Tíminn - 30.11.1945, Side 6
6
TÍMIM, föstndagiiw 30. nóv. 1945
91. blað
ÍSLENDINGAR!
Samvinnan er nú talin bezta leiðin í samskiptum
þjóðanna. Athilgið, að hún hlýtur einnig að hafa
slíka þýðingu fyrir þegna lítils lýðveldis.
Styðjið og styrhið
íslenzhu smnvinnuhreyfinfiuna.
Kvörtunum
um rottugang
í húsum er veitt viðtaka i skrifstofu minni við Vega
mótastíg 4 alla virka daga frá 27. nóv. til 7. desember,
kl. 10—12 f. h. og kl. 1—6 e. h. — Sími 3210.
Það er mjög áríðandi, að menn kvarti á réttum tíma,
og áður en kvörtunarfresturinn er útrunninn.
Heilbrigðisfulltrúiim.
Þorpin okkar
(Framhald a) 3. siSu)
innar, eins og ufsa, og auk þess
er svo það, að smáútgerðin býr
við mjög ófullkomin fram-
leiðslutæki. Ríkisvaldinu, sem
hefir samið um hlutfallslega
óhagstæðara fiskverð fyrir smá-
útveginn en stórútgerðina og
fastbundið fiskverðið með
samningi, án þess að geta fyrir-
byggt sívaxandi dýrtíð, ber
skylda til að hlaupa untþr bagga
með fiskimönnum þeim, sem
harðast verða úti í þessu sam-
bandi.“
Hér er skemmtilega glöggt
tekið fram og viðurkennt margt
af því, sem mestu skiptir í
þessu sambandi. Yfirburðir
smáútvegsins um vörugæði eru
viðurkenndir. Ábyrgð ríkisvalds-
ins og sök á því, hvernig komið
er, ýmist með aðgerðum, sem
höfðu óheppileg áhrif, eða sak-
ir vanrækslu og aðgerðaleysis
er líka viðurkennd. Bölvun
þeirrar dýrtíðar, sem kommún-
istar hafa stöðugt barizt fyrir
og búið til í oreiðfylkingu með
Ólafi Thors og liði hans, er líka
viðurkennd. Það vantar ekki, að
nauðsyn og réttur þeirra manna,
sem lifa við smáútveg séu viður-
kennd. En alvarlegar og gagn-
légar ráðstafanir í samræmi við
þessa viðurkenningu eru ó-
komnar enn, þrátt fyrir það,að
flokkur tillögurnanna hefir far-
ið árlangt með völd í landinu.
Það er mál út af fyrir sig,
hvort menn felja sig við og trúa
á þá lausn, sem þessi þings-
ályktunartillaga benti á. Það er
1 rauninni bágborið úrræði, þeg-
ar klaufaleg óstjórn hefir gert
einhvern atvinnuveg ófæran og
ósjálfbjarga, að halda honum
uppi með tryggingagreiðslum.
Sérstaklega minnkar þó ljóminn
af slíkum tillögum, þegar þess
er gætt, að kostnaðinn við
tryggingarnar átti að taka úr
tómum ríkissjóði, sem líka var
or'ðinn sligaður af dýrtíð og
óstjórn. Hér var því um hvort
tveggja að ræða, að leiðin, sem
bent var á, var vafasöm og alls
kostar ófær.En hvað sem um það
er, eru rökin og lýsingináafkomu
smáútvegsins réttmæt, þó að
óvenjulegt sé að fá svo greina-
góða lýsingu frá mönnum á
bölvun þeirri, sem þeir eru sjálf-
ir valdir að.
Víða hefir nokkuð borið á því,
að erfiðlega gengi að fá menn
á bátaflotann og halda honum
úti. Horfa margir útvegsmenn
með kvíða til komandi daga
af því tilefni. Ástæður til þessa
eru greinilegar. Þetta stafar
blátt áfram af því, að afkoma
fiskimanna á þessum bátum er
ekki nógu góð í hlutfalli við af
komu annara manna. Þrátt fyr
ir vos og volk, sem sjómennsku
hlýtur að fylgja, hafa fiskimenn
á vélbátaflotanum ekki gert
betur en að hafa svipaðar tekj
ur og verkamenn 1 landi og
stundum minna. Tímakaup
þeirra hefir löngum verið lægra.
Þegar þessa er gætt, eru litlar
líkur til þess, að mönnum þyki
fýsilegt að tak:# á sig þau óþæg-
indi, sem sjómennskunni fylgja
og hljóta að íylgja. Menn taka
yfirleitt ekki á sig áhættu og
óþægindi, nemá þeir hafi von
um að fá eitthvað í aðra hönd
fyrir ómak sitj;. Þess er líka að
gæta, að yfirleitt er það svo, að
ef vel aflast og hlutir verða
góðir í einhverju þorpinu, þá vex
líka atvinna í landi í hlutfalli
við það. Verkamenn í landi eru
því yfirleitt vissir um það, að
þeir fái sinn hluta af hinni
sameiginlegu lífsbjörg, sem
sjómennirnir flytja á land, ef
þeir eru heppnir með afla á ein
hverri vertíðinni. Og því skyldu
þeir þá vera að sækjast eftir
skiprúmi?
Framh.
Bókmenntir og listir
(Framhald af 3. síSu)
búðu um mig við brjóstin þín;
bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér mínn anda í hendur.
Foldin geymi fjötur sinn.
Fr j álser andinn.Drottinn minn.
hjálpi mér' í himin þinn
heilagurmátturveikumsendur
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í nendur
Fegurri og lotningarfyllri
kveðju en þessa eigum við ekki
margar — þótt ekki sé hún í
nýju sálmabókinni.
Þurrkaður og pressaður
SALTFISKUR
Ódýr og góður, i stærrl og
minni kaupum.
Haflfði Baldvinsson
Sími 1458. — Hverfisg. 123. .
Vinnið ötulleqa fyrir
Timann.
Þúsund og ein nótt
3. bindið er nú komið út
Þeir ntunu fáir, sem ehhi heillast af
hinum austurlenzhu töfrum, sem yfir
þessum söyum hvíla.
Fáar bœhur munu hafa verið meira
lesnar í heiminum í margar uldtr.
Þeir, sem eignazt hafa fgrri bindin,
œttu að trgggja sér 3. bindi strax. —
Fgrri bindin mega nú heita uppseld.
í þessu bindi eru um 100 sögur líhar
sögunum af Alladin, AH Baba, Sindbað
og svo ótal mörgnm, sem allir þehhjja
og hafa lesið eða séð á hvihmgndum.
Þúsund og eina nótt
þurfa allir að eiga
Mál og men.n.Lng
(O
Laugaveg 19
Happdrætti S. I. B. S.
GóiBir Islendingar!
Samband ísl. berklasjúklinga er yður flestum kunnugt og þeir eru fáir meðal ykkar, sem ekki vilja styrkja
og styðja hina ágætu og þýðingarmiklu starfsemi þess. — Vinnuheimilið að Reykjum er nú sem óðast að rísa frá
grunni, — en framkvæmdir kosta offjár — og þess vegna hefir sambandið efnt til HAPPDRÆTTIS nú fyrir
skemmstu og aflað sér margra ágætra muna I því sambandi, t. d.: Flugvél, 2ja sæta og flugnám kr. 50.000,00,
Bátur (skemmtijakt) kr. 15.000,00, Jepp-bíl kr. 12.000,00, Málverk eftir Kjarval 'kr. 10.000,00, Píanó kr. 10.000,00,
Radíógrammófónn kr. 7.000,00, Flugferð til New York kr. 6.000,00, Skrifborð kr. 4.000,00, Ferð til Norðurlanda
kr. 2.000,00, Golfáhöld kr. 2.000,00 og 10 vinningar á 1000 kr. hver. — Dregið 1. febr. 1946. Verð miðanna er 10 kr.
t
Sala miða er nú í fullum gangi, en betur má ef duga skal — mikið er óunnið enn. — Þér ættuð ekki að dmga
það lengur að kaupa miða. — Styrkið gott málefni og skapið yður um leið möguleika til þess að eignast stór,
varanleg verðmæti.
Umboð í Reykjavík >
Bókaverzlun Lárusar Blöndal
Bókaverzlun ísafoldar,
Bókav. Braga Brynjólfssonar
Bókav. Sigfúsar Ej’mundssonar
Bókaverzlun Guðmundar Gamaliels-
sonar
Hljóðfærahúsið, Bankastræti
Helgafell, Laugavegi 100
Mál og menning, Laugavegi 19
Kiddabúð, Njálsgötu 04
Kiddabúð, Bergstaðastræti 48
Silli & Valdi, Hrlngbraut 149
G. B. Björnsson
Höfn, Vesturgötu 12
Jón Símonarson, Bakaríið,
Bræðraborgarstíg 16
Verzl. Ægir, Grófin, Tryggvagötu
Drífandi, Laufásvegi 58
Hafliðabúð
Regnboginn.
Ef þið náið ekki til umboðsmanns, þá getið þið fengið mlða
senda gegn kröfu.
Ég undirrit .......... óska að fá serida (gegn kröfu)
......... miða í Happdrætti S.f.B.S.
Nafn ..........................................
Heimili .......................................
Merkt: S.Í.B.S., Rvík.
Samband ísi
berklasjúkíinga