Tíminn - 06.10.1948, Síða 6

Tíminn - 06.10.1948, Síða 6
6 TÍMINN, miðvikudaginn 6. okt. 1948. 220. blaff (jatnla Síc Á liverfanda Isveli (Gone With thc Wind) Sýnd kl. 8 Börn innan 12 ára íá ekki aðgang Gullgrafara- liasrÍBBsi Spennandi amerísk litmynd með Kandolph Scott Gypsy Itose Lec Dinali Shore Sýnd kl. 5 ytfja Síi Síasaley og Livings tone Amerísk stórmynd er sýnir hinn merka sögulega viðburS þegar ameríski blaðamaðurinn Stanley leytaði enska trúboðans David Livingstone á liinu órannsakaða meginlandi Afríku. Aðalhlutverk Spencer Tracy Nancy Kelly Sir Cedric Hardrvicke Sýning kl. 5, 7 og 9 Eigistkosaa aassars BBsasssss (En andens Hustru) Efnismikil finnsk kvikmyjid, gerð eftir skáldsögunni ,,Sylvi“ eftir Minna Canths. Danskur texti. Aðalhlutverk: Helena Kara, Leif Wager, Etlvin Laine. Bönnuð börnum innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9 'TjarHatbíé Iripcli-któ SaimleiktsrÍBisi „Keykjavík í morðissálinu vorra daga44. (Tlie Truth About Murder) Siðari liluti. Kvikmynd Óskars Gíslasonar. Afar spe,nnandi amerísk leyni- lögreglumynd. Aðalhlutverk leika: Bonita Granville Þulur Ævar R. Hvaran. Morgan Conway Rita Corday Sýnd kl. 9 Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5. 7 og 9 Símí 1182 Erlont yfirlit (Framhald af 5. síöuj. önnur en fyrir tvær seinustu styrj- aldir, er Ieiðir af þvf að Rússar hafa tekið við hlutverki Þjóðverja. Þott Svíar hafi samkvæmt fram- ansögðu markað sér hernaöarlegt hlutleysi, sýna þeir óhikað samúð sína með vesturveldunum á öðrum sviðúm. Þeir taka þátt í Marshall- endúrreisninni. Á þingi Sameinuðu þjðanna nú fylgja þeir mjög ein- dregið tillögum Bandaríkjanna í kjarnorkumálunum. (iriiHimlarfiill meðferð á lirossniH. (Framliald af 5. siðu). um undan, og má slíkt telj- ast níðingsleg meðferð á hryssunum, enda oft komið fyrir að slíkar hryssur hafa orðið klumsa í skipunum og stundum fyrri. Hann leyfir, að hrossin séu, keypt járnalaus áafturfótum, og rekin þannig norðan úr landi til Akraness. Hér er um einhverja J)á verstu meðferð að ræða, sem heyrzt hefir tal að um á íslenzkum hrossum. Hrossin urðu ekki bara sár- fætt, heldur svo kviðgengin, að eitt varð að drepa á Hvann eyri og önnur á Ytra-Hólmi. Enn er það svo, að sögn sjón- arvotta, að hrossin, sem eftir eru á Ytra-Hólmi, ganga sér trauðla að mat. Svo eru þau farin eftir reksturinn. Nú er enn talað um hrossa- markaði. Mælt er, að Gunnar eigi að. kaupa hross á þeim. Sé svo verður að krefjast þess, að hann sjái um að þau verði öll járnuð. Þess verður líka að krefjast, að hann kaupi ekki hryssur, sem fol- öld hafa verið nýtekin und- an* og geri hann það verður dýralæknir sá, er hrossin skóðar við útskipun, að banna að troöjúgra hryssur séu settar um borð. Loks væri æskílegt, að Gunnar fengi einhrern, sem staddur er á markaðsstað til að at- huga, hvert hryssan væri komin að köstum, því að sýni legt er, að sjálfur sér hann það ekki. Hins vegar mun 90 % af mönnum, sem í sveit búa, sjá það, og ætti því að vera innanhandar að fá ein- hvern til að athuga það fyrir litla eða enga borgun. Við þurfum að Iosna við hrossin, en við eigum að gera það án þess að kvelja þau, eins og gert hefir verið á þess um síöustu mörkuðum. Ég tel vafasamt hvert meðferðin, sem hrossin fengu nú, sé ekki refsivcrð að lögum. En það ætti Dýraverndarfélagið að athuga. 1. okt ’48. Bóndi. Betra er seisit en ekki. (Framhald af 4. síðu) íslenzka þjóðin vafalaust komizt hjá mörgum þeim erfiðleikiyn, er nú steðja að henni. Þá hefði ekki verið só- að hufídruðum milljóna í fá- nýtan hégómá, eða ráöleys- isbrask Áka & Co. Þá væri mörgu öðruvísi og betur hátt að en nú er. — En hvað um það, héðan af stoðar ekki baun að tala um það, og af hinu ber að gíeðjast, ef „þeir eru nú farnir að hugsa. Von- andi verða það allir sannir Sjálfstæðismenn, sem fara að hugsa, þótt seint sé, og var- ast það framvegis að láta valdafíkn nokkurs manns — hvort sem hann heitir Ólaf- ur Thors eða eitthvað annað — ginna sig til að taka koll- steypu líka þeirri, er þeir tóku undir árslokin 1944. Því nú ættru þeir að hafa' Isert af reynslunni, að sjálfstæð lýð- ræðisþjóð — eins og íslend- ingar þykjast vera — getur ekki haft'í valdasessi fjöður- landslausa bitlingaseggi eða virðingargj arna eiginhags- munamenn. Þeir eru vissu- lega engu betri, sem nota bitlingaseggina sér til fram- dráttar í valdabaráttunni, þótt þeir gangi undir öðru pólitísku nafni. Hann drepur á það í grein þeirri — sem ég nefndi í upp hafi — þessi Sjálfstæðismað- ur, að þeir, sem hugsað hafi til þessa, hafi verið hundelt- ir . af flokksforustunni, ef örlað hafi á sjálfstæðri hugs- un hjá þeim. Þetta mega menn ekki setja fyrir sig hér eftir, og ég er sannfærður um, að þeir sem hugsa rétt, munu ekki gjöra það, heldur kasta klíkuskapnum út 1 hin yztu myrkur og fyrirlíta valdagræðgi forustusauð- anna og; þá mun líka „betri daga morgunsól" skína hátt um strönd og hlíö. Einn sem hugsað hefir nokkur ár. Goðafoss fer frá Reykjavík í dag, mið- vikudaginn 6.11. kl. 8 síðdeg- is til Boulogne, Rotterdam og Kaupmannahafnar. H.F. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS. 14—15 ára stúlka úr sveit óskast á gott heimili í Reykjavík. Gæti fengið að læra handavinnu, ef hún vildi. Upplýsingar í síma 4120 fyrir 15. okt. Jóhannes Elíasson — Iögfræðingur — Skrifstofa Austurstræti 5, III. hæð. (Nýja Búnaðarbankahúsinu) Viðtalstími 5—7. — Símí 7738. Köld borð og heitur veizlumatur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUR '-----—1—-—-— --------------— --------------—. GOSTA SEGERCRANTZ: 79. dagar freistingum gæt þín... Þau voru aö ljúka þessu stímabraki út af herbergj- unum, þegar þau voru skyndilega ávörpuð: — Það var þó gott, að við höfðum loks hendur í hári ykkar, var sagt. ; Þegar þau snéru sér við, stóðu þar tveir menn, sem með frábærri mælsku gerðu þeim skiljanlegt, að þeir væru Walker frá „New York Sun“ og Tayior frá „The Star.“ Þeir höfðu árangurslaust leitað þeirra á skips,- fjöl, en nú höfðu þeir loks fundið þau og ætluðu ekki að láta tækifærið ganga sér úr greipum. — Hvernig gekk ferðin yfir Atlantshafið? Hvers vegna heitið þér de la Fontaine,? Búið þið í sama her- bergi? Hvernig lízt ungfrúnni á ameríska kvenfólkið? Er það ekki betur klætt en franskar konur? Reykið þér aðeins sígarettur eöa notið þér líka kókaín? Er það satt, að Ástríður prinsessa sé með tréfót, og hvers ! vegna giftist hún þýzka krónprinsinum? Það rigndi yfir þau spurningunum, og blaðamenn- irnir létu sér í léttu rúmi liggja, þótt þeim gæfist alls ekki ráðrúm til þess að svara. Þeir höfðu sjálfir þegar ákveðið svörin við spurningum sínum, svo aö þar varð hvort eö var ekki um bætt. — Hvað ætlið þið að gera ykkur til dægrastyttingar í kvöld? sagði Walker að lokum. Ég leyfi mér að stinga upp á því, að þið komið annaðhvort í skrifstofur okk- ar eða til Taylors vinar míns. Það er þá fastráðið. Áður en Svantesson og Ginettu hafði unnizt tími til þess að láta í ljós vilja sinn, voru amerísku blaða- mennirnir búnir að varpa um það hlutkesti, hvorn þeirra þau ættu að heimsækja. Taylor Ijómaði af á- nægju, því það hann hafið unnið... Ginetta skildi ekkf .nema litið eitt..af því, sem sagt var. En hún var þegar orðin hrifin a£ þessum fjeriegu Ameríkumönnum. — Bjóddu þeim að borða. með okkur, hvislaði hún að Svantesson, en beið svo alls ekki eftir því, aS liaiin S gerðí það, heldur bauð. þeim. sjálf. Svantesson. hafSi á hinn bóginn hugsað sér, að kvöldinu yrði varið á annan hátt. Það kom hálfgeröur luntasvipur á hann. En Ginetta stakk hendinni undir handlegg honum og hallaði. sér lítið eitt að honum, og það vakti undir eins hjá honum nýja von um það, að kvöldinu yrði ekki á glæ kastað, þrátt fyrir tilkomu amerísku blaöa- mannanna. Þau settust nú brátt að snæðingi. Það var drukkið kampavín og Búrgundarvín, og Taylor upphóf mikið daður við Ginettu. En vesalings Svantesson neyddist til þess að hlusta á sögur Walkers um þekkta New York-búa, er sátu hér og þar um salinn. Sænski blaða- maðurinn hafði aldrei fyrr heyrt þessa fólks getið og ; lét sér þess vegna nægja aö kinka kolli tómlátlega. En með sjálfum sér reyndi hann að upphugsa ráð til þess að losna við þessa ágengu Ameríkumenn, svo að hann mætti búa að Ginettu einn og í friöi... . Hann vonaði fastlega, aö heimsóknin í ritstjórnar- skrifstofur blaðs Taylors myndi gleymast. En það var nú eitthvað annað. Honum til mikillar gremju var það einmitt Ginetta, sem vakti máls á þeirri fyrirætlun. Það varð ekki undan þessu vikizt, og eftir klukkustund ar akstur gegnum borgina, var loks numið staðar fyr- \ ir framan tólf hæða byggingu, þar sem hiö ágæta \ blað Taylors hafði aðsetur sitt. Taylor leiddi gestina úr einni deildina í aöra. Alls ; staðar var unnið af kappi. Ginetta vék aldrei frá hlið Táylors — Svantesson sá ekki betur en þau þrýstu sér stundum hvort upp að öðru á hinn ískyggilegasta hátt. Hann var því alls ekki í neinu spariskapi. En það vildi honum til happs, aö hinar stórbrotnu vélar og skipulagning vinnunnar við blaðið megnuðu smám saman aö vekja áhuga hans og draga að sér athygli hans. Walker geröi sér líka allt far um að skýra hvað eina sem bezt fyrir honum. Allt í einu var sem Svantesson vaknaði. af draumi. — Hvað er orðið af þeim hinum? spurði hann. Þeir Walker voru komnir inn í lítið herbergi, sem auðsjáan- lega var notað við prentmyndagerð. — Bíðið andartak, svaraði Walker. Það er svo mikill súgur hérnaö áð ég ætla að Ioká glugganum frammi 1

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.