Tíminn - 10.09.1946, Page 1

Tíminn - 10.09.1946, Page 1
30. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 10. sept. 1946 163. blað MARGT HEFIR BREYTZT Á 33 ÁRUM Eiuar Páll Jónsson, ritstjóri Lögbergs, Dansk- samnmgarnir: Samningaumleitunum lokið að sinni RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN i Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.I. RITSl JÓR ASKRIPSTOFDR: EDD'rJII SI. Llndrvrgötu 9 A Símar 235S og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKIiIPSTOP/ : EDDUHÚSI, Lir.dargötu 9 A Siml 2323 Einar Páll Jónsson ritstjóri Lögbergs. sólfaldaður og tígulegur. Við höfum ferðazt mikið um landið og notið við það ósegjanlegs yndis. Stórfenglegar framkvæmdir. Við dáumst öll að hinum margbrotnu og í ýmsum tilfell- um risafengnu framförum, sem hér hafa orðið á síðustu árum. Það, sem einna fyrst vakti at- hygli mína voru vegabæturnar um landið þvert og endilangt. Um þetta getum við dæmt af eigin reynd, því að svo má segja, að við hjónin höfum ferðazt dagfari og náttfari í bilum og notið alls þess, er fyrir augun bar í ríkum mæli. Þá fer ekki fram hjá néin- um gesti, sem á rót sína að rekja til íslands, hversu stór- felldar umbætur hafa orðið á húsakynnum í bæjum og borg- um síðasta aldarfjórðunginn. Reykjavík hefir tekið slíkum stakkaskiptum í mínum aug- um, áð fyrst í stað trúði ég því varla, að ég væri kominn heim. Til að sjá eru mörg hinna nýrri húsa tilkomu mikil og reisuleg, en það, sem mér skilst, að sé meira um vert er, hvernig hag- að er til innan húsanna eða heimilanna sjálfra. Við hjónin höfum veitt því athygli á ferða- lagi okkar um landið, að hvert heimili, sem við höfum hei,m- sótt, er fagurlega skreytt ís- lenzkum málverkum og ýmis konar annarri þjóðlegri heimil- isþrýði. Þetta sannfærði okkur fljótlega um það, hversu ís- lenzk málaralist, þótt ung sé að árum til, hefir tekið örum fram- förum, því að mörg málverkin eru að okkar hyggju bæði frumleg og meistaralega gerð. Það sem ég sagði áður um húsabætur í Reykjavík má einnig segja um Akureyri, Akra- nes, Hafnarfjörð og marga aðra Frú Ingibjörg- Jónsson, kona hans. gerð. Það er ekki aðeins, að tún hafi verið sléttuð, heldur hafa þau verið margfaldlega stækk uð, og ný tún blasa nú við, þar sem áður voru óræktarholt og hálfgeröar urðir. Ég hefi víða veitt því eftirtekt, að orfið og ljárinn eru í þann veginn að syngja sitt síðasta vers. þeirra stað hafa tekið við völd- um sláttuvélar, rakstrarvélar, heyþurrkunarvélar og dráttar- vélar. Þetta er vitaskuld hvergi (Framhald á 4. síðu). Helti úr vínglasi yfir útlending — hafnaði í tukthúsinu Gestir á Hótel Borg urðu sjónarvottar að þvi á laugar dagskvöldið að va.r, að tveir lög- regluþjónar komu þangað inn og sóttu unglingsstúlku, sem gerzt hafði uppivöðslusöm úr hófi fram. Fyrst sneri hún hælana undan skónum sínum og dansaði á sokkaleistunum við „kavaléra“ sína, en þegar henni fór að þykja lítið púður í því tók hún vínglas og hellti úr því yfir höfuðið á erlendum gesti sem var í veitingahúsinu þetta kvöld. Þá var lögreglan kvödd á vettvang. Kunnugir menn segja, að það sé nú nær daglegur viðburður að konur á ýmsum aldri lendi í höndum lögreglunnar vegna drykkjuskapar. Fyrr á árum þótti það sjálfsögð forréttindi karlmannanna að drekka sig fulla á almannafæri og lenda í tukthúsinu fyrir ölæði. Jafn- rétti kynjanna er sýnilega að ryðja sér til rúms, þótt þess sé ef til vill ekki mest þíörf á þessu sviði. Skagfirzkir bændur fara á bifreiðum suður Kjöl t fyrsta sinn, scni þessi leib er farin á bif- reiðum. Um miðjan ágúst sl. fóru tólf bændur úr Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði á bifreiðum norðan af Goðdalahálsi suður til Hvera- valla. Hefir sú leið aldrei verið farin á bifreiðum fyrr. Var vega- lengd sú, er þeir fóru, 83 km. En leiðangursmennirnir telja, að komast megi nokkru styttri leið, ef leitað væri að leiðum. Þeir ferðafélagarnir fóru á fjórum bifreiðum, tveimur jeppum, einnl herbifreið með drifi að aftan og framan og einum vörubíl, sem þeir liöfðu farangurinn á. Lagt var upp frá Goðdalahálsi, þar sem þeir höfðu mælt sér mót. Var það snemma morguns í föf/ru veðri. Fyrst var haldið suður austurbrún Goðdalaháls, þar til komið var á móts við Goðdalakistu. Þar sveigðu þeir til vesturs, austan við Skinn- brókarskarð. Síðan var haldið í vesturátt og farið skammt aust- an víð Runufjall og á Ytri- Hraunkúlu, þaðan beint vestan við Fremri-Hraunkúlu. Þaðan var beygt til vesturs fyrir sunn- an Pollahraun. Á Ströngukvísl fundu þeir gott vað rétt norðan við Klettagilið. Náttstað höfðu þeir við neðri Þverkvísl. Daginn eftir héldu þeir svo ferðinni áfram og fóru yfir Blöndu rétt neðan við Eyfirð- ingakvlsl. Var áin þar allgóð yfirferðir, grunn en nokkuð grýtt. Þaðan var torfærulítil leið og nokkuð bein suður til Hveravalla. Annars var leiðin yfirleitt góð og vel fær. Suður Goðdalaháls eru engar brekkur, en öldóttir melar og mosaflesjur um 15 km. leið. Síðan taka við hraun, sem eru sæmileg yfir- ferðar og flöt, nema er kemur í Ytri-Hraunkúlu. Telja leiðangursmennirnir að gera megi leið þessa vel færa bifreiðum, ef tvær árnar væru brúaðar, en ágæt brúarstæði eru á þeim báðum. Væri þá kominn sumarvegur fyrir bif- reiðar milli Norður- og Suður- lands um Kjöl, og er óhætt að fullyrða, að marga fýstl að fara þá leið og njóta fegUrðar ó- byggðanna. Mennirnir, sem fóru þessa för, voru þeir Sveinn Guð- mundsson, Árnesi, bílstjóri, Guðjón Jónsson, Tunguhálsi, bílstjóri, Jón Jónsson, Hofsvöll- um, bílstjóri, Gunnar Jónsson, Varmalæk, Magnús Indriðason, Hömrum^ Halldór Ólafsson, Varmalæk, Jón Guðmundsson, Breið, Aðalsteinn Eiríksson, Vílinganesi, Hjörtur Guðmunds- son, Lýtingsstöðum, Stefán Er- lendsson, Mælifelli, Jóhannes Guðmundsson, Ytra-Vatni, Magnús Helgason, Héraðsdal, og var hann leiðsögumaður ferðarinnar. Er komið var til Hveravalla héldu átta þeirra félaganna aftur norður sömu leið, en aðeins á tveimur bifreiðunum, en hinir fjórir óku á tveimur bifreiðum, sem leið liggur suð ur Kjöl frá Hveravöllum og til Reykjavíkur. Hjólbarðar skamtaðir Eins og kunnugt er, var fyrir um það bil ári síðan afnumin skömmtun er var á slöngum og hjólbörðum á bifreiðar stríðs- árin. Nú hefir þessi skömmtun verið tekin upp aftur sökum mikillar eftirspurnar á þessari vöru, en innflutningur er enn sem komið er mjög af skornum skammti. Gekk skömmtunin í gildi síðastl. laugardag. Kjarnorkugas, sem knýr vélar Á að geta kmið lest yfir jivera Ameríku fyrir eiitn dollara. Burralo Machinedy Corp. mun sennilega innan skamms fram- leiða atómgastegund, sem get- ur knúð lest frá Kyrrahafi til Atlantshafs fyrir aðeins einn dollara. A. R. Miller forstjóri fyrir- tækisins hefir sótt um sérrétt- indi fyrir fyrirtækið til þess að framleiða þessa einstöku gas- tegund. Það er lítil iðuhjólsmynduð vél, aðeins 25 þumlunga há, gerð úr stáli, sem á að þola 4000 kílóa þrýsting á ferþumlung. Tilraunir með þessa nýju gas- tegund, sem enn hefir ekki hlotið neitt nafn, hafa verið gerðar í hálft ár, og Miller skýr- ir frá því, að enn sé framleiðsl- an mjög dýr, en vonar, að hægt verði að koma verðinu niður í einn dollara á hvert hálft kíló af gasi, sem á að geta knúið lest í fjóra daga. Tæknin er nú orðin svo hrað- fleyg, að erfitt er að átta sig á þvi, sem er að gerast. Hvaða þýðingu getur t. d. svona upp- fynding haft fyrir ferðalög í framtíðinni — hlýtur hún ekki að koma farmiðaverði niður I (Framhali á 4. siOui. Guðmundur Jónsson skipstjóri látinn Guðmundur Jónsson skip- stjóri að Reykjum í Mosfells- sveit, andaðist'í sjúkrahúsi hér í bænum í síðastl. viku. Guðmundur var þjóðkunnur maður og um mörg ár afla- kóngur islenzka togaraflotans. Lengst var hann skipstjóri á Skallagrími. Fyrir nokkrum árum fluttist Guðmunjjur úr Reykjavík að Reykjum í Mosfellssveit og hóf þar myndarlegan búskap, á- samt mági sínum, Bjarna Ás- geirssyni alþingismanni. að samningaumleitunum lokn- um hljóðaði á þessa leið: Skilningur og gagnkvæmur vilji. Samningaumleitanir dönsku og íslenzku nefndanna hafa farið fram með góðum skilningi og gagnkvæmum vilja tll að ná þeim árangri, sem bæði löndin mættu við una, og í bókun þeirri, sem samþykkt var í lok þeirra, lýsa nefndirnar yfir þvl, að þær hvor fyrir sitt leyti muni halda áfram að stuðla að þvl, að hinn endanlegi samningur megi verða tákn þeirrar vináttu og samvinnu, sem framvegis skull ríkja milli landanna. Árangur samningaumleltan- anna. Samningaumleitanirnar hafa leitt til endanlegrar niðurstöðu um ýmis atriði og skulu þar einkum talin eftirfarandi: Framhaldandi jafnréttisstaða til handa þeim, sem hinn 6. marz þ. á. voru búsettir í hinu landinu effa höfffu veriff það einhjverntíma á síðustu 10 ár- unum áffur; endanleg skipan ríkisborgararéttar þeirra Dana, sem búsettir voru á íslandi 1918, byrjun umleitana um nýjan verzlunar- og siglingasamning, endurgreiffsla útgjalda skv. fé- lagsmálalöggjöf annars lands- ins vegna ríkisborgara hins og afhending þeirra samninga, sem danska utanríkisráffuneyt- iff hefir gert fyrir íslands hönd. Málinu, sem frestaff var. Frestað var umræðum um framhald tiltekinna fiskveiði- réttinda Færeyinga við ísland og rétt íslenzkra fiskimanna við Grænland, þar eð í þvi efni var talin þörf nánari íhugunar af hálfu íslenzkra og danskra ’stjórnarvalda. íslenzka nefndin hefir lagt (Framhald á 4. siOu). segir frá. Eins og kunnugt er komu þeir Einar Páll Jónsson, ritstjóri Lögbergs, Stefán Einarsson, ritstjóri Heimskringlu og Grettir Á. Jóhannsson ræðismaffur, ásamt konum sínum, hingað til lands í sumar í boffi íslenzku ríkisstjórnarinnar og Þjóffræknisfélags- ins. Hafa þessir vesturíslenzku gestir ferffazt víffa um land. Tíð- indamaffur Tímans hitti Einar Pál aff máli, er hann kom aftur til höfuffstaffarins. Fer frásögn hans hér á eftir. — Þrjátíu og þrjú ár eru lið- in síðan ég kvaddi ísland, segir Einar Páll. Konan mín hefir einu sinni áður heimsótt ís- land, en hún er fædd fyrir vest- an. Hún kenndi um hríð ensku við Samvinnuskólann í Reykja- vík. i I „Snæfellsjökull heilsaði okkur sólfaldaffur“. Við hjónin og hinir boðsgest- irnir komum hingað til lands um hádegisbil þann 11. ágúst, og var þá glaða sólskin um land allt og hlýtt í lofti. Snæfells- jökull heilsaði okkur fyrst bæi, er við höfum heimsótt. Iiin geysilega bylting, sem orðið hefir á sjávarútveginum siðasta aldarfjórðunginn, fer ekki heldur fram hjá neinum, sem ferðast með opin augun. Við heimsóttum m. a. eina síld- arbræðsluverksmiðju, er vakti aðdáun okkar vegna þeirrar fullkomnunar og tækni, sem þar er áð verki. Gömlu heyvinnutækin aff syngja sitt síðasta vers. Loks hefi ég séð, að út um sveitir, einkum sunnanlands, hefir mikilvæg nýrækt verið Hákon Noregskonungur heimsækir Narvík Jafnrétti til handa þcim, soih dvöldn í liinn samningsland- inu 6. marz þ. á. Mynd þessi var tekin nú fyrir skömmu, er Hákon Noregskonungur kom i fyrsta sinn til Norður-Noregs og Finnmerkur, eftir að hernáminu lauk. Myndin var tekin við hátíðlega athöfn, er fram fór í Narvik við kon- ungskomuna. Störfum dansk-íslenzku samninganefndarinnar, sem setiff hefir hér á rökstólum aft undanförnu, er nú lokiff aff sinni. Samningaumleitanirnar hafa fariff fram af gagnkvæm- uin skilningi og nokkur árang- ur náðst um ýms atriffi. Þannig var ákveffiff, aff þeir íslendingar, sem bjuggu í Danmörku 6. marz- síðastliðinn eða höfffu búið þar einhverntíma síðustu tíu árin, og þeir Danir, sem þá voru á ís- landi effa höfðu verið það cíff- asta áratuginn, skyldi framveg- is njóta jafnréttís aðstöffu í því landi, sem þeir búa. Um önnur mikílvæg mál, svo sem hand- ritamálið og fiskveiffaréttindi Færeyinga viff ísland og íslend- inga við Grænland, var ekki samiff að þessu sinni. Fréttatilkynning sú, sem stjórnarráðið hér gaf út í gær,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.