Tíminn - 26.09.1946, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.09.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Slmar 23S3 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA hS. RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUH 'SI. Llndargötu 9 A Slmar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHETMTA 30. árg. Reykjavík, fimmtudagiim 26. sept. 1946 174. blaO Stórtjón af völdum skriöuf alla og vatna gangs nyröra Fólk flýr marga bæl i Dalsmyiuii. í byrjun þessarar viku geysaði hið versta veður víða um land og urðu af völdum þess miklir skaðar, elnkum við Eyjafjörð. í Dalsmynni féllu skriður á lönd margra bæja og varð fólk að flýja heimili sín. Er talið, að ein þessara jarða sé ekki byggileg cftir það jarðrask, sem orðið hefir. Víða hafa skriður fallið á engjar og úthaga, vegir skemmzt, símasamband rofnað og hey flætt. Akureyrarbær var rafmagnslaua í sólarhring vegna skemmda á raflínunni. Réttum hefir sums staðar verið frestað og menn og skepnur orðið fyrir hrakningum í leitum. Fólk flýr heimili sín. Stórfelldast tjón virðist hafa orðið í Dalsmynni austan Fnjóskár.Þar byrjuðu skriður að falla að undangengnu ofsalegu úrfelli síðastliðið sunnudags- kvöld. Sá fólk þá þegar fram á, hvað verða vildi. Flúðu menn af fimm bæjum, sem standa undir svonefndu Gerðafjalli, og leit- uðu athvarfs á næstu heimilum, aðallega Laufási og Lómatjöm. Bæir þeir, sem fólkið yfirgaf, eru Litlagerði, Pálsgerði, Mjð gerði, Borgargerði og Ártún. Ein jörð óbyggileg — fjórar aðrar skemmdar. Skriður héldu áfram að falla úr fjallinu um nóttina og ollu gríðarmiklu tjóni. Litlagerði er talið óbyggilegt. Nær allt túnið er í kafi í aur og eðju og grjóti. Bæjarhúsin standa á hóli, og má heita, að þau ein og hlaðvarpinn um- hverfis þau hafi sloppið við eyðingu. Bóndinn í Litlagerði var nýbúinn að reisa steinhús á jörð sínni. Af landi jarðarinnar Ártúns eyddist þriðjungurinn. Hins veg- ar er túnið þar óskemmt. Á aö greiða nið- ur kjötið og mjólkina? Hvað hyggst ríkisstjórnin fyrir um niðurgreiðslu á verði land- búna/7arvara á hinu nýbyrjaða verðiagsári? Þessa fyrirspurn til ríkis- stjórnarinnar Iagði Páll Zóp- hóníasson fram á Alþingi strax og það kom saman um daginn Þessi mál standa nú svo, að þegar nýtt verðlagsár hófst 15 sept., féllu öll eldri ákvæði um niðurgreiðslur úr gildi. Ríkis- stjórnin hefir þó haldið áfram niðurgreiðslum á mjólk, 22 aurum á lítra, án þess að laga- hdimild til þess væri framlengd. Væri þessum niðurgreiðslum öllum hætt nú, myndi vísitalan hækka um 22 stig eða vel það. Hér er því um að ræða mál, sem alla snertir, 'og það jafnvei þótt þeir hvorki gætu talizt fram- leiðendur né neytendur. En auk þess snúa aðrar þýðingar- miklar hliðar málsins sérstak- lega að þeim. Það er því orðið meira en tímabært að ákveða hvað gert skuli í þessum efnum. Vísitalan verður næst reikn- uð eftir því verðlagi, sem verður 2. október. Fyrirspurn þessi hefir enn ekki verið tekin á dagskrá. Á Miögerði féllu tvær skriður. Önnur fyllti farveg bæjarlækj- arins og eyðilagði rafstöð, sem þar var. Hin féll meðal annars yfir túnið og gerði verulegt tjón. í Pálsgerði féll skriða á all- stórt nýræktað land og varð það fyrir miklum skemmdum. í Borgargerði varð einnig verulegt tjón. Ekkert tjón varð þó á húsum né gripum, svo vitað sé. Sauðfé er ekkert á þessum slóðum, því að allsherjarslátrun vegna fjár- pestanna var nýlega lokið. Hinum megin Fnjóskár, nokkru innar en gegnt Gerða- bæjunum, féllu einnig miklar skriður. Þar er skógur allmik- ill, sem heitir Gæsaskógur. Hann tættist sundur af skriðu- föllum. Skógur þessi er í Lauf- áslandi. Nýr vegarkafli stórskemmdur. Enn féllu skriður úr Kjálk- anum, fjallinu milli Svalbarðs- strandar og Dalsmynnis. Lenti ein þeirra á túninu í Fagrabæ og skemmdi þaö mikið og eyði- lagði stóran kartöflugarð. Nýlokið var á þessum slóðum vegarkafla, sem tengdi byggð- ina út með firðinum við Sval- barðsströnd og innsveitirnar. Þessi vegur stórskemmdist, allt frá Saurbrúargerði að Fagra- bæ. Má segja, að allur nýi kafl- inn sé ýmist á kafi í aur og grjótruðningi eða sundurtættur af vatni og skriðum. Vegurinn upp Fnjóskadal er eínnig stórskemmdur. Vaðlaheiðarvegurinn rofnaði af völdum vatnavaxta. Á land Höfðabrekku í Greni- vík féll skriða og varð af tals- vert tjón. Kom hún úr Höfð- anum. Fleiri skriður — símalínur rofnar. Miklu víðar en hér verður getið hafa skriður fallið við Eyjafjörð. En þær hafa yfirleitt lent á úthaga eða engjar og ekki haft eins mikla eyðilegg- ingu í för með sér og skriður þær, sem hér hefir verið sagt frá. Að Vatnsenda í Saurbæj- arhreppi féll þó skriða á tún- ið og olli talsverðum skemmd- um, og sömuleiðis lenti skriða á túninu á Möðruvöllum í Hörg- árdal og gerði nokkurn \xsla. í Ólafsfirði flæddu hey á nokkrum bæjum í vatnavöxt- unum. Auk þess má vel vera, að ekki séu enn komin til grafar öll kurl, því að símalínur rofnuðu víða og sums staðar er ekki komið á símasamband. Þannig var enn símasambandslaust frá Akureyri austur um Þingeyjar- sýslu. Rafmagnsiaust á Akureyri. Enn má geta þess, að raf- magnslaust var í Akureyrarbæ í fyrradag og fyrrinótt. Hafði Skemmdir á hafnarmannvirkjum í Bolungarvík Suiuarvinnan við hafuarbœturnar eyðilögð. í ofviðrinu, sem skaii á um fyrri helgi og stóð fram í mlðja viku, urðu miklar skemmdir á hafnarmannvirkjum í Bolungar- vík, en í sumar hefir verið unnið þar að hafnarbótum. Tíðinda- maður blaðsins hefir aflað upplýsinga um skemmdirnar frá Þórði Hjaitasyni í Bolungarvík. Köld hafa verið kjör útlaganna, sem hjuggu í þessu hreysi vetrarlangt uppi á miðjum öræfum íslands. Þetta eru rústir kofans á Hveravöllum, þar sem Eyvindur og Halla áttu sér athvarf um skeið. í rauninni er þetta aðeins hraungjóta, sem hlaðið hefir verið að, rétt við lítinn læk, fast við aðalhverasvæðið. Sá, sem kemur að rústum kofans á skemmtiferðalagi á sumardegi, á víst bágt með að gera sér í hugarlund, hve ströng lífs- barátta hlnna ofsóttu útlaga, sem þarna bjuggu eins og refir í greni, hefir verið. (Ljósm. Tímans: G. Þórðarson). Lýsisherzluverksm. verður á Siglufirði í lögum nr. 93, 25. september 1942, um að reisa nýjar sildar- Verksmiðjur, or svo fyrir mælt, að ríkið láti reisa verksmiðju til herzlu síldarlýsis, er rann- sókn hafi sýnt, að það sé tíma- bært. Kom í ljós við nánari at- hugun, að góð skilyrði voru til reksturs ^likrar verksmiðju. Voru þá skipaðir í nefnd til xess að athuga staðsetningu verksmiðjunnar þeir Óskar B. Bjarnason efnaverkfræðingur, sem er formaður nefndarinnar, Ágúst Sveinbjörnsson, efna- fræðingur og Hilmar Krist- jónsson, framkvæmdastjóri síld arverksmiðja ríkisins. Nefnd þessi hefir komlzt að þeirri niðurstöðu, að verk- smiðjan verði bezt sett á Siglu- firði og hefir ríkisstfórnin fall- izt á greinargerð nefndarinnar fyrir þeirri ákvörðun og sam- þykkt, að lýsisherzluverksmiðj- an skuli reist þar. SLÁTRUN HAFIN í REYKJAVlK Slátrun sauðfjár í Reykjavík hófst i fyrradag. Mun vera langt síðan slátrun hófst svo síðla hausts hér I höfuðstaðnum. Húsmæðurnar munu líka vera orðnar lang- eygðar eftir nýju kjöti og slátri. Oftast mun slátrun hafa hafizt síðari hluta ágústmánaðar. Heyhlaða brennur Aðfaranótt síðastliðins laug- ardags kom eldur upp í hey- hlöðu að Mið-Lelrárgörðum 1 Leirársveit. Varð eldurinn fljótt magnaður, og var þvi slökkviliðið á Akranesi kvatt til hjálpar. Kom það á staðinn eftír nokkra stund. En frá Akra nesi og upp að Léirárgörðum munu vera um 20 km. Einnig kom að fjöldi manns af næstu bæjum til að hjálpa til að ráða niðurlögum eldsins. Tókst það að lokum en helm- ingur heysins var þá brunninn. í hlöðunni voru aUs 500—600 hestburðir af heyi. Bæði hlaðan og heyið var óvátryggt. Bóndinn að Mið-Leirárgörð- um er Einar Gislason. línan rofnað í Ljósavatnsskarði. Við rigningarnar flæddi va,tn inn í kjallara nokkurra íbúðar- húsa á Akureyri, en hvergi mun hafa orðið teljandi tjón af þeim sökum. Hrakningar í göngum. Sums staðar norðan lands hefir réttum verið frestað vegna illviðranna, svo sem í Húna- vatnssýslu. Gangnamenn á Auð- kúluheiði sneru aftur vegna ó- veðurs. Hefir snjóað til fjalla og allt niður í byggð I framsveit- unum. Menn og skepnur hafa eðli- lega orðið fyrir hrakningum og vosbúð af völdum þessa íhlaups nú um gangna- og réttaleytið. I sumar var unnið að hafnar- mannvirkjum í Bolungarvík. Voru steypt 11 steinker, sem hvert um sig var 9 m. að lengd og 3y2 m. að breidd. Kerum þessum var sökkt í tveimur röð- um, hverju við endann á öðru, en ellefta kerinu var sökkt fyrir enda bryggjunnar, þannig, að það lokaði þró þeirri, er mynd- aðist á milli kerjanna. En bilið á milli þeirra var fyllt upp með lausu grjóti. Ofan á steinkerin var aftur steyptur veggur, rúmlega 2 metrar að hæð, og var síðan fyllt upp með grjóti. Var þá bryggjan orðin 7 metrar að hæð. Bilið á milli steinkerjanna var 10 metrar, en bryggjan var samtals 17 metra breið. Eftir að fyllt hafði verið upp með grjóti á milli kerjanna, var steypt plata ofan á allt saman, sem var yfirborð bryggjunnar. Var búið að steypa þá plötu til hálfs, er ofviðrið skall á um helgina. Á aðfaranótt sunnudagsins 15. september skall á ofvlðil með foráttu brimi. Um hádegi var veðurofsinn orðinn aftaka mikill og brimið svo miklð, að slíkt hefir ekki komið 1 Bolung- arvík árum saman. Þegar á sunnudaginn tók sjórinn að rífa lausa grjótið upp úr bryggjunni, þar sem ekki var búið að steypa plötuna yfir og fór svo fram allan sunnudag- inn og fram á mánudag. Var brimið þá farið að ná grjóti undan þeim hluta bryggjunnar, er búið var að steypa yfir, og tók einnig með sér hluta af steinsteyptu plötunnl. Um hádegi á þriðjudag tók ein holskefla innri garðinn ofan að steinkerjunum.Sópaðist hann ásamt mestum hluta uppfyll- ingarinnaí, inn í höfnina og braut ofan af steinkerjunum. Aðrar skemmdir urðu ekkl á sjálfum kerjunum, nema þær, að hornkerið a13 Innanverðu færðist nokkuð til, og ennfrem- ur er hætt við að fleiri ker hafi raskazt á grunninum. Svíar hefja fastar flugferð- ir til Ameríku Viðtal við Kiirt Bonncr, iiinboðsmaiiii SILA hér Sænska flugféiagið A. B. Aerotransport (ABA) ræður nú yfir 29 flugvélum af ýmsum gerðum og heldur uppi föstum flug- ferðum til allra helztu borga f Evrópu. — Sila, sem er sænska deildin í Scandinavian Airlines System (SAS), hóf fastar flug- ferðir til Ameríku hinn 23. þ. m. Hefir tíðindamaður Tímans átt tal um flugmál Svía við Kurt Bonner, sem verið hefir um- boðsmaður norrænu flugfélaganna hér í nær eitt ár. Kurt Bonner lét blaðinu eft- irfarandi upplýsingar 1 té: Flogið til fjórtán höfuðborga. A. B. A. annast flugferðir um Evrópu. Elns og stendur ræður félagið yfir 5 flugvélum af gerðinni Jv. 52, 17 DC 3, 4 flug- virkjum og 3 Skymaster. A. B. A. á þó 6 Skymasterflugvélar, en Si}a hefir 3 á leigu, eins og stendur. Við höfum fastar áætl- unarferðir til Lundúna, Reykja- víkur, Parísar, Rómar, Kaup- mannahafnar, Amsterdam, Varsjá, Prag, Nizza, Lissabon, Brússel, Zúrich og Osló. Auk þess .fljúgum við til Ankara höfuðborgar Tyrklands. A. B. A. annast þar að auki flugferðir innanlands, t. d. eru flugferðir milli Stokkhólms og Gautaborgar, Málmeyjar, Visby og Luleá. Fluggjöld hér og í Svíþjóð. — Hversu dýrt er farið milli Stokkhólms og þessara borga? Er það ódýrara en á jafnlöngum leiðum hér á íslandi? — Já, það er það. Frá Gauta- borg til Stokkhólms eru 414 km. og farið kostar 62 krónur sænsk- ar. Frá Reykjavík til Reyðar- fjarðar eru 410 km., en farið kostar 300 íslenzkar krónur. fslandsflugið. — Hversu oft koma sænskar flugvélar hingað? — Tvisvar í mánuði eins og stendur. Við notum til þessara " m ferða Skymaster-flugvél, sem tekur 44 farþega. — Hversu dýrt er farlð til Stokkhólms héðan? — 1245 íslenzkar krónur eða heldur meira en ferð til Kaup- mannahafnar, enda er leiðin lengri. — Gerið þér ráð fyrir að far- gjöldin lækki bráðlega? — Öll flugfélög stefna að þvi marki að lækka fargjöldin. En sennilega helzt þetta verð óbreytt fyrst um sinn. Fastar flugferðir til Ameriku. — Sila hefir flogið nokkrum sinnum til New York? — Já, en það hafa ekki verið fastpw áætlunarferðir. Þær flug- vélar hafa stundum lent á Keflavíkurflugvellinum sökum óveðurs. Nú var þessum ferðum breytt í fastar áætlunarferðir hinn 23. þ. m. í framtíðinni fljúgum við tvisvar í viku til New York með viðkomustað í Osló og Kaupmannahöfn til skiptis og svo í Prestwick og á Nýfundnalandi. — Hversu dýrt er farið til New York? Það kostar 447 dollara frá Stokkhólmi, en 428 dollara frá Kaupmannahöfn. Vélin, sem verður í þessum ferðum, er Skymaster með 28 sætum. Á svo löngu flugi er nauðsynlegt að hafa gott rúm fyrir farþeg- ana og gera þelm lifið sem þægllegast. Framkvæmdarstjórl A. B. A., Carl Florman, óskar yfirflugmanní félags- Ins, Áke Duvander, góffrar ferðar. ísiand er óvenjulega fagurt land. — Hvernig hafið þér kunn- * að við yður á íslandi? — Ágætlega. Veturinn er að (Framhald d 4. siOuJ Danakóngur rýfur færeyska lögþingið Seint í fyrrakvöld bárust þau tiðinjii, að K>istj án X. konung- ur Dana, hefði rofið lögþingið færeyska og boðað nýjar kosn- ingar í Færeyjum. Ekki er vitað, hvort þingrof- ið ka/in að vera gert 1 einhverju samráði við forseta lögjoings- ins og meiri hluta þess, sem lýst hefir yfir yfirráðum sjálfrar færeysku þjóðarinnar í Færeyj- um, eða hvort það er beinn mót- leikur við aðgerðir færeyskra sjálfstæðismanna. Sendinefnd frá Danmörku mun vera á förum til Þórsbafn- ar til þess að ræða vlð færeyska st J órnmálamenn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.