Tíminn - 30.11.1945, Síða 3

Tíminn - 30.11.1945, Síða 3
91. blað TtMlTVTV, föstndaglim 30. nóv. 1945 3 Ha.ttd.0r Kristjánsson.: ÞORPIN OKKAR Fyrsta grein Eiga sjóþorpin tllverurétt? íslenzku þjóSinni fjölgar um meira en hálft annað þúsund manna árlega eða nánar tiltekið um 1700 á hverju ári um þetta bil. Fyrir þessum vexti þarf að sjá. Þetta fólk þarf að eignast hús og heimill og fá lífvænlega og þjóðholla atvinnu. Það er á margan hátt glæsi- legt, að þjóðin skuli vera í slík- um vexti. Víst er gótt til þess að hugsa, að við skulum á þremur árum geta byggt bæ eins og Ak- ureyri, án þess að þurfa að taka nokkuð frá nokkrum stað, sem fyrir er. Miklir möguleikar og mörg tækifæri eru í sambandi við þann j/öxt. Undanfarið hefir öll þessi fjölgun lent í Reykjavík. Utan Reykjavíkur eru það fjórir eða fimm staðir, sem hafa vaxandi mannfjölda, svo að nokkru nemi. Annars staðar er kyrr- staða eða hrörnun. Áður en lengra er farið, er vert að gera sér grein fyrir því, hvort þessi þróun sé æskileg eða ekki. Er það rétt, að Reykjavík vaxi ein fyrir alla þjóðina? Eig- um við öll að vera' í Reykjavík? Menn eru undarlega fljótir að gleyma og hættir við að miða skoðanir sínar og ályktanir við ástand augnabliksins. Stundar- fyrirbæri geta hæglega ruglað menn að meira eða minna leyti. Nú eru uppi raddir um það, að landbúnaður á íslandi eigi eng- inn að vera, nema sem auka- hlutverk útvegsmanna og verzlunar. í blaðaskrifum er því haldið fram, að íslenzk smíði eigi engan rétt á sér. Slíkir menn hljóta líka að álykta, að eina útgerðin, sem hér eigi sér tilverurétt, sé togaraútgerðin, af því hún gengur bezt, og er raunar sú eina grein útgerðar- innar, sem gefur góðan arð þessar vikurnar. Hafi ísland, vegna legu sinn- ar, nokkra sérstöðu og yfirburði í atvinnumálum, þá hlýtur það að byggjast á nálægð við fiski- miðin. Þetta eru einu rökin, sem til þess liggja, að íslendingar eigi betri aðstöðu til útgerðar og fiskiveiða en aðrir. Ég ætla mér ekki að gera lítið úr þessum röksemdum. En hitt vil ég benda á, að allir þeir, sem viðurkenna þessi rök, hljóta jafnframt að viðurkenna það, að útgerð ís- lendinga eigi að vera búsett við hafnirnar hringinn í kringum landið en ekki öll á einum stað, þó að góður sé. Arðvænlegir yfirburðir tog- araútgerðar yfir bátaútveginn stafa að miklu leyti af stundar- fyrirbærum styrjaldarástands- ins. Allt fiskmeti er keypt fyrir geypiverð. Vörugæði og vöru- vöndun eru óeðlilega litil at- riði, þegar hungur og skortur heilla þjóða er annars vegar. Stríðsástandið tekur enda fyrr eða slðar. Það kemur næg- ur matur á markaðinn. Útgerð frændþjóða okkar fær sitt rétta eðli og mikið fiskmagn kemur til sölu og neyzlu í markaðs- löndunum. Þá verða vörugæði mikið atriði. Þá verður nálægð fiskimiðanna þýðingarmeira at- riði en verið hefir nú um sinn. Fyrsta skilyrði til þess að út- gerðin hafi vandaða vöru að bjóða, — gott og ósvikið fisk- irstaða menningarlífs og sjálf-|sjá hag þjóðar sinnar og meta meti — er það, að flskurinn sé góður og óskemmdur, þegar hann fær þá meðferð, sem hentar honum bezt í hvert sinn. Þar sem hægt er að koma fisk- inum nýjum, ferskum og ómörð- um til hafnar og vinnslu, eru góð skilyrði til þess að fram- leiða fyrsta flokks fiskmeti, sem alls staðar væri samkeppn- isfært. Eftir þvi, hvernig menn meta þessi skilyrði, fer það, hvaða trú þeir hafa á framtíð sjávar- útvegs á íslandi. Eigi að veiða fiskinn með tog- urum, ísa hann um borð og flytja á veiðiskipinu sjálfu til markaðslandanna, skiptir svo sem ekki miklu, hvort togarinn er gerður út frá þeim eða landi, sem liggur rétt við miðin. Að vissu leyti á útgerð markaðs- landsins betri aðstöðu, því að hún er þó liður í atvinnulífi þess og getur e. t. v. notið ýmis konar hjálpar og fyrirgreiðslu heimalands síns vegna þess. Það eru þvi ærnar líkur til þess, að í slíku formi geti samkeppnin orðið okkur nokkuð erfið. Eigi hins vegar að vinna fiskinn til neyzlu og flytja hann á markað sem iðnaðar- vöru, stöndum við allt öðru vísi og betur að vígi. Þá er það mik- ils virði að koma fiskinum sem fyrst til vinnslu. Sú skemmd, sem myndast í fiskinum, áður en hann kemst í vinnslu, verð- ur aldrei bætt eða afturtekin. Sé fiskurinn orðinn marinn eða kæstur, verður hann aldrei ó- svikin manneldisvara. Fyrsta flokks neyzluvörur verða ekki framleiddar úr skemmdu hrá- efni, Þetta eru rökin fyrir því, að nálægðin við fiskimiðin er þýðingarmikið fjárhagsatriði. Þeir, sem eru mér sammála um þetta, munu meta það mik- ils, að land okkar liggur við auð- ug fiskimið. Þeir hljóta jafn- framt að skilja það, að nálægðin við fiskimiðin notast bezt á þann hátt, að fiskurinn fái vinnslu við næstu höfn. Til þess að svo geti orðið þarf útgerðin að hafa þar aðsetur og heimili að einhverju leyti. Þetta eru þvi rökin fyrir því, að fiskiþorp eigi sér tilverurétt víðs vegar á strandlengju ís- lands og séu nauðsynleg fyrir þjóðina, eigi hún ' að notfæra sér þau fjárhagslegu tækifæri, sem lega landsins veitir. Þjóð- in getur ekki án þeirra verið, ef hún vill nytja þau lífsskilyrði og náttúruauðæfi, sem landið á ráð á, svo að menningarbragur sé að. Ef við viljum vera svo vel samkeppnisfærir um fram- leiðslu og sölu, sem náttúruskil- yrði landsins leyfa, þá verðum við að eiga þorp með útgerð og fiskiðnað hringinn í kringum landið. Það er þjóðarnauðsyn. Þar, sem náttúran hefir gefið okkur höfn við fiskimið og góð skilyrði til raforku og ræktun- ar á landi, eru lífsskilyrði, sem okkur ber að gefa gaum að. Slíka staði ber að leggja rækt við. Sums staðar er svo langt á milli góðra hafna, að það verður að byggja þær og búa til, ef hægt á að vera að nytja fiski- miðin úti fyrir. svo að viðun- andi sé. En þetta er það, sem hverju barni þarf að verða ljóst, að hafnir með fiskimið fram- undan og mold að baki, er und- stæðrar tilveru okkar hér á landi. íslenzka þjóðin getur ekki verið án þorpanna sinna. Þau eiga að blómgast og vaxa og taka við nokkrum hluta af fjölgun þjóðarinnar. Áhugamál allra. Það þarf enginn að halda, að það óheppilega hlutfall, sem nú er í þróun Reykjavíkur og þorpanna, réttist sjálfkrafa. Á- stæðulaust er að vænta þess, að einhvern daginn snúist straum- urinn við af sjálfu sér einasta, án þess að nokkuð sé til þess gert. Það þarf myndarleg og fjölþætt átök til þess að rétta hlut þorpanna við. Þau hafa verið vanrækt og orðið útundan. Úr því þarf að bæta. Eina ráð- ið til þess að halda byggð þeirra við og gera þeim mögulegt að vaxa, er að gera þau sambæri- leg við Reykjavík um afkomu skilyrði og alla aðbúð. Það þarf að jafna fjárhagsmálin og að- stöðu atvinnuveganna, menn ingarskilyrði og lífsþægindi. Og þar sem þjóðin í heild getur ekki án þorpanna verið, má hún ekki vanrækja lengur þessi verkefni, sem framtíð hennar er svo mjög undir komin. Hlutfallið milli staðanna verður óheppilegra með hverju árinu sem líður. Að sama skapi verður erfiðara að rétta það við og þörfin brýnni að hefjast handa strax. Þá þörf hljóta þeir allir að sjá og viður- kenna, sem ekki telja heppilegt, að þjóðin setjist öll að í Reykja- vik. í þessari grein verður leitazt við að gera grein fyrir því, sem stendur þorpunum einkum fyr- ir þrifum, og því, sem næst ligg ur að gera til þess að rétta hlut þeirra. Ef lesendur minir sjá betur, vænti ég, að þeir þegi ekki yfir því, heldur geri sinar athugasemdir og viðaukatillög- ur. Þetta mál verður að ræða. Hið sundraða, afrækta fólk verð ur fyrst og fremst að sameinast sjálft um að berjast fyrir rétti sínum. Nú er þeim mönnum, sem bú settir eru í þorpunum, að vissu leyti refsað fyrir það að vera þar, að því leyti, að þeim eru meinuð mörg þau þægindi, sem veitast í Reykjavík. Margt af því, sem menn sækjast eftir veitist þeim í Reykjavík en alls ekki í þorpunum. Það er þetta og þetta eitt, sem veldur straumn um. Á þessu þarf því að ráða bót. \ Hér er ekki um að ræða sér- mál þeirra, sem sjálfir búa í þorpunum, þó að auðvitað sé hver sjálfum sér næstur. Þetta er þjóðmál. Reykvíkingar þurfa þess með, að þorpin séu til og blómgist. Um hið nána sam- band og gagnkvæmu hagsmuni þorpanna og nálægra sveita þarf ekki að fjölyrða. Þorp með blómlegu atvinnulífi er miðstöð viðskiptalífs í héraði sínu og skapar margháttuð markaðs- skilyrði og afkomumöguleika fyrir bændur í grenndinni Þorpin geta átt, ef þau eru ekki svelt og kúguð, mikinn þátt í vexti og þróun sveitalífsins 1 kring. Það sannast hér eins og víða í mannlegu félagi nútím- ans, að eins líf er annars líf Viðreisn þorpanna ætti því að vera áhugamál allra íslendinga Það er áhugamál allra góðra og vlðsýnna manna, sem kunna að sæmd hennar. Það er réttlætis- mál fyrir það fólk, sem í þorp- unum býr. Og það er, þegar til lengdar lætur, hagsmunamál fyrir þjóðina alla. Bátaútvegurinn. Yfirleitt er bátaútvegurinn eina undirstaðan að afkomu aorpanna, þó að fleira styðji Dar að. Allt hitt gerir ýmist að vera hjálp og léttir fyrir menn, sem lifa þó fyrst og fremst á útveginum, eða þá það byggist beinlinis á útgerðinni sem undir- stöðu. Smáútgerðin hefir átt erfitt uppdráttar síðustu árin. Mér þykir hlýða að vitna hér til þess, sem þrír þingmenn komm- únista lýstu yfir á Alþingi 1943 og aftur 1944. Það voru þeir Lúðvík Jósefsson, Þóroddur Guðmundsson og Brynjólfur Bjarnason, sem fluttu tillögu um skipun nefndamtil að und- irbúa tryggingar lágmarkslauna fiskimanna. Þeir sögðu, að til- gangurinn væri sá að tryggja „fiskimönnum, sem ráðnir eru fyrir aflahlut, og smáútvegs- mönnum öruggari afkomu og sambærileg launakjör við aðrar vinnandi stéttir í landinu.“ Tryggingin átti að vera borin uppi með framlögum frá útgerð og ríki, en þangað til hún tæki til starfa átti að leggja fram fé til hlutarbóta úr ríkissjóði. Þeir félagar segja svo í grein- argerð: Eins og nú er komið málum munu hlutaráðnir fiskimenn og smáútvegsmenn vera verst laun- aðir allra atvinnustétta lands- ins. Orsakir hinna lágu launa þessara aðila eru ýmsar, en þær, sem mestu skipta, eru hinn sí- vaxandi útgerðarkostnaður, en þó fastbundið íiskverð, óréttlát- ur fisksölusamningur, sem gerir engan verðmun á hinum góða og dýrmæta smábátafiski og verðminni fiski stórútgerðar- (Framhald á 6. síöu) „Btessuð sértu, sveitin mírí' Það mun vera um hálfur mannamótum og í samkvæm- fimmti áratugur síðan ungur um. Slíka hylli hljóta aðeins Mývetningur, er þá hafði nýlokJ ljóð og iög, sem gædd eru ið gagnfræðaprófi í Möðruvallla- vængjuðum krafti, og myndi skóla, orti um hina fögru sveit þetta kvæði eitt nægja til þess sína kvæði, sem vakti þegar ó- að halda á loft nafni Sigurðar venjulega hrifningu, er það varð almenningi neyrin kunnugt. Sigurður Jónsson á Arnarvatni Tilfinhingar hinna heimaelsk uðu, dugmiklu og framsæknu Mývetninga andspænis hinu mikilúðlega og þó undra friða umhverfi sínu höfðu aldrei fyrr verið túlkaðar af slíkri hrifn- ingu, krafti og einlægni. Þarna hafði verið sleginn hinn hreini tónn, er fólginn var í streng gígjunnar. Hið unga skáld var Sigurður Jónsson (skálds Hin- rikssonar), síðar bóndi á Arnar- vatni, og kvæðið var „Fjalla- drottning, móðir mín.“ Síðar samdi svo Bjarni Þor- steinsson lag við kvæðið, og undir þvi lagi hefir það smám saman orðið þjóðsöngur allra íslenzkra sveita og eitt þeirra laga, sem oftast eru sungin á á Arnarvatni og skipa honum meðal þeirra, sem beztar ljóða- gjafir hafa gefið þjóð sinni. Síðan hefir Sigurður ort mjög góð kvæði, er verið hafá lesin og lærð víða um land, þótt aldrei hafi hann náð jafn hátt og í þessu einu sínu elzta kvæði. Árið 1937 kom út ljóðabók eftir Sigurð, '„Upp til fjalla.“ Hlaut hún hinar beztu viðtökur og seldist upp á tiltölulega skömmum tíma, eftir því er gerðist um bækur á þeim tíma. Nú í sumar gaf svo ísafoldar- prentsmiðja út nýja Ijóðabók eftir Sigurð, „Blessuð sértu, sveitin mín.“ Hefst hún á þessu ágæta kvæði cg fylgja þar á eftir hin eldri kvæði höfundar. Síðari hluti bókarinnar er svo kvæði frá síðustu árum. Lýkur henni með „Útfararsöng“ undir sama bragarhætti og „Fjalla- drottnihg, móðir mín,“ í Leyfir Tíminn sér að birta það kvæði hér með þessum lín- um. Er það svolátandi: Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, — þakkarklökkva kveðjugjörð. Kveð ég líf þitt, móðir jörð! Móðir, bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjöfð, ástarkveðju heyr þú mína. Fagra, dýra móðir mín, mihnar vöggu griðastaður, nú, er lífsins dagur dvín, dýra, kæra íostra mín, (Framhald á 6. síðu) KRISTJÁN BENEDIKTSSON: Ferbasögubrot Mörg héruð' í landinu eiga enn við erfiðar samgöngur að búa, þrátt fyrir allt það, sem gert hefir verið á síðustu áratugum til þess að bæta úr samgöngu vandræðunum. Óvíða er þó jafn erfitt um vik, sem í Skaftafellssýslunum, þar sem jöklar ljúkast að byggðinni, jökulfljót og auðnir hluta hana sundur, en strand- lengjan öll hafnlausir sandar, þar sem brimið svarrar ár og síð. — Hér segir Kristján Benediktsson bóndi í Einholti ferðasögu þeirra Steinþórs Þórðarsonar bónda áTIala, er þeir voru að brjót- ast á stofnfund stéttarsamtaka bænda að Laugarvatni í haust. Búnaðarsamband Suðurlands boðaði til fulltrúafundar bænda 7. september f haust, og skyldt þar stofna stéttarsamtök bænda. Búnaðarþing nafði löggilt þann sama dag til stofnunar samtak- anna, en hjá bændum sjálfum var mikill og vakandi áhugi fyr- ir máli þessu. Var bráðlega haf- izt handa um að boða til funda í hreppabúnaðarfélögunum til að ræða þetta mál og kjósa kjörmenn. Það kom brátt í ljós á fund- um búnaðarfélaganna, hve al- mennur áhugi var fyrir hendi um stofnun stéttarsamtakanna. Allir sem einn og einn sem allir sáu nauðsyn þess. Ekki svo að skilja, að það væri nauðsyn bændastéttarinnar einnar, sem krafðist þess, heldur var það og er þjóðfélagsleg nauðsyn, sem varðar alla borgarana og þjóð- ina sem heild. En út í það fer ég ekki meira að sinni. Þetta átti umfram allt að verða ferða- saga. Þá var og haldinn fundur í Suðursveit með kjörmönnum til að kjósa tvo menn hér úr Aust- ur-Skaftafellssýslu til að mæta á stofnfundinum, og urðum við Steinþór Þórðarson á Hala fyrir valinu. Við höfðum báðir mikinn áhuga fyrir að komast á þennan fulltrúafund þænda og hétum því, að við skyldum leggja allt kapp á að komast þangað og var umfram allt ætl- unin að reyna að komast með flugferð af Hornafirði, því að ekki er að tala um skipagöngur á Hornafjörð, sem hægt sé fyrir sjóveika sveitakarla að notast við, . síðan „Esjan“ hætti að koma hér inn, en landferðalag er dýrt og erfitt. En þó varð það nú úr, að við lögðum upp í landferðalag, því Kristján Benediktsson að ekki gaf fyrir flugvél. Ég lagði á stað á hesti mánudag- inn 3. september að Flatey. Þangað sótti mig á bll þann sama dag Þorsteinn Guðmunds- son hreppstjóri á Reynivöllum og flutti mig að Hala til Stein- þórs bónda. Þennan fyrsta dag ferðalags- ins var rigning frameftir degi, en létti upp með kvöldinu. Var ég nú hjá Steinþóri um nóttina í góðu yfirlæti. Næsta morgun, þriðjudaginn 4. september, var heiðskírt veð- ur. Þá var str^ix byrjað að tala við Reykjavík um flugleiði, er búið var að opna símann, og jafnframt var talað við Björn á Tvískerjum að sækja okkur á hestum að Jökulsá, ef ekki yrði flugveður. Steinþór varð að hafa fyrir öllum slíkum útrétt-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.