Tíminn - 10.01.1946, Side 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN8SON
ÚTQICPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
RIT3TJÓRASKRIPSTOFOR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Simar 2353 og 4373
00 AUGLÝSINGASKREPSTOPA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Simi 2323
AFGREOSLA, INNHEIMTA
30. árg.
Reykjavík, íímmtiidagiim 10. janúar 1946
4. blað
Mótspyrna stjórnarflokkanna gegn sænsku húsunum
sýnir vel áhugaleysi þeirra í húsnæðismálunum
Skrifstofa B-listans er í
Edduhúsinu við Lindargötu,
símar G066 og 2323.
Þeir, sem ætla að styðja að
sigri listans og koma Pálma
Hannessyni í bæjarstjórnina —
ættu sem allra flestir að hafa
samband við skrifstofuna, sem
er opin alla daga frá kl. 10 á
morgnana til kl. 10 á kvöldin.
Hver var samn-
ingamaðurinn?
í áramótagrein Hermanns
Jónassonar hér í blaðinu,
var skýrt frá því, að einn
af samningamönnum rík-
isstjórnarinnar, er samdi.
um togarakaupin, hafi
haldið því fram, að sölu-
bannið á hraðfrysta fisk-
inum í Bretlandi myndi
eiga rætur að rekja til tog-
arakaupanna.
Samningamaðurinn hafði
skýrt frá þessu á þá leið,
að þegar fyrri íslenzka
samninganefndin kom til
Bretlands, hafi brezkir út-
vegsmenn verið búnir að
mynda samtök gegn skipa •
smíðastöðvunum og ætlað
að neyða þær til að lækka
togaraverðið um helming.
fslendingar sömdu hins
vegar um að kaupa togar-
ana fyrir helmingi hærra
verð, en brezkir útvegs-
menn vildu gefa fyrir þá,
og síðan var þetta verð enn
hækkað um þriðjung vegna
breytinga, sem talið var
nauðsynlegt að gera á hin-
um upphaflegu samning-
um.
Með þessu háttalagi
brutu fslendingar niður
þau samtök, er brezkir út-
vegsmenn höfðu myndað
til að færa niður togara-
verðið. Að dómi samninga-
mannsins vakti þetta mikla
gremju brezkra útgerðar-
manna. Afleiðing hennar
var í fyrsta lagi sú, að beir
fengu stöðvað siglingar ís-
lenzkra fisksöluskipa til
austurstrandar Bretlands
um skeið og í öðru lagi
fengu þeir komið á sölu-
banninu á hraðfrystum
fiski héðan.
Tíminn getur nú upp-
lýst, að samningamaður-
inn, sem gaf þessar upp-
lýsar, er Gísli Jónsson al-
þingismaður. Hann gaf
þessar upplýsingar á lok-
uðum þingfundi, þegar
fyrst var skýrt frá .sölu-
banninu. Þar sem búið er
að segja frá tilefni þessa
lokaða fundar, er vitan-
lega einnig heimilt . að
segja frá þessum þætti um-
ræðnanna þar.
Hina úrræði kjósendanna til að stuðla
að skjótri og hagkvæmri lausn húsnæð-
ismálanna, er að efla Framsóknarflokkinn
í seinasta blaði var gefið nokkurt yfirlit um aðgerðaleysi
stjórnarflokkanna í byggingarmálunum. Ríkisstjórnin vanrækti að
gera nokkrar ráðstafanir í þeim á Alþingi í fyrravetur og þess
vegna héldu húsnæðisvandræðin og húsaleiguokrið áfram að
hríðvaxa á síðastl. ári. Á þinginu í haust flutti stjórnin ekki
frv. um byggingamálin fyrr en eftir að Framsóknarmenn höfðu
flutt frumvörp um þau og alllangt var liðið á þingtímann. Á-
hugi stjórnarinnar fyrir þessu frv. var þó ekki meiri en svo, að
bún lét það aðeins koma til einnar umræðu fyrir þingfrestunina
og ákvað að láta það bíða til framhaldsþingsins, enda þótt næg-
ur tími væri til þess að afgreiða það fyrir frestunina. Bendir
þetta fyllilega til þess, að frv. hafi aðeins verið flutt til þess að
sýnast fyrir bæjarstjórnarkosningarnar og öllu meira eigi ekki
að gera með það.
Annað augljóst dæmi um áhugaleysi stjórnarflokkanna í hús-
næðismálunum er afstaða þeirra til sænsku húsanna. Þótt það
sé eina ráðið til að bæta fljótt úr húsnæðisvandræðunum hafa
þeir ýmist sýnt þeim andstöðu eða tómlæti.
Ingrid krónprinsessa úthlutar gjöfum. frá 'lslandi
Verður hann eftir-
maður Stalins?
Mynd þessi er af rússneska stjórn-
málamanninum Sjdanov. Sjá grein á
3. si3u.
{jtflutnmgsleyfi að-
eins notað að
litlu leyti.
í viðskiptasamningum þeim,
sem gerðir voru við Svía í fyrra-
vetur, fengu íslendingar út-
flutningsleyfi fyrir 300 tilbún-
um húsum frá Svíþjóð, en nið-
urstaðan verður sú, að aðeins
100 hús verða keypt. Ástæðan
til þessa er fyrst og fremst aí-
staða bæjarvaldanna í Reykja-
vík. Það hefir reynzt ómögu-
legt að fá þau til að láta sæmi-
legar lóðir undir þessi hús. Þeir
Reykvíkingar, sem eru kaup-
endur að framangreindum 100
húsum, munu flestir eða allir
flytja þau inn í óvissu um þessa
hlið málsins. Ríkisstjórnin hefði
vitanlega getað gengið í mál-‘
ið og fyrirskipað bæjarvöldun-
um að láta sæmilegar lóðir und-
ir húsin. En það hefir hún vit-
anlega vanrækt, enda eru sömu
fíokkarnir í henni og bæjar-
stjórninni, en þar hafa þeir
sameinazt um að sýna sænsku
húsunum fullan fjandskap, eins
og lóðaúthlutunin er gott dæmi
um.
Hvað veldur andstöð-
unni?
Það er vissulega erfitt að
gera sér grein fyrir þeim á-
stæðum, sem valda fjandskap
bæjarstjórnarflokkanna til
sænsku húsanna. Öllum liggur
í augum uppi, að innflutningur
þeirra er eina leiðin til að bæta
fljótt úr húsnæðisvandræðun-
um. Viðurkennt er, að húsin
séu mjög vönduð og ekki er þvi
hægt að vera mótfallinn inn-
flutningi þeirra af þeirri á-
stæðu. Engin hætta er á því, að
innflutningur þeirra skapi at-
vinnuleysi meðal iðnaðarmanna,
þar sem stórkostlegur hörgull
er á slíku vinnuafli. Loks hafa
húsin þarin kost, að þau munu
verða miklu ódýrari en aðrar
byggingar hér eða allt frá því
þriðjungi til helmingi ódýrari.
Allt þetta hefði átt að verða
þess valdandi, ef rfkisstjórnin
hefði haft nokkurn minnsta á-
huga fyrir lausn húsnæðismál-
anna, að hún hefði unnið af
kappi að innflutningi sænsku
húsanna. En i stað þess sýnir
hún þeim fyllsta sinnuleysi og
flokkar hennar veitaþeimfyllstu
andstöðu í bæjarstjóminni.
Skýring þessa fyrirbrigðis er
engin önnur en sú, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er mótfallinn
lausn húsnæðismálanna, því að
húsabraskararnir ráða mestu í
flokknum, en kommúnistar og
Alþýðuflokkurinn hafa annað-
hvort engan áhuga fyrir þeim
eða geta ekkert gert vegna sam-
starfsins við íhaldið.
Tillaga Hermaims
Jónassonar.
Allar líkur eru fyrir þvi, að
þessi lausn húsnæðismálanna,
innflutningur sænsku húsanna,
hefði alveg fallið í þagnarþey,
ef Hermann Jónasson hefði ekki
tekið málið upp á Alþingi í haust
og flutt þingsályktun, þar sem
skorað var á ríkisstjórnina áð
greiða fyrir innflutningi þeirra.
í tillögunni var stjórninni falið
að tryggja nógan innflutningl
á þessum húsum, fella niður
toll á þeim, útvega góðar lóðir
undir þau, fá erlenda sérfræð-
inga til að leiðbeina við bygg-
ingarnar og tryggja þeim, sem
byggja, sæmileg lánskjör. í
greinargerð fyrir tillögunni
voru færð sterk rök fyrir þvi,
að hér væri um fljótvirkustu og
hagkvæmustu lausn húsnæðis-
vandræðanna að ræða.
Eftir að þessi tillaga var kom-
in fram, var stjórnarliðinu ljóst,
að þessi lausn húsnæðismál-
anna yrði ekki hindruð lengur.
Það.þóttist því fá mikinn áhuga
fyrir málinu og Bjarni Ben.
flutti þingsályktun þess efnis,
að stjórnin rannsakaði, hvort
innflutningur sænsku húsanna
væri hyggilegur. Vitanlega er
þessi tillaga þó ekki flutt í öðr-
um tilgangi en þeim að draga
málið á langinn og hindra inn-
flutning húsanna i störum stil
meðan stjórnin þykist vera að
rannsaka málið.
(Framtiald. á 4. slðu).
Ingrid krónprinsessa var viðstödd, þegar byrjað var að úthluta £ Kaupmannahöfn gjafafötum frá íslandi, Fær-
eyjum og fleiri löndum. Á meðfylgjandi myndum sést krónprinsessan vera að aðstoða við að úthluta gjafaföt-
nm til barna, sem voru komin til að fá hjálp.
Framboö Framsóknarmanna
í nokkrum kauptúnum
Hér fara á eftir nöfn efstu mannanna á framboðslistum Fram-
sóknarflokksins í nokkrum kauptúnum í hreppsnefndarkosning-
unum, sem fara fram 27. þ. m.:
Kcflavík:
Sjö efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna til hreppsnefnd-
arkosningar,í Keflavík eru:
Valtýr Guðjónsson skrifstofu-
maður, Margeir Jónsson útgerð-'
armaður, Guðni Magnúss. mál-
ari, Huxley Ólafsson framkvstj.,
Kristinn Jónsson vigtarmaður,
Ólafur Hannesson vélasmiður og
Skúli H. Skúlason trésmiður.
Nú verða í fyrsta sinn fcnsnir
sjö menn í hreppsnefnd í Kefla-
vík, en áður hafa aðeins fimm
menn átt þar sæti.
Borgarnes:
Sjö efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna við hreppsnefnd-
arkosningu í Borgarnesi eru
þessir:
Hervald Björnsson skólastjóri,
Jón Guðmundsson rafveitustj ,
Eggert Guðmundsson bóndi,
Þórður Pálmason kaupfélags-
stjóri, Jón Guðjónsson verka-
maður, Sigurður Guðbrandsson
mjólkurbússtjóri, Pétur Tómas-
son verkamaður.
Bíldudalnr:
Þrir efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna við hreppsnefnd-
arkosningar á Bíldudal eru þess-
ir: 'i
Bjarni Hannesson sparisjóðs-
stjóri, Jón Jónsson hreppstjóri,
Gunnar Ólafsson bóndi.
Ólafsvík:
Þrir efstu menn á lista frjáls-
lyndra vinstri manna við
hreppsnefndarkosningar í Ól-
afsvík eru:
Jónas Þorvaldsson skólastjóri,
Guðmundur Jensson formaður,
Víglundur Jónsson formaður.
Ncslireppur:
Þrir efstu menn á lista Fram-
sóknarmanna og þeirra, sem
vinna markvisst að umbótamál-
um á samvinnugrundvelli:
Friðþjófur Guðmundsson, Pét-
iir Pétursson verzlunarmaður,
Sumarliði Andrésson verkamað-
ur.
Stykktsliólmur:
Fimm efstu menn á lista
Framsóknarmanna við hrepps-
nefndarkosningar i Stykkis-
hólmi eru þessir:
Sigurður Steinþórsson kaup-
félagsstjóri, Ágúst Pálsson skip-
stjóri, Gunnar Jónatansson
verkstjóri, Bæring Nielsson
verkamaður.
Patrcksfjörður:
Fjórir efstu menn á lista ó-
háðra á Patreksfirði við hrepps-
nefndarkosningar þar eru:
Svavar Jóhannsson sýsluskrif-
ari, Kristmundur Björnsson vél-
stjóri, Kristján J. Jóhannsson
vélstjóri, Arni G. Þorsteinsson
kaupfélagsstjóri.
IColiui»arvík:
Fjórir efstu menn á lista
Framsóknarmanna og Alþýðu-
flokksmanna Við hreppsnefnd-
arkosningar þar eru:
Þórður Hjaltason stöðvar-
stjói^i, Jóhannes Guðjónsson
útibússtjóri, Guðmundur Magn-
ússon bóndi, Ingimundur Stef-
ánsson kennarí.
Prestskosning
Umsóknarfrestur um Borgar-
nesprestakall í Mýraprófasts-
dæmi var útrunninn 31. des.
Skóli Isaks
Jónssonar
Á foreldrafundi sem haldinn
var í bænum s.l. mánudagskvöld
var samþykkt að berjast fyrir
byggingu skólahúss, sem yrði
sjálfseignarstofnun, og bæri
skólinn nafn ísaks Jónssonar. Á
sama fundi ákváðu foreldrarnir,
er þar voru staddir að gefa 65
þús. kr. til skólans.
ísak Jónsson hefir um mörg
ár starfrækt smábarnaskóla hér
í bænum, og má vel marka þær
vinsældir, sem hann hefir á-
unnið sér, af ákvörðun þessa
fundar.
Nánara mun verða sagt frá
þessu skólamáli hér í blaðinu
innan skamms.
*
Iþróttakennsla
í fréttum frá í. S. í. segir:
Axel Andrésson hefir lok-
ið knattspyrnunámskeiði við
Bændaskólann á Hvanneyri.
Nemendur voru 63. Námskeiðið
stóð yfir frá 8. nóv. til 30 nóv.
síðastl. Þá hefir Axel einnig
lokið námskéiði á Bændaskól-
anum Hólum í Hjaltadal. Nem-
endur voru þar 40. Axel mun
hefja kennslu við Reykholts-
skóla í janúarmánuði.
Kjartan pergmann hefir
haldið glímunámskeið frá 16.
nóv. til 21. des. á þessum stöð-
um: Hjá íþróttafélagi Mikla-
holtshrepps í Hnappadalssýslu,
að Reykjaskóla í Hrútafirði og
við Hvanneyrarskóla i Borgar-
firði.
Nemendur á námskeiðum
þessum voru 127. Á öllum stöð-
unum sýndi hann kvikmyndir
.Í.S.Í.
I Umsækjendur eru tveir: Séra
Leó Júlíusson settur prestur á
Djúpavogi og séra Þorsteinn
Lúther Jónsson í Söðulholti
Kosning fer væntanlega fram
um næstu mánaðamót.