Tíminn - 06.02.1948, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.02.1948, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, föstudaginn 6. febr. 1948 29. blað Góðtemplarareglan og þjóðfélagiö Þ ið eru nú nokkrar vikur síðan Mbl. birti grein eftir Pál’ Valdimar Guðmundsson Klólku héraöslækni um öl- írumvarpið, góðtemplara og sjtikrahúsþöríina. Skömmu siður tók Sigríður Eiríksdótt- ir'kappann i bóndabeygju svo að' siðan hefir hvorki æmt né sKíæmt í honum og hafa þó fieiri orðið til að vinna að honum. En þar sem þeir ræða einkum ölmálið sjálft þykir mér hlýða, að bæta við nokkrum orðum um hlutverk og þyöingu Góðtemplararegl- unnur í þjóðfélaginu. Má þó vera, að fleira slæð- isp meö' í umræðurnar, enda hyert atriðið óðru náið. Sakargiftír Kolku. • Læknirinn segir, að lítið sé eitir aí gamalli fremd Góð- tempiarareglunnar. Nú sé í henni „alls konar lýður,“ sem aldrei hefir „skírst í þeirri eidraun aö heyja baráttu við Eakkus um sína eigin sál né annarra.“ „Hönd hennar, sem var hiy og sterk á fyrstu ára- tugum starfs hennar, er nú orðin loppin og máttlaus." „Húii treystir sér ejski til að styðja þá, sem hafa mátt- váná lætur og veik kné, en krefsr, þess, að þeim sé haldið uppi með því að binda þá viö staúr lagaboðsins." Yfir að'ieöst og níð. í iyrsta lagi er vert að at- huga þennan lævislega áróð- ur um afturför Reglunnar. Það kann aö líta vel út fyrir þá, sem eru nógu fáfróðir um h’öna tiö. En sömu sakir og Kolka ber nú á Regluna, voru bornar á hana á þeim gömlu, goöu dögum, þegar ágætis- naenmrnir, sem Kolka telur m upp, voru undir merkjum hennar. Alþingisrímurnar voru kveönar um aldamótin. Þjóð- kunnugt goðskáld, orti þær aö mestu, Líklega er templur- um borin vel sagan þar? Hvað segja menn um þessa Vi.sií F.é, sem nemur íjölda bjóra, íéngú í hlut sinn templarar, ehda er sagt þeir sitji að þjóra síð'an fram á næturnar. Þ íö eru að minnsta kosti jfcveir HÖrir staðir þessu líkir í rímunum, þrátt fyrir Björn Jonssön ,ráðherra, Guðmund E’jörnsson landlækni og skáld in Einar H. Kvaran og Ind- riða Einarsson, sem voru inn- an Keglunnar fyrr á árum. Það hefir aldrei vantað ill- kvittna menn með níð og dýlgjur um Regluna síðan >i m h.öf starfsemi sína í fyrstu. Læknirinn með langa ríafnið lullar þar í marg- troðna slóð, svo glæsileg sem þlín er. - Guömundur Guðmundsson vissi hvaö hann var að segja, þegar hann kvað: Jfemplarasveit! Berðu ægihjálm prúð. ýT’ir aðköst og níð, áfli kærleikans knúð aila, komandi tíð. ‘Hann þekkti þetta aðkast og nið, bæöi frá samtíð og tyrri árum, og hann hefir efiaust rerint grun í það, að framtíðin myndi líka eiga illkvittin smámenni, sem er Efíár Ilalitlór Kristjánsson nautn að því að níða þá, sem eiga sér hugsjónir. Kynni mín af Reglunni. Ég hefi ekki tekið mikinn þátt í störfum Reglunnar, þó að ég óski að eiga samleið móð henni. Ég hefi alltaf verið bindindismaður og haft óbeit á drykkjuskap, allt síð- an ég sá fyrirfólkið úr ná- grannaþorpum mínum velt- ast ölvað af hestunum, þeg- ar ég var barn. Ég hefi ekki meira álit á gáfum mínum, karlmennsku og siðgæðisþrótti, en það, að mér hefir aldrei fundizt, að ég hefði ráð á að sljóvga þetta með áfengisnautn. Og þó að ég hafi séð drukkið fólk á mörgum stigum, hefi ég aldrei vitað nokkurn mann verða vegna áfengis- nautnar neinu því bættari, sem mig skorti, en ýmsa hefi ég séð aumkvunarverða. Svo hefi ég gert mér grein fyrir því, hvers virði fólki getur verið það, að því sé haldið frá þeim áhrifum, sem laða til áfengisnautnar. Ég hefi líka séð, að ýmsum verð- i ur Reglan hjálp tíl að sigrast á drykkjufýsn sinni. Því veit ég, að það er satt enn í dag, sem Guömundur Guðmunds- son kvað: ; "S ■ i ' 7 ' ^ I björtum brúðarklæðum þín bíður Reglan gótT með kraft frá hæstu hæöum og helga kærleiksglóð. í borg, í höll, í hreysi hún hvergi sparar sig. Frá eymd og auðnuleysi hún er að frelsa þig. Þess vegna vil ég vera liðs- maður Reglunnar. Bannlög og lœknar. Læknastétt íslands er ef- laust góð stétt Hún hefir sett sér það mark að útrýma sjúkdómum eftir beztu getu og aldrei verið feimin að heimta alls konar bannlög í því skyni. Sullaveikin má heita horfin, enda vantar ekki „bönd og staura“ á þeirri leið og er síðastur og fræg- astur Stóridómur Claessens um hundahald Reykvíkinga. Holdsveikin hefir verið sigruð með lagaboði. Bólusóttin hefir verið sigr- uð með þeim bannlögum, að enginn má vera óbólusettur. Enn eru læknar okkar á góðri leið með að sigrast á taugaveikinni, enda eru þeir ekki feimnir að láta beita frelsisskerðingu við sýkilbera veikinnar, hvar sem finnast. Nýlega voru, að fyrirlagi lækna, sett bannlög gegn því, aö menn mættu afla sér lífs- bjargar með fýlungaveiði, sem hefir verið eitt af hlunn indum þjóðarinnar frá upp- hafi íslandsbyggðar. Enn má nefna berklaveik- ina, sem læknarnir eru alltaf af eltast við, og ná þar tals- verðum árangri. Þeir leita uppi smit- og sýkilbera, og láta það engu breyta, þó að þeir viti það eins vel og aðrir, að fjöldi manna smitast af berklum, án þess að hafa nokkuð mein af. Þeir vilja samt ekki leyfa að neinn smitist, ef þeir mættu ráða, og er það rétt af þeim, þvi að þeir vita, að' af hverjum 10 sem smitast, verða ein- hverjir aumingjar. En þannig er það líka með áfengispestina, drykkjusýk- ina. En þar eru margir lækn- arnir hræddir við bannlög. en óhræddir við sýkingu, þvert ofan í það, sem annars er regla um stéttina. Það er af þvi, að þeim þykir mörgum hverjum gaman aö vera sýkt- ir og sýkja aðra. Það er eíns ■og Guðmundur Björnsson landlæknir sagði, — einn gáfumannanna, sem Kolka vitnaði í: Mönnum finnst drykkju- sýkin byrja svo skemmtilega. Það má nefna hér ein bannlögin enn, bann við svo- kölluðum skottulækningum. Þau eru læknarnir víst allir sammála um. Þeim vefst tunga um tönn. Áfengislöggjöf okkar bann- ar margt og er illa haldin, — sjálfsagt engu betur en bannlögin voru á. sinni tíð. Og það er á margan hátt auðveldara að líta eftir, að bannlög séu haldin, heldur en svona löggjöf. Að minnsta kosti er hún ekki síður „skóli í ólöghlýðni.“ En hvers vegna vilja þeir, sem þannig líta á bannlögin ekki segja mér álit sitt á landhelgislögunum, skatta- lögunum, friðunarlögum æð- arfugls og umferðarlögum, svo að fernt eitt sé nefnt? Þeir skyldu þó ekki vera í vandræðum meö það, aum- ingja mennirnir? Trúarlegur grundvöllur. Góðtemplarareglan starfar á trúarlegum grundvelli. Einkunnarorð hennar eru: Trú, von og kærleikur. Sum- um finnst ef til vill, að það sé gamaldags að tala um trú á þessari siguröld vísinda og kjarnorku, þegar tveir Ame- ríkumenn halda sig vera komna rétt að því, að búa til lifandi frumu með efna- fræðilegum aðferðum. Það er nú svo. En voru ekki ein- hverntíma til gullgerðar- menn, sem héldu sig vera komna rétt að því að búa til klára gull í grýtum sín- um úr ódýrum jaröefnum? Eitthvað hefi ég heyrt um það, og jafnframt að nútíma- vísindamenn líti á þá, sem fyrirlitlega kuklara. Nú. — Hugsum okkur að Ameríkumenn lærðu nú að búa til lifandi frumu. Hverju breytti það í grundvallarat- riðum? Ekki leysir það gát- una um upptök lífsins og til- verunnar, þó að það væri ef- laust stórmerkur áfangi í þróun vísindanna. En ég geri ráð fyrir að þeir góðu Ame- ííkanar þyrftu þó eitthvað efni í frumuna sína. Og hvað sannaði sú nýsköpun um af- brigði og högun og eöli lífs- ins? Góðtemplarareglan starfar í þeirri trú, að utan og ofan við okkar daglega líf séu til einhver öfl og einhver kraft- ur, sem hægt sé að sækja sér hjálp til í bæn og trú. Hún vill fylkja fólki sínu saman í þeim tilgangi að öðlast slik- an kraft, sjálfum sér og öðrum til hjálpar. Ég fullyrði, (Framhald á 6. síön) Nú hefir Hreggviöur kunningi okkar stungiö niður penna og skrifar hugvekju út af Dagsbrún- arkosningunum. Hann er bæði snarpur og ákveðinn og skal ég ekki dæma um það, en bréfið mun vera sýnishorn af því, hvað menn hugsa og tala nú um þessar kosn- ingar eftir þeim heimildum er fyrir liggja. „í gömlum Landsyfirréttardómum má finna frá því sagt, að sýslu- maður nokkur var að skipta dán- arbúi fyrir rúmlega 100 árum og lagði þrívegis vitlaust saman og jafnan sér í hag. En honum tókst ekki aö halda skiptagjörðinni leyndri og því fór þetta fyrir Landsyfirréttinn og var leiörétt, þó að rétturinn sæi ekki hvort þessar skekkjur hefðu hent skiptaráðand- ann „af vanvara eða hrekkjum". En þessi skiptagjörð Ebenezers sýslumanns er blettur á íslenzku réttarfari og umboðsstjórn. Mér kemur þetta dæmi um ó- fyrirleitni valdsmannsins í hug í sambandi við stjórnarkosninguna 1 Dagsbrún um daginn. Þar var ekki veriö að nota mannasiðina. Að- standendum annars listans var neitað um að sjá Ijjörskrá og mun j það vera dæmalaust ofríki við ís- lenzkar kosningar og fullkomið brot á öllum lýðræöislegum réttar- hugmyndum íslendinga. Er furða, að Dagsbrúnarmenn skuli vera svo tómlátir að þola framámönnum sínum slíka ósvífni. Hér skulum við hugsa okkur hliðstætt dæmi við bæjarstjórnar- kosningar. Gunnar borgarstjóri léti semja kjörskrá til aö nota við það tækifæri og léti flokksbræður sina fá hana til afnota, en vendilega væri þess gætt, að enginn úr and- stæðingasveitunum kæmist að því leyndarmáli hverjir væru þar og hverjir ekki. Það væri aðeins flokksmál. Mér finnst, að slík frammistaða og vinnubrögð við kosningar, sé svo langt fyrir neðan það, sem frjálsir menn geta kallað sæmilegt, að með öllu sé óviðunandi, þó að ef til vill hafi láðst að taka fram í lands- lögum neitt bann við þessu, af því enginn hefir haft hugkvæmni til að gera ráð fyrir slíku ofríki. Auðvitað cr illt að vita hvernig kjörskráin hefir verið, en nú hefir verið fullyrt í Alþýðublaðinu, að maður, sem var í öðru verkalýðs- félagi fram á kjördag, og þar af leiðandi utanfélagsmaður í Dags- brún, hafi verið látinn kjósa, og má vel vera, að svo hafi verið um fleiri. Hins vegar er fullvíst, að menn, sem höfðu verið mánuðum saman í Dagsbrún og engu verk- lýðsfélagi öðru, fengu ekki að kjósa, af því að þeir voru ekki komnir á kjörskrá, en raunar eru þeir menn ekki í sama stjórnmála- flokki og Dagsbrúnarstjórnin. Hingað til hefir verið kennt, að mannréttindin ættu ekki að fara eftir flokkum. Nú virðist eiga að líta þannig á, að þeir einir, sem nota rétt sinn samkvæmt forskrift stjórnarinnar, eigi að fá hann. Má kannske kalla þetta alræði öreig- anna, Brynjólfs, Áka og Sigurðar Guðnasonar, en lýðræði verður það aldrei. Þjóðviljinn talar um öndvegisfé- lag hins frjálsa verkalýðs og er mjög hneykslaður yfir því virð- ingarleysi við verkamannasamtök- in, að birta kosningaúrslit úr Dagsbrún strax og hægfc er. Þessu skal ekki mótmælt hér, en einung- is spurt hvaða áhrif það muni hafa fyrir sæmd og viröingu þessa önd- vegisfélags hins frjálsa verkalýös,. hvernig þar er nú stjórnað kosn- ingunum. Svo mikið er víst, að al- þýða íslands er þá illa komin, ef hún óskar almennt að búa við það frjálsræði, sem felst í þessum önd- vegissiðum þeirra Þjóðviljamanna“. Hér hafiö þið bréfið. Mér finnst að hér sé svo merkilegt mál á ferð, að um það megi ekki þegja. Sé það satt, sem sagt er um leyndina með kjörskrána o. s. frv., þá er ástæða til að lýsa eftir málsbótum fé- lagsstjórnarinnar, og skal ég ekkt stinga þeim undir stól, ef fram. koma. Sé sá orðrómur, sem um bæinn gengur, réttur, þá verða allir frjálshuga og lýðræöissinnaðir menn að taka höndum saman um að uppræta hneykslið. En sé þetta rógur um Dagsbrúnarstjórnina, á hún fullan rétt á því, að hann. verði kveðinn niður. Pétur landshornasirkill. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Gnðlije'irgar Jénsdóttin* frá Ásabergi, Eyrarbakka. Viljhálmur Gíslason og börn. ! Jörð til sölu Jörðin Hofsós í Svarfaðardal er til sölu og laus til ábúðar í næstkomandi fardögum. Áhöfn getur fylgt. Til mála gæti komið að jörðin yrði aðeins leigð. Flest hús á jörðinni eru nýlega byggð og 1 góðu ástandi. Túnið er allt véltækt og töðufall 600—700 hestburðir, engjaheyskapur 300—400 hestburðir. Mikil og góð ræktunarskilyrði. Gott beitiland, bæði fyrir sauðfé og nautgripi. Jörðin er á samlagssvæði mjólkursamlags Kaupfélags Eyfirðinga. Stutt að flytja mjólk á veg, og bílfært heim í hlað. Semja ber við undirritaðan fyrir 20. marz n.k. Réttur áskilinn til að taka hvaöa tilboði sem er eða hafna öllum. Hofsá, 24. jan. 1948. S*örIeif6BB* SSea*5«ss©Mo $

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.