Tíminn - 06.11.1946, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.11.1946, Blaðsíða 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er i Edduhásinu við Lindargötu. Sími 6066 REYKJAVÍK FRAMSÓKNARMENN! Komið í skrlfstofu Framsóknarflokksins 6. I\ÓV. 1946 203. blað Ul œnum í dag: Sólin kemur upp kl. 8.28. Sólarlag kl. 15.54. Árdegisflóð kl. 3.05. Síðdegis- flóð kl. 15.30. í nótt: Næturakstur annast bifreiðastöðin Hreyflll, simi 6633. Næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austurbæjarskól- anum, simi 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apoteki, sími 1618. Útvarpið í kvöld: Kl. 19.25 Þingfréttir. 19.40 Auglýs- ingar. 20.00 Préttir. 20.30 Köldvaka: a) Oscar Clausen rithöfundur: Prá séra Jóni Benediktssyni og Bólu- Hjálmari. — Prásöguþáttur. b) Kvæði kvöldvökunnar. c) Kristján Hjaltason kennari: Námurnar í Þernudal. — Er- indi. d) M.A.J.-tríóið leikur á mandó- lín. 22.00 Fréttir. 22.05 Tónleikar: Þjóð- lög frá ýmsum löndum (plötur). 22.30 Dagskrárlok. Skipafréttir: „Brúarfoss“ fór frá Leningrad 3. nóv. til Kaupmannahafnar. „Lagar- foss‘“ er í Kaupmannahöfn. „Selfoss" kom frá ísafirði í gærkvöldi. „Fjall- foss“ fór frá Antwerpen 2. nóv. til Hull. „Reykjafoss" kom til Reykja- víkur 29. okt. frá' Hull, fer 6. nóv. vestur og norður. s.Salmon Knot“ fór frá Reykjavík 28. okt. til New York. „True Knot“ hefir væntanlega farið frá New York 4. nóv. til Halifax. „Anne“ kom til Reykjavíkur 4. nóv. frá Gautaborg. „Lech“ var á Djúpa- vogi í gær á austurleið. „Horsa" kom til Reykjavíkur 2. nóv. frá Hull. Farþegar með e.s. „Anne“ frá Gautaborg tii Reykjavíkur: Óskar Andersson. Sixten Nilsson. Folke Nilsson. Skemm t isamkoma. Framsóknarfélögin í Reykjavík halda næstu skemmtisamkomu sína í sam- komusal Mjólkurstöðvarinnar, föstu- daginn 8. þ. m. Byrjar hún með Fram- sóknarvist kl. 8.30 og er fólk vinsam- lega beðið að mæta á réttum tíma. Vegna þess hvað margir urðu frá að hverfa síðast, er vissara að panta að- göngumiða í tíma. Tekið verður á móti pöntunum í síma 2323 og verða miðarnir að sækjast fyrir kl. 3 á föstu- dag í afgreiðslu Tímans, Lindargötu 9 A. Umferffarkvikmynd. Bifreiðastjórafélagið Hreyfill efnir til happdrættis í fjáröflunarskyni fyr- ir umferðakvikmynd, sem félagið er nú að láta gera. En kvikmyndin verð- ur í eðlilegum litum og með íslenzku tali. Vinningar í happdrætti félagsins eru ný Chervolet fólksbifreið og 10 daga ferð með farþegabifreið næsta sumar. Ásmundur vann þriffju skákina, er þeir Guðmundur og hann tefldu biðskákina frá 'því á sunnudag, til úr- slita í fyrrakvöld. Hefir þá Ásmundur Ásgeirsson unnið tvær skákir, en Guð- mundur Ágústsson hefir unnið eina. Sjö skákir eru eftir. Prentvilla óþægileg kemur fyrir í blaðinu í gær, í smágrein um kartöflumat, þar sem talað er um leiðbeinandi ferðir matsmanns, og sagt að hann komi á mati öðru en hafi verið, en á að vera: víðar en hafi verið. I»j«ðvlljinn ojí Mbl. lýsa stjórnarstefnunni. (Framhald. af 1. síðu) nógn „kulturellum“ affferðum. Þannig hefir þjóðfélagið gegn- sýrzt af fjárplógshugsun, af sið- leysi bisnessmannsins, fjár- málaspillingu. Öll fjármálapól- itík landsins styður þessa spill- ingu. Verzlunarbraskarar hafa frjálsan taum til að raka að sér. Gjaldeyrispólitíkin sér fyirr því. Öllum, sem lánþurfa eru, t. d. til að koma þaki yfir höf- uð sér, varpar fjármálastefna Landsbankans beint í hendur peningaokrarans, er tekur milli 10 og 20 prósent í okurvexti af lánum sínum. Fjárspekúlantar, sem peningaráðin hafa, verða síðan nærri einir um byggingar- framkvæmdir, er þeir okra með og láta ganga kaupum og sölu. Aðrir, sem minni máttar eru, verðg, einnig neyddir til að „braska sig áfram“. Þannig breið*st fjármálaspillingin út eins og faraldur frá þeim „hærri“ til hinna „lægri“, unz mikill fjöldi er orðinn samsek- ur og samábyrgur. í þessu ligg- ur rótin að hinni pólitísku spill- ingu. Þeir, sem í fjármálalíf- inu hafa tamið sér svik og pretti og óráðvendni og ekkert þykir fyrir að hafa af náunga sínum fé og æru, geta einnig í stjórn- málalífinu verið reiðubúnir hvenær sem er að verzla með hag og sæmd þjóðarinnar. Með- an ekki verður tekið fyrir rætur þessarar spillingar í þjóðfélag- inu, eru íslendingar mjög hættulega á vegi staddir.“ Því miður er þessi lýsing Kristins í höfuðatriðum rétt. Hitt er svo annað mál, að hvorki honum né flokksbræðrum hans fer vel vandlætingin, því að þeir hafa í tvö ár veitt fullan stuúning þeirri irikisstjórn, sem best og 1 mest hefir unnið að því að skapa framangreint ástand. Menn geta svo hugleitt þess- ar lý/iingar stjórnarblaðanna og gert sér grein fyrir því, hvort andstaða Framsóknarmanna gegn stjórnarstefnu, sem hefir leitt til framangreindra afleið- inga, hafi verið óréttmæt eða stafaði af afturhaldi, og hvort ekki muni kominn tími til að breyta um stefnu. mcfflmamOTttmmmimmmiiiitmiiiiiiiimiiiiminmmwiimwnmiiiiít Aðalfundur (Framhald af 1. síðu) leysu, Ágúst Þorvaldsson, Brúnastöðum og Stefán Jason- arson, Vorsabæ. Ýmsar tillögur voru sam- þykktar, sem stjórninni var fal- ið að vinna að. Fundurinn var sóttur úr öllum hreppum Ár- nessýslu, nema þremur. Alls voru þar mættir um 100 manns. Fundinum lauk kl. 7.30. Framsóknarfélag Vestur- Skaftfellinga hélt aðalfund sinn í Vík í Mýrdal síðastliðinn sunnudag og hófst hann kl. 3 síðdegis. Fundinn sóttu fulltrú- ar og aðrir flokksmehn úr fjór- um hreppum sýslunnar. Aftaka óveður dróg þó nokkuð úr fund- arsókn. Frummælendur um gang stjórnmálanna að undan- förnu voru þeir Jörundur Bryn- jólfsson alþm. og Daníel Ágúst- ínusson, erindreki flokksins. Allmiklar umræður urðu á eftir og tóku þessir til máls: Helgi Jónsson, bóndi Seglbúðum, Magi>ús Finnbogason, bóndi Reynisdal, Óskar Jónsson, verzl- unarmaður Vík og Sveinn Ein-. arsson, bóndi Reyni. Ríkti mik- il eining og áhugi fyrir málefn- um og baráttu Framsóknar- flokksins. í stjórn félagsins voru kjörn- ir: Helgi Jónsson, Seglbúðum, sem er formaður stjórnarinnar, Jón Gíslason, Norðurhjáleigu, Jónas Jóhannesson, Vík, Siggeir Lár usson, Kirk j ubæ j arklaustr i og Þorsteinn Jónsson. Sólheim- um. Þá voru kjörnir fulltrúar fyirr félagið á flokksþingið, sem hefst í Reykjavík 28. nóvem- ber næstkomandi. Var kosinn einn maður fyrir hvern hrepp og varamaður. Þessir voru kjörnir aðalfulltrúar: Einar Eyjólfsson, bóndi Vatnsskarðs- hóluis, Guðlaugur Jónsson, verzlunarmaður Vík, Jón Gísla- son, bóndi Norðurhjáleigu, Árni Jónsson, Hrífunesi, Há- varður Jónsson, bóndi Króki, Helgi Jónsson, bóndi Seglbúð- um og Guðlaugur Ólafsson, bóndi, Blómsturvöllum. Fund- inum lauk um kl. 7 síðdegis. Vélbátur fersl, (Framhald af 1. siðu) á, en hann var skráður á skipið kvöldið áður en það fórst. Hann var frá Djúpavogi. Stúlkan, sem fórst, var farþegi með skipinu og var á heimleið í Breiðdal, en þaðan var hún ættuð. Þeir, sem af komust, voru Sig- urður Jónsson stýrimaður, Guð- mundur Sæmundsson vélamaður Kaupfélög! Höfum fyrirliggjandl stunguskóflur V insamlegast sendið oss pantanir sem fyrst. Samband ísl. samvinnuf élaga (jamla Bíc FANTASIA Hin tilkomumikla mynd WALT DISNEYS. Ný útgáfa, stórum aukin. Philadelphia Symphony Or- chestra undir stjórn Leopold Stokowski. Sýnd kl. 6 og 9. — HækkaS verð. — BERNSKUBREK OG ÆSKIIÞREK fhjja Ríé (vifi Shúlnnatu) DOLLYS-SYSTIR Skemmtileg, spennandi og ó- venju íburðarmikil stórmynd, um ævi þessara frægu systra. Myndin er í eðlilegum litum. Aðalhlutverk: Betty Grable, John Payne, June Haver. Sýnd kl. 6 og 9. »o«< i HÍiBfclÖNs U5TA . Æ.VlNTYlti- I AU*iTU5& • l ÖNOUM * ORÍI5TAN l SÖDÁN’ í BÖA- STHÍDINU í ÆVÍNTYRALEIT Efíír Wmston S. ChurehilÍ foes.irtispáöheera i$retf&ndx 7jarhatbíc Maimlausa hiisið (The Unseen) Amerísk sakamálamynd. Joel McCrea Gail Russell Herbert Marshall Sýning kl. 3, 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Sala hefst kl. 11. UTBREIÐIÐ TIMANN og Bjarni Friðriksson háseti. { Báturinn, sem bjargaði þeim, sem af komust, heitir Þristur og er aðeins um 15 lestir að stærð. Skipstjóri er Tryggvi Sigurjóns- son. Var báturinn lengi í gær á þeim slóðum, er slysið vildi til og telja sjómenn í Hornafirði,; að sjór háfi ekki verið mjög vondur. Það er og haft eftir þeim, sem af komust, að skipið hafi ekki fengið brot á sig, en annars voru þeir svo þjakaðir, að ekki hafði verið tekin fulln- aðarskýrsla af þeim í gærkveldi. Að svo stöddu verður því ekki með neinni vissu vitað um or- sakir slyssins, en margir telja líklegt, að leki hafi komið að skipinu og það af þeim orsökum snúið við. Þeim, sem af komust, leið eft- ir atvikum vel í gærkveldi, en voru þó all þjakaðir eftir harkn- ingana. Vélháturinn Borgey, var einn af hinum nýju Svíþjóðarbátum af stærri gerðinni og kom nýr til Hornafjarðar síðastl. vor, en þaðan var hann gerður út. Bát- urinn hefir að undanförnu ann- ast flutninga og var að fara með gærufarm frá Hornafirði til Djúpavogs, er slysið varð. Skip- ið var eign hlutafélags í Höfn. BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGIÐ HREYFILL: TILKYNNING Sala happdrættismiða félagsins til fjáröflunar fyrir töku umferðarkvikmyndar hefst í dag. VINNINGAR: 1) Ný CHEVROLET fólksbifreið. 2) 10 daga ferff meff 5 farþega fólksbifreiff sumariff 1947. Sölubörn, félagsmenn og aðrir, sem aðstoða vilja við sölu miðanna, eru beðnir að koma á Hverfisgötu 21, kjallara, (gengið inn um norðurhlið hússins), kl. 5—6, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga, en kl. 2,30—3,30 á laugardögum. Há sölulaun! Bifreiðastjórafélagið HREYFILL bók Ekki heiti ég Eiríkur eftir Guðrúnu Jónsdóttir frá Prestsbakka. — Bók- fellsútgáfan h.f. — Stærð: 128 blaðsíður, 18X12 cm. Verð: kr. 25.00 í bandi Fyrir allmörgum árum kom út eftir Guðrúnu frá Prests- bakka skáldsaga, sem nefnist Fyrstu árin. Þótt Guðrún væri þá flestum ókunn, hlaut þessi saga þegar hinar ágætustu undirtektir, og það margra spá, að hér hefði komið fram á sj ónarsviðið rithöf undur, sem ætti eftir að geta sér verulegan bókmenntahróður. Litlu síðar var þessi frumsmíð Guðrúnar gefin út á dönsku og hlaut einnig hina beztu dóma af hálfu danskra bókmenntagagnrýn- anda. Guðrún dvaldist í Danmörku Öll hernámsárin og sinnti hugð- arefnum sinum eftir því sem ástæður leyfðu. í fyrrasumar, er samgöngur hófust milli land- * anna, kom hún aftur heim og hefir dvalið hér síðan. Nú er önnur skáldsaga eftir hana komin — og söguefnið svipað og í hinni fyrri bók hennar — heimur barnsins og unglingsins. Aðalsöguhetjan í hinni nýju sögu er lítill, bæklaður drengur, „hór“barn, sem elst upp á sveit. Er lífi hans og hugarheimi lýst af þeirri nærfærni, sem Guð- rúnu er lagin, og þó að söguefn- ið sé ekki sérlega viðburðamik- ið, þá fer vart hjá því, að hver, sem bókina opnar, lesi hana með eftirvæntingu og ánægju spjaldanna á milli. Myndir þær, sem höfundurinn dregur upp, eru svo sannar og fangandi, að slíkt getur ekki nema sá einn, er ríkum skáldanda er gæddur. Ég hygg til dæmis, að lýsingin á Siggu gömlu, hinni stritandi sveitakonu, sem aldrei æðrast og ekki gefst upp fyrr en dauð- inn sigrar, muni lengi þykja með ágætum, og þó er hún að- eins aukapersóna, sem ekki kemur við söguna nema í tvelm- ur fyrstu köflunum. J ólablaðsauglýsingar Auglýsendúr, sem tetla afi auglýsa í jjólablafii Thnans, eru vinsamlega befinir afi senda auglýsingarnar sem allra fgrst. Samúð Guðrúnar með oln- bogabörnunum og smælingjun- um er heit og sterk, og kemur það þó hvergi fram nema óbeint, svo að hvergi verður vart leiðin- legs prédikunartóns, sem stund- um hefir orðið fótakefli góðvilj- aðra rithöfunda. Málfar henn- ar er sérstaklega vandað, en samt laust við alla tllgerð og skrúðmælgi. Menn áttu á góðu von frá Guðrúnu, og ég hygg, að hún hafi enn vaxið af þessari bók. Þar sem hún er, er upprisinn kvenrithöfundur, sem skipar sæti sitt með fullri sæmd. J. H. Nýkomin karlmanna- axlabönd H. TOFT Skólavörðustíg 5. . Síml 1935.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.