Tíminn - 19.12.1946, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.12.1946, Blaðsíða 2
2 Finuntudagur 19. des. Sjálfstæðið er ekki söluvara Betri horfur með afurðasölu, segja blöð Ólafs Thors. Mun öllum þykja það mikil tíðindi og góð að vel seljist. Hinu er þó sízt að neita, að sumt í kringum þessi mál hefir vakið leiðinlega at- hygli. Heimsblöðin tala nú hispurs- laust um utanríkisviðskipti ís- lendinga, eins og þar væri ekki um venjulega vöruverzlun að ræða, heldur pólitíska refskák. Þau tala um ótta við vaxandi áhrif Sovétríkjanna, þar sem svo virðist, sem Bretar og Bandaríkjamenn láti sig engu varða fjárhag íslands. Það hefir nú raunar verið venja, að hið kalda lögmál við- skiptalífsins byggðist á gagn- kvæmum hagsmunum. Smá- þjóðirnar hafa yfirleitt orðið að byggja sinn búskap á því, að framleiðsla þeirra og útflutn- ingsafurði^ væru söluhæfar og samkeppnisfærar. Þar hefir það yfirleitt ekki komið til hjálpar að voldugar viðskiptaþjóðir létu umhyggju fyrir fjárhag hinna varða sig svo mjög, að þær semdu á þeim grundvelli. Það er kannske farið að votta fyrir því, að þjóðirnar miði við- skiptasamninga sína við það hvað hinum hentar, og hvers þeir þurfa fremur en eigin þarfir og hag. Gott er til þess að hyggja, ef svo er. Það er vitanlegt að Rússar léðu máls á allmiklum við- skiptum við íslendinga nú í haust, þó að margt sé óljóst um þá hluti. Sýndist það á margan hátt vera eðlilegt, að markað- ur fengist þar fyrir ýmsar sjáv- arafurðir frá íslandi. Svo undarlega vildi til að ýmsir menn hér á landi tóku þessum fregnum illa. Er það minnisstætt að dómsmálaráð- herrann brást illa við og lét í ljósi mikinn óþokka á siíkum samningum. Nú berast fréttir um samn- ingstilboð frá Bretum. Ekki liggur ljóst fyrir um verðtyboð þar, en vitanlegt að um hækkun er að ræða frá fyrri tilboðum. Bendir margt til þess, að síldar- lýsið sé svo eftirsótt, að stór- þjóðirnar vilji mikið til vinna að fá það, og hiki ekki við að yfirkaupa fiskafurðir í því skyni. En þegar þessar fréttir berast bregður syo við, að Þjóðviljinn tekur þeim eins og harmafrcgn. BJaðið spyr með miklum sáJ’ind- um, hvort verið sé að spilla fyrir viðskiptum við Sovétríkin. Er helzt svo að sjá, sem því sé meira atriði að verzla við Rússa, en að fá hátt verð fyrir út.flutn- inginn. Það er þetta, sem er svo al- varlegt mál, að ástæða er til að vekja athygli á því. Áhrifamenn um íslenzk stjórnmál leggja höfuðkapp á það, að verzlað sé í austur eða vestur. Þeim er það fyrir mestu að skipt sé við réttar þjóðir. Jafnframt þessu tala svo heimsblöðin hispurslaust, eins og hægt sé að kaupa hylli ís- lenzku þjóðarinnar, — hafa áhrif á hana með hagstæðum verzlunarsamningum. Þegar svona er ástatt, er full ástæða til að vaka vel yfir sjálf- stæði landsins. Við verðum að gæta þess að selja ekki annað en framleiðsluna, hvorki landið né fólkið. Og það má skiljast, þegar TÍMIMV. fimmtiidaginm 19. des. 1946 234. hlatS NÝJAR BÆKUR f Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja, I. og II. bindi. — ísafoldarprent- smiðja. — Stærð: 338+ 260 bls., 24X16 sm. Verð: innb. 170.00, ób. 100.00. í þessu mikla riti hefir verið dreginn saman mjög mikill fróð- leikur um Vestmannaeyjar og sögu þeirra og þess fólks, sem þar hefir alið aldur sinn. Hefir þar líka oft verið viðburðaríkt, eyjarnar þéttbýlar miðað við aðra landshluta og margt á því mætt. Hér er lýst atvinnuhátt- um Eyjamanna að fornu og nýju, verzlun og viðskiptum, álögum og arðráni, vígaferlum og róstum, Tyrkjaráni og Mor- mónatrúboði, samgöngum og daglegu lífi ríkra og fátækra og mörgu öðru, sem gagnlegt er og skemmtilegt að lesa. En heldur þykir mér það lýti á þessu mikla riti, hversu mikið er þar af þurrum skýrslum og upptalningum, þótt vitanlega sé álitamál, hvað beri að taka og hverju að sleppa af því tagi. Og segja má kannske, að í svona stóru og viðamiklu riti þurfi ekki við slíku að amast og sé enda óhjákvæmilegt. Fólkið, sem um getur, hygg ég, að skipti þúsundum, og myndir eru af nálægt þrjú hundruð mönnum. Auk þess eru í ritinu fjöldi annarra ágætra mynda frá Eyjum, bæðt landlagsmyndir og myndir frá atvinnulífinu. Að öllu samanlögðu má telja, að Saga Vestmannaeyja standi sizt að baki hliðstæðum ritum, sem við eigum. Þeir, sem litið þekkja til Vestmannaeyja og þess lífs, sem þar hefir verið lifað, geta áreiðanlega lesið hana sér til þekkingar og skiln- ingsauka, ekki síður en hinir sér til ánægju og upprifj unar. J. H. Vigfús Guðmundsson: Saga Eyrarbakka. Síðara hefti fyrra bindis. — Vík- ingsútgáfan. — Stærð: 234 bls., 24X16 sm. Verð: ib. kr. 40.00, ób.. 30.00. Saga Eyrarbakka ætlar að verða mikið ritverk í höndum Vigfúsar Guðmundssonar frá Keldum. Bæði hefti fyrra bind- is eru samtals yfir 600 blaðsíð- ur, og ef til vill annað eins og eða fast að því ókomið út. Eins og vænta má, er hér geysimikill fróðleikur saman- kominn, og mjög samvizkusam- lega virðist að . ritinu unnið. Verður það því hið bezta heim- ildarrit um margvíslega atburði bæði fyrr og síðar, ekki aöeins að því, er snertir sögu Eyrar- bakka og raunar alls Suður- lands, heldur og um margt ann- að. En ekki finnst mér það æv- inlega ' skemmtilegt aflestrar, sem ef til vill er ekki heldur að vænta, og þaðan af síður get ég fellt mig við þann skilning höf- undar, er sums staðar kemur fram, á framvindu þjóðíélags- þróunarinnar. En eigi að síður er ból^in þakklætisverð, hvað sem líður lífsskoðunum manna. Væri betur, að fróðir menn og starfhæfir gerðu sögu byggðar- laga sinna jafn rækileg skil og Vigfús. Mikill fjöldi mynda er í rit- inu. J. H. ssi mál eru rædd, að sjálf- rrga atvinnulíf með sam- ppnisfæra framleiðslu, er jákvæmileg undirstaða sjálf- eðrar tilveru hverrar þjóðar. ð viljum hreina viðskipta- tnninga en engin pólitísk upp- Kaupfélög! Höfnm f y rir liggj andl stunpskóflur Vinsamlegast sendið oss pantanir sem fvrst. Vinnufatagerð Islands Ii. f. H Tilkynning Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á hárliðun: 1. Fullkomin hárliðun í allt hárið: a. Kalt olíupermanent .................. kr. 110.00 b. Kalt permanent almennt .............. — 80.00 c. Heitt permanent .......!............. — 70.00 2. Vatnsliðun fullkomin með þvotti og þurrkun, allar tegundir ......................... — 11.20 3. Vatnsliðun fullkomin með þurrkum en án þvottar, allar tegundir ................ — 8.00 í hárgreiðslustofum skal jafnan hanga verðskrá, þar sem getið sé verðs sérhverrar þjónustu, sem innt er af hendi, og sé önnur þjónusta, en nefnd er að ofan, verðlögð 1 samræmi við fyrrgreint hámarksverð. Aðilar á eftirlitssvæði Reykjavíkur skulu nú þegar fá verð- skrá sína staðfesta af verðlagsstjóra, en aðilar utan þess hjá trúnaðarmönnum hans. Ákvæði tilkynningar þessarar ganga í gildi frá og með 18. desember 1946. Reykjavík, 18. desember 1946. Verölagsstjjórinn. Samband ísl. samvinnuf elaga ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ TILKYNNING Vér viljum hér með vekja athygli heiðraðra við- skiptavina vorra á þvi, að vörur, sem liggja í vöru- geymsluhúsum vorum eru ekki vátryggðar af oss gegn eldsvoða, og ber vörueigendum sjálfum að brunatryggja vörur sínar, sem þar liggja. H.f. Eimskipafélag islands KRAFTTALIUR fyrirliggjandi í eftirfarandi stærðnm: Fyrir P/a tonn - 2 - 3 - 5 Samband ísl. samvinnufélaga ÚTBREIÐIÐ TIMANN sABooe 2183/i622 Útvegum allar stærðir og gerðir af sjálfvirkum, raf- knúnum kælivélum fyrir matvörubúðir, veitingahús og heimili. Aðalumboðsmenn fyrir: Thoinas Ths. Sabroe & Co. A/S Samband ísl. samvinnufélaga O I» < I o O (I o <» < i < > O o o o o o o O o O O o o o O o O O O o o O o < I O <» O o o o o O o O o O O o o o O o o o Tímann vantar tilflnnanlega börn til að bera blaðlð út til kaupenda víðs vegar um bæinn. Heitið er á stuðnlngsmenn blaðsins, að bregðast vel við og reyna að aðstoða eftir megni við að útvega ungllnga til þessa starfs. HVAÐ ER MALTKO? Vinnið ötullega fyrir Timann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.