Tíminn - 20.02.1949, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.02.1949, Blaðsíða 8
„ERLENT YFIRL1T“ í dafl: Örytfgismál Danmerkur 33. árg. Reykjavík 20. febrúar 1949 39. b!að Sveinn Björnsson forseti veiknr Forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, veiktist af lungnabólgu í fyrradag. í gærkvöldi var hann þó á batavegi, a3 því er lækn- ar töldu. 'jarval opnaði málverkasýningu í sýning- arskála myndlistarmanna í gær igar I arfélagstRs lagðir fram Reikningar BúnaSarfélags íslands tvö síðustu árin voru til umræðu á Búnaðarþingi í gær, og fylgdu Gunnar Árna- son, gjaldkeri félagsins, og Steingrímur Steinþórsson bún aðarmálastjóri þeim úr hlaði. Sigurður Jónsson frá Staf- felli er nú kominn til búnað- arþings. Kom hann með vél- skipinu Ingvari Guðjónssyni, eftir að hafa beðið ferðar í Höfn í Hornafirði í hálfan mánuð. Vesímaonaeyinga- félagið í Reykjavík gefur Landakirkju 5 Jmsund kr. Vestmanneyingafélagið í Reykjavík gaf nýlega fimm þúsund krónur til Landa- kirkju i Eyjum, og átti það fé að renna til skreytingar á kirkjunni eða hljóðfæra- kaupa. Nú hefir verið ákveðið, að féð renni í hljóðfsrakaupa- sjóð, sem talsvert fé var í fyr ir. Stendur nú aðeins á nauð synlegum leyfum til þess að kaupa nýtt orgel handa kirkj unni. Sýnlr þsir 63 málverk, seits orHið ðiafa til á ýmsijiai tísiiim, en ekkert fseirra er til söln Revkvíkingar urðu fyrir miklu happi í gær. Fremsti list- málari þjóðarinnar, Jóhannés Sveinsson Kjarval opnaði mál- verkasýningu, þar sem sýndar eru 63 myndir, sem eru hver rnnarri fegurri. Opnun þessarar sýningar kom flestum á övart, þar sem ekki hafði frétzt, að Kjarval ætlaði að halda sýningu. En Kjarval er vanur að koma mönnum á óvart, svo rð það myndi koma fólki á óvart, ef hann gerði það ekki. Blaðamaour frá Tímanum fór á fund Kjarvals mn fimm- leytið í gær, þegar sýningin var opnuð, og átti við liann stutt íal um sýninguna og margt fleira. Svisslendingar taka ekki þátt í neinum hernaðarsamtökum Svisslsndingar hafa lýst yf- ir því, að þeir muni hvorki taka þátt í Evrópuráðinu né neinu bandalagi hernaðarlega éðlis. Hins vegar séu þeir fús- ir til þátttöku um mál, sem séu menningarlegs eða við-- skiptalegs eðlis. lag fysirhugað? Komizt hefir á kreik orð- rómur um það, að fyrirhugað sé að stofna Miðjarðarhafs- bandalag, er síðan verði tengt við Atlantsliafsbandalagið fyr irhugaða. Munu tyrkneskir erindrek- ar hafa átt um þetta viðræð- ur við brezka stjórnmála- menn. Listamaðurinn var auð- þekktur úr hinum fjölmenna hóp, sem komimí var í sýning arskálanum, skömmu eftir að sýningin var opnuð í gær. Hann gekk á milli kunningj- anna berhöfðaður og í sól- skinsskapi, heilsaði þeim og klappaði. Hann var rétt bú- inn að sleppa penslinum, þeg- ar fyrstu gestirnir komu, og honum hafði ekki unnizt tími til að þurrka litina af hönd- unum og var ennþá í mál- arafrakkanum sínum. Hann var þarna slettóttur upp yfir höfuð, rétt eins og málarar eiga að vera, en ekki prúðbú- inn með hvítan flibba, eins og miklir listamenn eiga ekki að vera á hátíðlegum augnablik- um. Lítillátur listamaður. — Jú, segir Kjarval um leið og hann tekur af sér gleraug- un, heldur þeim lárétt út frá sér og horfir þungbrýnn fram í salinn. Svona getur enginn maður horft nema Kjarval, þessi meistari lita og drátta. — Jú, þú ættir að setja eitt fyrir mig í blaðið, — það að ég uggði ekki að mér í dag og vissi ekki hvað timanum leið og varð svo of seinn með að ná í alla vini mína. Það voru nokkrir vinir mlnir, sem ég gat ekki hringt til og boðið að koma klukkan fjögur. Eigin- lega hafði ég í ógáti fallizt á að opna í dag. Ég var um annað að hugsa, þegar ég aug lýsti, svo að ég var ekki bú- inn að sýna þetta einka- vinum mínum, sem ég þurfti að láta krítisera málverkin hjá mér og segja mér, hvort þau væru sýningarhæf. Svona er mesti listamálari íslenzku þjóðarinnar lítillát- ur. Hann er ekki viss um, að einhvert allra fegursta mynda safn, sem hér hefir sézt, sé boðlegt. Þetta lítillæti er aðals merki sannra listamanna. Hvað eru myndirnar margar? — Já, hvað myndirnar eru margar. Kjarval setzt á áhorfendabekkinn.Hann man það ekki. En Jón Þorleifs- son er hérna. Jón! Hvað eru myndirnar margar? — Hann segir að númerin séu sextíu og þrjú, segir svo Kjarval, brosandi, og lætur á sig gler- augun með snöggri hand- sveiflu. Kjarval segir, að myndirn- ar hafi orðið til á ýmsum tím um. Sumar séu með því nýj- asta, sem hann hafi gert. All ar eru myndirnar framúrskar andi fallegar. Einum finnst þessi fallegust, en öðrum hin. Margir munu vera sammála um það, að meðal hinna feg- urstu sé landlagsmynd úr Borgarfirði eystra, þó að öðr- um finnist aðrar fallegri og hafi kannske jafn mikið til síns máls. Kjarval er fús að leyfa, að tekin sé af honum mynd til að birta í Tímanum. Komdu hérna, segir hann þó, og taktu mynd af þessu og bendir á stærsta málverkið. Getur þetta þarna við hliðina ekki komið með? Jú, það getur það sem bezt. En ég vil ekki vera með á myndinni, segir Kjar- val, það spillir. Þú getur svo tekið mynd af mér og systur minni, ásamt ungu fólki hér í salnum. En systirin vill ekki að birt sé mynd af sér í blaði. „Það er bezt við eigum þessar myndir allar sameiginlega.“ Rétt í þessu kemur feitlag- inn, lítill maður til lista- mannsins og biður um að fá að kaupa mynd. Það er ekki hægt, svarar Kjarval. Hér eru engar myndir til sölu, og auk þess er ég búinn að lofa þess- ari mynd, ef ég sel hana. Það ætlar maður að kaupa hana fyrir þrjú hundruð þús. ef ég I vil selja hana, segir Kjarval og ; skellihlær, svo að heyrist um ; allan sýningarskálann. Menn ; hrökkva upp frá því að skoða myndir úti um allan sal, því að listamaðurinn kemur þeim á óvart. Feitlagni maðurinn dregur sig í hlé, en Kjarval þrífur í öxlina á honum, dreg ur hann að sér og spyr: — Hver ert þú eiginlega? Hann fær að vita það, og þeir kveðj ast með virktum. — Það truflar sýninguna, segir Kjarval, að hafa mynd- ir til sölu. Það er bezt að við eigum þessar myndir allar sameiginlega, bætir hann við. „Ég hefi gleymt að hafa fastaskipti.“ Það kemur fleira og fleira fólk í salinn, og gestirnir stara í undrun og aðdáun á listaverkin og furða sig á því, að mannlegt ímyndunarafl og hendi dauðlegs manns skuli geta skapað svo hreina og sanna list. Og þegar allt er orðið fullt af fólki, lítur Kjarval í kring- um sig og heldur stutta ræðu: — Nú hver andskotinn, ég hef gleymt að hafa fataskipti. Hann lítur á hendurnar, sem Lange biríir skýrslu Lange, untaríkismálaráð- herra Norðmanna, birti í gær á flokksþingi verkamanna- flokksins norska, yfirlýsingu um viðræður þær, sem hann átti við Bevin og Achenson. Sú yfirlýsing var þó óljós. Hins vegar lýsti hann yfir þeirri stefnu norsku stjórnar- innar að taka þátt í samstarfi engilsaxnesku þjóðarinnar. Talsverð andstaöa er gegn því innan verkamannaflokks ins, að Norðmenn hraði sér að taka ákvörðun í þessu máli, og hefir stjórnin sætt allmikl um andróðri. v Alíee prinsessa af Batíenberg:, móð ir Philips hertoga af Edinborg. er nunna í grísk-kaþólsku klaustri á eynni Tenes. Svona lítur sú eðla frú út í nunnubúningnum. Járnbrautarslys í Norður-Frakklandi 27 menn fórust og að minnsta kosti þrjátíu særð- ust, er hraölest og eimreið rákust saman í Norður-Frakk landi. skreyttar eru málningarslett um og á frakkann, sem er með sömu ummerkjum. Ég sé, að þið eruð öll svo fín, aö ég verð að fara heim, og ef til vill hefi ég fataskipti. Og það skiptir engum togum, að Kjarval er rokinn út úr sýn- ingarsalnum og skilur mynd- irnar sínar einar eftir hjá ókunnugu fólkinu. — Kjarval kemur mönnum á óvart og opnar sýningu, þegar enginn á von á jafn óvæntu happ>, og menn eru jafnvel farnir að sætta sig við ótið, aflabrest j og hvers kyns óáran. Og nú rýkur hann burt. ! Lýst eftir húsi. ! En hvernig var það? Var ekki einu sinni samþykkt á alþingi af fulltrúum þjóðar- innar, að þjóðin sjálf ætti að fá leyfi til að byggja hús yfir Kjarval og listaverkin hans, svo að hún gæti átt þau nieð honum, eins og hann vill helzt, en þurfi ekki að selja þau vinum sínum, sem gera þau blökk af reykjarsvælu í þægilegum stofum á minna en einum mannsaldri? Þetta var meira að segja samþykkt að eindregnari vilja þjóðar- innar en flest annað, sem sam þykkt hefir verið á íslandi. — Þó heyrist ekki, að byrjað sé að byggja húsið. Og þó er bú- ið að byggja ærið mörg og stór hús á íslandi, síðan þetta var samþykkt. Hvorki fugl né fiskur”, segir Coually Acheson ræddi í gær við full trúa sex ríkja um frumdrög Atlantshafssáttmálans. Álitið er, að Acheson hafi þar skýrt frá þeim umræðum, sem átt hafi sér stað í utanríkismála- nefnd öldungaöeildar banda- ríska þingsins. Raunar hafði Conally, formaður þeirrar nefndar, áður sagt, að þær til lögur, sem lagðar voru fyrir utanríkismálanefndina, hafi hvorki verið fugl né fiskur og þurfti mikilla breytinga við til þess að vera viðunandi fyr ir Bandaríkin. Fiskimálaráðstefnu í Washington lokið Nýlega er lokið alþjóða- fiskimálaráðstefnu í Washing ton. Sátu hana fulltrúar ell- efu ríkja við norðanvert Atlantshaf, þar á meðal þrír íslenzkir fulltrúar, Thor Thor sendiherra, Árni Frið- riksson fiskifræðingur og Hans G. Andersen þjóðréttar fræðingur. Að ráðstefnunni lokinni var undirritaður samningur um verndun fiskimiða og fleira, en þó staðfest, að samningurinn hefði engin á- hrif á kröfur einstakra strand ríkja um víðáttu landhelgi og lögsögn yfir fiskimiðutn. | Aðalfundur mið-1 | stjórnar Fram- | j sóknarflokksins I | hefst á morgun I i Aðalfundur miðstjórnar \ \ Framsóknarfl, verður seít- i | ur næstkomandi mánudag \ I kí. 4,30 í samkomusal Eddu i i liússins, Lindargötu 9a. Mið i 1 stjórnarmenn og vara- i | menn v.itji aðgöngumiða í i i skrifstofu flokksins á i 1 mánudag. Ennfremur geta | ; stjórnir Framsóknarfélag- | | anna og fulltrúaráffsmenn \ | vitjað aðgöngumiða á sama i i staff, ef þeir óska að sitja f i fundinn. i imiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiHiiiiiiiiiiiiKiiiiiiiiii'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.