Tíminn - 11.05.1948, Side 2
2
TÍMINN, þriðjud'aginn 11. maí 1948.
103. blað
'V&*. _
i
í’ riag-.
í dag er lokadagurinn. Sólar-
uppkoma kl. 4.20. Sólarlag kl. 22.24.
Árdegisílóð kl. 7. 45. Síðdegisflóð
kl. 20.10.
í nótt.
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380. Næturlæknir er í
læknavarðstofunni í Austurbæjar-
skólanum, sími 5030. Næturvörður
er i Ingólfs apóteki, sími 1330.
Úyarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.20 Tónleikar (plötur). 20.45 Er-
indi: Áhrif febrúarbyltingarinnar
á ísleiizk stjórn mál (Sverrir Krist-
jánsson sagnfræðingur). 21.15 Tón
leikar (plötur). 21.20 Smásaga vik-
unnar: „Sorg“ eftir Edith Howie;
þýðing Haralds Björnssonar (Þýö-
andi'les). 21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál íBjarni Vilhjálmsson).
22.00 Préttir. 22.05 Djassþáttur
(Jón M. Árnason). 22.30 Veðurfregn
ir. — Dagskrárlök.
Hvar eru skipin?
Skip Eimskipafélagsins.
Brúarfoss kom til Leith í gær-
morgun frá Reykjavík. Fjallfoss
fór frá Halifax 5. maí til Reykja-
víkur. Goðafoss er í Amsterdam,
fer væntanlega þaðan síðdegis í
dag til Boulogne. Lagarfoss kom til
Rotterdam í gærmorgun frá Reykja
vík. Reykjafoss fór frá Reykjavík í
morgun til Keflavíkur. Selfoss er
á Skagaströnd. Tröllafoss kom til
Reykjavíkur 8. ma, frá New York
Horsa fór frá Skagaströnd í gær til
Hólmavikur. Lyngaa fór frá ísa-
firði i gærkvöldi til Siglufjarðar.
Varg fór frá Halifax 30. apríl til
Reykjavíkur.
Skip S. í. S.
Hvassafell er ú Siglufirði, Vigör
er á Húsavík. Biodd er á Akureyri
og Sollupd er í Reykjavík.
Ríkisskip
Esja er í Reykjavík, en fer kl.
8 í kvö’.d austur um land, Súðin
er í Reykjavík, Herðubreið fór frá
Eskifirði klukkan 8 í morgun á
norðurleið.
Bay frá Swansea voru farnir að
óttast um áfdrif hans. Var lýst
eftiir honum í hádegisútvarpinu
hér. í gær.; Nú eru komnar íréttir
af togaranum. Er híann ofan sjávar
og ekkert að honum. Hann er að
veiöum við Austurland.
Norrænt -fimleikamót 1950-51.
Eins og'gétið nefir verið í frétt-
um frá í. S. .í., hefir ■ íþróttasam-
bandinu borist boð frá Fimleika-
sambandi Norðurlanda, um það áö
hér færi fram norrænt íimleika-
mót 1950-1951. í tilefni af þessu
liefir f. S. í. skipað þriggja manna
nefnd til að athuga möguleika á
framkvæmd þessa máls. Ne’fnd-
in'a skipa þessir menn: Þorsteinn
Einarsson, formaður Benedikt
Jakobsson og Jón Þorsteinsson.
Árnað heilla
Iljónaband
Gefin hafa verið saman í hjóna-
band á Akranesi 8. þ. m.. af séra
Jóni Guðjónssyni þau Guðrún
E. Gísladóttir frá Saurum í Húna-
vatnssýslu og Sigurjón Kristjáns-
son frá Krumshólum. Heimili
þeirra verður í Borgarnesi.
Erlingur Pálsson
fulltrúi íslands
Sem fulltrúi íþróttasambands ís-
lands í hið nýstofnaða Norræna
sundsamband, hefir stjórn íþrótta-
sambandsins skipað Erling Páis-
son og til vara Benedikt G. Waage.
SKIPAÚTG6KD
RiKisms ,
„SUÐIN
Tekið á móti flutningi til
ísafjarðar, Ingólfsfjarðar,
Djúpavíkur, Drangsness,
Hólmavíkur, Hvammstanga,
Blönduóss, Siglufjarðar og
Akureyrar í dag.
Maður vanur landbúnað-
arstörfum óskar eftir vinnu
í nágrenni bæjarins frá 1.
júní. íbúð áskilin.
Þeir, sem vildu sinna þessu,
leggi nöfn sín í lokuðu um-
slagi á afgr. Tímans fyrir 20.
þ. m. merkt: „Sveitamaöur
131.“
E.s. „Reykjafoss”
fer frá Reykjavík í dag,
þriðjudaginn 11. maí, til
Leith og Antwerpen.
H. f. Eimskipaféiag ísiands
Úr ýmsum áttum
Hvítasunnuför Ferðafélagsins.
Ferðafélag íslands fer skemmti-
för út á Snæfellsnes og Snæfells-
jökul yfir hvitasunnuna. Lagt af
stað kl. 2 á laugardag Trá Austur-
velli og ekið aila leið út undir
Stapafell_ Gengið á Jökulinn á
hvítasunnudag og gist í sæluhúsi
F. í. (í 800 m. hæð) eina nótt.
Farið á skíðum á jökulinum. Allt
hið merkasta skoðað' á, nesinu. Far
ið í Búðarhraun, Amarstapa, Söng
helli, Hellna, að Lóndröngum og
Malarrifi og ef vinnst timi til út í
Djúpalón og Dritvxk. Fólk hafi með
sér tjöld viöleguútbúnað og mat.
í björtu veðri er dýrðlegt útsýni af
Snæfellsjökli. Komið heim aftur á
mánudagskvöid. Áskriftagjald á
skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs. Tún-
götu 5, en fyrir kl. G á íimmtudag
verða allir að vera búnir að taka
fai’miða.
TJmferðarðómstóllinn
í Reykjavík
fékk 198 mál til meðferðar í
aprílmánuði. 93 voru ákærðir fyr-
ir skiija bifreiðar eftir á stöðum,
þar sem siíkt er ekki leyfilegt, 54
fyrir of hraðan akstur, 14 fyrir
að skrásetningarmerki vantaði á
bifreiðar þeirra og H fyrir rangan
akstur um einstefnugötur. Hin
brotin voru af j msum toga spunn-
in, of margt fólk í bifreiöunum og
þar frarn eftir götunum.
Togari, sem óttast var um,
kominn fram.
Eigendur togarans Longiand
Horfinn hátíðsdagur
í dag er einn þeirra gömlu há-
tíðisdaga íslendinga, sem faliinn
er í fyrnsku — lokadagurinn. Fyrir
nokkrum áratugum setti þessi dag
ur svip sinn á Reykjavík og fjöl-
margar verstöðvar íslendinga. Nú
er þetta breytt. Lokadagurinn er
orðinn að kyrrlátum fjársöfnunar-
degi Slysavarnafélags íslands.
Fiskibátai-nir halda enn um hrið
áfram að sækja á rniðin með
sama hætti og í vetur. Vetrarver-
tíðin hefir sem sé fengið eins
lconar sumarauka.
Ég efa það ekki, að margir gömlu
sjómannanna muni sakna' loka-
dagsins í sinni fyrri mynd, enda
eðlilegt. Hann vs.r áður hinn mikli
gleðidagur vermannanna, er nutu
lífsins einn dag eftf margra mán-
aða stranga baráttu við hafið, áður
en þeir héldu hVer í sína átt til
nýrra starfa. Þá var mikið um
dýrðir, og þótt stundum væri drukk
ið fast, eins og enn vill loða við
íslendinginn, þegar hann gerir sér
dagamun. og talsvert væri sukk-
samt oft og tíðum, lifir minningin
um þennan dag með ævintýra-
ljóma í vitund flestra.
Margar sögur ganga um atburði.
sem gerðust á lokadaginn, og yrði
oí langt mál að rifja margar þeirra
upp hér. „Berið mig þangað, sem
þvargið er“, á einn hinna gömlu
sjósóknara að hafa sagt á loka-
daginn, þegar fæturna brast styrk-
leika til þess að bera hann. Hann
treysti höndunum, ■f.ótt fæturnir
væru ekki mikils megnugir, enda
gamalhertur við árina í mörgum
barningi á Faxaflóa.
En nú þarf engan aö bera þang-
að, sem þvargið er. Það er ekki
lengur meira þvarg en hversdags-
lega á lokadaginn. En þótt ég hafi
aidrei lifaö neitt, sem nefnt verði
nafninu lokadagur, þá verð ég aö
játa það, að mér finnst sem þjóð-
leg verðmæti hafi’ farið í súginn
með honunx. Við höfum að *ísu nóg
af hátíöisdögum af ýmsu tagi. Við
höfum nóg af þvargi af ýmsum
tegundum. En lokadagurinn er fyrir
bý, og ég sakna hans með gömlu
sjómönnunum, sem áttu hann að
eigin hátíðisdegl, þegar þeir á
morgni æskunnar og í blóma lífsins.
J. I£.
Félagslíf
Fjalakötturinn
sýnir gamanleikinn Græna lyftan
í Iðnó í kvöld kl. 8.
Lokadagsskemmtanir
vei’ða í kvöld í Örfirisey og Sjálf
stæðishúsinu. Byrja kl. 9.
K. R., í. R. og Skátar
ráðgera ferðir á Eyjafjailajökul
um hvítasunnuna. v
Ferðafélag íslands
ætlar skemmtiferð á Snæfells-
nes og ganga á Snæfellsjökul um
hvítasunnuna. Lagt af stað á laug-
ai'dag kl. -2.
Vex-ðandi
heldur fund 1 kvöld kl. 8.30. Mörg
góð skemmtiatriði.
Ödýrar auglýsingar
Unglinga
eða eldra fólk vantar til þess
að bera út Tímann víðsvegar
um bæinn.
Uppl. í síma 2323.
Allt til að anka
ánægjnna.
Sauöfjár merkimálningin fyrir-
liggjandi. Skrifið, símið, sendið.
Verzlun Ingþórs, Selfossi.
Sími 27.
Framhaldsaðalfundur
Fæðiskaupendafélags Reykj avík-
ur verður í Kamp Knox í kvöld
kl. 8.30
I Fiskiræktar- og veiðifélagsins Blanda verður haldinn |
f að Bólstaðahlíð sunnudaginn 30. maí n. k: og hefst kl. |
1 3,30 síðdegis. |
| Dagskrá: |
i 1. Erindi veiðimálastjóra. |
2. Reykningar og skýrsla. §
3. Tillögur stjórnar og veiðimálastjóra. |
I 4. Önnur mál. 1
i 5. Kosningar. |
| Stjónalsí. |
iTiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiHiiiuniiiiiiiniiiiiiniiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiii.ummmmmimmmmmmmi.
HMiiniiiiiiiiiimiiiiiiimiimiiiiiiliiiimimiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimimiiimiimiiiM
Noregur — ísland
| verður í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudaginn 13. mai ;
I kl. 3,30 síðd.
Keppt verður í sjö sundgreinum. Búast má við met-
I um í flestum eða öllum sundgreinunum. Aðgöngumið-
! ar seldir á þriðjudag. Kosta sæti kr. 15,00. stæði kr.
jj 10.00 og barnastæði kr. 5,00.
...
rsey
i . .. t
Kvennadeild Slysavarnafélags Islands í Reykjavík. |
Aimennur dansleikur |
Slysavarnafélagið Ingólfur efnir til kvikmyndasýn-
ingar og almennrar dansskemmtunar í björgunar-
stöðinni í Örfirisey í kvöld kl. 9. — Sæbjörg og Þor-
steinn verða í förum fyrir almenning frá kl. 5 síðd.
til miðnættis.
Slysavarnadeildin Ingólfur.
í Sjálfstæðishúsinu i kvöld kl. 9.
seldir í anddyri hússins eftir kl. 5.
Aðgöngumiðar I
í
i
NEFNDIN. i