Tíminn - 15.02.1946, Síða 1
30. árg.
Reykjavík, föstudagiim 15. febr. 1946
26. blað
Stjórnarliðið sýnir hug sinn til raunhæfra
aðgerða til lausnar húsnæðismálunum
Það vísar frá tillögu Hermanns Jónas-
sonar um lausn byggingamálanna
og húsaleigulögin
Eins og skýrt hefir verið frá hér í blaðinu, bar Sigurður Krist-
jánsson fram þá tillögu í sameinuðu þingi, að þingsályktunartil-
lögu Hermanns Jónassonar um húsnæðismálin yrði vísað til rík-
isstjórnarinnar, en það er svipuð aðferð til að eyðileggja mál og að
vísa þeim til bæjarráðs í bæjarstjórnar Reykjavíkur. Þessi tillaga
Sigurðar hefir nú verið samþykkt með samhljóða atkvæðum
stjórnarliðsins gegn atkvæðum Framsóknarmanna.
Orru.stu.skipu.nn sökkt með atomsprengjum.
Bandaríkjamcnn ætla bráðlega að gera tilraun meff þaff, <live auffvelt sé
aff sökkva orustuskipum mcff atomsprengjum. Ætia þeir aff sökkva tveim-
ur gömlum orustuskipum sínum, „Arkansas" (aff ofan á myndinni) og
„Pennsylvania" (aff neffan á myndinni) meff þeim hætti. Tilraunirnar
verffa gerffar nálæga afskekktum og óbyggffum Kyrrahafseyjum, en ame-
rískir visindamenn munu hafa þar bækistöðvar, sem verffa rambyggilegar,
meffan tilraunirnar fara fram. M.'a. vcrffur reynt aff kvikmynda þær.
Félag fæðiskaupenda
stofnaö í Reykjavík
Öryggisráðið felldi
tillögu Rússa um
Java-málið
Það ræðir nú um kröf-
ur Sýrlendinga
«
Öryggisráöið afgreiddi í fyrra-
kvöld tillögu Ukrainustjórnar
urfi, að sérstök rannsóknar-
nefnd kynnti sér ástandið á
Java. Tillagan var felld með at-
kvæðum allra fulltrúanna, nema
fulltrúa Rússa og Pólverja.
Þá voru greidd atkvæði um þá
tillögu frá Egiptum, að ekki
mætti nota brezka herinn gegn
Javabúum. Við þá tillögu gerði
fulltrúi Rússa þá breytingar-
tillögu, að send yrði sendinefnd
til Java. Breytingartillaga
Rússa var felld með atkvæðum
allra gegn atkvæðum fulltrúa
Póllands, Mexicó og Rússlands,
en síðan var tillaga Egipta felld
með atkvæðum allra fulltrú-
anna gegn atkvæðum fulltrúa
Póllands og Egipta.
Með þessu var afgreiðslu Ör-
yggisráðsins á málinu lokið.
Næst mun það ræða þær kröfur
frá stjórnum Sýrlands og Li-
banon, að herir Breta og Frakka
fari tafarlaust úr þessum lönd-
um.
Vinnudeilur í Banda-
ríkjunum að leysast
Betri horfur eru nú taldar á
lausn verkfallanna® sem staðið
hafa yfir í Bandaríkjunum
undanfarið. Verkamenn á drátt-
arbátum í New York hafa þeg-
ar tekið upp vinnu og líklegt er
talið að verkamenn í stáliðn-
aðinum taki einnig upp vinnu
bráðlega. Atvinnurekendur hafa
slakað til fyrir kröfum verka-
manna. Nýjar samningaumleit-
anir hafa þó enn farið út um
þúfur i verkfallinu hjá General
Motors-verksmiðj unum.
Undanfarið hefir á aðra millj.
verkamanna í Bandaríkjunum
átt í verkfalli.
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
— Á þingi sameinuðu þjóð-
anna í London í gær var rætt
um matvælaástandið í heimin-
um, í tilefni af þingsályktun-
artillögu Bevins um það mál.
Fulltrúar margra þjóða tóku til
máls, lýstu ástandinu heima
fyrir og töldu margir það mjög
ískyggilegt. Tillaga Bevins var
síðan samþykkt með lófataki.
—. Útlit var fyrir, að þingi
bandalags sameinuðu þjóðanna
lyki í gærkvöldi.
— í neðri málstofu brezka
þingsins var matvælaástandið í
Bretlandi rætt og urðu allharð -
ar umræður í því sambandi.
— Jarðskjálftar miklir urðu
í Algier síðastl. þriðjudag. Mest
varð jarðskjálftanna vart í
borginni Constantine og ná-
grenni. Þar varð mikið tjón og
margt fólk lét lífið.
— Tilkynnt hefir verið, að
brezki herinn verði farinn frá
Iran 2. marz næstkomandi.
— Danir auka nú stórlega
fiskflutning sinn til Bretlands.
(Framhald á 4. síöu).
Steingrímur Baldvinsson.
Mikil karl-
mennskuraun
Steingrímur Baldvinsson
bóndi að Nesi í Aðaldal hrapaði
síðastl. laugardag í tólf álna
djúpa gjá í Aðaldalshrauni og
og fannst þar ekki fyrr en eft-
ir fimm dægur, eftir mikla leit.
Steingrímur var á leið heim
til sín, að Nesi, en hann er
barnakennari í sveitinni. Skól-
inn var að Sílalæk og ætlaði
Steingrímur að vera heima hjá
sér í Nesi um helgina. Hann
ætlaði að fara í veginn fyrir
áætlunarbifreið frá Húsavík,
sem fara átti þaðan kl. 8 um
morguninn, en bifreiðinni
seinkaði og héldu menn því að
Steingrímur hefði haldið áfram
ferð sinni gangandi, því að hans
varð ekki vart, þar sem bíllinn
átti að taka hann. Þegar hann
var ekki kominn aftur að Síla-
læk á mánudaginn, var maður
sendur að Nesi, en þangað er
ekki sími. Kom þá í ljós, að
hann hafði ekki komið heim
yfir helgina og var þá þegar
í stað hafin leit i Aðaldals-
hrauni og fundu leitarmenn
von bráðar slóð Steingríms, og
gátu að lokum rakið hana að
gjánni. Snjór var yfir gjánni,
þegar Steingrimur féll niður
Þarna í gjánni hafðizt hann við
í fimm dægur, þar til leitar-
menn fundu hann. Vitanlega
(Framhald á 4. síðu).
Reinhard Prinz
féll í stríðinu
Samkvæmt fregnum, sem bor-
izt hafa hingað til lands, mun
dr. phil. Reinhard Prinz, hinn
alkunni íslandsvinur, hafa fall-
ið á Austurvígstöðvunum vetur-
inn 1944—1945.
Það síðasta, sem frétzt hefir
um hann, er að hann hafi ver-
ið fluttur særður í sjúkraflug-
vél frá vígstöðvunum í Suður-
Rússlandi. En ekkert hefir sið-
an spurzt til flugvélar þessarar
né þeirra manna, er 1 henni
voru.
Kona hans, frú Nora Prinz,
flýði frá heimili þeirra um miðj-
an s. 1. vetur, þegar bardagar
byrjuðu um borgina Stuhm, þar
sem þau áttu heima. Flýði hún
með sjö börn sín, það yngsta í
reifum, en það elzta um ferm-
ingaraldur. Slapp hún nauðu-
lega með barnahópinn. Dvelur
hún nú í Vestur-Þýzkalandi,
blásnauð og við þröng kjör.
Tillaga Hermanns Jónassonar,
sem stjórnarliðið vísaði þannig
frá, var svohljóðandi:
„Alþingi ályktar aff feia ríkisstjórn-
inni eftirfarandi:
Aff láta rannsaka nú þcgar húsnæff-
isskortinn í landinu og birta niður-
stöffur þeirrar rannsóknar.
Aff hlutast til um, aff byggingarefni
þaff, er tii lundsins flyzt, verffi notaff
ti! aff byggja ibúðarhús, en eigi til
bygginga, sem eru ekki aðkallandi.
Aff útvega innflutningsleyfi fyrir
húsum frá Svíþjóff, nógu mörgum til
aff fullnægja húsnæðisþörfinni, aff því
leyti, sem eigi er framkvæmanlegt meff
innlcndu vinnuafli.
Aff leyfa innflutning á húsum þess-
um meff tollum, sem eigi séu hærri
en nú eru á byggingarefni.
Aff leyfa, aff sænskir sérfræðingar
komi hingað til landsins til aff setja
húsin upp.
Að sjá um, að kostur sé á hagkvæm-
um veðlánum út á hús þessi.
Að sjá um, að kostur sé á viðunandi
lððum undir húsin og taka land eign-
arnámi í þeim tilgangi, ef þörf krefur.
Aff athuga, hvort eigi sé fært, þegar
framangreindar ráffstafanir hafa ver-
iff framkvæmdar, aff leggja fyrir AI-
þingi frv. til lag um afnám húsaleigu-
laganna."
Þær framkvæmdir, sem hér
eru taldar upp, eru vissulega
Það hefir lengi verið áhuga-
mál íbúa þessara kauptúna, að
Fossárvirkjuninni yrði komið í
framkvæmd, en óvíða á landinu
munu vera betri virkjunar-
möguleikar. Samkvæmt nýjustu
raníjsóknum væri hægt að
koma upp 2000 ha. virkjun þar
fyrir réttar 2 milj. króna og eru
þá leiðslur og innanbæjarkerfi
í þorpunum meðtalin. Svarar
það til þess, að þestaflið, ásamt
leiðslum, kosti 1000 kr., en hjá
Andakílsárvirkjuninni, sem er
talin tiltölulega ódýr, mun hest-
aflið kosta 1200—1400 kr. yið
stöðvarvegg.
hinar nauðsynlegustu, ef leysa á
húsnæðismálin fljótt og vel,
Jafnhliða þarf svo vitanlega að
auka styrkinn til samvinnubygg-
inga og verkamannabústaða,
eins og ráðgert er í byggingar-
lánasjóðs frv. Framsóknar-
flokksins, og styrkinn til Bygg-
ingar- og landnámssjóðs, eins
og ráðgert er í frv. flokksins um
breytingar á lögunum um sjóð-
inn.
Með þvi að vísa framan-
greíndri till. Hermanns Jónas-
sonar til rikisstjórnarinnar, sem
er það sama og að stinga henni
undir stól, hafa stjórnarflokk-
arnir sýnt þann hug, sem ekki
verður um villst. Það er ber-
sýnilegt, að þeir ætla að láta
sama skipulagsleysið og aðgerð-
arleysið halda áfram í bygging-
armálunum til hags fyrir brask-
ara og stórgróðamennina, en til
tjóns fyrir alla aðra. Þess vegna
má ekki gera ráðstafanir eins
og þær, að byggingarefnið verði
aðallegá notað til nauðsynleg-
ustu íbúðabygginga og greitt sé
fyrir innflutningi ódýrra, til-
Fossárvirkjunin samrýmist
vel því landsskipulagi, sem var
fyrirhugað af milliþinganefnd-
inni í raforkumálum, bæði
vegna þess, hve virkjunin yrði
ódýr og hve erfitt yrði að fá
rafmagn frá öðrum stærri virkj-
unum til þessara staða.
Árangurinn af starfi þeirra
Jónasar og séra Magnúsar mun
þegar orðinn sá, að frumvarp
um ríkisábyrgð fyrir þessa
virkjun verður samþ. á þing-
inu. Virkjunin ætti því að geta
hafizt á þessu ári, ef hún sættir
ekki hindrunum og töfum af
hálfu annara stjórnarvalda.
Framhaldsstofnfundur Fæð-
iskaupendafélags Reykjavíkur
var haldinn i Kaupþingssalnum
sunnudaginn 10. þ. m.
Á fundinum voru samþykkt
lög fyrir félagið og kosin stjórn.
í lögum félagsins er þess getið,
að tilætlun félagsins sé að efla
hag fæðiskaupenda á félags-
svæðinu með því að hafa áhrif
á verð og gæði fæðis og stuðla
að því, að hið opinbera taki til-
lit til óska og þarfa fæðiskaup-
enda, ennfremur að hefja raun-
hæfa skipulagningu viðvíkjandi
fæðismálum bæjarins og veita
aðstoð viðvíkjandi stofnun sam-
vinnumötuneyta. Félagi getur
hver sá orðið, sem er fæðis-
kaupandi á félagssvæðinu,
Ennfremur var samþykkt á
fundinum svohljóðandi tillaga:
„Fundur haldinn í Fæðis-
kaupendafélagi Reykjavíkur
skorar á þingmenn bæjarins í
samráði við bæjarráð, að bera
fram frumvarp á Alþingi, sem
hafi það hlutverk að skapa fast-
an tekjustofn fyrir almennings-
Útgerðin á Horna-
firði í vetur
Fjórtán bátar eru gerffir út
frá Hornafirffi í vetur, en í fyrr.i
voru 27—28 bátar gerffir út
þaðan.
Ástæðan til þessarar fækk-
unar er, aff litlu leyti sú, aff
bátar, sem voru geröir út þaffan
í fyrra, eru nú gerffir út frá
öðrum stöffum. Aðalástæðan er,
aff ekki hefir tekizt aff fá menn
á bátana og þess vegna eru þeir
ekki gerffir út.
Er þetta gott dæmi um af-
leiffingar dýrtfffar- og verff-
bóigustefnu stjórnarinnar fyrir
bátaútveginn.
I—------------------------——>
mötuneyti í Reykjavík. Teljum
við eðlilegast, að stór hluti af
veitingaskattinum, sem lagð-
ur er á fæði almennings, renni
til þess að koma upp húsi fyrir
almenningsmötuneyti, sem selji
hollt og gott fæði með sann-
virði.“
Þá var samþykkt að skora á
Reykjavíkurbæ að ráða í þjón-
ustu sína næringarefnasérfræð-
ing, sem hefði eftirlit með
rekstri opinberra fæðissölu-
staða.
í stjórn hins nýja félags voru
kosnir þeir: Páll Helgason for-
maður, Bragi Sveinsson frá
Flögu, ritari, og Guðjón Teits-
son gjaldkeri. Meðstjórnendur
voru kosnir: Jón Gíslason og
Sigurður Sveinsson.
Stjórnarfrumvarp um
gistihússbyggingu
í gær var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um gistihúss-
byggingu i Reykjavík, sem rikið
reisir og rekur í samvinnu við
bæjarstjórn Reykjavíkur, stofn-
anir, félög eða einstaklinga. í
frv. er stjórninni heimilað að
taka 1 millj. kr. að láni í þessu
skyni. Heimilað er að taka
lóðir, hús og mannvirki eignar-
námi, ef þurfa þykir undir gisti-
húsið eða því til afnota.
í greinargerðinni segir, að
rætt hafi verið um þetta mál
við bæjárstjórnina og Eimskipa-
félagið. Er ætlazt til, að húsið
verði reist með þátttöku þess-
ara aðila eða jafnvel fleiri, en
byggingarkostnaður þess mun
áætlaður allt að 15 millj. kr.
(Framhald á 4. siðu).
Fossárvirkjunin myndi verða
ein ódýrasta virkjun landsins
2000 hestafla virkjun þar með tilheyrandi
leiðslum mýndi kosta inu 2 millj. króna.
Um þessar mundir eru staddir hér i bænum Jónas Þorvaldsson
skólastjóri í Ólafsvík og séra Magnús Guðmundsson í Ólafsvík.
Eru þeir komnir hingað á vegum hreppsnefndanna í Ólafsvík og
á Sandi til að vinna að því, að hægt verði að hefjast handa um
virkjun Fossár á þessu ári, en virkjun þar myndi nægja báðum
þessum kaupstöðum og nálægum sveitum.