Tíminn - 25.02.1949, Blaðsíða 2
2
TMINN, föstudaginn 25. febrúar 1949
43. blað
'Jrá hafi til heiía
í dag
Sólin kom upp kl. 7.50. fjólarlag
kl. 17.32. Árdegisflóð kl. 4.05 Síð-
degisflóð kl. 16.25. 5. dagur í Góu.
Allþykk snjóbr^ða þekur alla jörð.
í nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum. sími
5030. Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1760. Næturakstur
annast Litla bílastöðin, sími 1380.
ÚtvarpLð
I kvÖld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla. — 19.00
Þýzkukennsla. 19.25 Þingfréttir.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Préttir.
20.30 Útvarpssagan: „Jakob“ eftir
Alexander Kielland; XV. lestur —
sögulok (Bárður Jakobsson). 21.00
Strokkvartett útvarpsins. 21.15 Frá
útlöndum (ívar Guðmundsson rit-
stjóri). 21.30 íslenzk tónlist: Söng
lög eftir Árna Thorsteinsson (plöt-
ur). 21.45 Fjárhagsþáttur (Birgir
Kjaran hagfræðingur) 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.05 Passíu-
sálmar. 22.15 Útvarp frá Sjálf-
stæðishúsinu: Hljómsveit Aage Lor
ange leikur danslög. 23.00 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss kom til - Reykjavíkur.
22. þ. m. frá Leith. Dettifoss' er í
Keflavík. Fjallfoss fór frá Halifax
22. þ. m. til Reykjavíkur. Goðafoss
er væntanlegur til Eskifjarðar í
dag frá Hull. Lagarfoss fer frá j
Reykjavík í kvöld til Leith og
Kaupmannahafnar. Reykjafoss er
væntanlegur til Reykjavíkur í dag
frá Hull. Selfoss fór frá Húsavík1
18. þ. m. til Antwerpen. Tröllafoss (
fór frá Reykjavík 16. þ. m. til Hali- ;
fax. Horsa er á Sauðárkróki. Vatna J
jökull er á Austfjörðum. Katla fór (
frá Reykjavík 13. þ. m. til New
York.
Ríkisskip.
Esja er á Austfjörðum á norður-
leið. Hekla er í Álaborg. Herðu-
breið er í Reykjavík. Skjaldbreið
er væntanleg til Reykjavíkur í dag
frá Vestmannaeyjum. Súðin var í
Genova í gær. Þyrill er á leið frá
Álaborg til Rotterdam. Hermóður
er í Reykjavík.
Ftugferðir
Flugfélag Islands.
Gullfaxi er í Reykjavík. Sólfaxi
og Glitfaxi fóru til Akureyrar í
gær fullfermdir farþegum báðar
leiðir, eða 44 farþega hvora leið
með báðum Föxunum.
Loftleiðir.
Hekla varð að snúa við til Prest
víkur í fyrrakvöld, eftir að vera
búin að fara hálfa leiðina til ís-
lands, en kom í gær síðdegis með
18 farþega. •
Geysir fer til New York á sunnu
dagsmorguninn og voru um 20 far
þegar búnir að panta far með
honum vestur í gær.
Samkomur og fundir
Leikkvöld Menntaskólans.
Frumsýning Menntaskólaleiksins
„Mirandólína" verður í kvöld og
kváðu allir aðgöngumiðar vera upp
seldir. Sýningar verða svo aftur
á morgun og sunnudaginn.
Árshátíð.
Vörubílstjórafélagið Þróttur held
ur árshátíð sína í Sjálístæðishús-
inu í kvöld kl. 8.30.
Þó að vörubílastjórar séu skiptir
í stjórnmálaskoðunum munu þeir
skemmta sér vel sameiginlega á
árshátíð sinni.
Framsóknarvistir.
Þessa dagana auglýsa Alþýðu-
flokksfélögin í Hafnarfirði, Góð-
templarar á Röðli og Guðjón á
Hverfisgötunni í sínum félagsskap,
að þeir spili Framsóknarvist og hafi
það sem aðalnúmer á skemmtun-
um sínum. Reyndar eru þessir að-
ilar feimnir eins og ung stúlka að
nefna hið rétta nafn vistarinnar,
en Framsóknarmenn vona að þess,-
ir góðu menn taki fleira gott eftir
sér, þótt þeir reyni að pukrast með
að láta bera á því.
Bazar.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík hefir bazar í dag kl. 2
e. h. í Góðtemplarahúsinu, uppi.
Dagsbrún.
Verkamannafélagið Dagsbrún hef
ir árshátíö sína í Iðnó annað kvöld.
Hefst hún kl. 8 með sameiginlegri
kaffidrykkju of eftir hana verður
fjölbreytt skemmtiskrá.
Úr ýmsum áttum
Mjólkin.
Alllangir kaflar á Krýsuvíkur-
veginum voru orðnir þungfærir í
gær, einkum austur á Selvogsheiöi
og þaðan upp í Ölfus. Var í ráði
að senda þangað jarðýtu til hjálp
ar. í austansveitúnum er orðið mjög
snjóþungt sumstaðar, svo ekki hef-
ir náðst mjólk t. d. úr Biskups-
tungum, Landi og víðar undan-
farna daga. Og í gær var óvíst um
hvort nokkur mjólk næðist úr Rang
árvallasýslu.
í Borgarfirði er örðugt um flutn-
inga, en 8000 lítrar hafa þó komið
þaðan meö Laxfossi hvorn daginn
í gær og í fyrradag. En örðugt er
að flytja mjólkina þaðan vegna
íláta skorts. En þau góðu t'ðindi
er þó að segja í þeim efnum, að
Vélsmiðjan Héðinn mun fara aö
smíða allmarga mjólkurtanka fyrlr
Borgfirðingana, sem eiga að taka
1000 lítra hver, og verður út-
búnaður þeirra sæmilegur, svipað-
ur og tíðkast erlendis.
Mjólk verður ekki skömmtuð í
dag.
Seðlaveltan.
Eftir því sem nýprentað janúar-
hefti Hagtíðinla segir hefir séðla-
veltan á árinu 1947 komizt hæst
í tæpar 160 miljónir króna, en í
desemberlok þess árs komst hún
niður í rúmar 107 miljónir króna.
Stafar sú lægð sennilega að miklu
leyti af eignakönnuninni og pen-
ingaskiptunum, er þá fóru fram'
Hafi seðlaveltan þá um áramótin
orðið sú langlægsta, sem hún hefir
verið nú um langan t'ma. En svo
steig hún nær stöðugt á árinu 1948
og var orðin nú í árslokin yfir 175
miljónir króna.
Sýning Kjarvals.
í gærkvöldi voru rúmlega 2000
menn^búnir að skoða málverka-
sýningu Kjarvals i Listamannaskál
anum. Eru margir, sem sjá sýning-
una mjög hrifnir af henni. Verður
áreiðanlega fjöldi manns sem skoð
ar hana áður en henni verður lok
að, en það verður ekki fyrr en upp
úr mánaðamótum.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 11 árd. til kl. 11 síðdegis.
Norðurferðir.
Síðastliðinn þriðjudag fór ein á-
ætlunarbifreið með póst .héðan á-
leiðis norður, fyrir Hvalfjörð.
Komst hún til Akraness og lagði
ekki af stað þaðan fyrri en í gær.
Hafði ekki frétzt af henni um 4
leytið í gær. En vafalaust verður
það erfitt ferðalag, því að nú er
mjög farin að þyngjast færð í
Borgarfirði og Holtavörðuheiði hef
ir verið talin alófær undanfarið
nema fyrir jarðýtu sem mun hafa 1
verið hugmyndin að láta draga \
bifreiðina norður fyrir. Með far-:
þega var hætt við að fara.
Menn sem þurftu að fara norður
leicðu sér bifreið með drifi á öllum
hjólum og lögðu af stað héðan frá
Reykjavík kl. 4 í fyrrinótt inn fyrir
Hva'fjörð, en þeir voru ekki komn
ir að Ferstiklu um 4 leytið í gær.
í fyrradag var bifreið frá Akra-
nesi 14 klukkutima að brjótast fyrir i
Hvalfjörð. en í gær var undirbún- |
ingur hafinn að fara að ryðja
Hvalfjarðarveginn.
illllllllllllllllllllllllllliiilillllliliillllllllllllllllllllllllllillllllliltllllliillllllllllliiillllllliniliililiiiillllillitllllllllllllll
Stangaveiðifél. |
Reykjavíkur j
frumsýnir kvikmyndina |
„Við straumana“
1 í Gamla Bíó n.k. sunnudag kl. 1.30 e. h. Myndin er =
| tekin í eðlilegum litum af Kjartani Ó. Bjarnasyni og i
| sýnir m. a. lax- og silungsveiðar í mörgum af beztu í
i veiðiám á landinu. I
Aðgöngumiðar eru seldir í verzluninni Veiðimað- i
urinn, Lækjartorgi í dag og á morgun og í Gamla i
| Bíó á sunnudag, verði eitthvað óselt. |
fiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii
::
Skátafélögin í Reykjavík:
Barnaskemmtun
Skátaskemmtunarinnar verður í Skátaheimilinu laug-
ardaginn 26. febr. kl. 5 e. h. og sunnudaginn 27. febr.
kl. 3.30. — Aðgöngumiðar verða seldir í Skátaheimil-
inu í dag kl. 6—8 og kosta kr. 8.00.
Skemmtun fyrir fullorðna verður haldin á sunnudag
og hefst kl. 8. Aðgöngumiðar verða seldir í Skátaheim-
ilinu í dag kl. 8—9 og kosta kr. 15.00.
Skemmtanir þessar eru jafnt fyrir skáta sem aðra.
NEFNDIN.
»
1
::
::
::
• iiini iii 11 i^iiii iii i ■■■iiiii iiiin iii n 11 ii ii i iiiiii iii 111 ii 11111111111 ii 11111111 iii i iii 11 ii iii 11111 m i iiiii i iin iiiii ii n iiiiiiii in iiiii 11
| Erum aftur byrjuð |
i að taka á móti blautþvotti og frágangsþvotti. Sækjum |
i og sendum. |
I Bæjarþvottahús Reykjavíkur f
I í Sundhöllinni. — Sími 6299. i
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
»«4»»»»«»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»m»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»mH»»»A»
Rafgeymar
:: gler-geymar fyrir 32 volta vindrafstöð til sölu. Er einn :;
K
Ú
♦♦
::
♦♦
H
♦♦
♦♦
::
::
•♦
::
•j ig tilvalið fyrir 2 stöðvar 12 volta. Upplýsingar í síma ::
*♦ ♦♦
Læknarnir og krabbameinið
Fyrir nokkru ,var stofnaður hér
á landi fyrir forgöngu ötulla og
áhugasamra lækna fé’agsskapur,
sem helgar sig baráttunni gegn
krabbameininu, sem nú er einn sá
sjúkdómur, sem þyngstum búsifj-
um veldur. Þetta er ánægjulegt
spor, sem ’^onandi stuðlar að því,
að lífi margra manna, er annars
hefðu fallið í valinn fyrir aldur
fram, verði bjargað.
Svipaða baráttu við krabbamein
ið verða allar menningarþjóðir
heims að heyja. Margar þeirra eru
að vísu betur vopnaðar í þeirri
■baráttu en við — hafa á að skipa
fésterkum og vel mönnuðum til-
rauna- og rannsóknarstofnunum,
sjúkrahúsum og lækningastofum
með nýjustu og fullkomnustu tækj
um og sérfræðingum. sem geta
heigað Ííf sitt baráttu gegn þessu
ægilega meini mannanna.
í erlendum blöðum má við og við
lesa. hvaða árangur næst 1 þessari
baráttu, og er fróðlegt að fylgjast
með: því. Það má líka vera upp-
örvun þeim, sem leggja nú út í
baráttr/a hér, 'að erlendis eru
menn sífellt að ná betri og betri
árangri við krabbameinslækningar,
ef til sjúklinganna næst í tæka tið.
Til dæmis skýiir danski læknir-
inn Otto Mikkelsen nýlega frá því
í norræna læknablaðinu, að nú sé
svo komið, að áttatíu af hundraði,
' sem fara *undir uppskurð vegna
krabbameins í endaþarmi, fái bata,
ef aðgerðin sé gerð í tæka t:ð.
! Til skamms tíma þóttu litlar líkur
J til þess, að slíkar skurðaðgerðir
stoðuðu. Og það, sem meira er —
þessum spítalalækni hefir tekizt að
j bjarga fimmtungi þeirra manna,
sem taldir voru langt leiddir af
; krabbameini í endaþarmi. Af sjúkl
ingum þeim, sem hann vitnaði til,
var þó flest aldrað fólk, margt
yfir sjötugt.
Viðlíka góðar fréttir má lesa í
ýmsum blöðum af lækningum á
fleiri sviðum krabbameins. En samt
j sem áður stendur enn í fullu gildi,
i að fyrsta skilyrðiö til þess, að
| sjúklingurinn geti gert sér góðar
^vonir um ba'#,, er að hann vitji
■ læknis nógu snemma.
Að endingu er full ástæða til
þess að hvetja almenning til þess
’ að styðja hið nýstofnaða félag, er
berst gegn útrýmingu krabbameins
ins. Það er, eins og hér hefir áður
, verið sagt, nýtt slysavarnaféjag.
J. 11.
1
4 í Gerðum.
::
•♦
♦♦
::
Til útgerðar:
Fiskilínur úr Sisal, allar gerðir.
Fiskilínur úr ítölskum hampi, frá 1 yz til 7 punda.
Önglar og Öngultaumar.
Botnvörpugarn úr Manila og Sisal.
Bindigarn og saumagarn
Botnvörpur fyrir togara og togbáta.
. *
Kynnið yður verð og gæði
Stakkholti 4
Símar 4536 og 4390