaup á ónýtu skipi og þess trafizt, að slík kaup verði fyrirbyggð iramvegis, snýr „forsetinn" þarna a'- æg við og segir, að andstæðingarnJ’ >éu að fagna yfir skipstapanum! Þ/g ar gagnrýndur er innflutníngur é ílingurvörum, segir „forsetinn", að /erið sé að fagna yfir halla á við • skiptajöfnuðinum! Þegar sagt er, að útgerðin hafi þolað síldarleysið ver en ella vegna dýrtðarinnar, segir for- setinn, að slíkt sé fögnuður yfir síld- arleysinu! Með sama hætti mætti segja, að „forsetinn" væri sífellt að tönnlast á karakúlhrútum, vegna þess, að hann fagnaði yfir tjóninu af innflutningi þeirra. Þetta fagnaðar- skraf „forsetans" er vissulega eitt af óþverrametunum í íslenzkri blaða- mennsku og sýnir hve ístöðulitlir menn geta leiðzt langt í illgirni og blekking- úm, þegar rök vantar til að verja málstaðinn. ★ í forustugrein Vísis 24. þ. m. er rætt um hina sameiginlegu stefnu komm- únista hér og Rússa, að Öryggisstofn- unin fái stöðvar. á íslandi. Vísir segir: „Sú fregn hefir borizt hingað, að Rússar hafi mikinn áhuga fyrir því, hverjum péu veittar herstöðvar hér á landi. Ileggja þeir áherzlu á, að mál þetta verði að leysa með öryggi allra þjóða fyrir augum og að hinar sameinuðu þjóðir verði að leysa vandamálið, væntanlega með þvi að hafa hér alþjóðlegt setulið. Þá hafa Rússarnir sagt sitt álit. Og margir munu verða forviða á því, að afstaða þeirra er nákvæm- lega sú sama og kommúnistanna okkar. En eins og allir vita eru þeir svo „þjóðhollir" menn og svo miklir „frelsisvinir", að fólk getur varla látið sér til hugar koma, að þeir hafi látið Rússana hafa nokkur áhrif á sig um skoðun sina. Þeir hafa barizt fyrir b-essari skoðun með oddi og egg, lengi áður en Moskva birti sitt álit, svo að trú- legast mætti þykja, að það séu þeir, sem hafi haft áhrif á Moskvu. Eins og þeyra má í útvarpinu á degi hverjum, eru nú kommúnist- arnir okkar orðnir aðal sjálfstæðis- hetjur landsins. Var varla við því að búast, að aiírir kæmu tll greina til verndunar sjálfstæðinu, svo „grandvarir" og „þjóðhollir" menn, sem þeir eru, og lausir við að vera undir erlendum áhrifum, eftir því sem þeir sjálfir segja. Enda sann- ar þetta ekkert betur en það, að Ráðstjórnarríkin koma með sitt álit löngu eftir að kommúnistamir okk- ar hafa sett fram sína skoðun. Að skoðanir beggja falla alveg saman, gæti bent á óvenjulega hugkvæmni þeirra, sem stafað gæti beint af göfgi þess hlutverks, er þeir hafa tekið að sér, að standa vörð um hið nýfengna sjálfstæði þjóðarinnar. Enda er varla hugsanlegt að nokk- ur geti slíkt, nema sá, sem hafinn er yfir allan grim um „fimmtu her- deildar starfsemi eða þjónustusemi við erlend öfl. Vafasamt er og það, hvort nokkr- ir aðrir en kommúnistarnir okkar hafi nokkurn skilning á því, hvern- ig við getum bezt verið sjálfstæðir. Þeir hafa haldið. því fram og stjórn- in hefir falltzt á þau rök, að við verðum bezt sjálfstæðir með því að fá að sitja utarlega „á bekk“ hinna sameinuðu þjóða, og fá hingað setulið fjögra stórvelda. Með því móti er þjóðernið og sjálfstæðið tryggt og enginn getur ráðist á okkur. Við getum varla óskað okkur nokkurs betra. Að líkindum yrði landinu skipt í yfirráðasvæði og við mundum geta haft tvenns konar lýðræði, hið vestræna og hið aust- ræna. Rauðu frelsishetjurnar okkar mundu þá geta notið frelsis og lýð- ræðis við þeirra hæfi á vissu um- ráðasvæði. Varla er hugsanlegt að nokkurt sjálfstæði geti verið full- komnara fyrir okkur, fátæka og smáa, en fullkomin yfirráð „hinna sameinuðu" yfir landi okkar og þjóð. Eins og stjórnin að fyrirmæl- um kommúnistanna okkar hefir þegar tekið skýrt og greinilega fram, erum við reiðubúnir að taka á okkur þann kross, sem því kann að fylgja, að fá að sitja á bekk með sameinuðu þjóðunum. Undarlegt er að svo merkilegur maður sem de Gaulle, skuli geta fengið af sér að halda því fram að kommúnistar séu undir erlendum áhrifum. En svona er vanþakklætið til þeirra, sem allt vilja gera fyrir sitt rétta föðurland." Já, miklir sjálfstæðisgarpar eru kommúnistarnir okkar og mikil er velvild Rússa í okkar garð, því að hvað ætli að það sé sprottið af öðru en umhyggju fyrir okkur, þegar þessir aðilar berjast fyrir því, að landið verði alþjóðleg bækistöð! ,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.