Tíminn - 29.10.1946, Page 2
2
TtMCVN, þrlðjndaglnn 29. okt, I94C
197. blað
Eiríkur Jónsson, Vorsabæ:
Landbúnaðarþekking
Gunnars Benediktssonar
Af framboðsfundum
í Barðastrandarsýslu
Að lofa og lofa.
Á framboðsfundi i Beruílrði I vor
lét Guðmundur Hagalín svo ummælt,
að það gæti verlð varhugavert að lofa
ógætilega i kosningabaráttu, því að
svo langt mætti ganga í þvi, að það
væri á einskis manns færi að standa
við fyrirheitin.
Þessu svaraði Gísli Jónsson svo:
„Guðmundur Hagalín segir, að það
geti verið varhugavert að lofa.
Ég sé ekkert ljótt við það að lofa.
Lofar ekki Guðmundur Hagalín
líka?
Jú, hann lofar.
Hann lofar sinn ílokk.
Mér finnst miklu ver um menn sem
svikja."
Synir frumskóganna.
Gísli Jónsson hefir þá venju, ef
sömu menn eru með honum á fleiri
fundum en einum, að lýsa því sem
hroðalegast, hvað framkoma þeirra
hafi verið óskapleg áður. Á öðrum
framboðsfundi í vor, í Beruflrði, lýsti
hann þvi kröftuglega, hvað Halldór á
Kirkjubóli hefði verið miklu hraklegri
daginn áður í Króksfjarðarnesi, og
fór ekkl dult með það, að framförin
myndi stafa af því, að maðurinn hefði
gist hjá góðu fólki og orðið fyrir siö-
legum áhrifum af þvi.
sem veldur. En fyrst svona hefir
gengið hingað til með útvegun
þessara verkfæra og nú, þegar
mjög er farin að skerðast doll-
araeign landsmanna, er ástæða
til þess að vera ekki alltof
bjartsýnn á framkvæmd þess-
ara mála á næstunni. Og ekki er
ólíklegt að farin verði að grána
hárin á ýmsum, sem nú eru ung-
ir, þegar þetta er komið í við-
unandi horf.
Að lokum þetta: Ef ég á að
kenna G. B. heilræði, sem ekki
mun af veita, vil ég benda
honum á að kynna sér betur
framleiðslukostnað landbúnað-
arafurða og innflutningsmögu-
leika bænda á nýjum vélum og
lífskjörum þeirra yfirleitt, en
gera minna að því að slá um sig
með margþvældu nýsköpunar-
skváTdri og tækni á sviði land-
búnaðarins. Einnig mætti hann
athuga það, að enn- hefir ís-
lenzVa bændastéttin ekki dreg-
ig sig í hlé til þess að vinna að
uppbyggingu landsins og fram-
tíð þess. Og vart mun hún gera
það að sinni, þrátt fyrir van-
þakklæti og eftirtölur hinna
ýmsu nýsköpunarpostula.
Þessu svaraði Guðmundur Hagalín
svo:
„Ég skll vel, að Gísll Jónsson vilji
tala vel um fólk hér og honum er
það sjálfsagt óhætt. Mér fellur vel við
fólk í Barðastrandarsýslu, eftir þvi
sem ég þekki það. Mér virðist það
vera líkt og aðrir Vestfirðingar,
kjarngott fólk og myndarlegt. Það er
enginn flatneskjuhreimur í máli þess.
Það nefnir stafina nokkurnveginn
réttum nöfnum og hljóðum og ruglar
ekki saman hugtökum eins og að lofa
eitthvað og lofa einhverju. En ég eí-
ast um, að það borgi sig hér að láta
eins og við Vestur-ísfirðingarnir séum
komnir úr einhverjum lítt siðuðum
villimannabyggðum I frumskógunum
þarna vestur í fjörðunum."
Ekki slæmt ósamkomulag.
Maður nokkur fékk að taka mynd
af frambjóðendum í Barðastrandar-
sýslu öllum saman síðastliðið vor. Þeg-
ar þeir höfðu raðað sér hlið við hlið
sagði GM« Jónsson:
„Það er ekki slæmt ósamkomulagið.
Nei. Það er ekki slæmt ósamkomu-
lagið núna.“
Fjármálaspeki.
Guðmundur Hagalín ræddi um það
á fundl að Alþýðuflokkurinn hefði
sýnt ábyrgðartilfinningu þegar hann
stóð að gengislækkuninni 1939, því að
enginn hefði þá séð annað fyrir, en
hún væri óhjákvæmileg nauðsyn til
að bjarga útgerðinni.
Gísli Jónsson sagði að gengislækk-
unin hefði ekki verið neitt bjargráð,
og nefndi það til dæmis um ókosti
hennar, að erfiðara hefði orðið að
greiða erlendar skuldir eftir en áður,
rétt eins og hann héldi að lántökur
okkar erlendis og vörusala úr landi
færi öll fram i íslenzkum krónum.
Þegar hann hafði sagt þetta setti
hann fram magann, brýndi röddina og
sagði eins og hann finndi til yfir-
burða sinna.
„En þetta er nú fjármálaspeki, sem
Guðmundur Hagalín ekki skilur."
„Margt leggja þeir sér til
munns, ef satt er.“
Gísli Jónsson lýsti því oft og víða
hve Framsóknarmenn væru haturs-
fullir og fjandsamlegir öllum fram-
förum síðan Ólofur Thors myndaði
stjórnina. ‘Þessu tll sönnunar sagði
hann m. a. svo frá Bernharð Stefáns-
syni I sambandi við launamálið eftir
st jórnarmyndunina:
„Þá át hann undan sér ein og
svínin gera, þegar þau éta undan sér.
Þá át hann allt undan sér.“
Litlu síðar gat hann þess að Bjarnl
Ásgeirsson hefði étið frumvarp.
í því tilefni sagði Hagalín:
„Betur trúi ég því, að Bjami Ás-
geirsson hafi étið frumvarpið, þó að
þurrt hafi verið, en sitthvað eru þeir
þó farnir að leggja sér til munns,
þessir Framsóknarmenn, ef satt er.“
Þriðjudagur 29. oht.
Sín klækjóttur kennir
Mbl. hefir mörg orð um það
nú, að Framsóknarflokkurinn
sé klofinn og stefnulaus flokk-
ur. Vitnar það þá einkum I
atkvæðagreiðsluna um flug-
vallarmálið eða önnur utan-
ríkismál.
Það er erfitt að hugsa sér Mbl.
svo heimskt, að það viti ekki.
að flokkur sjálfstæðra landa
myndast yfirleitt eftir viðhorfi
til innanlandsmála. Getur það
verið, að Mbl. sé lokað fyrir öll-
um skilningi á því, að t. d.
verkamannaflokkinn brezka
greinir mjög á innbyrðis um
utanríkismál? Daglega eru nú
fluttar útvarpsfréttir um þann
ágreining og margt má um hann
lesa í blöðunum og ekki sizt
Mbl. Fylgist stjómmálarit-
stjórnin aldrei með fréttaflutn-
ingi blaðsins, Eða er aldrei
hlustað á útvarp heima hjá
Mbl„
Mbl. veit sínu viti. Hitt er
annað mál, að það er löngu
hætt að miða málflutning sinn
við hæfi hinna greindari manna,
ef það hefir nokkurn tíma
reynt það.
Mbl. ætti að skrifa um sam-
heldni sinna manna, — ekki sízt
í innanlandsmálum. Það gæti
byrjað 1939, þegar flokkurinn
skiptist í 8 og 9 um gengismálið.
Svo var raunverulejga sama
skipting um stjórnarmyndun-
ina þá. Síðan gæti blaðið haldið
áfram og rakið málin allt fram
að afstöðunni til núverandi
ríkisstjórnar, meðan hún var og
hét.
E. t. v. gæti það líka eitthvað
sagt okkur frá ágreiningi í
flokki í fyrra haust, þegar
beiðni Bandaríkjanna um her-
stöðvarnar kom fram, og ef það
man svo langt, gæti þaJS kannske
rifjað eitthvað upp i sambandi
við kosningu forseta íslands að
Lögbergi 1944.
Mbl. hefði frá mörgu að segja,
ef það vildi hreinskilið og hisp-
urslaust kannast við opinberan
og falinn ágreining í flokki sin-
um um þýðingarmestu mál, —
bæði utanríkismál og innan-
lands.
Þess er heldur ekki langt að
minnast, að Mbl. hefir þráslnn-
is hælzt um þennan klofning
og kallað hann frjálslyndi
flokks, þar sem menn búi við
samvizkufrelsi og séu ekki
handjámaðir.
„Eitt rekur slg á annars
horn.“
Svo mæla börn sem vilja.
Mbl. veit hvaðan hættan staf-
ar fyrir brjóstmylkinga þess,
— braskaralýðinn. Það veit, að
ef Framsóknarflokkurinn nær
samstarfi við umbótamenn ann-
arra flokka, er braskarastjórnin
búin að vera. Þá fá ekki Kveld-
úlfsmenn að byggja fleiri hallir
að gamni sínu og mjög hætt við,
að spurt verði, hvort þeir hafi
stolið fé út úr rekstri togara
sinna til að byggja persónuleg
einkahótel. Þá er hætt við að
þrengi að húsabröskurunum, og
það er viðtyæmt mál fyrir fleiri,
en Fétur afneitara í gamla timb
urhúsinu. Þá er hætt við að
sumar gróðaleiðir Garðars, Lár-
usar, Gísla, Jóhanns, Péturs,
Ólafs, Hallgríms o. s. frv. tepp-
ist. Og þá er líka hætt við að
minnki bitlingarnir og stássið,
sem Jón Pálmason og slíkir fá
í fylgdarlaun hjá forréttinda-
stéttinni.
Þajö er þetta, sem Mbl. veit.
Maður er nefndur Gunnar
Benediktsson. Hann er þekktur
landsmönnum af mörgu og ekki
sízt Árnesingum 1 seinni tíð.
Var kennarl á Eyrarbakka.
Byggði þar upp deild úr Sósíal-
istaflokknum, sem nú er genginn
fyrir ætternisstapa. Hann hefir
stundað ritstörf 1 Hveragerði
og talað I útvarp oftsinnis.
Verið frambjóðandi Sósíalista í
Árnessýslu við undanfarandi
kosningar og leitast við að
kynna sér störf okkar bænda
hér í héraði og víðar og hlotið
þau laun fyrir að verða rltstjóri
að blaði flokksins, sem sérstak-
lega er ætlað lesendum I sveit-
um landsins.
Þetta blað er að visu lítið út-
breltt og áhrif þess enn minnl.
Það hefir samt af einhverri til-
viljun borizt mér i hendur að
undanfömu. Við flausturslegan
yfirlestur rakst ég þar á grein,
sem heitir: „Búvörur hækka í
verði um 7—10%“. i grein
þessari kemur ekkert nýtt fram
í garð okkar bænda, heldur er
þar gamla túlkun Þjóðviljans á
verðlagsmálum landbúnaðarins,
sú, sem Alþýðublaðið smjattar
svo á, þegar mikið þyklr vlð
þurfa.
Gunnar hneykslast yfir þvi,
að framleiðsluvörur bænda
hafa hækkað í verði í haust og
læzt ekki skilja ástæðuna, erida
þótt hann viðurkenni I grein-
inni, að kaupgjald hafi hækk-
að á árinu. Þá hneykslar það
ennfremur Gunnar, að ekki
skuli meira tillit tekið til neyt-
enda, — þ. e. verkamanna —
við verðlagningu á framleiðslu-
vörum bænda og getur ekki á
sér setið að ausa þá menn níði,
er með þessi mál fara og hafa
látið þau til sín taka að undan-
förnu. Að visu er ég þeirrar
skoðunar, að bezt færi á þvl, að
samkomulag og fullur trúnaður
ríkti milli framleiðenda og
neytenda um verðlagsmálin. En
ég verð að játa, að ég vantreysti
mjög verkamönnum i þessum
efnum og þá fyrst og fremst
leiðtogum þeirra. Gunnar Bene-
diktsson ekki undanskilinn. —
Hvað gerðist t. d. þegar sex-
mannanefndarálitið birtist?
Þótt fulltrúi Sósialista í nefnd-
inni gerði ekki ágreining og við-
urkenndi þar með, að bænda-
stéttin átti rétt til hliðstæðra
tekna við aðrar stéttir, þá leið
ekki á löngu þar tii blað Sósial-
istaflokksins og þingmenn hans
lýstu yfir, að bændum bæri ekki
þetta verð. Það væri engin
skylda, að þeir fengju það og
væri raunar sjálfsagt að svikja
þetta samkomulag þegar í upp-
hafi. Má svo hver lá mér sem
vill, þótt ég vantreysti þessum
mönnum til þess að hafa skiln-
ing á verðlagsmálum okkar
bænda.
Þess vegna hamast það nú að
Framsóknarmönnum með öll-
um þeim ráðum, sem því hug-
kvæmist í örvæntingu sinni.
„Sjálfstæðisflokkurinn er svo
frjálslyndur, að hann þolir að
vera margklofinn um öll mál,
innan lands og utan. En takið
aldrei mark á Framsóknar-
flokknum í innanlandsmálum,
fyrst hann skiptist einu sinni
eða tvisvar í atkvæðagreiðslu
um utanríkismál."
Örvæntingin gerir menn ekki
alltaf gáfaða.
Hvað mundi nú G. B. og aðrir
forkólíar Sóslalista segja, ef
bændur krefðust þess að vera
alltaf kallaðir til ráða, ef gerð-
ar eru ályktanir um kaupgjald
og kauphækkanir? Þetta væri
álitin hrein fjarstæða. Þó er
þetta sama eðlis og ef verka-.
menn ættu að verðleggja vörur
bænda, án þess að hafa nokkurt
yfirlit um framleiðslukostnað
þeirra. Þetta er hvorttveggja
mat á verðmæti. Annars vegar
vörum til neyzlu. Hins vegar
vinnu við framleiðslu og önnur
störf. Það er þvi útilokað, að
neytendur almennt séu færari
til þess að verðleggja þessar vör-
ur í samræmi við annað verðlag
en bændur sjálfir og þeir full-
trúar aðrir, sem til þess eru
kvaddir með aðstoð Hagstofu ísl.
Hér er byggt á fullkomnum stað-
reyndum, en engri löngun minni
til að fjandskapast við neytend-
ur, enda þótt G. B. og sálufé-
laga hans langi til að halda því
fram.
Að sinni skal ekki lengra út
i þetta farið. Aðeins á það bent,
að útreikningur hagstofunnar
sýnir um 10% hækkun á land-
búnaðarvisitölu frá haustinu
1945. Þessa hækkun mega bænd-
ur ekki fá á búvörur sínar, að
dómi G. B„ þótt reiknuð sé
mánaðarlega vísitala fram-
færslukostnaðar og kaup greltt
jafnóðum eftir henni.
Með fáum orðum vil ég minn-
ast á annan kafla í þessari
sömu grein G. B. Þar segir eitt-
hvað á þessa leið: Er ekki á-
stæða til að ætlast til þess, að
með þeirri tækni sem nú er orð-
in á framleiðslu bænda, geti
farið að draga úr framleiðslu-
kostnaði þeirra almennt, sem
hafi áhrif á vöruverð þeira?
Það er eðlilegt, að G. B. spyrji
svo, eftir þvl sem aðalblað
Sjálfstæðisflokksins skrifaði 1
ágúst s. 1. og sem G. B. vill
sennilega gera að sinum orðum.
Þar er því slegið föstu, að eng-
Um hvað snerist þjóðarat-
kvæðagreiðslan ?
Þjóðaratkvæðagreiðslan i Fær-
eyjum fór sem kunnugt er fram
laugardaginn 14. september, og
voru atkvæði greidd um það,
hvort Færeyingar kysu heldur
að ganga að tilboði dönsku
stjórnarinnar um nokkra sér-
stöðu innan danska ríkisins og
undir danskri yfirstjórn eða
segja skilið við danska ríkið.
Höfðu þingmenn þeirra fær-
eysku flokka, sem vildu ganga
að tilboði stjórnarinnar, Sam-
bandsmenn og jafnaðarmenn,
ráðið formi atkvæðaseðilsins,
þar eð það var lagt lögþinginu
á vald, en samþykkt eftir á af
stjórninni, Færeyskir sjálfstæð-
in stétt 1 þessu þjóðfélagi hafi
haft jafn mikið gagn aí „ný-
sköpuninni” og bændastéttin.
Það sé ánægjulegt að ferðast
um sveitir landsins og sjá öll
þessi nýtízku vinnubrögð við
heyskapinn, með þeim vélum
sem bændum hafi nú hlotnazt.
Svo mörg eru þau orð.
Þeim mönnum, sem ekki virð-
ast hafa meiri þekklngu á þess-
um málum en G. B„ vil ég benda
á, að frumskilyrði þess að afla
heyja á fljótan og þar með ódýr-
an hátt, er að hafa ræktað land
og nægan vélakost við heyskap-
inn. Til þess að draga auðæfin
úr djúpi hafsins þarf ekki nema
fullkomin tæki, til hjálpar
mannshöndinni, en við land-
búnaðinn koma þau ekki að
gagni, nema margþætt ræktun-
arstarf fari áður fram.
Það munu vera innan við 20
ár síðan ræktun landsins fór að
komast í það horf, sem viðun-
andi má teljast, þó enn vanti
mikið á að fullkomið sé. Þó er
eins og G. B. og fjöldi annarra
haldi að slíku megi klppa 1
fullkomið lag á 3—5 árum. Það
væri ekki úr vegi að ræða um
það I alvöru, ef nýsköpunin væri
annað en orðagjálfur, sem inh-
antómum mönnum er svo tamt
að taka sér I munn.
í þessu sambandi vil ég benda
á þá staðreynd, að af þeim 900
heimilisdráttarvélum, sem pant-
aðar hafa verið hjá Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga, er
þegar búið að útvega og afhenda
til bænda aðeins 370. Mörg
hreppabúnaðarfélög hafa pant-
að 4—14 Jeppa. Eftir þvi sem
ég bezt veit hafa enn yíirleitt
ekki verið afgreiddir nema 2
Jeppar i hvert búnaðarfélag
eftir eðlilegum leiðum. Nokkrir
piltar 1 minni sveit pöntuðu
fyrir árl síðan fullkomna jarð-
ýtudráttarvél með tilheyrandi á-
höldum. Fyrir skömmu var eng-
in vissa fyrir því, hvenær hún
kæml. Svona mætti lengi telja.
Þetta eru staðreyndir, hvað
ismenn, sem i upphafi óskuðu
yfirleitt ekki fulls skilnaðar við
Danmörku, heldur hugsuðu sér
að knýja fram viðurkenningu á
rétti Færeyinga til þess að
skipa færeyskum málum án er-
lendrar íhlutunar, vildu gefa
mönnum kost á að kjósa um
fjórar leiðir: Amtsstöðu, stjórn-
aruppkastið, frjálslega íær-
eyska sérstjórn og samband við
Danmörku, skilnað. Þessu íengu
þeir ekki framgengt, því að
hinlr flokkarnir voru 1 meiri
hluta á lögþinginu (höfðu á að
skipa 12 þingmönnum af 23),
og hafa ráðamenn þeirra ef til
vill hugsað sér að knýja fram
samþykkt stjórnaruppkastsins
með þvl að ógna fólki með al-
gerum skilnaði ella. Hefði hins
vegar verið farið að vilja Fólka-
flokksins og sjálfstæðismann-
Thorstein Petersen,
foringi færeyskra sjáifstæðismanna.
anna, er vart að efa, að mikill
meiri hluti almennra kjósenda
hefði aðhyllzt þriðju leiðina:
færeyskt fullveldi um öll fær-
eysk mál, en samband við
Danmörku.
Afstaða færeysku flokkanna.
Hríðin fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna varð allhörð eins og
vænta máttí, því að allir aðilar
sóttu fast sitt mál. Jafnaðar-
menn og Sambandsmenn börð-
ust eins og ljón fyrir því, að
stjórnaruppkastið yrði sam-
þykkt. Jafnaðarmenn túlkuðu
sína afstöðu þannig, að miklum
mun betra væri að samþykkja
þetta dágóða tilboð dönsku
stjórnarínnar en slíta öllu sam-
bandi við Danmörku með þá
óvissu og beinu hættu, sem þá
væri framundan. Einn þingmað-
ur jafnaðarmanna tók þó aðra
stefnu. Það var Jákúp í Jákups-
stovu, þingmaður Vogeyinga og
hinn yngsti allra lögþings-
manna. Hann hvatti eindregið
til skilnaðar og hafði enda áður
en atkvæðagreiðslan fór fram
boðið Fólkaflokksmönnum að
lýsa með þeim yfir sjálfstæði
Færeyja.
Fólkaflokkurinn og Sjálvstýr-
isflokkurinn, sem er í banda-
lagi við hann, voru fyrst ekki
á einu máli um það, hversu snú-
ast bæri við atkvæðagreiðsl-
unni. Jóhannes Patursson, hinn
aldni foringi færeyskra sjálf-
stæðismanna, hvatti eindregið
til þess, að menn greiddu at-
.kvæði með skilnaði. Thorstein
Petersen, formaður Fólkaflokks-
ins og núverandi foringi fær-
eyskra sjálfstæðismanna, lagði
til, að menn skrifuðu á at-
kvæðaseðilinn „nei“ við þeirri
spurningu, hvort þeir vildu taka
Það, sem gerzt
hefir í Færeyjum
Færeyingar eru næsta grannþjó? okkar og nánasta frænd-
þjóð. Þetta ár hefir orðið söguríkt í Færeyjum, og enn er ekki
séð fyrir endann á því, sem þar er að gerast. Öriagaríkar kosn-
ingar eiga að fara þar fram 8. nóvember. tslendingar hafa samúð
með öilum frelsisunnandi þjóðum og telja skylt að virða rétt
þeirra, hversu smáar, sem þær eru. Fyrir því má ætla, að ís-
lenzkum blaðalesendum sé kærkomið að vita full skil á þvi, sem
gerzt hefir í Færeyjum í haust, og er að gerast þar nú. Þess vegna
birtir Tíminn þessa yfirlitsgrein.