Tíminn - 14.03.1946, Qupperneq 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
4
EdduhúsLnu við LindargötU. Sími 6066
REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Kom'ið í skrifstofu Framsóknarflokksins!
15. MARZ 1946
45. blali
U R B Æ N U IVS
f dag.
Sólin kemur upp kl. 7.54. Sólarlag
kl. 4.15. Síðdegisílóð kl. 1640. Árdegis-
flóð ki. 19.22.
f nótt. I.
Næturakstur annast, bifreiðastöð
íslands sími 1540. Næturvörður í Lyfja-
búðinni Iðunn. Næturlæknir er í
læknavarðstofunni í Austurbæjarskól-
‘ anum sími 5030. Ljósatími ökutækja
er frá kl. 19.30 til kl. 7.50.
Útvarpið í kvöld.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórarinn
Guðmundsson stjórnar): a. Lög úr
„Meyjarskemmunni" eftir Schubert.
b. Vals eftir Priml. c. Marz eftir Grít.
20.45 Lestur fornrita: Þættir úr Sturl-
ungu Helgi Hjörvar). 21.15 Dagskrá
kyenna (Kvennréttindafélag íslands):
Störf og kjör sveitakonunnar. — Er-
indi (frú Sigríður Björnsdóttir frá
Hesti). 21.40 Prá útlöndum (Axel
Thorsteinsson). 22.00 Fréttir. Auglýs-
ingar. Létt lög (plötur). 2230 Dagskrá-
lok.
Samkoma.
Vegna mjög margra fyrirspurna hef-
ir Tíminn verið beðinn að geta þess
að næsta skemmtun Framsóknar-
manna í Reykjavík verði ekki fyrri
en síðari hluta næstu viku. Mun þá
verða síðast spiluð Pramsóknarvist á
vetrinum, því að Listamannaskálinn
verður úr því tekinn í notkun undir
sýningar, sem standa langt fram eftir
sumri. ,
Gestir í bænum. /
Sigurður Jónsson skáld Arnarvatni,
Guðmundur Bernharðsson bóndi Ás-
túni Ingjaldssandi, Kristján Guð-
mundsson bóndi Brekku Ingjaldssandi,
Guðmundur Guðmundsson bóndi Sæ-
béli Ingjaldssandi, Jónas Valdimarsson
bóndi Alviðru og kona hans Krist-
björg Þóroddsdóttir, Kristján Þórodds-
son bóndi Alviðru, Kristján Jensson
Ólafsvík, Prú Guðrún Jónsdóttir Mýr-
um Dýrafirði,, Björn Lárusson Ósi
Skilmannahreppi.
Skipafréttir.
Brúarfoss fór í gærkvöldi áleiðis
til New York. Pjallfoss er í Reykjavík.
Lagarfoss er í Reykjavík. Selfoss er
í Leith. Reykjarfoss er í Hull. Bunt-
line Hitch er í New York. Acron Knot
hleður í Halifax síðast í marz. Salmon
Knot hleður í New York í byrjun
apríl. Sinnet hleður í New York um
miðjan marz. Embire Gallop er á
leið tii Reykjavíkur frá New York.
Anne er í Kaupmannahöfn. Lech er
í Reykjavík. Lublin hleður í Leith um
miðjan marz.
Farþegar
með e. s. Brúarfossi til New York i
gærkvöldi voru þessir: Margrét Sig-
urðardóttir. Guðrún Johnson, Helga
Johnson„ Auður Jónsdóttir. Erla G.
Vilhelmsdóttir, Petrína Kristjánsrótt-
ir, Kristín Petersen, Kristjana Elías-
dóttir.
Knattspyrnufélagið Fram
hefir ráðið til sín skozkan knatt-
spyrnuþjálfara, Jam McCrae að nafni
og kom hann hingað til lands fyrir
nokkrum dögum.
Jam McCrae er ráðinn hjá Pram
að minnsta kosti til næsta haust og
eru æfingar félagsins þegar að hefj-
ast undir hans stjórn.
I
Skíðamót Reykjavíkur
hélt áfram s 1. sunnudag. Vegna
veðurs varð að fresta keppni síðara
hluta dagsins. en þá átti svigkeppni
karla að fara fram. Úrslit urðu þau,
að í svigi kvenna A- og B-flokkum
varð Jónína Nieljohníusardóttir fyrst.
í c-flokki varð Inga Ólafsdóttir í. R.
fyrst. Fyrstur í svigi karla í D-flokki
varð Ólafur Þorsteinsson Á., en í
C-flokki varð fyrstur Valdimar Björns-
son K. R.
Vanskil.
Þeir kaupendur Tímans, sem verða
fyrir vanskilum á blaðinu eru vinsam-
lega beðnir að snúa sér beint til
afgreiðslunnar með kvartanir sínar og
þá einkum til Torfa Torfasonar.
Garðyrkiustöðin kostar
400 þús. kr.
Á seinasta bæjarráðsfundi var lagt
fram bréf frá Jóhanni Kr. Jónassyni
hugaða garðyrkjustöð bæjarins við
Lambhaga. Höfðu þeir Sigurður
Sveinsson garðyrkjufræðingur og Jóh.
Kr. Jónasson gert lauslega áætlun og '
komizt að þeirri niðurstöðu _að(stofn-
kostnaður stöðvarinnar yrði um 400
þús. kr. að meðtöldum íbúðarhúsi
fyrir starfsfólk.
Ræktunarráðunautur bæjarins
segir upp.
Á seinasta bæjarráðsfunli var lagt
fram bréf frá Jóhanni kr Jónassyni
þar sem hann tilkynnir að hann segi
lausu starfi sínu sem ræktunarráðu-
nautur bæjarins. Bæjarráð samþykkti
að auglýsa stöðuna lausa, með um-
sóknarfresti til 1. apríl n. k. — Jóh.
Kr. Jónasson mun verða ráðsmaður á
Bessastöðum.
Kolin lækka.
Kolaverðið í Reykjavík hefir verið
lækkað um 20 kr. smál.
Vörubílastöðin Þróttur
.flutti s. 1. laugardag í ný húsakynni
á horni Rauðarárstígs og skúlagötu.
Stjórn félagsins bauð þá blaða-
mönnum að skoða hin nýju húsakynni.
sem á allan hátt eru hin vistlegustu,
í nýju húsi sem félagið hefir byggt
þarna. Einar Ögmundsson, formað
félagsins gerði grein fyrir byggingu
hússins og sagði nokkuð frá starfsemi
vörubílstjórafélagsins almennt. Bygg-
ing hússins var hafin í fyrravor og
er henni nú nýlega lokið. Húsið er
160 m- en í því eru tvö skrifstofu-
herbergi, afgreiðsluherbergi og einn
stór salur. Framkv.stj. Þróttar er Vil-
mundur Vilhjálmsson, en afgreiðslu-
maður er Kjartan Árnason.
Tillaga ura eftirgjöf
á tollum
Pétur Ottesen hefir nýlega
lagt fram í sameinuðu þingi
tillögu til þingsályktunar um að
endurgreiða tolla, sem hafa ver-
ið greiddir af skipum eða verða
greiddir á árunum 1945—47,
og ennfremur aðflutningsgjöld
af efni til skipabygginga og vél-
um og tækjum í skip, sem hafa
verið keypt á sama tíma.
í greinargérð áætlar Pétur að
tekjumissir ríkisins af þessari
ráðstöfun geti orðið ein milj.
kr. Geta má þess, að engir
tollar eru nú greiddir af skip-
um, sem eru yfir 150 smál. að
stærð.
ÞurmjólkurframleLÓsla
(Framhald a) 1. síðu)
landa í maí til að festa kaup á
vélum og öðru, sem til mjólk-
urbúsins þarf. Vélarnar verða
að líkindum að mestu leyti frá
Danmörku. Komið hefir til tals,
að fá tæki til þurrmjólkur-
vinnslu í þetta mjólkurbú og
er það. alger nýung í íslenzkum
iðnaði, ef af verður. Þó hefir
alltaf verið flutt til landsins all-
mikið af þurrmjólk til iðnaðar,
en hún er notuð til súkkulaði-
gerð, kexgerð og í sérstaka teg-
und brauða. Á seinasta ári voru
t. d. fluttar til landsins frá út-
löndum um 40 smál. af þurr-
mjólk. Annars verður mjólkurbú
þetta að öllu leyti búið beztu
og fullkomnustu vélum til
mjólkurvinnslu og mun búið
aðallega framleiða smjör, skyr
og osta. í
Mjólkursvæði það, sem kem-
ur til með að láta mjólk til þessa
nýja mjólkurbús er öll Austur-
Húnavatnssýsla. Kostnaður við
byggingu mjólkurbúsins er áætl-
aður 500—600 þús. kr. og hefir
rikissjóður ábyrgst 300 þús. kr.
af stofnkostnaðinum. Stofnun
þessa nýja mjólkurbús er til
mikilla bóta fyrir íbúa Austur-
Húnavatnssýslu og opnar bænd-
um þar mikla möguleika til auk-
' innar nautgriparæktar.
ff
FARMALL"
DRÁTTARVÉLAR „A4t
SLÁTTIJVÉLAR,
PLÓGAR,
HERFI.
„Farmall“-landbúnaðarvélar eiga eftir að efla íslenzkan
landbúnað.
Umboð:
Samband ísl. samvinnuf álaga
TILKYNNING
£rá skrifstofii iollstjóra um greiðsln á
kjötnppbótnm.
Reykvíkingar, sem gert hafa kröfu um endurgreiðslu úr
ríkissjóði á hluta af kjötverði, og heita nöfnum (eða bera
|ættarnöfn), sem byrja á J, skulu vitja endurgreiðslunnar í
skrifstofu tollstjóra í dag, fimmtudaginn 14. marz, kl. iy2
—7 e. h.
Á morgun, föstudaginn 15. marz, skulu þeir, sem heita
nöfnum, sem byrja á K, L og M, vitja uppbóta sinna á sama
tíma.
Þeir, sem undirritað hafa kröfurnar, verða sjálfir að
mæta til að kvitta fyrir greiðslunni, annars verður hún
ekki greidd af hendi.
Auglýst verður næstu daga hvenær þeir, sem aftar eru
í stafrófinu, skulu vitja greiðslna sinni.
Reykjavík, 14. marz 1946.
TOLLST J ÓR ASKRIFSTOFAA,
HAFIVARSTRÆTI 5.
Búnaðarmálasjóður...
tFramhald af 2. síðu)
2. Að ekki væri ráðist í slíka
byggingu nema næg þátttaka
fengist annars staðar frá, og
var þá miðað við að önnur fé-
lagssamtök bænda leggðu fram
sem næst % kostnaðar en bún-
aðarmálasjóður y4.
Stjórn búnaðarfélags íslands
og stjórn búnaðarmálasjóðs
tóku við þessum tillögum með
þeim sérstöku skýringum, sem
hér hafa verið nefndar. Engum
af búnaðarþingsfulltrúum, né
stjórn félagsins, datt í hug, að
félagið réðist eitt í þessa gisti-
húsbyggingu, heldur að það
hefði forgöngu meðal stofnana,
er vinna fyrir landbúnaðinn um
fjárframlög í þessu skyni. Á
þeim grundvelli hefir stjórn
Búnaðarfélagsins starfað síðan.
Þeir, sem mest hafa reynt að
lítilsvirða búnaðarþing og notað
þetta gistihúsmál í því skyni,
hafa látið í veðri vaka, að verja
ætti úr búnaðarmálasjóði allt
að fjórum miljónum til gisti-
húsbyggingar, eða hirða allar
tekjur sjóðsins i 10 ár eða ef til
vill meira. Samkvæmt samþykkt
búna/ðarþings og þeim skýring-
um, sem henni fylgdu og starfað
hefir verið eftir síðan, myndi
framlag frá búnaðarmálasjóði
aldrei geta orðið meira en einn
tíundi þeirrar upphæðar, eða
allt að 400 þús. krónur.
Hér hefir verið skýrt frá
afskiptum búnaðarþings af
þessu máli og hvernig það hugs-
aði, að unnið væri að fram-
kvæmd þess. Allar hugsmíðar
um miljónaframlög úr búnaðar-
málasjóði eru út í hött. Gátu
þær að vísu verið frambornar
af ókunnugleika í fyrstu, en nú
getur því ekki verið til að dreifa
lengur, eftir að málið hefir ver-
ið skýrt í ræðw og riti.
Framhald.
(jatnla Síc
KOIVAN
I GLLGGANLM.
(Woman in the Window)
Spennandi sakamálamynd.
Edward G. Robinson,
Joan Bennett,
Raymond Masscy.
Sýnd kl. 9.
BönnuS yngri en 14 ára.
ÓKUNNI MAÐURINN.
(A Stranger In Town)
Frank Morgan,
Richard Carlson,
Jean Rogers.
Aukamynd:
Ný fréttamynd.
. Sýnd kl. 5 og 7.
• >»•
Výja SiS
V
ORÐIÐ /
Mikilfengleg sænsk stórmynd
eftir leikriti Kaj Munks.
Aðalhlutverk:
Victor Sjöström,
Vanda Rothgarth,
Rune Lindström.
Sýnd kl. 9.
UNDIR FÁNUM TVEGGJA
ÞJÓÐA.
(„Under Two Flags“)
Stórmyndin fræga með
Ciaudette Colbert,
Ronald Colman,
Rosalind Russell.
Sýndkl. 5 og 7.
>4>
LM
ÓKLNNA STIGL.
Þrjátíu bráðskemmtilegar og
spennandi ferðasögur og ævin-
týri frá ýmsum löndum, eftir
þrjátíu höfunda.
Þýðendur:
Jón Eyþórsson og
Pálmi Hannesson.
Bókin er á fjórða hundrað
síður, prýdd mörgum gullfalleg-
um myndum. Kostar kr. 52.50 í
góðu bandi.
Aðeins fá eintök eftir.
Suælandsútgáfaii,
Lindargötu 9 A, Reykjavík
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir hinn sögulega sjónleik
Yjaf'narbíó
Kvennaást
ítölsk músikmynd með dönsk-
um texta um tónskáldið Paoli
Tosti.
Claudio Gora,
Laura Adani,
Mercedes Brignor.
Sýning kl. 5—7—9.
SKÁLHOLT
(Jómfrú Ragnheiðnr)
eftir Guðmund Kamban
Sýning annað kvöld kl. 8.
#
Aðgöngumiðar seldir á morgun kl. 4—7.
:::«::::n:un
Útgerðarmenn!
Fyrirliggjandi:
Dragnótartog, fiskilínur, önglar öngultaumar.
Jónsson & Júlíusson,
Garðastræti 2. — Sími 5430.
:::::::::::u:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::u::u:::::::::u
Kaupfélags-
stjórasfaða
|| Kaupfélagsstjórastaðan viö Kaupfélag
♦♦
j| Hallgeirseyjar að Stórólfshvoli er laus til
|| umsóknar. /
II Umsóknir sendist Sambandi ísl. Sam-
H vinnufélaga.
♦t
♦♦
:: ,
( Samband ísl. samvinnufélaga
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu:
Sumarbústaður
Eyðibýli með nothæfum húsa-
kynnum, æða annað húsnæði í
sveit, óskast keypt, eða á leigu
fyrir sumarbústað.
Sigurvin Einarsson,
Símar 2085 og 4800. Pósthólf 26.
crfiq i i:ia .
„Ármann”
Aukaferð til Sands, Ólafsvík-
ur, Grundarfjarðar og Stykkis-
hólms. — Vörumóttaka á morg-
un (föstudag).