Tíminn - 02.07.1946, Blaðsíða 4
Skritstota FramsóknarfLokksins er i
Edduhúsiriu við Lindargötu. Sími 6066
FRAMSÖKNARMENN!
Komið í kosni.Lgaskrifstofuna
2. JlJLI1946
116. blað
(jatnla SíÓ
íslenzk ull í íslenzku veðurfari
Mánuðirnir líða, tímarnir breytast, en íslenzku ullarefnin eru ævinlega bezti klæðnaðurinn.
TWEED-efnin frá GEFJUN eru fyrir löngú landskunn fyrir góða endingu og smekklegan vefnað. — Nú vinna
þau sér orð utan landssteinanna. Daglega berast verksmiðjunni fyrirspurnir um TWEED-DÚKA frá mönnum
í ýmsum löndum, sem hafa kynnzt dúkum, er herinn hafði með sér heim. —
Spyrjist fyrir um TWEED-DÚKANA hjá útsölum verksmiðjunnar. Verðið er hagkvæmt. Gæðin óyggjandi.
tslenzk ull vctnr, sumar, vor og Eiaust!
Ullarverksmiðjan GEFJUN
Aðalfundur Leikfélagsins
Aðalfundur Leikfélags Reykja-
víkur var haldinn síðastliðinn
laugardag 29. júní.
Formaður félagsins Brynjólf-
ur Jóhannesson gaf skýrslu um
starfsárið. Á leikárinu voru
sýnd fimm leikrit en þau voru
þessi: Gift eða ógift, leikið 9
sinnum að þessu sinni en hafði
verið sýnt árið áður 15 sinnum.
Næst var l'eikritið Uppstigning,
eftir prófessor Sigurð Nordal,
14 sinnum, þá var jólaleikritið
en það var að þessu sinni Skál-
holt, eftir Guðmund Kamban,
sýnt 40 sinnum. Þar næst hóf-
ust sýningar á sænska alþýðu-
leiknum Vermlendingarnir, eft-
Dahlgren/Moberg og urðu þær
20 og loks var enska leikritið
Tondeleyo (White Cargo), eftir
Leon Gordon, 5 sýningar. —
Alls eru þetta 88 sýningar á
leikárinu. — Leikstjórar voru
Lárus Pálsson, Haraldur Björns-
son og Indriði Waage-
Gjaldkeri félagsins lagði fram
bráðabirgða reikningsyfirlit. sem
sýndi að lítilsháttar hagnaður
hefir orðið á rekstrinum, en
endurskoðaðir reikningar fé-
lagsins verða lagðir fram á
framhaldsaðalfundi, sem hald-
inn verður í haust.
Félagið hafði lagt í mikinn
kostnað við kaup á nýjum og
mjög fullkomnum ljósatækjum
frá Englandi, og voru þau fyrst
notuð við sýningar á leikritun-
um Vermlendingarnir og
Tondeleyo og hefir þegar sýnt
sig, að þau eru til stórbóta fyrir
leikhúsið.
í stjórn félagsins fyrir næsta
starfstímabil voru kosin: Bryn-
jólfur Jóhannesson formaður,
Valur Gíslason, ritari, frú Þóra
Borg Einarsson, gjaldkeri, öll
endurkosin, og í nefnd til að
annast leikritaval með félags-
stjórninni voru kosin frk. Arn-
dís Björnsdóttir og Þorsteinn
Ö. Stephensen. — í varastjórn
voru kosin Gestur Pálsson, vara-
form., Valdimar Helgason, vara-
ritari, Hallgrímur Bachmann,
varagjaldkeri.
Á næsta ári er 50 ára afmæli
félagsins, og er þegar hafinn
undirbúningur að halda það há-
tíðlegt á ýmsan hátt. — Til
dæmis er í ráði að gefa út veg-
legt minningarrit og annast
þeir útgáfu þess Valur Gíslason,
Haraldur Björnsson og Lárus
Sigurbjörnsson.
Til aðstoðar stjórninni við
annan undirbúning afmælishá-
tíðarinnar voru kosin frú Krist-
ólína Kragh og Lárus Ingólfs-
son.
Aöalfundinum var frestað
þar til reikningar félagsins eru
að fullu tlbúnir og endurskoð-
aðir.
Kosiiingaiirslitin.
(Framhald af 2. síðu)
C-listi Sósíalistafl. 248 atkv. og
E-listi, óháðir Framsóknarmenn
(Bjarni Bjarnason) 257 atkv. —
Við síðustu þingkosningar hlaut
Framsóknarflokkurinn 1285 at-
kvæði, Sjálfstæðisflokkurinn 824
atkv., Alþýðufiokkurinn 153 at-
kvæði og Sósíalistar 256 atkv.
Vestur-Skaptafellssýsla.
Kosinn var Gísli Sveinsson
(S.) með 221 atkv., Hihnar
Stefánsson (F.) hlaut 280 atkv.,
Ólafur Þ. Kristjánsson (A.) 26
atkv. og Runólfur Björnsson
„Vér eriim liingað
komnir til að
[iroskast44.
(Framhald af 3. síðu)
an um hyldýpis haf, hingað í
sælunnar reit, reistu hér byggð-
ir bú, í blómguðu dalanna
skauti, jukust að íþrótt og frægð
og undu svo glaðir við sitt.“ —
Mér finnst sem við stöndum hér
fyrir rétti. Mér finnst sem þess-
ir virðulegu fulltrúar íslenzkrar
náttúru mæni nú á okkur spurn-
araugum. Ef fjöllin mættu tala
og ef við gætum skilið mál
bjarkanna og söng árinnar,
myndum við sennilega heyra
þessum spurningum beint til
okkar: — Ætlið þið, sem nú
eigið hér ból, að una áfram
glöð í skauti dalanna, eins og
forfeður ykkar gerðu, eða ætlið
þið að láta lokkast héðan vegna
vafasamra fyrirheita um á-
hyggjulausara og fyrirhafnar-
minna líf í margmenni bæj-
anna? Ætlið þið að ala börn
ykkar upp við hina hljómþýðu
og samstilltu tóna ár og lækja og
(Sós.) 78 atkv. I síðustu þing-
kosningum hlaut Sveinbjörn
Högnason (F.) 437 atkv., Gísli
Sveinsosn (S.) 410 atkv. og Run-
ólfur Björnsson (Sós.) 38 atkv.
Dalasýsla.
Kosinn var Þorsteinn Þor-
steinsson (S.) með 364 atkv., Jón
Guðnason (F.) hlaut 301 atkv.,
Hálfdán Sveinsson (A.) 23 atkv.
og Játvarður J. Júlíusson (Sós.)
21 atkv.
við þyt vindanna í strái og
björk, eða hafið þið hugsað
ykkur að láta sálir þeirra mót-
ast við urgandi skarkala og þys
borgarlífsins? Ætlið þið að láta
dragast frá athafnalífi, þar sem
hver og einn fær í fullu frelsi
að upphugsa sinn veg, að störf-
um, þar sem einum er ætlað að
hugsa fyrir marga Ætlið þið að
hörfa undan merkjum þeirra
menningarhátta, sem fyrrum
náðu að skapa þessari örsmáu
þjóð áberandi og ‘veglegan sess
meðal þjóða heimsins, að þjóð
lífsháttum, sem munu fljótlega
gera íslerizka menningu að ó-
merkilegri vasaútgáfu af menn-
ingu annarra þjóða? — Mér
finnst að ég geti lesið svörin á
andlitum ykkar, og svo viröist
sem bjarkirnar, sem standa hér
í kring, geti líka lesið þau. — Ég
sé að þær kynnka glaðlega kolli
í áttina til okkar.
En sé það ásetningur okkar,
sem búum nú í sveitum þessa
lands, að reyna að varðveita
það svigrúm og persónufrelsi,
sem hefir reynst menningu þess-
arar þjóðar svo mikilsvert, meg
unv við aldrei láta okkur sjást
yfir eitt. — Við megum aldrei
gleyma að hagnýta okkur til
hins ýtrasta það frelsi, sem
aldrei verður af neinum manni
nauðugum tekið — hugsana-
frelsið. Við verðum að temja
okkur að vaka yfir sjálfstæði
dómgreindar okkar. Við verðum
að láta hana standa vel á
verði andspænis því, sem við
heyrum og lesum. Við megum
ekki láta sefjast af neins konar
áróðri. Við megum ekki láta
Canterville - draug*
urinn
(The Canterville Ghost)
Charles Laughton
Robert Young
Margaret O.Brien
Bönnuð börnum innan
14 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1.
tiýja Síc
(við SUúlagötu)
•f
FRAMSÓKNARMENN
í REYKJAVÍK.
Einbeitið kröftum ykkar að
því, að Pálmi Hannesson verði
kosinn þingmaður Reykvíkinga.
Tryggið kosningu glæsilegasta
frambjóðandans.
Komið í
KOSNIN GASKRIFSTOFIJ
FRAMSÓKNARFLOKKSINS,
Edduhúslnu við Lindargötu,
Sími 6066 og 6599.
Saga
Borgsiræt tariimar
Mynd tekin á kvikmynd 1919
eftir skáld sögu G.innars Gunn-
arssonar. 1 eikin t f dönskum og
íslen :kum tákurum.
Sýnd kl. 6 og 9.
Sala hefst kl. 11.
Myndin verður ekki sýnd í
Hafnarfirði eða annars staðar.
Sala hefst kl. 11.
TjiWUV'tíC
Sigrún
á Siumulivoli
Sænsk kvikmynd.
Viktor Sjöström
Karin Eklund
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
Biðjið verzlun
yðar um
Svefqpoka
Tjöld
Bakpoka
og aðrar sport-
S vörur frá
AGNA H.F.
ARÐSÚTHLUTUN
fyrir árið 1945, fer fram daglega í skrif-
stofii vori.
íslenzkra skipshafna
Garðastræti 2.
Sími: 3141.
.::::::«:::::::«::::«::::::::::::::::::::::«::::::«::w:«::::«:::«::::::«:::::::::::::«««««
neinar fortölur eða fagurgala
koma okkur til að afsala okkur
réttinum til að hugsa. Við verð-
um að gera að lygi þá kenn-
ingu áróðursmeistaranna. að
það sé hægt að leiða alþýðu sér-
hvers lands út í hvað sem er,
ef básúna blekkinganna er bara
látin hljóma nógu lengi í eyr-
um hennar. — Við eigum að sld
á sérhverja hönd, hversu vina-
lega sem hún lœtur, sem œtlar
að bjóða okkur brauð fyrir
frelsi. — Vér erum ekki kominn
í þennan heim til þess bara að
matast. Vér erum kominn hing-
að til að þroska sálir vorar. —
Þann þroska öðlumst vér ekki
nema fyrir harða og marg-
þætta baráttu, sem vér fáum í
fullu frelsi að heyja, hver fyrir
sig. — Látum ekki taka þá bar-
áttu frá oss. Látum ekki taka
frá oss frelsið til að heyja
hana.---------
Þjóðveldið var upprunalega
stofnsett í þessu landi til að
tryggja þeim einstaklingum,
sem byggðu það, eins mikið
svigrúm til frjálsra athafna og
einstaklings þroska og verða
mætti. Látum oss ekki gleyma
þeim sögulegu sannindum. Lát-
um oss ekki heldur gleyma þeim
glæsilega menningarárangri,
sem náðist hér á frelsistímabil-
inu ískjóli þessa stjórnskipu-
lags. — Vinnum öll í dag það
heit, að vér viljum reyna að
feta sem trúlegast í fótspor
hinna frægu forfeðra vorra og
sækja fram til einstaklings
sjálfstæðis, drengskapar og
dáða. — Með- því vinnum vér í
senn bezt að hamingju vorri,
hvers og eins, og að hamingju
þessarar þjóðar. — Því eins og
skáldið Einar Benediktsson seg-
ir:
„Dáð hvers eins er öllum góð,
hans auðna félags gæfa.
Og markið eitt hjá maiini
og þjóð,
hvern minnsta kraft að æfa.
Þann dag, sem fólkið finnur það
og framans hlýðir kenning,
í sögu þess er brotið blað
— þá byrjar íslands menning."