Tíminn - 08.03.1946, Síða 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhusinu v/ð Lindarg&ki. Sími 6066
4 ! REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Komic) í skrifstofu Framsóknarflokksins!
8. MARZ 1948
41. blað
U.R B Æ N U
í dag.
Sólin rennur upp kl. 8,15. Sólarlag
kl. 19,04. Árdegisflóð kl. 9,35. Síð-
degisflóð kl4 22.00.
son. í húsbyggingarnefnd voru kosnir
þeir: Þorsteinn Sch. Thorsteinsson,
Haraldur Jóhannessen, Gunnar Einars-
son, Magnús Þorgeirsson og Ingólfur
B. Guðmundsson. Stjórn skíðadeildar-
innar var kosin: Pormaður Gísli Krist-
jánsson, sem einnig tekur sæti í aðal-
stjórn, og meðstjórnendur: Gunnar
I nótt.
Næturakstur annast Hreýfill, sími
1633. Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólanum, ' Hjaltason, Guðmundur Samúelsson,
sími 5030. Næturvörður er í Reykja- | Grétar Árnason og Grímur Sveinsson.
víkur Apóteki. Ljósatími ökutækja er
frá kl. 18,50 til kl. 6,25.
í rekstrarnefnd Kolviðarhóls voru
Leiðrétting.
í auglýsingu frá skipaútgerð ríkisins
í blaðinu gær hafði misritazt í nokkru
af upplaginu nafn skipsins, sem fara
á til Austurlandsins um helgina. Það
er Súðin, sem fara á þessa ferð.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 20,25 Útvarpssagan: „Stygge
Krumpen" eftir Thit Jensen, XVIII
(Andrés Björnsson). 21,00 Strokkvart-
'ett útvarpsins: Kvartett í C-dúr eftir
Mozart. 21,15 Erindi: Bretton Woods
(Ásgeir Ásgeirsson alþingismaður).
21,40 Þættir um íslenzkt mál (dr.
Björn Sigfússon). 22,00 Préttir. 22,05
Symfóníutónleikar (plötur): a) Píanó-
konsert nr. 3 eftir Prokoffieff. b) Sym-
fónía nr. 1 eftir Szostakowicz. 23,00
Dagskrárlok.
Fimleikamót
á vegum íþróttafélags Reykjavíkur
verður haldið hér í þessum mánuði.
í sumar verður svo haldið landsmót í
íþróttum.
Westergaard Nielsen
ritari Dansk-islandsk Samfund,
kemur liingað í byrjun næsta mán-
aðar. Hann er mikill íslandsvinur og
hefir skrifað fjölda greina í dönsk
blöð um íslenzkar bókmenntir.
Aðalfundur í. R.
var haldinn i fyrrakvöld. Stjórn fé-
lagsins gaf skýrslu um starfsemina á
liðnu starfsári. Hagur félagsins er góð-
ur. — Kosning í aðalstjórn fór þann-
ig, að Sigurpáll Jónsson var endur-
kjörinn formaður i einu hjóði, með-
stjórnendur: Finnbjörn Þorvaldsson,
Sigurður Sigurðsson, Ragnar Þor-
steinsson, Ingólfur Steinsson, Priðjón
Ástráðsson og Þorbjörn Guðmunds-
kosnir: Þorvaldur Guðmundsson, Jó-
hannes Kristjánsson, Sigurjón Þórðar-
son, Guðm. Sveinsson og Priðrik Dan-
íelsson. Endurskoðendur félagsins voru
kosnir: Ben. G. Waage og Gunnar
1 Einarsson.
Skipafréttir.
Brúarfoss er í Reykjavík (kom 23/2).
Fjallíoss fór frá Ingólfsfirði á hádegi
í gær áleiðis til ísafjarðar. Lagarfoss
fór frá Kaupmannahöín 4/3 til
Reykjavíkur. Selfoss er í Leith.
Reykjavík frá frá ísafirði 1/3 áleiðis
til Hull. Buntline Hitch er í New York.
Empire Gallop fór frá New York 4/3
til Reykjavíkur. Anne er væntanlega
komin til Kaupmannahafnar. Lech fór
frá Leith 4/3 áleiðis til Reykjavíkur.
/ð
avang l
(Framhald af 2. síðu)
viðskiptaráði. í fyrsta lagi er
þetta ósatt vegna þess, að
stjórnarliðarnir Haukur Helga-
son, Kjartan Ólafsson og Oddur
Guðjónsson höfðu þar meiri-
hluta, og í öðru lagi vegna þess,
að viðskiptaráð hagar jafnan
leyfisveitingum sínum eftir
fyrirmælum ríkisstjórnarinnar.
Verr gengur Þjóðviljanum þó
að klóra í bakkann í gær, þegar
hann er að afsaka jitjórn Áka
og Lúðvíks á fiskflutningamál-
unum. Hann segir t. d., að Tím-
inn hafi verið mótfallinn leigu
enskra skipa í fyrravetur og vilj -
að að færeyska samningnum
yrði strax sagt upp, og vegna
þessarar framkomu Tímans þá,
hafi Lúðvík og Áki ekki þorað að
leigja skip nú. Mikil er nú karl-
mennskan hjá þessum höfuð-
kempum kommúnistanna! En
ekki getur þetta þó bjargað
þeim, því að Tíminn krafðist
þess einmitt í fyrra, að ensk
skip yrðu fengin til flutning-
anna og hann bar ekki fram
kröfu um uppsögn færeysku
samninganna fyrr en komið var
fram á vor, því að eftir þann
tíma var engin þörf fyrir þá
lengur.
Margt fleira mætti nefna af
þessu tagi, sem komið hefir í
Þjóðviljanum seinustu daga. En
þetta nægir til að sýna, að
hálmstráin, sem Þjóðviljinn
nær í, þegar hann reynir að
klóra í bakkann, eru yfirleitt
ekki nema blekkingar og ósann-
indi. Bágt hlýtur það líf að
vera, sem ekki hefir annað til
að bjarga sér á!
Frá bæjarstjórnarfundi
(Framhald af 1. síöu)
kaup, samanborið við aðra, svo
að tryggt væri, að þetta ylli ekki
röskun á launagreiðslum yfir-
leitt.
Þáttur kommúnista.
Kommúnistum virðist aftur á
j móti meira í mun í að vagn-
jstjórarnir séu kyrrir í Hreyfli
jen að þeir fái kjör sín tryggð og
j bætt, enda kom þetta sjónar-
I mið berlega fram á fundi, er
* formaður Hreyfils hélt með
' vagnstjóradeild félagsins í fyrra-
'dag. Var það á þeim mönnum
að heyra, er þar skipuðu forsæti,
að launalögin, sem nýlega voru
sett og kommúnistar hafa meðal
: annars hrósað sér af, hefðu í för
. með sér slíka réttarskerðingu,
|að betra væri fyrir vagnstjór-
jana að ganga að mun lakari
launakjörum utan þeirra en
gangast undir þau. Var ber-
sýnilega ekki til þess ætlazt, að
aðrar raddir kæmu þar fram.
Fengu þar vart aðrir orðið, en
Ólafur nokkur Björnsson, dygg-
ur róðrarkarl á skútu kommún-
ista, enda voru ræður hans lé-
leg útþynning á ræðum for-
manns Hreyfils. Leynileg at-
kvæðagreiðsla fékkst ekki, en
formaður og fundarstjóri lofuðu
þó því, að fundarmenn skyldu
„ekki ganga út merktir", þótt
þeir greiddu atkvæði gegn vilja
þeirra.
Bréf Fæðiskaupendafélagsins.
Annað veigamesta málið, sem
bar á góma á bæjarstjórnar-
fundinum, var bréf, sem Fæðis-
kaupendafélagið hefir sent bæj-
arráði, þar sem þess er farið á
leit, að bærinn sjái því fyrir við-
unandi húsnæði fyrir mötuneyti.
Þetta bréf var sent bæjarráði 27.
febrúar, en hefir ekki enn feng-
ið afgreiðslu.
Pálmi Hannesson flutti í sam-
bandi við afgreiðslu fjárhags-
áætlunarinnar í vetur þá tillögu,
að bærinn leggði 450 þúsund kr.
til þess að byggja á þessu ári
matsöluhús, sem síðan yrði leigt
samtökum fæðiskaupenda. Sú
tillaga var þá felld. Nú ítrekaði
hann í sambandi við bréf Fæð-
iskaupendafélagsins, að því yrði
nauðsynlegur styrkur veittur til
þess að koma upp viðunandi
húsnæði til starfseminnar í
grennd við miðbæinn, þar sem
flestir vinna. Fæðissalan er
orðið mikið vandamál, og hefir
iðulega verið um það mál ritað
„FRIGIDAIR’S” Kæliskápar
Model MI—7.
Framleiðsla á hinum heimsfrægu „Frigidairs“-kæli-
skápum, sem hefir legið niðri á stríðsárunum, er nú hafin
á ný. „Frigidairs“-kæliskápar eru búnir til af General
Motors Corp., en umboð fyrir þá hefir.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNLFÉLAGA.
Kaupfélags-
j stjórastaðan
við Kaupfélagið „Björk” á Eskifirði
er laus til umsóknar.
Umsóknum sé skilað til
Samb. ísl. samvinnufélaga
nmnnmnnnnnnnnnn
hér í blaðið. Gæti það orðið
veigamikill þáttur í því að gera
ódýrara að lifa hér í bænum, ef
þessum samtökum fæðiskaup-
enda, er hyggjast að láta mönn-
um í té gott fæði við sannvirði,
væri veitt sú aðstoð, er þau
þurfa á að halda til þess að
koma málum sínum á rekspöl.
Lagði Pálmi til, að bærinn léti
reisa hús í þessu skyni, ef þess
þyrfti með, og leigði síðan Fæð-
iskaupendafélaginu gegn sann-
gjarnri leigu, enda setti það
tryggingar fyrir því, að hún yrði
skilvíslega greidd.
Deilt um hermannaskála.
Þá var nokkurt orðaskak milli
Sigfúsar Sigurhjartarsonar og
Jóns Axels Péturssonar annars
vegar og borgarstjóra hins veg-
ar út af leyfi, sem bæjarráð hef-
ir gerið Þórði Ólafssyni útgerð-
armanni til þess að láta her-
mannaskála, er hann hefir
keypt, standa um þriggja ára
skeið. Að undanförnu hefir í
höfuðdráttum verið fylgt þeirri
stefnu, að skálar þessir skuli
rifnir sem fyrst. Er hér um að
ræða bíóhús og fleiri skála inni
við Skúlagötu, og hefir Þórður
í hyggju að leigja Nýja Bíó bíó-
húsið í sumar, en síðar Slysa-
varnafélaginu og félaginu Ang-
lía, að því er upplýst var. Víttu
þessir tveir bæjarfulltrúar, aö
einstökum manni væri veitt slík
undanþága. Málinu var frestað.
„Til meffferðar“.
Bæjarráðið hefir verið nefnt
„líkkkistan/, og á það nafn rót
sína að rekja til þess, að þang-
að hefir meiri hluta bæjar-
stjórnar jafnan látið vísa öllum
málum, sem ekki hefir þótt
henta að fella beinlínis á bæj-
arstj órnarf undum.
Á bæjarstjórnarfundinum í
gærkvöldi kom fyrir atvik, sem
sýnir, að bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn er sér fyllilega meðvit-
andi um þetta líkkistuhlutverk
bæjarráðs. Forseti bæjarstjórn-
ar hafði borið undir fundinn að
vísa þangað máli einu, sem og
var samþykkt. En þegar bæjar-
fulltrúar höfðu rétt upp hend-
urnar til samþykkis þessari til-
lögu, sá borgarstjóri hér þá
meinbugi á, að gleymzt hafði að
taka það fram, að málinu var
þangað vísað „til meðferðar“.
Lét þá forseti bæjarstjórnar at-
kvæðagreiðslu fara fram að
nýju, bæjarráðinu til áminning-
um það, að þetta væri þó ekki
líkkistumatur.
(jatnla Síc
M. G. M.
stjöriinrevyaii.
(Thousands Cheer)
Stórfengleg söngvamynd, tek-
ln í eðlilegum litum.
30 frægir kvikmyndaleikarar
leika.
Sýning kl. 6 og 9.
— Hækkað verð. —
Vtjja Síó
. , ' b
Frelsissöngnr
sigaimanna
(Gypsy Wildcat)
Skemmtileg og spennandi æv-
intýramynd í eðlilegum litum.
Maria Montez.
Jon Hall,
Peter Coe.
Sýning ki. 5. 7 og 9.
TIMINN
Sendið Tímanum fréttir
Gerist kaupendur.
Útvegið kaupendur.
Greiðið blaðið skilvíslega.
Kvartið, verði vanskil.
Auglýsið í Tímanum.
Leiðið athygli manna að því,
að allir þeir, sem fylgjast vilja
með almennum málum, verði
að lesa Tímann.
snannnnnna
~fjaNta?bíc
k Havaii
(Navy Blues)
Amerísk gainan- og söngva-
mynd.
Ann Sheridan,
Jack Oakie,
Martha Raye.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Tikynning
Vörubílastöðin Þróttur flytur í hið nýja hús sitt við
Rauðarárstíg og Skúlagötu á morgun (laugardag) 9. þ. m.
Sami síminn og áður, 1471, 3 línur.
Vönibílastöðm Þróttnr.
GÚMMÍKLÆDNADUR
Gúmmíföt (sett) ...... kr. 110.50
Gúmmíföt (sett með rennilás og hettu) .. — 150.00
Gúmmíblússur með rennilás . — 68.00
Gúmmíjakkar (síðir) ... — 65.00
Gúmmíbuxur ................ — 57.50
Sent gegn póstkröfu.
Gúmmífatagerðin Vopni
Aðalstræti 16.
Barnaboltar
nýkomnir.
K. Einarsson & Blörnsson h.f.
Logsuðumenn,
Járnsmiðir og
Skipasmiðir
geta fengið vinnu hjá oss nú þegar.
Landsmiðjan