Tíminn - 10.07.1947, Side 1
ritstjórI: ;
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON \
ÚTGEFANDI: \
FRAMSÓKNARFLOKKURINN í
( Simar 2353 og 4373
; PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
< : „ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
simar 2363 og 4373
s AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
\ OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargöw 9 A
Slmi 2323
31. árg.
Reykjavík, fimmtudagmn 10. júlí 1947
133. blað
ERLENT YFIRLIT:
Morðtækninni fleyir fram
v \u‘sl verður barizt með rafmögiiuðum
skyjiiiii og sóttkveikjum, simbi valda sjúk
dómum eða eyðileg'g'ja jjurtagróður
Stöðugt berast fregnir af nýjum uppgötvunum á sviði atomork-
unnar* er munu m. a. hafa þær afleiðingar í för með sér, að
atoinsprengjan verði margfallt hættulegra morðvopn en hún er
nú. Jafnframt fregnast það svo öðru hvoru, að vísindamennirnir
vinni að uppfinndingum nýrra morðvopna, sem munu taka atom-
sprengjunni langt fram að eyðileggingarmætti og ægileik. Allar
sýna þessar fréttir að síst er hugsað minna um stríðsundirbún-
ing en friðarstarf í heiminum, eins og málum er enn komið.
Fiárskipti í seytján hreppum næsta haust
FALLINN í ONAÐ
Verðhækkun á land-
bnnaðarvinnu í
Svíþjóð
í byrjun júnímánaðar var
ákveðin allmikil hækkun á
landbúnaðarafurðum í Sví-
þjóð. Samtök bænda telja
hana þó ekki nægilega til
þess að tryggja hlut þeirra
til jafns við aðrar stéttir.
Á mjólkurafurðum er hækk-
un þessi: Neyzlumjólk hækkar
um tvo aura líterinn, rjómi um
30 aura líterin og ostur um 30
aura kg. Kjöt hækkar og nokkuð
en annars er ætlazt til, að allar
verðlagshömlur á því falli nið-
ur með haustinu og bséndur á-
kevði sjálfir verðið eftir það.
Áætlað er, að þessar nýju
verðhækkanir auki tekjur
bænda á verðlagsárinu 1. júlí
1947 til 30. júní 1948 um 155
milj. kr. Samtök bænda hafa
hins vegar talið nauðsynlegt að
verðhækkanirnar yrðu það mikl
ar, að þær ykju heildartekjur
bænda á þessum tíma um 200
milj. kr.
Átti 200 þús. kr. í
ógildum seðlum
Norska lögreglan hefir nýlega
fundið 200 þús. kr. af göjnlum
seðlum hjá manni einum, sem
er búsettur skammt frá Bergen.
Maður þessi græddi mikið á
stríðsárunum og mun ekki hafa
þorað að láta verða uppvíst um
gróða sinn, þegar eignakönnun-
in fór fram. Seðlarnir voru
faldir í kjallara.
Q Pyrir skömmu síðan voru birt-
ar tvær greinargerðir um þessi
mál á vegum amerísku hernað-
aryfirvaldanna, og skal hér get-
ið nokkurra efnisatriða úr þeim.
Þess skal getið, að hernaðaryfir-
völd hinna stórveldanna munu
ekki síður vinna að þessum mál-
um, þótt það sé meira gert í
kyrþey.
Önnur þessara greinargerða
er eftir flugfræðinginn Glenn
L. Martin, sem stjórnar stórri
flugvélaverksmiðju, þar sem
gerðar eru ýmsar tilraunir fyrir
bandaríska herinn. M. a. skýrir
hann frá því, að nú sé unnið
að tilraunum við framleiðslu á
rafmögnuðum skýjum, sem geti
náð yfir margra fermílna svæði.
Þessum skýjum verður hægt að
dreifa yfir borgir óvinanna og
drepa allt kvikt, sem þar fyrir-
finnst. Þessi ský verða miklu
stórfeldari morðtæki en þær
atomsprengjur, sem enn hefir
tekist að búa til.
Hin greinargerðin fjallar um
sýklastriðið og er eftir tvo fræga
sýklafræðinga við Columbíahá-
skólann, Theodore Rosebury og
Elvin A. Kabot. Þeir telja upp
ekki færri en 33 sóttkveikjur og
virusa, sem hægt sé að nota til
að koma af stað sjúkdómum eða
valda hungursneyð meðal óvin-
anna. Sóttkveikjuhernaður er að
dómi þeirra á margan hátt auð-
veldari en styrjöld með atom-
vopnum. Atomsprengjur verða
ekki framleiddar nema í stór-
um og kostnaðarfrekum verk-
smiðjum, sem aðeins stórþjóð-
irnair geta risi|5 undix. Sótt-
kveikjuvopnin er hægt að fram-
leiða á tiltölulega litlum rann-
sóknarstöðvum, án stórfelds
kostnaðar. Og magnið, sem hægt
er að framleiða, er í flestum til-
fellum engum takmörkum háð.
Það er skoðun Rosebury og
Kabot að auðveldast sé að heyja
sóttkveikjuhernað með þeim
(Framhald. á 4. síðu)
Fjárfjöldi á þessu svæði er nú áætl-
aður 22 þús. fjár, fullorðið og vetur-
gamalt
Fjárskipti hafa nú verið ákveðin á næsta svæði frá varnar-
girðingunni úr Berufirði í Steingrímsfjörð að varnargirðingunni
úr Hvammsfirði í Hrútafjörð, ásamt þrem hreppum í Vestur-
Húnavatnssýslu. Nær þetta svæði yfir seytján hreppa og er fjár-
fjöldi þar áætlaður um 22 þúsund, fullorðið og veturgamalt.
Sá orðrómur hefir gengið undanfarið, að Sukov marskálkur, sem stjórnaði
töku Berlínar, væri fallinn í ónáð hjá valdhöfunum í Moskvu, og hefði jafn-
vel verið dæmdur til fangelsisvistar. Nokkuð er það, að hans sést ekki leng-
ur að neinu getið í rússneskum blöðum. Ýmsir telja, að ráðstjórnin hafi
borið nokkurn ugg í brjósti útaf vinsældum hans.
islendingar hlutu mikið lof
á finnsku íþróttahátíðinni
Finnsku íþróttahátíðinni er nú lokið. Iselnzku flokkarnir höfðu
alls 14 sýningar við ágætar undirtektir. íselnzka glíman vakti
eftirtekt.
Blaðið ,,Heisinki Sanomat“ö
segir meðal annars á þessa leið:
„Hin myndarlega og vel þjálf-
aða fimleikasveit þrettán ís-
lendinga sýndi á mánudaginn
þjóðaríþrótt sína, glímu, sem
vakti sérstaka athygli. Var sýn-
ingunni tekið með látlausum
fögnuði. í byrjun óttuðust menn
að glimumennirnir kynnu að
skaddast á hinu harða gólfi, en
þeir reyndust hjólliðugir. Nú
Nú höfum við fegið rétta hug-
(Framhald á 4. síðu)
ERLENDAR FRETTIR
Tólf Evrópuþjóðir hafa svar-
að játandi boði Breta og Frakka
um þátttöku í Parísarfundinum.
Undirþjóðir Rússa, Pólverjar,
Júgóslavar, Búlgarir og Rúmen-
ar, hafa ákveðið að svara neit-
andi. Líklegt má telja, að fleiri
þjóðir eigi eftir að svara játandi.
f Bretlandi munu nú í undir-
búningi strangari innfiutnings-
höft til þess að spara dollara.
í Frakklandi eru horfur á, að
ein miljón opinberra starfs-
manná hefji verkfall um helg-
ina, ef stjórnin gengur ekki
meira til móts við kröfur þeirra
en hún hefir þegar gert.
Slitnað hefir nú til fullnustu
upp úr samningum Rússa og
Bandaríkjamanna um framtíð-
arstjórn Koreu.
Yfirhershöfðingi Breta í Pal-
estínu hefir nýlega staðfest
dauðadóm yfir þremur Gyðing-
um, sem höfðu gert árás á fang-
elsi og náð þaðan allmörgum
föngum. Skyldmenni hinna
dæmdu hafa beðið Sameinuðu-
þjóðirnar um ásjá.
Færri menn stunduðu sjósókn
1946 en næstu árin á undan
Óglæsileg afleiSiing stjóriiarstefnuimar
í seinasta hefti Ægis, sem er nýlega kominn út, birtist ræki-
leg yfirlitsgrein eftir Davíð Ólafsson fiskimálastjóra um afkomu
sjávarútvegsins á árinu 1946. Kemur þar fram ýms merkilegur
fróðleikur, en þó er það einna athyglisverðast, að sjómönnum
íer fækkandi á fiskiflotanum.
í grein Davíðs er samanburð-
ur á fjölda sjómanna á fiski-
skipum 1945 og 1946. Lítur hann
þannig út:
Ár 1944 1945 1946
Janúar 2599 3308 3002
Febrúar 3742 4080 3964
Marz 4735 4661 4245
Apríl 5075 5015 4448
Maí 5222 4604 4208
Júní 3575 3123 2007
Júli 4675 4445 4623
Ágúst 4688 4217 4662
September 4189 2441 2092
Október 2176 2608 1399
Nóvember 2186 1869 1278
Desember 1723 1511 1295
Samanburður þessi sýnir, að
alla mánuði ársins 1946 hafa
færri menn stundað fiskveiðar
en 1945, að júlí og ágúst undan-
skildum, og þó verður þessi
munur enn meiri þegar gerður
er samanburður við 1944. Síð-
ustu mánuði ársins kann þetta
eitthvað að hafa stafað af sam-
drætti útgerðarinnar vegna ó-
(Framhald á 4. síðu)
Slæra veðrátta haml-
ar síldveiðunum
Lítil síldveiði var fyrir Norð-
urlandi í gær. Bræla var á mið-
unum og óhagstætt veiðiveður.
Um hádegi í gær höfðu borizt
á land til ríkisverksmiðjanna á
Siglufirði um 7000 mál af síld
og auk þess hafði Rauðka tekið
á móti 1800 málum. Síld sem
barst til Siglufjarðar hefir aðal-
lega veiðst úti fyrir Haganesvík
og Siglunesi. í gær var veðrátta
slæm á þessum slóðum og ekki
veiðiveður.
Á Húnaflóa hefir all mikil
síld veiðst undanfarna daga, en
seinasta sólarhring hefir þar lít-
il eða engin síld veiðzt vegna
veðurs. Flotinn er samt nær all-
ur úti á miðunum og bíður þess
að veður batni, þar sem mikill
síldarhugur er nú kominn í
menn og útlit fyrir að síldin sé
til staðar, ef veður hamla ekki
veiftum.
K r ó nupeningarnir
verða innkallaðir
\íý bráðabyrgða-
lög
Einnar og tveggja krónupen-
ingar verða einnig innkallaðir,
vegna eignakönnunarinnar, sam
kvæmt bráöabirgðalögum, er
staðfest voru í fyrradag.
Ennfremur hefir fjármálaráð-
herra verið heimilað, sömuleiðis
með bráðabirgðalögum að gefa
út einnar krónu pappírsseðia,
allt að 1 milj. króna, unz málm-
mynt fæst, en hún er væntan-
leg á hausti komanda frá mynt-
sláttu I Bretlandi.
Hvorttveggja bráðabirgðalög-
eru gefin út vegna þess, að mik-
il brögð eru að því að krónu og
tvegggja krónupeningar hafi
horfið úr umferð og hafi menn
safnað þeim til þess að koma
þeim undan eignakönnuninni.
Bæjarstjórastaða
Þrír umsækjendur eru um
bæjarstjórastöðuna á Sauðár-
króki, Eru það þeir Pétur Pét-
ursson, verzlunarmaður, Reykja-
vík, Árni Þorbjörnsson, lögfræð-
ingur, Sauðárkróki, og Björgvin
Bjarnason, lögfræðingur, Siglu-
firði.
Hér er um að ræða eftirtalda
hreppa: í Barðastranduáýslu,
hluta úr Reykhólahreppi og
Geirdalshrepp.
í Dalasýslu, Saurbæjar,-
Skarðs,- Klofnings,- Fellsstrand
ar,- Hvamms,- og Laxárhrepps.
í Strandarsýslu, Hólmavíkur,-
Kirkjubóls,- Fells,- Óspakseyr-
ar- og Bæjarhrepps.
í V estur-Húnavatnssýslu:
Staður,- Ytri-Torfustaða,- og
Fremri-Torfustaðahrepp.
Fjárfjöldi á þessu fjárskipta-
svæði er áætlaður um 22 þús.
fjár, fullorðið og veturgamalt.
Verður allt þetta fé skorið niður
í haust.
Flutt verða inn á svæðið öll
gimbralömb, sem verða til förg-
unar á Vestfjörðum á næsta
hausti og nokkuð af hrútlömb-
um. Auk þess eitthvað af ung-
um ám ef fáanlegar verða.
Gert er ráð fyrir, að slátrun
hefjist ekki síðar en um mán-
aðarmótin ágúst-september, og
verði lokið fyrir 20. september.
Flutningi líffjárins þarf að vera
lokið um mánaðarmótin septem-
ber—október.
Þess má geta, að vöntun á
gaddavír og tregða á innfluttn-
ingi hans, getur valdið því, að
ekki verði hægt að einangra
fjárskiptasvæðin nægilega vel
og af þeim sökum verði að
hætta við, eða fresta fjárskipt-
um á hluta af því svæði, sem að
ofan getur.
Aflafréttir af Vestfjörðum
og Austfjörðum
Vísitalan
Kauplagsnefnd og Hagstofan
hafa reiknað út vísitölu fram-
færslukostnaðar fyrir júlímán-
uð. Vísitalan reyndist óbreytt
frá því í júní, eða 310 stig.
Ur Vestfirðingafjórðungi og
Austfirðingafjórðungi hafa
Fiskifélaginu borizt eftirfarandi
fréttir um sjósókn og aílabrögð
i júnímánuði:
Sjór var stundaður með minna
móti í fjórðungnum í júnímán-
uði og hættu flestir bátar línu-
veiðum þegar fyrrihluta mánað-
arins, enda voru gæftir stopular
og afli víðast tregur. Nokkuð var
þó um að smábátar stunduöu
l'ínu- og handfæraveiðar á
grunnmiðum og öfluðu oft sæmi
lega. Dragnótaveiðar voru
stundaðar af nokkrum og var
afli oftast sæmilegur og sum
staðar góður.
Einn bátur frá ísafirði fór til
hákarlaveiða um tveggja vikna
skeið og aflaði vel. Fékk hann
alls 65 hákarla. Fjöldi báta úr
fjóröungnum fer til síldveiða
og mun þorskútgerð verða mjög
lítil þar í sumar.
Frá Austfjörðum var útgerð
lítil í júnímánuði, enda búa
hinir stærri bátar sig þá al-
mennt til síldveiða, en fleiri bát-
ar verða nú gerðir út til þeirra
veiða frá Austfjörðum en nokkru
sinni áður. Helzt voru það
smærri bátar á hinum norðlæg-
ari fjörðum, svo og frá Stöðvar-
firði, sem stunduðu línu- og
handfæraveiðar og hefir afli
oftast verið sæmilegur og stund-
um góður.
Guðraundur Sveinsson
látinn
Guðmundur Sveinsson, kaup-
féiagsstjóri í Hafnarfirði, varð
bráðkvaddur að heimili sínu aö
kvöldi hins 7. þ. m. Banamein
hans var hjartabilun. — Hafði
hann verið í verzluninni um
daginn og einskis meins kennt
sér.
Guðmundur var 42 ára að
aldri er hann lézt. Hann var
áður skrifstofustjóri hjá Kaup-
félagi ísfirðinga.
Landbúnaðarsýningin
Landbúnaðarsýningin er nú
opin daglega kl. 2—11 síðdegis.
Mikil aðsókn er ennþá að sýn-
ingunni og höfðu í gærkvöldi
skoðað hana rúmlega 43 þúsund
manns. Óvíst er !að sýningin
verði opin lengur en til næsta
sunnudagskvölds.