Tíminn - 26.01.1946, Page 4
Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna
er í Edduhúsinu.. Sími 6066.
4
REYKJAVÍK
FRA M SÖKNA RMENN!
Komið í kosningaskrifstofuna
26. JAN. 1946 18. lilað
Sýnishorn af kjörseðli við bæjarstjórnarkosn ingarnar
í Reykjavík 27. janúar 1946
þannig lítnr kjjörseðillmn út þegar listi Framsóknarflokksins — B-listinn — hcfir verið kosinn
A-listi x B-listi C-listi D-listi
1. Jón Axel Péturfeson, hafnsögumaður. 2. Jón Blöndal, hagfræðingur. 3. Jóhanna Egilsdóttir, formaður V.K.F. Framsókn 4. Haraldur Guðmundsson, forstjóri. 5. Helgi Sæmundsson, ritari S. U. J. 6. Sigurður Ólafsson, gjaldk. Sjómannafél. Rvíkur. 7. Magnús Ástmarsson, gjaldkeri H. í. P. 8. Árni Kristjánsson, verkamaður. 9. María Knudsen, frú. 10. Arngrímur Kristjánsson, skólastjóri. 11. Felix Guðmundsson, kirkjugarðsvörður. 12. Einar Ingimvmdarson, verzlunarmaður. 13. Tómas Vigfússon, húsasmíðameistari. 14. Helgi Þorbjörnsson, verkamaður. 15. Guðjón B. Baldvinsson, deildarstjóri. 16. Kjartan Ásmundsson, gullsmiður. 17. Jón P. Emils, stud. jur. 18. Guðný Helgadóttir, frú. 19. Siguroddur Magnússon, rafvirki. 20. Magnús Guðbjörnsson, póstmaður. 21. Ólafur Hansson, menntaskólakennari. 22. Þorvaldur Brynjólfsson, járnsmiður. 23. Jóna Guðjónsdóttir, ritari. 24. Þórður Gíslason, verkamaður. 25. Aðalsteinn Halldórsson. tollvörður. 26. Ragnar Jóhannesson, fulltrúi. 27. Jón Gunnarsson, verzlunarmaður. 28. Gunnar Vagnsson, viðskiptafræðingui'. 29. Soffía Ingvarsdóttir, frú. 30. Sigurjón A. Ólafsson, form. Sjómannafél. Rvk. 1. Pálmi Hannesson, rektor. 2. Hermann Jónasspn, alþingismaður. 3. Sigurjón Guðmuhdsson, iðnrekandi. 4. Guðlaugur Rósinkranz, yfirkennari. 5. Ástríður Eggertsdóttir, frú. 6. .Guðmundur Kr. Guðmundsson, skrifstofustjóri. 7. Jóhann Hjörleifsson, verkstjóri. 8. Guðmundur Tryggvason, fulltrúi. 9. Jakobína Ásgeirsdóttir, frú. 10. Sveinn Víkingur, fyrrverandi prestur. 11. Sigtryggur Klemensson, lögfræðingur. 12. Jón Þórðarson, prentari. 13. Guðmundur Ólafsson, bóndi. 14. Leifur Ásgeirsson, prófessor. 15. Karl Jónsson, læknir. 16. Jens Níelsson, kennari. 17. Axel Guðmundsson, skrifari. 18. Bjarni Gestsson, bókbindari. 19. Ófeigur Viggó Eyjólfsson, eftirlitsmaður. 20. Benedikt Bjarkhnd, lögfræðingur. 21. Vilhjálmur Heiðdal, póstfulltrúi. 22. Kristján Sigurgeirsson, bifreiðarstjóri. 23. Grímur Bjarnason, tollþjónn. 24. Guðjón F. Teitsson, skrifstofustjóri. 25. Hjálmtýr Péturssbn, verzlunarmaöur. 26. Jens Hólmgeirsson, fulitrúi. 27. Steinunn Bjartmarz, kennari. 28. Þorkell Jóhannesson, prófessor. 29. Hilmar Stefánsson, bankastjóri. 30. Sigurður Kristinsson, forstjóri. 1. Sigfús Sigurhjartarson, alþingismaður. 2. Katrín Pálsdóttir, húsfrú. 3. Björn Bjarnason, iðnverkamaður. 4. Steinþór Guðmundsson, kennari. 5. Hannes Stephensen, verkamaður. 6. Jónas Haralz. hagfræðingur. 7. Katrín Thoroddsen, læknir. 8. Einar Olgeirsson, alþingismaður. 9. Gpðmundur Jensson, loftskeytamaður. 10. -Stefán Ögmundsson, prentari. 11. Ársæll Sigurðsson, trésmiður. 12. Arnfinnur Jónsson, kennari. 13. Guðmundur Snorri Jónsson, járnsmiður. 14. ísleifur Högnason, forstjóri. 15. Einar Ögmundsson, bílstjóri. 16. Bergsteinn Guðjónsson, bílstjóri. 17. Aðalsteinn Bragi Agnarsson, stýrimaður. 18. Petrína Jakobsson, skrifari. 19. Guðrún Finnsdóttir, afgreiðslustúlka. 20. Guðbrandm- Guðmundsson, verkamaður. 21. Helgi Þorkelsson, klæðskeri. 22. Páll Kristinn Maríusson, sjómaður. 23. Theódór Skúlason, læknir. 24. Böðvar Pétursson, verzlunarmaður. 25. Guðrún Gisladóttir, húsfrú. , 26. Björn Sigfússon, háskólabókavörður. 27. Dýrleif Árnadóttir, skrifari. . 28. Magnús Árnason, múrari. 29. Sigurður Guðnason, alþingismaður. 30. Brynjólfur Bjarnason, menntamálaráðherra. 1. Bjarni Benediktsson, borgarstjóri. . 2. Guðmundur Ásbjörnsson, útgerðarmaður. 3. Frú Auður Auðuns, cand. jur. 4. Sigurður Sigurðsson, berklayfirlæknir. 5. Gunnar Thoroddsen, prófessor. 6. Hallgrímur Benediktsson, stórkaupmaður. 7. Friðrik Ólafsson, skólastjóri. 8. Jóhann Hafstein, framkvæmdarstjórí. 9. Eyjólfur Jóhannsson, framkvæmdarstjóri. 10. Gísli Halldórsson, vélaverkfræðingur. 11. Frú Guðrún Jónasson, kaupkona. 12. Sveinbjörn Hannesson, verkamaður. 13. Guðm. Helgi Guðmundsson, húsgagnasmíðam. 14. Einar Erlendsson, húsámeistari. 15. Þorsteinn Árnason, vélstjóri. 16. Hafsteinn Bergþórsson, útgerðarmaður. 17. Einar Ólafsson, bóndi. 18. Ludvig Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri. 19. Hákon Þorkelsson, verkamaður. 20. Guðjón Einarsson, bókari. 21. Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi. 22. Frú Soffía M. Ólafsdóttir. 23. Guðmundur H. Guðmundsson, sjómaöur. 24. Einar B. Guðmundsson, hæstaréttarmálafl.m. 25. Kristján Þorgrímsson, bifreiðarstjóri. 26. Ásgeir Þorsteinsson, verkfræðingur. 27. Erlendur Ó. Pétursson, forstjóri. 28. Vilhjálmur Þ. Gíslason, skólastjóri. 29. Matthías Einarsson, læknir. 30vÓlafur Thors, forsætisráðherra.
Stuðningsmenn B-listans athugið:
1. Setjið krossinn framan við bókstafinn.
2. Gerið engin merki við aðra lista, því
3. Komið snemma á kjörfund.
þá verður seðillinn ógildur.
B-listinn
Happdrætti Háskóla íslands
Dregið verður í 1. flokki á miðvikudag
7233 vinningar — samtals 2.520.000 krónur
Aðeins 3 söludagar eftir
Viðskiptamenn athugið:
Pantaðra miða og frátekinna verður að vltja i tlag. Á inánudag verður byrjað að selja þessa miða. Treystið því ekki.
að þcir verði geymdir fram á síðustu stundu.
Tekjuskattur og tekjuútsvar verður ekki lagt á vinninga I happdrættinu.
Rangfærslur
borgarstjórans
(Framhald af 1. síðu)
fram. Einmitt af þvi að lögin
veita þeim ekki, er byggja vilja
samkvæmt þessum lögum nægi-
legan stuðning, hefi ég farið
fram á að lögunum yrði breytt
þannig, að ríkisábyrgðin yrði
hækkuð um 80% til 85%
af byggingarkostnaði. Borgar-
stjórinn talaði um að við Fram-
sóknarmenn hefðum með lög-
um skapað Byggingarsamvinnu-
félagi Reykjavíkur einokunar-
aðstöðu, og á hann þar sjálf-
sagt við að það félag hefir eitt
rétt til þess að fá ríkisábyrgð.
En nú hafa kringum 10 ný
byggingarsamvinnufélög verið
stofnuð hér í bænum og for-
menn þessara félaga eru ekki
hræddari við þessa „einokun"
Byggingarsamvinnufél. Reykja-
víkur en það, að þeir óska eftir
að þessi ákvæði um ríkisábyrgð-
ina haldist áfram, og félögin
gangi sem deildir inn í þetta
félag. Formenn þessara félaga
skilja það betur en borgarstjór-
inn hvað eining samtakanna
þýðir.
Hinum venjulegu sleggjudóm-
um um lllan tilgang hirði ég
ekki um að svara. G. R.
Á víðavangi
(Framhald al 2. síBu)
skammta þeim stórt og smátt
úr hnefa sínum. Þeir flokkar,
sem þannig hafa þrætt meðal-
veginn milli íhaldsins og kom-
múnismans, hafa eflzt mest í
kosningum þeim, sem fram fóru
erlendis á síðastl. ári.
Gamalt oj» nýtt.
(Framhald af 2. Mu)
verið miklar eða litlar á umliðn-
um árum, en á næsta kjörtíma-
bili lofa flokkarnir að gera allt
sem nú er ógert og er mikil sam-
keppni milli blaðanna að verða
ekki aftur úr í loforðunum. En
hvernig hefir verið farið með
þá peninga, sem bæjarsjóður
hefir haft til umráða á veltiár-
unum undanfarið? H'efir þeim
öllum verið vel varið og hafa
bæjarbúar fengið eins mikið
fyrir peningana og framast var
unnt með skynsamlegri stjórn
og ráðdeildarsamari? Hefir ver-
ið kostað kapps um að gera
rekstur bæjarins sem ódýrast-
ann, gera sem hagkvæmust inn-
kaup til framkvæmdanna, forð-
ast óþarfa launagreiðslur o. s.
frv.? Það er eins og blöðum bæj-
arstjórnarflokkanna þyki ekki
ómaksins vert að gera slíkt að
umtalsefni. Og það er reyndar
ekki undarlegt; því að hinir svo-
kölluðu andstöðuflokkar meira-
hlutans, Alþfl. og Sósialistafl.,
hafa sjaldan látið sig fjármál
miklu skipta. En almenningur
hefir nú litla aðstöðu tif þess
að kynnast þessum hlutum. Það
vita menn þó, að bæjarstjórnin
tók upp þann sið á síðasta kjör-
tímabili að halda sjálfri sér dýr-
lega veizlu á afmæli bæjarins
ár hvert. Talið er, að ekki hafi
verið aðrar veizlur fegurri í
seinni tíð en þessar afmælis-
veizlur bæjarstjórnarinnar, og
ósvikinn mjöður á borðum, svo
sem hæfa þykir höfðingjum.
Eflaust hafa a. m. k. nokkur
verkamannáútsvör farið í þess-
ar veizlur.
Hvers á unga fólkið
að vænta af Fram>
só kn a r m ö ii ii u ni ?
(Framhald af 3. síOu)
Andstæðurnar tvær — íhald
og kommúnistar — sem tekið
hafa höndum saman yfir hatur
og gröf til þess að leiða blessun
sína yfir landið, ruku upp með
írafári í haust og báru fram
frumvarp um endurbyggingu
Menntaskólans í Reykjavik, en
drápu það svo í sameiningu í
þinglokin, til þess að geta rif-
izt um það fyrir kosningarnar,
hvor þeirra hefði gert það.
Glæsilegasti málsvari
unga fólksins.
En hugur Framsóknarmanna
er enn hinn sami. Hann kemur
greir.Sega fram í því, að þeir
hafa efstan' á lista sínum glæsi-
legasta manninn, sem hægt var
að finna sem málsvara unga
fólksins í Reykjavík. Pálmi
Hannesson er þrautreyndur
skólamaður, — æskulýðsleiðtogi,
og enginn maður í þessum bæ
hefir víðtækari reynslu né
dýpri skilning á þörfum og
hugðarmálum unga fólksins.
Hann hefir veitt einum stærsta
skóla landsins forstöðu um ára-
bil af þeim skörungsskap, festu
og drenglund, sem alkunnugt er
orðið. Þegar Pálmi Hannesson
er kominn inn í bæjarstjórn
Reykjavíkur, mun unga fólkið
eiga þar sverð og skjöld. Þar
mun hvert velferðarmál æsk-
unnar eiga öruggan liðsmann,
og merki hennar haldið á loft af
þeirri einurð og festu, sem ein-
kennir þennan mann.
A. K.