Tíminn - 04.07.1946, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.07.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: i ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: PRAMSÓKN ARPLOKKURINN \ \ Símar 2353 og 4373 ' PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. \ 30. árg. RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIPSTOPA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A Sími 2323 117. blað óhagstæð úrslit í kjördæmunum utan bæjanna: Framsóknarflokkurinn hefir tapaö tveimur þingsætum og nokkur hundruð atkvæðum Hann er þó áfram langstærsti flokkurinn utan kaupstaðanna Úrslit kosninganna eru nú kunn orðin í öllum kjördæmum, nema í Norður-Múlasýslu. Samkvæmt úrslitum, sem Jtegar eru kunn orðin, hefir Framsóknarflokkurinn fengið 14.257 atkvæði cða 843 atkv. minna en í haustkosningunum 1942, Alþýðuflokk- urinn hefir fengið 12.130 atkvæði eða 3689 atkv. fleira, Sósíal- istaflokkurinn hefir fengið 12.949 atkv. eða 1958 atkv. fleira en 1942, ög Sjálfstæðisflokkurinn 26.083 eða( 3.330 atkvæðum fleira en þá. Þess ber að gæta, að ekki eru talin í heildartölu Fram- sóknarflokksins þau 357 atkvæði, sem óháðir Framsóknarmenn fengu í Árnessýslu, því að listi þeirra var, vegna formgalla, úr- skurðaður utanflokka, og um 150 atkv. hafa tapazt, miðað við seinustu kosningar, vegna þess, að ekki var boðið fram að þessu sinni í Norður-ísafjarðarsýslu og á Seyðisfirði, en frambjóðend- ur Alþýðuflokksins studdir þar. Raunverulega er atkvæðatap Framsóknarflokksins því ekki nema 300—400 atkv. Flokkarnir hafa nú fengið þingsæti, eins og hér segir: SjálÍT stæðisflokkurinn 19, unnið eitt (Gísli Sveinsson), Framsóknar- flokkurinn 11, tapað 2, Kommúnistar 5, unnið 1, Alþýðuflokk- urinn 4, óbreytt. Ekki er fullséð enn, hvernig uppbótarsætin munu skiptast. Hér fara á eftir úrslitin í þeim kjördæmum, sem ekki hefir áð- ur verið sagt frá: Danska lands- liðið keppir hér þrjá leiki Ákveðið hefir verið, að danska landsliðið, sem kemur hingað til lands þ. 15. þ. m., keppi hér þrjá leiki. Keppir það hinn 17. júlí milliríkjaleikinn við ís- lenzka landsliðið. Hinn 19. kepp- ir það við íslandsmeistarana, Fram, og hinn 21. verður síðasti leikur við úrvarlslið úr Reykja- víkurfélögunum. í fyrradag skýrði nefnd sú, sem annazt hefir allan undir- búning undir móttöku liðsins, blaðamönnum frá störfum sín- um. Gat hún þess, að tekið yrði á móti knattspyrnumönnunum með mikilli viðhöfn og,að þeim mundi verða sýndur margvís- legur sómi, meðan þeir dveldu hér. Hefði þeim verið útveguð gisting í Stúdentagarðinum gamla. Koma knattspyrnu- mennirnir með Dro.ttningunni og fara héðan flugleiðis til Stokkhólms hinn 24. júlí. Fararstjóri dönsku knatt- spyrnumannanna verður Leo Frederiksen, forseti danska knattspyrnusamb. — Þá hef- ir alþjóðasamband knattspyrnu- manna skipað dómara til að dæma milliríkjaleikinn. Er það norskur maður, Th. Christen- sen, að nafni. Þá verður einnig með í förinni Gunnar Hansen, en hann er einn kunnasti í- þróttaútvarpsþulur Dana. Kem- ur hann hingað á vegum danska útvarpsins. Ennfremur fimm blaðamenn frá stórblööunum í Danmörku. Sökum mikillar eftirspurnar eftir aðgöngumiðum á leikina hefir verið ákveðið að selja þá sérstaklega og verður sölustað- urinn auglýstur síðar. Verðið er: 15 kr. stæði, 20 kr. stólsæti og 25 kr. stúkusæti, og verða sætin i hepni númeruð til þess að koma í veg fyrir, að of mik- ið verði selt í hana. Hið háa verð miðanna stafar af því, að K. R- R. og aðrir, sem sjá um móttöku flokksins, kosta að öllu leyti uppihald hans hér og ferð- ir fram og til baka. Þá hefir verið endanlega gengið frá vali þeirra knatt- spyrnumanna, • er æfa á fyrir kappleikina við Dani. ( Voru 22 menn valdir og verða þeir æfðir í nokkra daga, en síðart velur Knattspyrnuráði, í samráði við þjálfarann, 11 menn í landsliðið. Þjálfari liðsins verður Freddie Steele, þjálfari K. Ry . Hinir útvöldu eru: Albert Guðmundsson V., Anton Sig- urðsson Vík., Birgir Guðjónsson K.R., Brandur Brynjólfsson Vík., Ellert Sölvason V., Frímann Helgason V., Hafliði Jónsson K. R., Hafsteinn Jónsson V., Hauk- ur Óskarsson Vík., Hermann Hermannsson V-, Hörður Óskars- son K.R., Jón Jónsson K.R., Karl Guðmundsson Fram, Kristján Ólafsson Fram, Magnúg Guð- mundsson Fram, Óli B. Jóns- son K. R., Ríkharður Jónsson Akranesi, Sigurður Ólafsson V., Sveinn Helgason V., Sæmundur Gíslason Fram, Valtýr Guð- mundsson Fram og Þórhallur Einarsson Fram. Eyðing tundurdufla Samkv. skýrslu, sem Skipaút- gerð ríkisins hefir nýlega bor- izt frá Skarphéðni Gíslasyni í Hornafirði, hefir hann dagana 19.—20. júní s. 1. gert óvirkt eitt takkadufl og sprengt annað í loft upp á Viðborðsfjöru vestan Hornafjarðar. Snæfellsnessýsla. Þar var kjörinn Gunnar Thóroddsen (S.) með 693 at- kvæðum. Óiaíur Jóhannesson (F.) fékk 512 atkvæði, Ólafur Ólafsson (A.) 324 og Ólafur H. Guðmundsson (Sós.) 64. — Á kjörskrá voru 1803 ep atkvæði greiddu 1618. Auðir seðlar voru 13 og 12 ógildir. Við seinustu kosningar fékk Gunnar Th. (S.) <762 atkvæði, Bjarni Bjarnason (F.) 726 at- kvæði Ólafur Friðriksson (A.) 81 og Guðmundur Vigfússon (Sós.) 86. Barðastrandarsýsla. Kjörinn var Gísli Jónsson frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins með 608 atkvæðum, Halldór Kristjánsson (F.) fékk 410 at- kvæði, Guðmundur Hagalín (A.) fékk 128 atkvæði og Albert Guð- mundsson (Sós.) fékk "177 at- kvæði. Á kjörskrá voru 1657, en 1348 kusu. Auðir seðlar og ó- gildir voru 25. Við seinustu kosningar fékk Gísli Jónsson (S.) 695 atkvæði, Bergur Jónsson (F.) fékk 565 at- kvæði, Helgi Hannesson (A.) 109 og Albert Guðmundsson (Sós.) 97 atkv. Vestur ísaf jarðarsýsla. Þar var kjörinn Ásgeir Ás- geirsson (A.) með 406 atkvæð- um, Guðmundur Ingi Kristjáns- son, (F.) fékk 337 atkvæði, Ingi- ■ mar Júlíusson (Sós.) 28 og Axel Túlinius (S.) 264. Á kjörskrá voru 1170, atkvæði greiddu 1043. Auðir seðlar voru 5 og 3 ógildir. Við seinustu kosningar fékk Ásgeir Ásgeirsson (A.) 384, Hall- dór Kristjánsson(F.) 351, Gunn- ar Össurarson (Sós.) 20 og Torfi Hjartarson (S.) 350 aycvæði. Norður-ísafjarðarsýsla. Þar var kjörinn Sigurður Bjarnason (S.) með 621 atkvæði, Hannibal Valdimarsson (A.) fékk 488 atkvæði og Jón Tímó- teusson (Sós.) 60 atkvæði. Landlisti Framsóknarflokksins hlaut 28 atkvæði. Á kjörskrá voru 1379, en ackvæði greiddu 1207. Auðir seölar voru 3 og 7 ógildir. Við seinustu þingkosningar hlaut Sigurður Bjarnason (S.) 672 atkvæði, Kristján Jónsson (F.) 127, Barði Guðmundsson (A.) 392, Aðalbjörn Pétursson (Sós.) 41 ^tkvæði. Strandasýsla. Kosinn var Hermann Jónas- son frambjóðandi Framsóknar- flokksins og hlaut hann 461 at- kvæði. Jón Sigurðsson (A.) fékk 39 atkvæði, Haukur Helgason (Sós.) fékk 139 og Kristján Ein- arsson (S.) 339 atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru samtals 16. Á kjörskrá voru 1095, at- kvæði greiddu 994. Við seinustu kosningar hlaut Hermann Jónasson (F.) 568 at- kvæði, landlisti Alþýðuflokksins 13, Björn Kristmundsson (Sós.) 92 og Pétur Guðmundsson (S.) 185. Vestur-Húnavatnssýsla. Kosningu hlaut frambjóðandi Framsóknarflokksins, Skúli Guðmundsson kaupfélagsstjóri Hvammstanga. Hlaut hann 314 atkvæði. Björn Guðmundsson (A.) fékk 28 atkvæði, Guðbrand- ur ísberg (S.) fékk 202 atkvæði, Skúli Magnússon (Sós.) fékk 81 atkvæði, Hannes Jónsson utanfl. fékk 93 atkvæði. Á kjörskrá voru 849, en atkvæði greiddu 727. Auðir seðlar voru 8 og 1 ó- gildur. Við seinustu alþingiskosning- ar voru úrslit þau, að Skúli Guð- mundsson (F.) fékk 348 atkvæði, Guðbr. ísberg (S.) 215, Skúli Magnússon (Sós.) 69 og landlisti Alþýðuflokksins 20. Skagafjarðarsýsla. Þar voru kjörnir Steingrímur Steinþórsson efsti maður á lista Framsóknarfiokksins og Jón Sigurðsson efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Listi Fram sóknarflokksins fékk 865 atkv., listi Sjálfstæðisfl. 651, listi Al- þýðuflokksins 194 og listi Sós. 112. Á kjörskrá voru 2236, en atkvæði greiddu 1856. Auðir seðlar voru 14 og 20 ógildir. Við seinustu kosningar fékk listi Framsóknarflokksins 1050 atkvæði, listi Alþýðufl. 89, listi Sós. 84 og listi Sjálfstæðisfl. 713 atkvæði. Eyjafjarðarsýsla. Þar voru kjörnir Bernharð Stefánsson efsti maður á lista Framsóknarflokksins og Garðar Þorsteinsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Listi Fram- sóknarflokksins fékk 1295 atkv., listi Alþ.flokksins 213, listi Sós. 366 og listi Sjálfstæðisflokksins 810 atkvæði. Á kjörskrá voru 3146, en atkvæði greiddu 2719. Auðir seðlar voru 25 og óg. 10. Við seinustu kosningar fékk listi Framsóknarflokksins 1373 atkvæði, listi Alþýðufl. 73, listi Sós. 294 og listi Sjálfstæðisfl. j 796 atkvæði. Suður-Þingeyjarsýsla. Þar var kjörinn Jónas Jóns- son, sem taldi sig Framsóknar- mann. Fékk hann 834 atkvæði, Björn Sigtryggsson, frambjóð- andi Framsóknarflokksins, fékk 541 atkvæði, Bragi Sigurjónsson (A.) fékk 116 atkvæði, Jónas Haralz (Sós.) fékk 332 atkvæði og Leifur Auðunsson (S.) 107. Landlisti Framsóknarflokksins fékk 32 atkv. Á kjörskrá voru 2395, en atkvæði greiddu 1984. Auðir og ógildir seðlar voru 22. Við seinustu þingkosningar fékk Framsóknarflokkurinn 1157 atkv., Sósíalistafl. 336, Sjálfstæðisflokkurinn 218 og Al- þýðufl. 74. í vorkosningunum sama ár fékk Sjálfstæðisflokk- urinn 348 atkvæði, en þá var betri kjörsókn en um haustið. Björn Sigtryggsson og landlisti Framsóknarfl. fá því nú um helming af því fylgi, sem J. J. fékk 1942, og hefir J. J. því kom- izt inn með tilstyrk íhalds- manna. Norður-Þingeyjarsýsla. Þar var kjörinn Björn Krist- jánsson frambjóðandi Fram- sóknarflokksins með 558 at- kvæðum. Jón P. Emils (A) fékk 71 atkvæði, Klemens Þorleifs- son (Sós) 59 og Óli Hertervig (S) 148 atkvæði. Á kjörskrá voru 1010 en atkvæði greiddu 840.'\Auðir seðlar voru 3 og 1 ógildur. Við seinustu þingkosningar fékk Gisli Guðmundsson (F) 590 atkvæði, Landslisti Alþýðu- flokksins 18, Kristjján Júlíusson Úrslit þing- kosninganna í blaðinu á morgun mun birtast grein eftir Her- mann Jónasson, formann Framsóknarfl. um úrslit þingkosninganna. (Sós) 61 og Benedikt Gíslason (S) 106 atkvæði. Suður-Múlasýsla. Þar voru kosnir efsti maður á lista Framsóknarflokksins Ing- var Pálmason og efsti maður á lista Sós. Lúðvík Jósefsson. Listi FramsóknaVflokksins hlaut 1296 atkvæði, listi Al- þýðufl. 231 atkvæði, listi sós. 714 og listi Sjálfstæðisfl. 505. Á kjörskrá voru 3125 en 2779 greiddu átkvæði. Auðir seðlar voru 18 og 15 ógildir. Við seinustu kosningar fékk listi Framsóknarflokksins 1257 atkvæði, listi Alþýðufl. 245, listi Sós. 548 og listi Sjálfstæðisfl. 543 atkvæði. Austur-Skaftafellssýsla. Þar var kjörinn Páll Þor- steinsson frambjóðandi Fram- sóknarflokksins með 288 atkv. Landslisti Alþýðufl- fékk 4 at- kvæði, Ásmundur Sigurðsson (Sós.) fékk 133 atkvæði, Gunn- ar Bjarnason (S) fékk 234 at- kvæði. Á kjörskrá voru 745 en atkvæði greiddu 673. Auðir seðlar voru 7 og 7 ógildir. Við seinustu þingkosningar fékk Páll Þorsteinsson (F) 294 atkvæði, Landslisti (A) 4. Ás- mundur Sigurðsson (Sós.) 102 og Helgi Hermann Eiríksson (S) 211 atkvæði. T undur spillarnir á ytri höfninni í fyrradag komu hingað á ytri höfnina tveir brezkir tund- urspillar og munu þeir hafa hér viðdvöl í eina til tvær vikur. Þessif tundurspillar eru hér á vegum Skipaútgeröar ríkisins og hafa þeir að undanförnu verið fyrir Austurlandi við tundur- duflaeyðingar- Hafa þeir nú lo'kið þessu starfi sínu þar í bráð, en að viku liðinni munu þeir halda til Grænlandshafs og hefja tundurduflaeyðingar á þeim slóðum. í gær komu enn nokkrir tund- urspillar til viðbótar og eru þeir á sömu leið og hinir. Varðbátunum skilað aftur til Bretlands Samkomulag hefir náðst við brezka flotamálaráðuneytið um að það gefi kost á að hinum Stjórnarliðið fagnar stundarsigri Eysteinn Jónsson• Þau úrslit, sem stjórnarliðar fagna mest yfir I þessum kosn- ingum, eru fall Eysteins Jóns- sonar í Suður-Múlasýslu. Eysteinn Jónsson var þar í sæti, sem stjórnarflokkarnir ætluðu að taka af Framsóknar- flokknum með stjórnarskrár- breytingunni 1944, en heppnað- ist það þá ekki vegna hinna miklu vinsælda Eysteins í sýsl- unni. Þegar framboðin voru á- kveðin í vor, þóttu litlar líkur til, að E. J. myndi geta haldið sætinu, þar sem veruleg fækk- un hafði orðið í sveitunum og vitað var, að Sósíalistum hafði aukizt fylgi. Margir vildu því hafa E. J. í fyrsta sæti, en hon- um var það fjarri skapi að víkja úr baráttusætinu. f engu kjördæmi var háð haröari barátta í þessum kosn- ingum en í Suður-Múlasýslu, því að stjórnarliðum þótti ekk- ert eftirsóknarverðara en að fella þennan glæsilegasta bar- áttumann Framsóknarflokksins. Þrátt fyrir þessa hörðu aðsókn stjórnarliðsins, tókst E. J. að hækka atkvæðatölu flokksins í Suður-Múlasýslu verulega, og Framsóknarflokkurinn fékk þar raunverulega hagstæðustu úr- slitin í þessum kosningum, þótt það nægði ekki til að bjarga þingsætinu. Stjórnarliðið er að vonum kampakátt yfir þessum úrslit- unji, og þó alveg sérstaklega Morgunblaðið, er lét enn meiri fögnuð í ljós en sjálfur Þjóð- viljinn. En þessi fögnuður stjórnarliðsins mun ekki verða langær, því að það mun fljótt fá að finna, að Framsóknar- flokkurinn nýtur enn starfs- krafta E. J. óskertra og undir öruggri og framsækinni forustu hans mun flokkurinn rétta hlut sinn aftur og bæta það meira en til fulls, er tapazt hefir að þessu sinni. þrem hraðbátum verði skilað og kaupverðið endurgreitt, enda verði því varið til kaupa eða smíði á nýjum skipum í Bret- landi, ef viðunandi verðtilboð og samningar názt. Nefnd sú, er dómsmálaráðuneytið skipaði til þess að athuga varðskipamálið, taldi að eigi væri völ á hentug- um skipum í skiptum fyrir hin og mun leggja til að sérstök varðskip verði smíðuð til strand- gæzlunnar, og nú þegar er vitað að unnt er að fá slík skip smlð- uð í Bretlandi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.