Tíminn - 12.01.1946, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindai-götu 9 A
Símar 2353 og 4373
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A
Síml 2323
AFGREIDSLA, INNHEIMTA
30. árg.
Reykjavik, laugardagiim 12. janúar 1946
6. blað
Reykvíkingar verða að borga 20-30 milj.
kr. meira fyrir togarana vegna forsjár-
leysis og óðagots ríkisstjórnarinnar
Upplýsingar eins af samningamönnum
stjórnarinnar, Gísla Jónssonar alþm
Fádæma athygli hafa vakið þær upplýsingar, sem komu fram
í áramótagrein Hermanns Jónassonar, og hafðar voru eftir einum
samningamanni ríkisstjórnarinnar, að íslendingjar hafi keypt
togarana í Bretlandi, fyrir helmingi hærra verð en brezkir út-
gerðarmenn vildu gefa fyrir þá. Þessi athygli hefir enn auk-
izt við það, að Tíminn hefir nú skýrt frá því, að það var Gísli
Jónsson alþingismaður, sem gaf þessar upplýsingar á iokuðum
þingfundi, þegar fyrst var skýrt frá sölubanninu á íslenzka
frystihúsafiskinum í Bretlandi. Gísli taldi nefnilega, að sölu-
bannið væri bein afleiðing af togarakaupunum, þar sem brezkir
útvegsmenn hefðu reiðst því mjög mikið, að íslendingar skyldu
þannig rjúfa samtök þeirra um það, að ekki yrði neitt samið
við skipasmíðastöðvarnar um smíði á togurum fyrr en þær hefðu
lækkað verðið um heiming.
Öllu greinilegri sönnun fyrir
því, hve farsæl Reykvíkingum er
og muni reynast forsjá þeirra
flokka, sem nú mynda ríkis-
stjórnina, er vissulega ekki
hægt að fá en þessi glæfralegu
togarakaup, sem binda Reyk-,
víkingum 20—30 miljón kr.
skuldabagga gersamlega að ó-
þörfu.
Það þarf að skapa
stjórnarflokkunuin að-
hald í bæjarmálunum.
Frá réttarhöldunum 1 Helsingfors
Mynd þessi er frá réttarhöldunum í Helsingfors. Á myndinni sjást, talið frá vinstri, Hukkonin, Reinikka,
Linkomies og Ryti. Sjá' grcin á þriðju síðu blaðsins.
Stjórnarflokkarnir reyna enn að blekkja með
loforðum, sem þeir hafa margoft svikið
Stefimskrár þcirra í bæjarmálunum eru mcst-
mcgnis upptalning á gömlum kosniugaloforð-
um, sem Bjarni Bcn., Sigfús ©g Jón Axel hafa
bjálpazt til að svæfa í hæjarráðinu
Sjálfstæðisflokkurinn birti ýtarlega og langa stefnuskrá í
Morgunblaðinu í gær. Hafa þá allir stjórnarflokkarnir birt
stefnuskrár sínar í bæjarmálunum. í stefnuskrám þessum er
talið upp flest það, sem til umbóta getur horft í bænum, og á
þeim vejrður tæpast séð, að nokkur munur sé á stefnu þessara
flokka. íhaldið lofar t. d. að bærinn hefji bæjarútgerð og telur
það ekki skipta máli, „hver eigi skipin“, kommúnistaflokkurinn
lofar að styðja einkaframtakið, og Alþýðuflokkurinn gætir þess
vandlegá ajð lofa öllu því, sem hinir lofa.
Upplýsingar, sem ekki
verða rengdar.
í blaðinu hefir oftlega verið
sýnt fram á það, að stjórnarlið-
ið hafi gengið frá togarakaup-
unum með miklu fljótræði og
fyrirhyggjuleysi til þess að
geta sýnt einhvern árangur i
nýsköpunarátt. Afleiðingar þess
væru bersýnilega þær, að verð
togaranna hefði orðið miklu
hærra en ella.
Gísli Jónsson, alþingismaður
Upplýsingar Gísla Jónssonar
sýna ljóslega, að þessar mis-
fellur í sambandi við togara-
kaupin hafa verið miklu stór-
kostlegri en Tíminn hefir
nokkurntíma leyft sér að halda
fram. Togararnir hafa ekki að-
eins verið keyptir fyrir meira
en helmingi hærra verð en
brezkir útgerðarmenn töldu rétt
að gefa fyrir þá, heldur hefir
verið stofnaður með togara-
kaupunum aukinn fjandskap-
ur gegn íslendingum meðal
brezkra útvegsmanna og afleið-
ingar þess hafa þegar komið
fram i auknum söluerfiðleikum.
Upplýsingar Gísla Jónssonar
kollvarpa jafnframt með öllu
þeim fyrirslætti stjórnarinnar,
að .hún hafi orðið að gera tog-
arakaupasamninglinn i mlkilli
skyndingu, því að annars hefði
hún ekki getað fengið togarana
smíðaða nú, vegna mikillar eft-
irspurnar. Upplýsingar Gisla
sýna, að eftirspurnin eftir tog-
urum hefir verið sama og eng-
in, þar sem brezkir útgerðar-
menn áttu í eins konar verkfalli
við skipasmíðastöðvarnar.
Um sannindi þessara upplýs-
inga Gísla Jónssonar ætti ekki
að þurfa að efast að óreyndu,
þar sem hann er einn eldheit-
asti stuðningsmaður stjórnar-
samvinnunnar og hefir þvi síður
en svo ástæðu eða vilja til að
segja neitt það, sem gæti orðið
stjórninni til óþæginda. Upp-
lýsingar þessar mun hann hafa
gefið þinginu í því augnamiði,
að orsakir sölubannsins á hrað-
frysta fiskinum skýrðust betur.
j
Tjónið, sem togara-
kaupin baka Reyk-
víkingum.
Fyrir Reyk,víkinga er alveg
sérstök ástæða til þess að veita
þessum upplýsingum Gísla
Jónssonar óskipta athygli.
Flokkarnir í bæjarstjórninni
vinna nú kappsamlega að því,
að Reykjavík fái 20 af þessum
umsömdu togurum. Kostnaðar-
verð hvers þeirra eftir samn-
ingnum, sem ríkisstjórnin gerði,
verður alltaf um eða yfir 3
milj. kr. Hefðu íslendingar hins
vegar stutt að því með brezkum
útgerðarmönnum að verðið
lækkaði um helming, hefði hver
togari ekki átt að kosta -hieira
en 11/2—2 milj. Fljótræði og
fyrirhyggjuleysi stjórnarinnar
hefir gert hvern togara 1—iy2
milj. kr. dýrari í kaupum. Það
þýðir m. ö. 0. að togararnir,
sem Reykvíkingar ætla að fá,
verða samtals 20—30 milj. kr.
dýrari en ella.
Fljótræði og fyrirhyggju-
leysi stjómarinnar í togara-
kaupamálinu binda Reykvíking-
um 20—30 milj. kr. skuldabagga
fullkomlega að óþörfu.
Þetta skýrir það vel, að ein-
stök útgerðarfélög eða útgerð-
armenn hafa enn ekki fengizt
til að kaupa nema 6—7 af þeim
20 togurum, sem Reykjavíkur-
bær hefir sótt um. Allar likur
benda til, að afganginn eða 13—
14 togara verði bærinn að gera
út sjálfur.
En þessir flokkar vinna ekki
aðeins saman í ríkisstjórninni.
Þeir hafa unnið saman i bæjar-
ráðinu og bæjarstjórninni allt
undanfarið kjörtímabil, og
munu halda því samstarfi á-
fram eftir kosningarnar, þótt
þeir reyni að dylja það fyrir
kjósendunum nú og meiri hluti
kjósenda muni enn svo háður
áróðri þeirra, að hann sér ekki
við honum.
Stjórn þeirra á bæjarmálun-
um hefir sannarlega einkennst
og mun einkennast af sama fyr-
irhyggjuleysinu og togarakaupin
eru ljósastur vottur um.
Þess vegna er Reykvíkingum
það áreiðanlega ekki vanþörf
að eignast fulltrúa i bæjar-
stjórninni, sem getur flett of-
an af atferli þessara flokka og
skapað þeim þannig aðhald frá
almenningsálitinu. Þetta sjá líka
alltaf fleiri og fleiri og því fjölg-
ar þeim stöðugt, sem hafa að
kjörorði: Pálmi Hannesson skal
í bæjarstjórnina.
Kjósendur! minnizt fyrir-
hyggjuleysisins í togarakaupa-
málinu, sem bindur Reykvíking-
um margra milj. kr. óþarfan
skuldabagga, og forðizt því að
láta atkvæðin á þá flokka, sem
bera ábyrgð á því. Ráðið til að
koma í veg fyrir,' að slík verk
endurtaki sig, er að minnka
gengi þessara flokka og tryggja
frjálslyndum og óháðum um-
bótamanni, Pálma Hannessyni,
sæti i bæjarstjórninni.
Eftir þessum stefnuskrám
stjórnarflokkanna er vissulega
ekki auðveldara fyrir kjósendur
að gera upp á milli þeirra en
eftir verkum þeirra í ríkisstjórn-
inni og bæjarstjórninni. Slíkt
gerir kannske ekki heldur mikið
til, því að kjósendur sjá af
reynslunni, að það er nokkurn
veginn sama, hvern þeirra þeir
kjósa, og að stefnuskrárnar eru
litið annað en upptalning á lof-
orðum, sem þeir gáfu í seinustu
kosningum, og hafa hjálpazt til
að svæfa í bæjarráðinu á liðnu
kjörtímabili. Sá hefir jafnan
orðið endirinn, að hafi kommún-
istar og Alþýðuflokkurinn
hreyft einhverju framfaramáli
til málamyndar í bæjarstjórn-
inni, að þvi hefir|tafarlaust ver-
ið vísað til bæjarráðs. Slíkt hefði
engan veginn átt að verða til
þess að tefja málin, því að þar
áttu bæði Alþýðuflokkurinn og
kommúnistar fulltrúa, sem gátu
skilað séráliti og fengið málið
þannig upptekið á nýjan leik.
En slíkt er alveg óþekkt í sög-
unni. Sigfús Sigurhjartarson og
Jón Axel Pétursson hafa verið
fyllilega samdóma Bjarna Bene-
diktssyni í því að svæfa þessi
mál í bæjarráðinu og því ekki
verið að leggja það á sig
að hreyfa þeim þar og reyna á
mótspyrnu íhaldsins til þraut-
ar. Bæjarráðið heflr verið sam-
eiginleg gröf stjórnarflokkanna
fyrir umbótamálin.
Nú hafa þessir flokkar opnað
gröfina og látið málin, sem þeir
hafa kviksett þar, ganga aftur
og verða einu sinni enn skraut-
númer á stefnuskrám sínum
fyrir kosningar. En hætt ætti
að vera við því, að þeir væru
búnir að leika þennan leik svo
oft, að hann heppnaðist þeim
ekki lengur. Umbótamenn i
Reykjavík munu því láta sig
þessar stefnuskrár einar gilda,
og þeir gera ráðstafanir
til þess, að stjórnarílokk-
arnir geti flutt umbótamálin til
málamyndar í bæjarráði og urð-
að þau svo í sátt og samlyndi í
grafreit bæjarráðsins fram að
kosningum. Þeir munu tryggja
Pálma Hannessyni sæti í bæjar-
stjórninni, og hann mun þar
sjá til þess, að stjórnarflokkarn-
ir geti ekki tafið umbótamálin
með jafn auðveldum hætti.
Eldur yfir
Vatnajökli
Síðastl. miðvikudags-
morgun sást eldur yfir
Vatnajökli frá Skaptafelli.
Virtist eldurinn vera í
námunda við Grænalón
eða Grænavatn, en þar á
Súla upptök sín.
Svo virtist sem eldur
þessi væri ekki goseldur,
og giskuðu þeir á, sem sáu
og gizkuðu þeir á, sem sáu
hrapað þarna niður og væri
að brenna. Svipaður eldur
sást nýlega úr Skaptár-
tungum, en hann bar yfir
Mýrdalsjökul.
Mikill vöxtur hefir ver-
ið í Súlu undanfarna daga
og hefir hann virzt fara í
vöxt.
Spaak kosinn forsetl.
Á þingfundi bandalags sam-
einuðu þjóðanna i fyrradag var
Spaak, utanrikisráðherra Belg-
íu, kosinn forseti með 28 atkv.
Tryggve Lie, utanríkisráðherra
Noregs, fékk 23 atkv.
Stuðningsmenn B-listans
Andstæðingarnir senda nú fjölda kosningasmala um
bæinn til að freista að telja kjósendum trú um að kosning
Pálma Hannessonar sé vonlaus, og það sé því sama að kjósa
hann og að kasta atkvæði sínu á glæ.
Hér með er varað við þessum kosningasmölum og vinnu-
aðferð þeirra. Við vitum með vissu að til staðar er nægilegt
fylgi til þess að koma Pálma Hannessyni í bæjarstjórn, ef
fylgismenn láta ekki blekkjast, en géra skyldu sína.
Stuðningsmenn B-listans! Vinnum allir sem einn maður
að kosningu Pálma Hannessonar undir kjörorðinu: Pálmi
Hannesson skal í bæjarstjórn. — Komið á kosningaskrif-
stofuna, sem er í Edduhúsinu við Lindargötu, og er opin
daglega frá kl. 10—22,, símar 6066 og 2323.