Tíminn - 10.05.1949, Side 4

Tíminn - 10.05.1949, Side 4
4 TÍMINN, þriðjudaginn 10. mai 1949. 99. blað Tillögur um stjórnarskrá f rá Aust firðingUm og Norðlendingum Agallar núgildandi stjórn- arskrár. £>égar ákveðin verða megin atriéí stjórnarskrár lýðveld- isiris,'verður að hafa hliðsjón af þéim ágöllum á stjórnskip urí ríkisins, sem afdrifarík- astir hafa orðið á liðnum ár- um.' Gallar þessir eru aðallega þrenns konar: f yrsta lagi of miklll samdráttur ríkisvalds- ins á einum stað. í öðru lagi sérktakir erfiðleikar í sam- barídi við myndun rikis- stjórna, hinar þrálátu stlórn- arkrepnur. í þriðja lagi óeðli- leg flokkaskipun. Verður nú vikið nánar að hverju tilviki um sig. I. Samdráttur ríkisvaldsins. Almennt mun viðurkennt, að stjórnarfar siðustu ára hafi stefnt um of að sam- drætti alls opinbers valds á einum stað, í höfiiðborg rík- isins, Reykjavík. Að sama skapi hafa aðrar byggðir landsins orðið útundan og háðar höfuðborginni i fjár- hagslegu, atvinnulegii og menningarlegu tilliti. Hefir þróun þessi leitt til þess, að ofsalegur vöxtur hefir hlaup- ið í Reykjavík, og fólki hefir fjölgað mjög í borginni og nágrenni hennar um leið og því hefir fækkað annars stað ar, atvinna hefir þorrið og afkomu allri hnignað viðast hvar annars staöar á landinu, svo að til beinnar auðnar horf ir á ýmsum stöðum. sem ann ars mega teljast byggilegir. í kjölfar þessarar þróunar kemur glötun mikilla verð- mæta á hinum hnignandi stöð um, röskun þjóðfélagslegs jafnvægis, samfara því, að hætta skapast á einhæfingu atvinnuhátta, sem leiðir til þess, að almenn afkoma þjóð ar'innar verður um of háð ein stkum atvinnugreinum, svo sem nú er orðið, þegar telja má, að velmegun þjóðarinnar sé;að miklu leyti byggð á síld veiðunum við Norðurland, sem standa 1—2 mánuði á súmrum, eða stopulli síld- veiðí í Faxaflóa á vetrum. IVTun öllum ljóst, hvílíkur háski er fólginn í slíkri þró- uri‘;‘ tögin um fjárhagsráð eru gloggt dæmi þess, hversu all- ir iandsmenn, hvar sem þeir é'ru búsettir, verða nú að .lúta boði' eða banni valdamanna i höfuðstaðnum. Ekki má t. d. býggja hlöðu eða bílskúr, án þéss að fá til þess leyfi þéirra. Hér skal ekki vefengd nauðsyn þeirrar meginreglu, sem fram kemur í nefndum lögum, varðandi alls konar fjárfestingu. Hins vegar virð- ist, að mátt hefði haga eftir- litinu meira í hag lands- manna með því að dreifa því, í stað þess að leggja það um- svifalaust undir skrifstofu- bákn í höfuðstaðnum. Það er bæði tafsamt og kostnaðar- samt að þurfa að leita um Eins og getið hefir verið um hér í blaðinu, hafa Fjórð- ungsþing Austfirðinga og Fjórðungssamband Norðlendinga sent frá sér bækling með tillögum um nýja stjórnarskrá og greinargerð fyrir þeim, og birtir Tíminn hér fyrri hluta hennar. öll slík leyfi til fjarlægra staða, og þess má enda vænta, að eftirlit allt verði handahófskennt, þegar það er framkvæmt af mönnum, sem ekki hafa aðstöðu til, vegna fjarlægðar og ókunn- ugleika, að kynna sér mála- vöxtu til fullrar hlítar, enda þótt á engan hátt sé í vafa dreginn vilji og ástundun í þær áttir. Lögin um fjárhags- ráð marka enga stefnubreyt- ingu. Þau eru aðeins glöggt sýnishorn af því, hvernig sí- aukin íhlutun ríkisvaldsins er tryggð hfuðborginni, án tillits til þess, hvað hag- kvæmt og eðlilegt mætti telj ast fyrir landsfólkið almennt og dagleg störf þess. Þessi óheillastefna veitir Reykjavík óeðlilega sérrétt- indaaðstöðu, sem á engan hátt verður réttlætt með því, að hún er höfuðborg ríkisins. Þau raska nauðsynlegu jafn- vægi þjóðfélagsins og eru skaðvænleg fyrir þjóðina, — höfuðborgina líka, þegar til lengdar lætur. 2. Stjórnarkreppur. Annar höfuðókostur gild- andi stjórnarskipunar er sá, að hún gerir ráð fyrir, að Alþingi myndi ríkisstjórnina. Á stjórnarmyndun hafa oft- ar en einu sinni orðið alvar- legar tafir. Þegar slíkir at- burðir gerast, er jafnan ríkj- andi öngþveiti um mörg hin mikilvægustu málefni ríkis- ins. Verður ekki fyrir séð né með tlum talið það tjón, sem af því getur hlotizt, að ríkið sé stjórnlítið eða stjórnlaust mánuðum eða jafnvel árum saman. Slíkt ástand virðist helzt skapast, þegar mest ríð ur á því, að föst og örugg stjórnarstefna sé í ríkinu. Hina miklu erfiðleika, sem þjóðin á nú við að etja í at- vinnu- og fjárhagsmálum, má að verulegu leyti rekja til þess háttar stjórnmála- ástands. 3. Óeðlileg flokkaskipun. Megin-orsakanna til þess, að þingræðið í núverandi formi þess, hefir reynzt þjóð- inni svo illa, sem raun ber vitni, er fyrst og fremst að leita í flokkaskipun þeirri, sem ríkir. Flokkaskipunin þróast og mótast á grund- velli þess kosningafýrirkomu lags, sem gildir. Með ýmsum hætti eru nú þingmenn kosnir til Alþing- is. Hér eru einmenningskjör- dæmi, 21 að tölu, kjósenda- fjöldi hvers þeirra breytileg- ur, frá ca. 500 til 3500. Þann- ig er kjörinn 21 þingmaður. Þá eru 6 tvímenningskjör- dæmi, og hlutfallskosningar viðhafðar þar. Þannig eru fengnir 12 þingmenn. í einu kjördæmi, Reykjavík, eru kosnir 8 þingmenn með hlut- fallskosningu. Þingmenn kosn ir í ýmsum kjördæmum eru því 41. Þá er gætt við 11 þing mönnum, uppbótarþingmönn um. Um val þeirra gildir fyrst. og fremst sú megin- regla, að þeim er skipt á milli hinna ýmsu flokka með það fyrir augum, að hver flokk-! ur fái þingmannatölu í réttu hlutfalli við kjósendafjölda. Uppbótarþingmenn hvers flokks eru síðan valdir að þrem leiðum, sem ekki verð- ur nánar lýst hér. Fyrirkomu lag þetta er margbrotið, og niðurstaðan verður oft harla ólík. Þannig eiga þá sæti á Alþingi samtals 52 þing- menn. Af þessu sést, að gildandi kosningatilhögun er mjög grautarleg, gætir ýmissa sjónarmiða, en þó engra al- gjörlega, og mætti svo að orði kveða, að hvorki sé þetta fugl né fiskur. Þessi skipun hefir myndazt fyrir ýmsar handahófslegar breytingar, sem gerðar voru á stjórnarskránni og tók að lokum á sig þessa mynd eða ómynd við síðustu breyting- una, 1942. Undir þessu skipulagi hafa þróazt í landinu fjórir stjórn- málaflokkar. Enginn flokkur hefir fengið hreinan meiri- hluta á Alþingi, og fullvíst má telja, að enginn hljóti slík an meirihluta í framtíðinni. Stjórnarmyndun í ríkinu er þess vegna háð því, að sam- starf geti tekizt með tveim eða fleiri stjórnmálaflokkum um myndun ríkisstjórnar. Reynslan hefir sýnt, að lang- ur tími eyðist til þess að ná slíku samstarfi, og enn lengri tími fer til þess að ná sam- komulagi um stjórnarfram- kvæmdir, ef ævistundir stjórnarinnar hrökkva til þess. Oft er nauðsyn skjótra að- gerða. Meiri eða minni drátt- ur á • raunhæfum aðgerðum bakar þjóðinni löngum ómet anlegt tjón, veldur því ósjald an, að viðfangsefnið verður torveldara, því lengur sem úrlausnin dregst, stundum tapast tækifærin algerlega. Fjöldamörg dæmi úr sögu síð ustu 6—8 ára mætti nefna þessu til sönnunar, en þar eð öllum er nú orðið þetta á- stand fullkomlega ljóst, er óþarft að fjölyrða meira um það. Ennþá alvarlegri veila en þetta seinlæti er þó á gild- andi tilhögun. í lýðfrjálsum löndum er sú meginregla viðurkennd, að þjóðin, fólkið, eigi að ráða stjórnarstefnunni. Til þess aö tryggja þetta. eru teknar upp almennar kosningar til þjóð- þinganna með kosningarétti fyrir alla þegna þjóðfélagsins, sem náð hafa vissum aldri og hafa ekki með afbrotum fyrirgert atkvæðisrétti sínum. Tilgangurinn er sá, að hver kjósandi geti, með atkvæöi sínu, veitt þeirri stjórnar- stefnu lið, sem hann telur réttlátasta og heppilegasta fyrir hann sjálfan og þjóð- félagið. Hér á íslandi eiga kjósend- ur kost á því að velja milli fjögurra stjórnmálaflokka. Hver kjósandi gerir þetta upp við sig, frjáls og óháður eins (Framhald d 7. slBuJ. Borizt he/ir mér kveðja frá Norðlingi kunningja vorum og kemur hér erindi hans: „Ég þakka þcr jyrir athugasemd- ina við spjall mitt í baðstofunni þann 5. marz. En það vil ég taka fram, að ég er enginn mannhat- ari, þctt ég hafi hins vegar slæmt álit á þeim mönnum, sem ég hefi að misjöfnu reynt. Og hvað við kemur kommúnistum, þá get ég til- einkað mér ljóðahendingar skálds- ins: „Ég aumka þig, garmur, en hata' þig ekki“, hvernig svo sem færi þá með fullnægingu síðustu ljóðlínustafsins. Nú spyr maður: Hvað líöur lýö- veldisstjórnarskránni? Og það er von að menn spyrji. Mörg ár eru nú talin, síðan lýðveldið var stofn- j að, og ennþá búum við við stjórn- ' arskrá konungsríkisins . Nefndir hafa verið skiþaðar, allfjölmennar, sem áttu að vinna að samningu stjórnarskrárinnar. Þær hafa starf að — eða ekki starfað — um ára- 1 bil, og að sjálfsögðu með töluverö- 1 um kostnaði. Menn hafa farið út um heim til þess að kynna sér sem bezt stjórnarfyrirkomulag og háttu annarra þjóða, svo að hægt væri að velja þaö, sem eftirbreytnisvert var og okkur hentaði bezt í þeirra stjórnarfari, svo að það yrði fellt inn í okkar stjórnarskrá. Þetta allt mun vera búið að kosta allálitlega fjárhæð', en árangurinn sést hvergi. Hvað á slíkt lengi að ganga? Hvað getum við lengi — sóma okkar vegna — verið lýðveldi, án lýð- veldisstjórnarskrár? Segja má, að stjórnarskrá konungsríkisins sé að mörgu leyti góð, væri hún í heiðri höfð, en á þvl virðast misbrestir, og svo er hún algjörlega ófull- I nægjandi. Annars er ég nú enginn I stjórnlagafræðingur, en eitt atriði í okkar viðbúandi stjórnarskrá — sem mér finnst vanhaldið — vil ég gera hér aö umtalsefni. / 64. gr. stendur: „Engin bönn má leggja á atvinnufrelsi rnanna, nema almenningsheill krefji, enda þarf lagaboð til“. Þessi grein virð- ist réttlát og sjálfsögö í hverju lý'ð- frjálsu landi, en mér virðist ein- mitt hún svo oft og mörgum sinn- um hafa verið brotin af hinum svo kölluðu verkalýössamtökum, og það látið óátalið. Jafnvel illmögulegt að fá rétt sinn viðurkenndan — samkvæmt stjórnarskránni — þótt þess væri leitaö til æðra valds. Þessu til staðfestu skal geta þess, að ég veit bændum hafa verið þok- að til hliðar við vegagerðir í sveit, góðum og dugandi mönnum, af því einu, að þeir voru ekki innan verkalýðssamtakanna. Sumsstaðar mun hafa horft til stórviðburða út af þessu, en minna orðið úr, þar sem sveitarmenn höfðu mannafla og voru sterkir fyrir. Svo langt hef- ir þetta gengið, að til rekistefnu hefir komíð út af eins manns vinnu 1 dag. Mér leyfist sem sé ekki að vinna verk, sem ég get sómasamlega af hendi leyst og vinnuveitandi trúir mér fyrir, án þess að eiga á hættu að vera rek- inn frá því, ef einhver verkalýðs- postuli þefar mig uppi. Er mí þetta það atvinnufrelsi, sem um getur í stjórnarskránni? Það er ekkí furða, þótt gumað sé af lýðfrelsi, þar sem óhlutvandir ofstopamenn geta svipt fátækan mann vinnufrelsi, fyrir það eitt, að hann hefir ekki greitt þeim ákveð- ið lausnargjald. Það kvað vera hátt ur hinna svokölluðu stigamanna, að setja vopnið fyrir brjóst manna og heimta peninga eða lífið. Svip- mót er með aðferðunum. Greið þú mér skattgjald, ella færð þú ekki að vinna þér til lífsviðhalds. Frá sjónarmiði vinnuveitanda finnst mér það óviðeigandi, að mega ekki fá mann, sem hann treystir, til þess að vinna verk, þótt ekki sé nema um 1 eða 2 daga að ræða, án þess að geta átt von á reki- stefnu eða því, að maðurinn sé rekinn frá hálfnuðu verki. Já, það má segja. Mikil eru þau mannrétt- indi. Ekki er mér kunnugt. að aðferðir þær, sem ég hefi hér minnzt á, séu viðhafðar innan annarra stofn ana eða félagsskapar hérlendis, nema verkalýðssamtakanna, og það þvert á móti fyrirmælum stjórnar- skrárinnar. Hér má hver hafa þá trúarskoð- un, sem sýnist, og standa þó safn- aðarkirkjurnar jafnt öllum opnar. Engum er víst bannaö að reka verzlun, fyrir það eitt, að vera ekki skráöur meðlimur kaupmanna félagsskapar. Ekki er skipstjóra með réttindum fyrirmunaö að fleyta skipi, þótt hann sé ekki í skipstjóra félagi. Kaup og sala er í rauninni frjálst, manna á 'milli, nema á stundarvinnu. Það virðast verka- lýðssamtökin geta fyrirbyggt. Hitt er svo fa/n eðlilegt, að verka lýðsfélög láti meðlimi sína sitja fyr ir þeirri vinnu, er þau hafa ráð á, þ. e. taka að sér að láta fram- kvæma, að því eiga þau að vera frjáls, eins og líka hver vinnuveit- andi. Það er þetta, sem þarf ör- ugglega að tryggja í lýðveldis- stjórnarskránni, að allir hafi jafn- an rétt til vinnu, sem þeir geta trúlega af hendi leyst, án þess að litiö sé á, hvort þeir hafa bundizt nokkrum félagasamtökum eða ekki. Vonandi verður stjórnarskráin fullbúin í valdatíð núverandi for- sætisráðherra, og vil ég vona, að hann sé sá lýðræðissinni, að hann hlutist til um, að framanskráð verði tryggt í hinni nýju stjórnar- skrá". Annars á jafnaðarmennskan ekki djúpar rætur“. Svo er hvert mál, sem virt er, en vel mætti segja mér, að ein- hver vildi hér draga fram önnur sjónarmið til hliðsjónar. StarkaSur gamli. Guðiii Giiðmimdssoii frá Kotmúla, sem andaðist 29. apríl s.l., verður jarð- settur að Breiðabólstað miðvikudaginn 11. maí kl. 2 e. h. Kveðjuathöfn verður að heimili okkar Fossmúla á Selfossi kl. 11 f. h. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Steinunn Halldórsdóttir. Öllum þeim sem sýndu mér vinsemd á fimmtugs af- mælinu 6. mai s.l. með heimsóknum, gjöfum, skeytum og á annan hátt, þakka ég hjartanlega. Davíð Sigurðsson. Miklakoti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.