Tíminn - 15.02.1946, Síða 4
Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna
er í Edduhúsinu. Sími 6066.
4 | REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Komib í kosningaskrifstofuna!
15. FEBR. 1.94C
26. blað
Ú R B Æ N U M
Messías, eftir Hendel,
verður fluttur á, vegum Tónlistarfé-
lagsins í kvöld í Fríkirkjunni og hefst
kl. 8,30 Það' eru nú fjögur ár síðan
þetta stórverk hefir verið flutt í
Reykjavík, en þá var það einnig flutt
á vegum Tónlistarfélagsins. Einsöngv-
arar verða Guðmunda Elíasdóttir,
Guðrún Þorsteinsdóttir, Daníel Þor-
kelsson og enski söngvarinn Roy Hick-
man. Hljómsveit Reykjavíkur flytur
verkið undir stjórn dr. Urbantsehitsch.
Páll ísólfsson leikur með og einleik á
orgel. Næst verður verkið flutt á
sunnudaginn kl. 4 og á miðvikudag-
inn fyrir almenning Tvö fyrstu skipt-
íh eru fyrir styrktarmeðlimi Tónlistar-
félagsins. , *
Elsa Sigfúss
hélt næturhljómleika í gærkvöldi í
Gamla Bíó fyrir fullu húsi og við
ágætar undirtektir áheyrenda.
Innflutningi erlends verka-
fólks mótmælt.
Á fundi, sem fulltrúaráð verkalýðs-
félaganna hélt i fyrradag, voru sam-
þykkt mótmæli gegn innflutningi er-
lends verkafólks. Ennfremur var skor-
að á ríkisstjórnina að framlengja ekki
Ýmsarfréttir
— Magnús Sigurðsson banka-
stjóri hefir verið skipaður af
viðskiptamálaráðuneytinu full-
trúi íslands í bankaráð alþjóða-
bankans, til fimm ára.
— Vísitala framfærslukostn-
aðar verður hin sama í febrúar
og í janúar eða 285 stig.
— Tveir íslenzkir skíðamenn,
Jónas Ásgrímsson og Haraldur
Pálsson, sem dvelja við skíða-
nám í Svíþjóð, kepptu þar ný-
lega á fjölsóttu stökkmóti. Jón-
as varð sá 11. en Haraldur sá
19.
— Nýlega kom til Vestmánna-
eyja 84 smál. bátur, sem Páll
Oddgeirsson o. fl. hafa keypt í
Svíþjóð. Báturinn er 5 ára gam-
all og er sagður vandaður og
vel út búinn.
— Nýlega var brotizt að næt-
urlagi inn í skrifstofu kaupfé-
lagsins í Bolungarvík og stolið
þar 5000 kr. úr peningakassa.
Málið er i rannsókn.
— Tundurdufl rak nýlega á
land að Látrum í Aðalvík og
var ósprungið, þegar seinast
fréttist.
— Allmikii spellvirki hafa ný-
lega verið unnin á skála, sem K.
F. U. M. í Hafnarfirði á í Kald-
árseli. 1
Eftirlit með skipum
Frumvarp um eftirlit með
skipum var lagt fram á Alþingi
i gær. Er það mjög langt eða
76 greinar í 11 köflum. Frum-
varpið er samið af sérstakri
milliþinganefnd, er skipuð var
veturinn 1944 að tiihlutun Al-
þingis. Mun nefndin hafa dregið
saman öll eldri ákvæði um þessi
mál í eina heild, samræmt þau
og breytt mörgum þeirra veru-
lega. Sumar breytingarnar
munu vera stórvægilegar.
/ stuttu máli
(Framhald af 1. síOu)
— Douglas flugmarskálgur
hefir verið skipaður eftirmaður
Montgomerys í Þýzkalandi.
— Bandamenn hafa nú leyft
blaðamönnum að taka kafla úr
dagbók Hess. Segist hann tvisv-
ar hafa gert tilraun til aö
fremja sjálfsmorð. í annað
skiptið með því að kasta sér út
um glugga, en í hitt skiptið með
því að stinga sig í brjóstið með
borðhníf. Einnig ásakar hann
Bandamenn um að hafa gefið
sér inn eitur.
— Tékkóslóvakar hafa í
hyggju að koma upp hjá sér
mikilli penicilin framleiðslu
og hafa keypt í því skyni stór-
virkar vélar í Kanada. Búast
þeir við að framleiðslan verði
komin í gang á næsta sumri,
eða í haust.
atvinnuréttindi Dana hér, en þau eiga
að falla niður 5. marz næstk.
Söfnun Rauða Krossins
til bágstaddra barna i Mið-Evrópu
nam orðið í gærkveldi 625 þús. kr.
t t t
íkviknanir.
í gær kviknaði í hermannaskála
fyrir neðan Höfðaborg. Slökkviliðið var
kallað á vettvang, en skálinn brann
að mestu leyti. Skálinn var mannlaus
og líklegt að um íkveikju hafi verið
að ræða. Slökkviliðið var í fyrrakvöld
kallað að Kirkjustræti 10. Hafði kvikn-
að þar í út frá rafmagnsáhaldi, í lækn-
ingastofu. Fljótlega tókst að slökkva
eldinn og skemmdir urðu litlar.
Innbrot.
í íyrrinótt var brotizt inn í lýsis-
hreinsunarstöð Bernhards Petersen við
Sólvallagötu 80. Sá, sem innbrotið
framdi brauzt inn um læstar dyr, en
tókst ekki að finna neitt, er hann
gæti stolið.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins
óskar þess getið, að Saga heims-
styrjaldarinnar eftir Ólaf Hansson
menntaskólakennara verði ekki seld i
bókabúðum almennt, heldur hjá um-
boðsmönnum útgáfunnar eins og aðrar
félagsbækur hennar. Félagsmenn fá
bókina, ásamt 4 bókum öðrum, fyrir
hið fasta árgjald, sem er aðeins 20
krónur.
Hjónacfni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Stefanía Janusardóttir frá ísa-
firði og Sverrir Eggertsson rafvirkja-
nemi frá Haukagili Vatnsdal.
Aflasölur
Það, sem af er þessari viku,
hafa átta skip selt afla sinn í
Englandi. Flest skipin hafa selt
aflann við hámarksverði:
E.s. Huginn seldi 2284 vættir
fyir 7166 sterlingspund. Botn-
vörpungurinn Júni seldi 2848
vættir fyrir 7618 sterlingspund,
B.v. Skallagrímur seldi 2921
vættir fyrir 7603 sterlingspund,
M.s. Fanney seldi 1518 kitts fyrir
5974 sterlingspund, M.s. Siglu-
nes seldi 2412 vættir fyrir 7539
sterlingspund, M.s. Skaftfelling-
ur seldi 932 vættir fyrir 2880
sterlingspund, M.s. Magnús
seldi 1320 vættir fyrir 4193
sterlingspund og M.s. Eldborg
seldi í fyrradag 3692 vættir fyr-
ir 11659 sterlingspund.
Karlmennskuraim.
(Frauihald af 1. slðu)
var hann algerlega matarlaus
allan tímann og gat lítið sem
ekkert sofið. Steingrímur var þó
furðanlega hress.er hann fannst,
og gat hjálparlaust bundið um
sig kaðli, sem rennt var niður
til hans. Steingrími líður nú vstl
eftir atvikum. Má það teljast
einstæð hreystimennska að
komast lífs af úr slíkri svaðil-
för.
Margir munu kannast við
Steingrím vegna hinna snjöllu
kvæða hans, er birzt hafa í ýms-
um blöðum og tímaritum.
Ferðasaga eftir Steingrím um
þingeysku bændaförina var birt
hér í blaðinu fyrir skömmu.
St jórnarliðíð sýnir
hug' siim . . .
(Framhald af 1. síðu)
búinna húsa. Fer nú að vera
skiljanlegt hvers vegna stjórn-
arflokkarnir frestuðu afgreiðslu
þessa máls fram yfir bæjar-
stjórnarkosningarnar. Fyrir þær
hefði það ekki verið hyggilegt
að svæfa slíkt mál með því að
vísa því til stjórnarinnar. En
ÞAKKARÁVARP.
Kærar þakkir til allra þeirra, nær og fjær, sem sýndu
samúð og hluttekningu viff andlát og jarffarför eiginkonu,
dóttur og systur okkar,
Sigurbjargai* Jóiischiltiir.
Sérstaklega þökkum viff hjúkrunarkonunni, sem stund-
affi hana meff sérstakri nákvæmni og alúff í síffustu þraut-
um hennar.
Fyrir mína hönd, foreldra og systkina.
ÁSGEIR JÓNSSON frá Hvammi.
VESTFIRÐINGAFÉLAGIÐ
Vestfirffingamótið verður í Hótel Borg föstudaginn 22.
febrúar og hefst kl. 7,15 síffdegis.
Skcmmtiatriði:
Ræður.
Einsöngur.
Gamanvísur.
DANS.
Aðgöngumiðar í verzluninn'i Höfn, Vesturgötu 12, sími
5859, og Dósaverksmiðjunni, Borgartúni 1, sími 2085. —
Félagsmenn sýni skírteini fyrir árið 1946.
STJÓRNIN.
Útgerðarfélag Kefla-
víkur fær fyrsta bát
sinn
í síðastl. viku kom til Kefla-
víkur nýr vélbátur, sem skipa-
smíðastöð Marselíusar Bern-
harðssonar á ísafirði hafði
smíðað fyrir útgerðarfélag
Keflavíkur. Bátur þessi er 54
smál. að stærð með 200 ha. June
Munktell vél. Báturinn hefir
hlotið nafnið Vísir.
Útgerðarfélag Keflavíkur h.f.
var stofnað 31. marz 1945 fyrir
forgöngu hreppsnefndar Kefla-
víkur og með þáttöku almenn-
ins í Keflavík. Einnig er Kefla-
víkurhreppur hluthafi 1/10 af
innborguðu hlutafé. Upphæð
hlutafjár félagsins er 100.000 en
gert er ráði fyrir að auka það í
500.000. Er nú mikill áhugi fyrir
því að áuka hlutaféð og kaupa
fleiri báta. Eru félagsmenn nú
daglega að greiða lofað hluta-
fé sitt og nýir félagsmenn að
bætast við. 4
Stjórn félagsins skipa Snorri
Þorsteinsson, Albert Bjarnason,
Ólafur E. Einarsson, Alfred
Gíslason og Ragnar Guðleifsson,
en framkvæmdastjóri þess er
Albert Bjarnason.
SKIP/IUTGEPO
^UUIII
austur um land í hringferff
fyrripart næstu viku. Flutn-
ingi til hafna austan Akureyrar
veitt móttaka í dag og árdegis
á morgun. Pantaðir farsefflar
óskast sóttir fyrir helgina.
„Suöri”
Tekið á móti fiutningi til
Súffavíkur, Bolungarvíkur og
Súgandafjarffar í dag.
REGNKAPUR
á drengi og telpur.
Miiiningarorh
(Framhald af 3. tiOu)
er nú búa á Brekkulæk, og er
Jóhann einnig barnakennari í
sveit sinni. Dæturnar eru Svan-
borg, búsett á Eyrarbakka, Sig-
ríöur, nú í Reykjavík, og Gyð-
ríður, heima á Brekkulæk.
Útför Sigvalda fór fram aö
Melstað laugardaginn 22. des-
ember. Miðfiröingar fjölmenntu
þangað þann dag, til að kveðja
góðan sveitunga og votta vin-
semd eftirlifandi konu hans og
börnum.
Við fráfall Sigvalda á Brekku-
læk er góður bóndi og mann-
kostamaður horfinn af sjónar-
sviðinu.
Skúli Guðmundsson.
þess mættu stjórnarflokkarnir
minnast, að aðrar kosningar eru
skammt undan og hafa það í
huga áður en þeir afgreiða aðr-
ar tillögur Framsóknarmanna
um byggingarmálin á sama hátt.
Kjósendurnir verða áreiðanlega
það langminnugir að muna eft-
ir slíkri afgreiðslu þessara mála
við kjörborðin í vor.
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. . Sími 1035.
Úr bókaheiminum
(Framhald af 3. siðu)
ekki annað séð en þar sé af
fyllstu samvizkusemi kappkost-
að að bregða ljósi sannleikans
yfir gang hins mikla hildar-
leiks og skýra orsakir og afleið-
ingar einstakra atburða sem
bezt.
í bókinni eru margar myndir
og uppdrættir. En því miður eru
myndirnar yfirleitt slæmar, og
er það því furðulegra sem
prentun bókarinnar er í bezta
lagi og mjög auðvelt aö afla
ágætra mynda af fyrirmönnum
heimsins og margvíslegum
styrjaldaratburðum. Mætti ætla,
að sum myndamótin hafi verið
gerð eftir lélegum prentmynd-
um, og eru slík vinnubrögð vita-
skuld hreinasta ósvinna, þegar
um bók sem þessa er að ræða.
Væntanlega verður öðruvísi
staðið að myndaöflun og mynda-
gerð í seinna bindið.
(jatnla Síc
PRIÁSESSAN OG
SJORÆmGINN
(The Princess and the Pirate)
Bráðskemmtileg og spénn-
andi mynd 1 eðlilegum litum.
Bob Hope,
Virginia Mayo,
Victor McLaglen.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
< I.M II. ■ ....... III. >
Ttmfmt fœst
í lausasölu á þessum stöðum í
Reykjavík:
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61.
Verzluninni Laugaveg 45.
Flöskubúðinni, Bergst.str. 10.
Leifskaffi, Skólavörðustíg.
Bókabúð Kron, Hverfisgötu.
Söluturninum.
Filippusi Vigfúss., Kolasundi.
Bókaverzlun Finns Einars-
sonar, Austurstræti.
Bókastöð Eimreiðarinnar, Að-
alstræti.
Fjólu, Vesturgötu.
tfijja Stc
BUFFALO BILL
Bráðskemmtileg og spenn-
andl mynd i eðlilegum litum
um ævintýrahetjuna mlklu,
BILL CODY.
Sýnd kl. 9.
VÆNGIR og VONIR
Áhrifamikil mynd frá 6-
friðnum við Japani.
Don Ameche,
Charles Bickford,
Dana Andrews,
Sir Cedric Hardwicke.
Sýnd kl. 5 og 7.
TjarMfbíí
GAGNÁHLAUP
Counter-Attack)
Áhrifamlkil amerisk mynd frá
styrjöldinnl í Rússlandi.
Paul Muni,
Marguerite Chapman.
Sýning kl. 5—7—9.
Bönnuð yngrl en 14 ára.
LEIKFÉLAG REVKJAVÍKUR
sýnir hinn sögulega sjónleik
SKÁLHOLT
(Jómfrú BagnJheiður)
eftir Guðmund Kamban
Sýning í kvöld kl. 8 stimdvíslga.
Ósóttir aðgöngumiðar seldir i dag eftir kl. 2.
::m)i!iii)i)!»iiniiiiiiiii)8mm»nu»imimiiiiiiiiinnmi»m!
ÍSLENDINGAR, ATHUGIÐ
Samvinnuhreyfingunni er ekki markaður bás með
verzlunarrekstrinum einum heldur getur hún raun-
verulega náð til allra þátta atvinnulífsins. Það er
takmark íslenzkra samvinnumanna.
Samband ísl. samvinnufélaga
Tilkynning
frá bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar.
Bæjarstjórp Hafnarfjarðar hefir ákveðið, samkvæmt
heimild í útsvarslögum nr. 66 frá 1945, að innheimta út-
svör árið 1946 með fyrirframgreiðslum svo sem hér segir:
Útsvarsgjaldendum til Hafnarfjarðarkaupstaðar
1946 ber að greiða fyrirfram sem svarar 50% af út-
svörum þeirra árið 1945 með gjalddögum 1. marz, 1.
apríl, 1. maí og 1. júní, sem næst 12y2% af útsvari
1945 hverju sinni.
Allar greiðslur skulu standa á heilum eða hálf-
um tug króna.
Þetta tUkynnist hérmeð.
Hafnarfirði, 13. febrúar ,1946.
BÆJARSTJÓRINN.
VINNIÐ ÖTULLEGA AB ÚTBREIBSLU TÍMANS