Tíminn - 20.02.1946, Qupperneq 1
<
S RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
' RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Sími 2323
30. árg.
Reyk javík. miðvikudagiim 20. febr. 1946
29. blað
Fjögur búnaðarsambönd hafa
gert ræktunarsamþykktir
Njósnarmálíö
í Kanada
Njósnarmálin í Kanada
vekja stööugt meiri athygli. f
gær gerði Eden fyrirspurn um
það í brezka þinginu og
stjórnarvöld Bandaríkjanna
hafa gert sérstakar ráðstaf-
anir í tilefni af því.
Þegar er kunnugt, að 23 opin-
berir starfsmenn í Kanada, hafa
verið handteknir, ákærðir um að
hafa aðstoðað njósnara erlendri
ar þjóðar til að komast yfir mik-
ilvæg leyndarmál. Upplýst er, að
hin erlerída þjóð, sem hér á hlut
að máli, eru Rússar, og hefir
njósnurum þeirra tekizst að ná
i mikilsverðar upplýsingar, með
aðstoð kanadiskra embættis-
manna. Forsætisráðherra Kan-
ada hefir lýst því yfir, að hann
(Framhald á 4. siðu).
Lætur Japanskeisari
skírast?
Það vakti mikla athygli í
Tokio í gær, að Hirohito Japans-
keisari gekk um borgina og tal-
aði við nokkra verkamenn. Hefir
slíkt ekki komið fyrir áður í sög-
unni, enda létu verkamennirnir
undrun í ljós.
Atburður þessi hefir vakið
auknar sögusagnir um það, að
keisarinn og fjölskylda hans
muni láta skírast á næstunni,
en þau hafa undanfarið lært
kristin fræði af miklu kappi. Til
þessa hefir keisarinn verið
Shintotrúar, sem flestir Japanir
hafa játað og m. a. telur keis-
arann guðlegrar ættar. Skinto-
trúin er talin eiga mikinn þátt
í hernaðaranda og yfirgangi
Japana og hafa amerísku hern-
aðaryfirvöldin í Japan hafizt
handa um að uppræta hana.
• í nýársávarpi sínu til jap-
önsku þjóðarinnar afneitaði
keisarinn því atriði Shintotrú-
arinnar,_að keisarinn væri guð-
legrar ættar, og hlaut fyrir það
viðurkenningu MacArthurs yfir-
hershöfðingja. Keisarinn mun
ætla að árétta þessa stefnu-
breytingu enn betur með því að
taka kristna trú.
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
— Attlee forsætisráðherra til-
kynnti i brezka þinginu í gær,
að þrír ráðherrar myndu bráð-
lega fara til Indlands til að ræða
við fulltrúa Indverja um aukna
sjálfstjórn þeim til handa. Auk
Indlandsmálaráðherrans hafa
verið valdir til fararinnar Staf-
ford Cripps viðskiptamálaráð-
herra og Alexander flotamála-
ráðherra.
— Gandi hefir flutt ræðu.
(Framhald á 4. síðu).
Undirbúningur vel á veg kominn hjá
flestum öðrum búnaðarsamböndum
Framkvæmdir, sem eru byggðar á lögunum um jarðræktar- og
húsagerðarsamþykktir í sveitum, eru nú víða vel á veg komn-
ar. Fjögur búnaðarsambönd hafa til fulls gengið frá jarðræktar-
samþykktum á félagssvæðum sínum og flest önnur búnaðarsam-
bönd eru komin vel áleiðis að koma þeim á hjá sér. Húsagerð-
arsamþykktir eru í undirbúningi hjá mörgum búnaðarsambönd-
um og verður sennilega farið að vinna á grúndvelli þeirra í
Skagafirði í vor.
Tíðindamaður blaðsins hefir snúið sér til Steingríms Stein-
þórssonar búnaðarmálastjóra og fengið hjá honum upplýsingar
um hvernig þessum málum er komið.
Hér í blaðinu var á síðastl.
sumri sagt frá byrjunarfram-,
kvæmdum á þessu sviði. Þá var
hafinn úndirbúningur hjá all-
mörgum búnaðarsamböndum til
að koma á hjá sér slíkum sam-
þykktum. Síðan hafa flest sam-
böndin unnið ötullega að undir-
búningi málsins og hafa nú
fjögur búnaðarsambönd lokið
við samþykktir sínar og sent
þær landbúnaðarráðuneytinu til
staðfestingar. Eru það búnaöar-
sambönd Skagfirðinga, Búnað-
arsamband Austur-Húnvetn-
inga, Búnaðarsamband Borg-
firðinga og Búnaðarsamband
Kjalarnesþings. Fullt útlit er
því á, að þessum nýju rækt-
unarsamtökum verði komið í
fast horf á þessu ári.um land
allt.
Eins og kunnugt er, voru lög-
in um jarðræktar- og húsa-
gerðarsamþykktir í sveitum
samþykkt á Alþingi í fyrra. Til-
drög þessara laga voru þau, að
í frumvarpi, se?n Framsóknar-
menn fluttu á þingi 1943, um
breytingar á jarðræktarlögun-
um, voru ákvæði um jarðrækt-
arsamþykktir. Alþingi vísaði
þessu frumvarpi til umsagnar
Búnaðarfélags íslands. Þar fékk
Sjö fulltrúar fara
héðan á
ráðstefnu
Minna hefir ekki þótt gagn
gera, en að senda sjö fulltrúa
héðan á flutningamálaráðstefnu
þá, sem haldin verður í Dublin
i byrjun næsta mánaðar enda
þykir nú ekki lengur þurfa að
horfa í kostnaðinn. Fulltrúar
ríkisstjórnarinnar verða Erling
Ellingsen, sem verður formaður
nefndarinnar, Guðmundur Hlið-
dal, Gunnlaugur Briem síma-
verkfræðingur, Teresia Guð-
mundsson og Sigfús H. Guð-
mundsson. Fulltrúar flugfélag-
anna verða Agnar Kofoed Han-
sen (Flugfélag íslands) og Óli
Ólason kaupmaður (f ulltrúi
Loftleiða). i
Á ráðstefnunni munu mæta
fulltrúar 13—14 þjóða, sem ætla
að halda uppi farþegaflugi yf-
ir Norður-Atlantshafið. Rætt
verður um samræmingu á starfi
hinna ýmsu flugfélaga og um
flugleiðir.
málið þá afgreiðslu hjá milli-
þinganefnd, er Búnaðarþing
hafði kosið, að því var skipt í
tvö frumvörp. Fjallaði anriað
þessara frv. um ræktunar- og
húsagerðarsamþykktir, en hitt
frumvarpið um hækkun jarð-
ræktarstyrksins. Fyrra frv. var
samþykkt breytingalítið á þing-
inu í fyrra, en hinu stakk
stjórnarliðið undir stól, en
Framsóknarmenn hafa flutt það
aftur á þessu þingi.
Lögin um jarðræktar- og
húsagerðarsamþykktir eru í
tveimur aðalköflum. Fjallar
annar um jarðræktarsamþykkt-
ir, en hinn um húsagerðarsam-
þykktir. Með lögunum er stefnt
að því að koma allri heyöflun
landsmanna á ræktað og vél-
tækt land. Búnaðarsamböndin
eiga að setja hjá sér samþykkt-
ir um að þau taki að sér á-
kveðnar jarðræktarframkvæmd-
ir, svo sem framræslu, túna-
sléttun, nýrækt og sléttun engja.
Yfirleitt er gert ráð fyrir að
hvert jarðræktarsvæði nái yfir
félagssvæði hvers búnaðarsam-
bands, en jarðræktarsvæðin
mega þó vera minni. Búnaðarfé-
lag íslands skal ákveða um
stærð jarðræktarsvæðanna, svo
tryggt sé að engar sveitir verði
(Framhald á 4. síöu).
Af fulltrúum á þingi bandalags sameinuöu þjóðanna vöktu fulltrúar Saudi-Arabíu nokkra athygli, vegna hlns
skrautlega þjóðbúnings, er þeir voru í. Þeir sjást hér á myndinni vera að ræða saman við borð sitt i fundarsaln-
um, þar sem þingið var haldið.
Stjórnarliöiö opinberar andstööu sína gegn
eflingu fiskiðnaðarins og auknum markaðsleitum
Það fellir frv. Framsóknarmaiina um eflingn fiskimálasjóðs
Þau tíðindi gerðust í neðri deild í gær, að stjórnarliðið vísaði
frá með rökstuddri dagskrá frumvarpi Eysteins Jónssonar og
Björns Kristjánssonar um eflingu fiskimálasjóðs. Hefir stjórn-
arliðið sýnt glögglega með þessari framkomu hinn rétta hug
sinn til framfara sjávarútvegsins.
Það hefir verið hlutverk fiski-
málasjóðs að veita hagkvæm
lán til niðursuðuverksmiðja,
frystihúsa, fiskúrgangsvinnslu-
stöðva og beitugeymsla, og enn-
fremur að veita lán eða styrki
til tilrauna með nýjar verkunar-
aðferðir og veiðarfæri, leitunar á
nýjum fiskimiðum, markaðsöfl-
unar o. s. frv. Starfsemi sjóðsins
hefir þó verið takmörkuð, þar
sem hann hefir ekki haft aðrar
tekjur til starfsemi sinnar en
Vi% af útflutningsverði sjávar-
afurða. Samkvæmt frv. Eysteins
og Björns skyldu tekjur sjóðsins
auknar með 2.5 milj. árlegu
framiagi úr ríkissjóði næstu 10
ðvenju góð færð hefir verið
á fjallvegum í vetur
í allan vetur, hafa verið ó-
venju greiðar samgöngur á veg-
um landsins vegna þess, hve
snjólétt hefir verið. Bílfært hef-
ir verið um alla helztu fjallveg-
ina, að heita má í allan vetur.
Fram til þessa tíma hefir verið
tiltölulega auðvelt að halda veg-
unum opnum.
Tíðindamaður blaðsins sneri
sér í gær til Ásgeirs Ásgeirsson-
ar skrifstofustjóra á Vegamála-
skrifstofunni og fékk hjá hon-
um upplýsingar um færðina á
helztu bílvegum landsins.
Milli Suður og Norðurlands
hefir, að heita má, alltaf verið
fært bifreiðum í vetur um Holta-
vörðuheiði og Stóravatnsskarð,
allt norður á Sauðárkrók. Hins
vegar hefir Öxnadalsheiði verið
ófær bifreiðum nú um nokkurt
skeið, vegna snjóa.
Um Vesturland hefir verið
fært allt vestur í dali, um
Bröttubrekku. Yfir Bröttu.-
brekku hefir bæzt við nýr fjall-
vegur, sem lokið er við að full-
gera á síðastli. hausti, og var
það fyrir þær aðgerðir, sem nú
í fyrsta sinn, hefir tekizt að
halda leiðinni vestur yfir
Bröttubrekku opinni yfir vetr-
artímann. Hinar bættu vetrar-
samgöngur hafa orðið Dalabú-
um til mikils hagræðis, og hafa
verið fastar bílferðir yfir fjalla-
veginn í allan vetur með mjólk
og farþega. Einnig hefir verið
bílfært til Stykkishólms um
Kerlingarskarð. Yfir Fróðárheiði
til Ólafsvíkur var fært bifreið-
um með lengsta móti, en sú leið
hefir nú verið teppt um skeið
vegna snjóa.
• (Framhald á 4. síðu).
árin, og honum einnig heimiluð
10 milj. kr. iimtaka til starfsemi
sinnar. Auk ákvæðisins um þess-
ar stórlega auknu tekjur, voru
þetta meginbreytingarnar á frv.
þeirra Eysteins og Björns:
1. Félögum útvegsmanna og
fiskimanna ætlaður forgangs-
réttur að lánunum, svo að iðn-
fyrirtæki sjávarútvegsins lentu
#
síðar í höndum einstakra stríðs-
gróðamanna og gróðafélaga eins
og nú er títt.
2. Fiskimálanefnd lögð niður,
en Fiskifélaginu að mestu falið
verkefni hennar, Þriggja manna
nefnd skyldi þó úrskurða lán-
veitingar úr fiskimálasjóði í!
samráði við félagið.
3. Að sjóðurinn megi lána til
bátakaupa, þar sem er tilfinn-'
anleg vöntun báta, en lítið fjár-
magn fyrir hendi.
Nauðsyn allra þessara breyt-
inga á fiskimálasjóðnum liggja
svo í auguip uppi, að óþarft er
að rökstyðja það nánara. Það
mun líka flestum ljóst, að allra
brýnasta nýsköpunin i sjávar-
útveginum er að koma upp stór-
auknum fiskiiðnaði til að vinna
markaðsvöru úr fiskinum. Þetta
verkefni er jafnvel enn brýnna
en að afla nýrra skipa, því að til
lítils er að auka skipakostinn
meðan afurðasalan er ekki
tryggð.
Fyrir þessu lokar stjórnarliðið
hins vegar augunum og vísar því
frumvarpi þeirra Eysteins og
Björns frá. Forsendurnar eru
þær, að fyrirhuguð sé endur-
skoðun á starfsemi fiskimála-
sjóðs og fiskimálanefndar og
fyrirhugaðar breytingar á Fiski-
veiðasjóði íslands fullnægi líka
tilgangi þess. Slíkt mun þó meira
en ofsagt, því ekki er ósennilegt,
að farið verði að koma tóma-
(Framhald á 4. síðu).
Stór lántaka til
síraaframkvæmda
Frv. um lántökuna lag’t
fram í n. d. í gær
í gær var lagt fram í Al-
þingi frumvarp um heimild
fyrir ríkisstjórnina til að taka
12 milj. kr. Ián til ýmsra
símaframkvæmda, sem ekki
er veitt til fé á fjárlögum. Er
frumvarp þetta flutt af fjár-
hagsnefnd n. d. eftir beiðni
atvinnumálaráðherra.
í greinargerð frumvarpsins
segir m. a. á þessa leið:
— Mikil þörf er á þvl, áö
hraðað verði, svo sem unnt er,
ýmsum símaframkvæmdum,
einkum þó jarðsímalagningum á
aðalsímaleiðum og húsabygg-
ingum í sambandi við það.
Helztu framkvæmdir, sem hafð-
ar eru í huga í sambandi við
framangreinda lántökuheimild,
eru þessar: Jarðsími frá Hval-
firði til Hrútafjarðar, ný tæki 1
stuttbylgjustööina við Reykja-
vík, umsamin kaup á línum og
jarðsímum frá setuliðinu og
væntanleg frekari kaup á efni
og tækjum frá setuliðinu, póst-
og símahús í Hrútafirði, Borgar-
nesi og Vestmannaeyjum,
stækkun sjálfvirku miðstöðvar-
innar í Reykjavík og jarðsími
frá Hrútafirði til Akureyrar.
Málið hefir verið rætt í fjár-
veitinganefnd, og er nefndin
þeirrar skoðunar, að nauðsyn-
legt sé, að tekið verði lán til
svo stórra símaframkvæmda,
sem hér er um að ræða og sett
um það sérstök lög. —
Lagt er til í frumvarpinu, að
Landssíminn verði látinn standa
undir vöxtum og aíborgunum af
lánum þessum.