Tíminn - 06.09.1946, Síða 2

Tíminn - 06.09.1946, Síða 2
2 TtMIM, föstttdaglmi 6. sept. 1946 161. blað Föstudagur 6. sept. Einhuga stétt Aðalfundi Stéttarsambands bænda er lokið. Þar voru full- trúar bænda úr öllum héruð- um landsins saman komnir, — menn með mismunandi skoð- anir og viðhorf, ungir menn og gamlir, sem búa við hin ólík- legustu skilyrði íslenzks land- búnaðar. Ýmsir gerðu sér vonir um það, að fundur bændanna yrði rifr- ildissamkoma, þar sem menn körpuðu um ýms atriði, smá og stór, og skildu ósáttir. Það eru svo margir, sem telja sig hafa hag af því, að bændastéttin sé sundruð. Stofnfundur Stéttarsam- bandsins á Laugarvatni í fyrra gaf óvinum bændanna nokkr- ar vonir í þessum efnum. Þar var ágreiningur um formsat- riði, enda ekki til sparað af sumum, sem utan við stóðu, að ala á allri misklíð og reyna að vekja tortryggni. En fundurinn á Hvanneyri nú var mótaður af einhug sam- einaðrar stéttar. Þar voru menn, sem fundu til þess, að þeir urðu fyrst og fremst að standa sam- an um málefni landbúnaðarins. Þeím var það Ijóst, að sam- heldni og styrkur bændastétt- arinnar var aðalatriðið. Þegar menn, sem eiga sam- leið og samstöðu, vilja svika- laust samstarf í raun og veru, geta engin aukaatriði sundrað þeim. Það sýndi sig nú á fund- inum á Hvanneyri. Gæfa bændanna, einhugur þeirra og stéttarmeðvitund hef- ir hér orðið sterkari en undir- róður og óskir þeirra, sem vilja bændastéttina veika og sundr- aða. Fyrir bændur landsins er það að sjálfsögðu bæði hagsmuna- og metnaðarmál, að grund- völlur er lagður að traustu sambandi þeirra í stéttarfélags- skap. Þó að ekki sé verið að mæla bót öllu, sem hefir við- gengist í stéttabaráttu síðustu ára og þar þurfi bæði festu og hófs^mi, ef vel á að fara, þá er það alveg víst og augljóst mál, að ef einhver stétt er sundruð og tómlát um sín mál, verður hlutur hennar fyrir borð bor- inn. Það getur vel verið, að stjórnarvöld landsins séu um stundarsakir óvinveitt og erfið heilum stéttum eins og bænda- stéttinni. En sú stétt, sem þjóð- félaginu er nauðsynleg og stendur einhuga saman örugg og traust, án þess að leggja sig eftir óþörfum deilum, verður ekki lengi höfð réttlítil og ut- angátta. Þetta vita þeir, sem vilja hlut bændastéttarinnar sem minnst- an. Þeir binda vonir sínar við sundrungu hennar. Þeim er það ljóst, að einhuga bænda- stétt verður ekki til lengdar veik og lítilsmegandi um mál- efni þjóðfélagsins. Þessum mönnum verður ekki verra gert með öðru en einingu bændanna, því að þeir vita, að þar eftir fer styrkur þeirra. En þetta er þó ekki sérmál bændanna, sem ekki kemur öðrum við. Állir þeir, sem unna íslenzkum landbúnaði og jafn- vægi í þjóðlífinu, hljóta að taka einingu bændanna með fögnuði, því að það er bænda- stéttin ein, sem hefir aðstöðu *til þess að verja hlut sinn og 'rétt. Því munu allir þeir, sem Fulltrúafundur norrænna þingmanna í Osló Viðíal við Bjarna Ásgeirsson alþingismaim. Tíminn hefir fundið að máli Bjarna Ásgeirsson alþingismann, sem var einn af íslenzku fulltrúunum, sem sátu mót norrænna þingmanna, er nýskeð var haldið í Osló. Spurði tiðindamaður blaðsins hann um mótið og fundina og sagðist honum svo frá: — Þetta er 25. mót norrænna þingmanna og var það að þessu sinni í Osló og fundir þess haldnir í hinum veglega fund- arsal norska Stórþingsins. Á móti þessu voru fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum fimm, 70—80 alls og af öllum stjórn- málaflokkum. Frá íslandi voru fjórir fulltrúar sinn frá hverj- um flokki og voru þeir auk mín Gunnar Thoroddsen, sem var formaður fulltrúanefndarinnar, svo og Sigfús Sigurhjartarson og Stefán Jóhann Stefánsson. Ritari nefndarinnar var Jón Sigurðsson skrifstofustjóri Al- þingis. Konur okkar, sem og flestra þingfulltrúanna, voru einnig með í förinni. Eiginkonunum var ekki látið leiðast. Ekki sátu þær fundina, en vel hafði verið fyrir því séð, að þeim ekki leiddist á meðan við sátum á fundum, með smá- ferðalögum um borgina og um- hverfi hennar, þar sem þeim voru sýndir fagrir og markverð- ir staðir. — Nokkrar konur voru þingfulltrúar frá hinum Norðurlöndunum. Ókunnugt er mér um hvort þær höfðu bænd- ur sína með í förinni og ekki varð ég áskynja neinna ráð- stafana þeirra vegna meðan á fundum stóð. Fundarefnin. Fundirnir stóðu yfir dagana 18.—20. ágúst og voru aðalmál- in, sem tekin voru til meðferð- ar þessi: 1. Stjórnskipulegur neyðar- réttur (nauðsyn brýtur lög). 2. Þátttaka Norðurlanda í alþjóð- legu starfi, og 3. samvinna Norðurlanda i menningar- og fjárhagsmálum. Framsögumenn að málum þessum höfðu verið valdir: að 1. lið norski prófess- orinn Tvede Castbug, sem gerði ýtarlega lögfræðilega grein fyrir hinni sérstæðu stjórnskipan Norðmanna á stríðsárunum; að 2. lið fyrv. hermálaxáðherra Dana, Ole Björn Kraft, og að 3. lið sænski ráðherrann Gjöres og ennfrem- hafa samúð með íslenzkum landbúnaði og telja hann þjóð- arnauiðsyn, fagna einingu bændanna. Það eru tveir hópar manna, sem fundurinn á Hvanneyri verður til angurs. Annars veg- ar eru einhverjir valdastreitu- menn og spekúlantar, sem telja persónulegfli dýrð sinni stafa hætta af málefnalegri sam- stöðu bænda. Hins vegar eru þeir, sem líta ræktun landsins ilfu auga og telja landbúnað á íslandi hagfræðilega vitleysu og glapræði. Hvorugum þessum hópi manna þurfa bændur landsins eða yfirleitt aðrir þjóðhollir menn á íslandi neitt sérstakt að þakka eða virða við. Hvaaneyrarfundur Stéttar- sambands bænda sýnir skilning bændanna á aðalatriðunum, félagsþroska þeirra og einhug á þann hátt, að það gleður alla hófsama og góðgjarna menn, sem unna jafnvægi og heil- brigðum alhliða vexti í þjóðlíf- inu. ur tveir fyrrverandi ráðherrar, þeir Christmas Möller frá Dan- mörku og Andrén frá Svíþjóð. Um öll málin urðu allmiklar umræður og tóku þátt í þeim fulltrúar frá öllum löndunum, Formaður íslenzku nefndar- innar, Gunnar Thoroddsen pró- fessor, talaði af hálfu hennar í umræðunum um tvo fyrstu lið- ina, þar sem hann í stuttum en greinagóðum ræðum skýrði frá neyðar- eða nauðalöggjöf þeirri, er ísland sá sig til knúið að grípa til á styrjaldarárunum, svo og því alþj óðastarfi, sem ísland hafði tekið þátt í þann tíma, er það hefir sjálft farið með utanríkismál sín. Stefán Jóh. Stefánsson tók þátt í umræðunum um sam- vinnu Noyðurlanda af hálfu ísl. nefndarinnar, og gat um vilja íslendinga að taka þátt í hinni menningarlegu sam- vinnu Norðurlanda, svo og hagrænu samstarfi í ýmsum greinum, eins og t. d. samvinnu við Norðmenn í fisksölumálum. Þá minntist hann og á kurr þann, er stundum hefði gert vart við sig á Norðurlndum út af íslenzkri landhelgislöggjöf og framkvæmd hennar. Benti hann í því sambandi á það, að fiskimiðin og landhelgin væri íslendingum isama og skógarn- ir og námurnar hinum Norður- landaþjóðunum. Þessar ályktanir voru sam- þykktar á fundinum: 1. Alþjóðleg samvinna: „Fulltrúafundur norrænna þingmanna ósk;ar Sameinuðu þjóðunum þess, að heill megi fylgja. starfi þeirra að þvi marki að tryggja frelsi þjóð- anna og friðinn og koma á þjóða í milli samstarfi, sem byggist á gagnkvæmu trausti. Fulltrúafundurinn fagnar þeim degi, er öll Norðurlöndin geta orðið þátttakendur í þessu starfi innan vébanda þessara sam- taka“. 2. Norræn samvinna: a. „Fulltrúafundurinn beinir þeim tilmælum til ríkisstjórn Norðurlandanna, að þær skipi við fyrstu hentugleika sameig- inlega nefnd, sem undirbúið geti nauðsynlegar tillögur, svo að takast megi með Norðurlönd- unum öflug samvinna í menn- ingarmálum. Fulltrúafundur- inn er þeirrar skoðunar, að víð- tæk menningarleg samvinna muni auka mjög gagnkvæman skilning Norðurlandaþjóðánna og hlynna að fræðilegum rann- sóknum og veita Norðurlöndun- um aukna möguleika til að leggja drjúgan skerf til alþjóð- legra vísinda". b. „Fulltrúafundurinn lætur í ljós þá ósk, að möguleikarnir á nánari samvinnu á sviðum viðskiptalífsins verði teknir til ýtarlegri athugunar með þeim hætti, sem ríkisstjórnir Norð- urlandanna telja heppilegast“. Aðalforseti fundarinns var kjörinn formaður norsku þing- mannanefndarinnar, Monsen stórþingsmaður, og kvaddi hann til aðstoðar sér formenn hinna landsnefndanna til skiptis. Yfirleitt mæddi starfið við fundina mest á framsögumönn- um og formönnum nefndanna, og þá í hópi okkar íslenzku nefndarmannanna á formanni okkar, Gunnari Thoroddsen, sem auk þess að vera forsvars- maður okkar á fundum og sam- komum, varð að sinna fjölda blaðaviðtala og flytja ræður í norska og danska útvarpið o. s. frv. Gerði hann þessu öllu hin beztu skil. Unnið að auknum samhug. — Hvers árangurs telur þú mega vænta af fundum sem þessum fyrir norræna sam- vinnu? — Það er máske nokkuð vandasamt að svara því ákveðið. Um þann samhug og samstarf milli hinna norrænu þjóða, sem þarna er verið aö rækta, munu vafalaust eiga við þessi orð íslenzka skáldsins: „Lengi er að vaxa ungleg björk, sem vermir um aldur hólinn“. En hver tilraun, hver fund- ur sem þessi flytur þjóðirnar nær því takmarki. Það hefir án vafa sitt að segja, að fulltrúar frá öllum þessum löndum, sem aðstöðu hafa til áhrifa meiri og minni hver með sinni þjóð, komi saman, skiptist á skoð- unum, skýri hvers annars sjón- armið og beiti sér fyrir sam- eiginlegum hu-gðar- og hags- munamálum þjóða sinna. En það, sem jafnan þíðir klakann burt, eru áhrifin „mellem slagene“, utan fundanna, við persónuleg kynni og einkasam- töl einstakra fulltrúa hinna ýmsu landa, sem oftast eru op- inskárri og einlægari en hinar opinberu fundaræður. Norræn samvinna ekki hégómamál. Og að einu leyti steig þetta mót feti framar en hin fyrri til framkvæmda norrænni sam- vinnu, þar sem ákveðið var að fela sérstökum fulltrúum þing- mannasambandsins að fylgja eftir ályktunum mótsins hverj- um með sinni þjóð. Og norræn samvinna er ekk- ert hégómamál, þótt ýmsum hætti máske við að hugsa svo. Þrátt fyrir hina sterku sjálf- stæðiskennd Norðurlandaþjóð- anna og allskýr séreinkenni þeirra innbyrðis, eru þær þó sem heild ein, stór þjóðafjöl- skylda, er á sameiginleg mikil menningarverðmæti, sem henni er lífsnauðsyn að vernda, og á margan hátt sameiginlegra hagsmuna að gæta. Norður- landaþjóðirnar geta ekki fjar- lægst'hver aðra í sundurþykkju án þess að „bíða tjón á sálu sinni“. Og við íslendingar, sem eig- um þar þó mesta sérstöðu, vegna legu lands okkar, verðum að gæta þess, að við eigum ekki í annað hús að venda en til fræntiþjóðanna á Norðurlönd- um til viðhalds og eflingar okk- ar norræna menninigar-arfi fram yfir það, sem við_ höfum hjá sjálfum okkur að taka. Og þó að það verði okkur að sjálf- sögðu alltaf mest um vert, þá munum það, að „hrörnar þöll, sú er stendr þorpi á, hlýr at henni börkur né bann.“ — Einangrunin er seigdrepandi. En hin norræna menningar- arfleifð okkar íslendinga og á- vöxtun hennar, er okkar öðal, og e. t. v. eina heimssögulega hlutverk meðal þjóðanna. Einlægur samhugur — en úrbætur þó aðkallandi — Hvernig kom þér fyrir sjónir hinn norræni samhugur, eftir styrjöldina? — Á fundi þessum féll allt í ljúfa löð á meðal fulltrúa hinna ýmsu þjóða, og varð hvergi vart annars en hins einlægasta samstarfsvilja. Þó verður þess ekki dulizt, að víða þarf þar endurbóta við meðal almenn- ings. Kemur það hvað skýrast fram í ýmsum blaðaummælum. Er það s^nilegt, að einangrun sú, er hernaðarástandið hafði í för með sér og hin ólíka að- staða er það skapaði meðal Norðurlanda, hefir vakið þeim nokkur misklíðarefni. Svo maður taki Svíþjóð til dæmis, þá hafði hún þá sér- stöðu að komast hjá allri beinni styrjaldarþátttöku. Kjölurinn skilur hana frá Noregi. Og þó að hann, sem betur fór, væri Norðmönnum ekki með öllu ó- kleifur á styrjaldarárunum, þá var þó eins og hann „hækkaði" þá nokkuð, eins og einn sænsku fulltrúanna komst að orði í ræðu. Og þetta hefir ekki enn- þá lagast til fulls. Um það vott- uðu ýms bituryrði í garð Svía, sem birtust í sumum norsku blöðunum, og komu okkur ýms- um dálítið á óvart, þar eð við höfðum frétt hvað Svíar þó voru Norðmönnum bæði með- an á stríðinu stóð og ekki síð- ur eftir það. En þetta stafar vit- anlega af margháttuðum sár- indum Norðmanna frá her- námstímabilinu, sem vitanlega tekur nokkurn tíma að jafna sig. En við þetta hefir svo það bæzt eftir styrjöldina, að vel- megun Svía og „valúta“ þeirra hefir myndað eins konar girð- ingu um Sviþjóð á landamær- um nágrannanna. Þar þýðir ekki að sýna nema sænskar krónur og dollara, sem ná- grannarnir hafa næsta lítið af, svo að þetta hefir hamlað ferð- um þeirra inn yfir sænsku landamærin, og viðskiptum þeirra við þennan „stóra bróð- ur“, og þannig að nokkuru leyti viðhaldið einangruninni frá styrjaldarárunúm — nema þeirra, er leggja þangað í at- vinnuleit. Þetta ástand er nor- rænni samvinnu dálítið hættu- legt sem stendur, og er það fyrst og fremst á færi Svía að bæta úr því. Aftur á móti eru samgöngur greiðar og ferðalög mikil á milli Noregs og Danmerkur, og miklir dáleikar á milli þeirra. Hvergi vart neins kala í garð íslendinga í Danmörku. Þá eru og öllum kunnir fá- leikar þeir og andúð, er kom fram í dönskum blöðum gagn- vart íslendingum fyrst eftir sambandsslitin. En það var svo um mig sem flesta landa, er ferðast hafa til Danmerkur nú undanfarið, að ég varð þessarar andúðar í garð íslendinga hvergi var meðal þeirra Dana, sem ég umgekkst, hvort sem þeir voru mér áður kunnir eða ekki. Og meðal hinna dönsku þingfulltrúa, er ég hitti og ræddi við, var ekki annað að finna en einlæga alúð og vinsemd. Um hitt þarf samt ekki að efast, að sú beizkja og þeir fá- leikar, sem ýmsir blaðamenn hafa sýnt í okkar garð undan- farið, og 'sýna öðru hvoru enn, eiga hljómgrunn meðal margra Dana, þó að sennilega sé það langsamlega minni hluti þjóð- arinnar. Og ég er sannfærður um, að sá minni hluti muni fara ört minnkandi á næstu árum, eink- um ef við íslendingar veitum honum ekki allt of mikla at- hygli, heldur förum okkar fram eins og ekkert hefði í skorizt, og högum viðskiptum og viðmóti við hina fornu sam- bandsþjóð okkar með tilliti til þeirra mörgu Dana, sem vilja vera vinir okkar, og eiga við okkur bróðurleg skipti. Áhrif styrjaldarinnar. — Voru ekki sýnileg áhrif styrjaldarinnar á Norðurlanda- þjóðirnar á ýmsan hátt? — Jú vitanlega varð ekki komizt hjá að veita þeim at- hygli fyrir þá sem nokkur kynni höfðu haft af þessum þjóðum áður. Yfirleitt heyrðist mér á þeim sem ég talaði við, að nokkurr- ar upplausnar og agaleysi gætti meðal æskulýðsins í öUum löndunum nú eftir styrjöldina, sem m. a. kæmi fram í mjög aukinni áfengisnotkun og ó- reglu í sambandi við hana; — fyrirbrigði, sem sennilega ger- ir vart við sig um allar jarðir og við íslendingar höfum þvi miður ekki heldur farið var- hluta af, Svíþjóð. Svíþjóð hefir sér- stöðu meðal þessara þjóða, sem og vonlegt er. Þar var að sjá sama gnægtabúrið og áður fyrr, og allir hlutir fáanlegir — ætir og óætir, — hverjum þeim sem hefir nóg af sænskum krónum í buddunni. En ærið dýrir virtust mér margir hlutir vera þar, þegar farið var að umreikna hina litlu íslenzku fimmtíu og fimm aura krónur, eins og hún er skráð í sænskum bókum — í sænskar krónur. En þrátt fyrir hina sýnilega miklu velmegun sænsku þjóðarinnar heldur hún mjög búmannlega á hlutunum og framfylgir all- ströngum skömmtunarákvæð- um um margar tegundir mat- væla, sem henni þó mundi vera innan handar að veita öllum af rausn. Danmörk. Þar var ástandið hins vegar með nokkuð öðrum svip. Matar er þó Dönum ekki vant fremur en fyr. Hin grózku- mikla gegnumræktaða danska jörð er enn í umsjá heimsins beztu bænda, og óþrjótandi forðabúr öllum íbúum landsins í sveit og borg og aðalgjaldeyris- lind þjóðarinnar. En ærinn skortur var sýnilegur á flestum þeim varningi er flytja verður inn. Leigubíla er mjög örðugt að fá í Kaupmannahöfn, sökum bílaskorts, hjólbarðahallæris og takmarkaðs bensíns. Auglýs- ingaljósadýrðin, sem lýsti Ráð- hústorgið upp fyrir stríðið langt fram á nótt er löngu horfin. Ekki vegna þess, að nú er lítið til að auglýsa, heldur vegna þess að danskar rafstöðvar eru að miklu leyti knúðar með er- lendu eldsneyti og það verður að spara. Og kynlega kom manni fyrir að finna móreykinn fyrir vitum sér á strætum og torgum kóngsins Kaupmannahafnar, svo að við lá, að hugurinn leit- aði „heim í sveit á nítjándu öld“ eins og Örn kvað. En borgin bætir sér nú upp hið erlenda kolaleysi með hinum ágæta danska mó. — En þó að Dönum sé enn margra muna vant eftir und- anfarinna ára rupl og rán, fer hagur þeirra dagbatnandi og þarf ekki að efast um að þeir verða fljótir að koma undir sig fótunum að nýju, svo miklir búmenn og iðjumenn sem þeir eru. Ókyrrð þá og uppivöðslu, sem nokkuð gerði vart við sig með þjóðinni fyrst eftir styrjöldina, er nú óðum að lægja. Danir eru aftur að taka upp gleði sína og hin gamalkíunnu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.