Tíminn - 09.07.1949, Page 2
2
TÍMINN laugardaginn 9. júlí 1949
143. blað
'Jtá kafi til keiia
í dag:
Sólin lfpm upp kl. 3.23.
Sólarlág kl. 23.40
Árdegisflóð kl. 5.40.
Síðdegisflóð kl. 18.00.
í nótt:
Næturvörður er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólan-
um, sími 5030. Næturvörður er í
lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911.
Næturakstur annast bifreiða-
stöðin Hreyfill, sími 6633.
ÚtvarpLð
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarps-
tríóið: Einleikur og tríó. 20.45
Upplestur: s) Hjónavígslan,
smásaga eftir Sigurjón Jónsson
(Brynjólfur Jóhannesson les). b)
Kvæði (þorsteinn Ö. Stephen-
sen les). 21.25 Tónleikar: Ástar-
söngvar (Liebesliederwalzer) op.
52 eftir Brahms (kvartett syng-
ur; — nýjar plötur). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.05 Dans-
lög (plötur). 24.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipLnP
Ríkisskip:
Esja er á leið frá Austfjörðum
til Akureyrar, Hekla er í Rykja-
vík. Herðubreið er á Austfjörð-
um á suðurleið. Skjaldbreið er
á Vestfjörðum á suðurleið. Þyr-
ill er í Faxaflóa.
Einarsson & Zoéga:
Foldin er á Vestfjörðum, lest-
ar frosinn fisk. Lingestroom
fermir í Amsterdam 16. þ. m.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Keflavík 5.
þ. m. til Hamborgar, Kaupm.-
hafnar og Gautaborgar. Detti-
foss-fór frá Reykjavík i gær til
Vestmannaeyja og austur og
norður um land til Reykjavíkur,
lestar frosinn fisk. Fjallfoss fór
írá Reykjavík 6. þ. m. til Leith
og Hull. Goðafoss er í Kaup-
mannahöfn. Lagarfoss fer frá
Reykjavík um'hádegi í dag til
Antwerpen og Rotterdam. Sel-
foss kom til Húsavíkur í gær.
Tröllafoss kom til Reykjavíkur
í gær. — Vatnajökull kom til
Reykjavíkur 6. þ. m. frá Álaborg.
Flugferðir
bæjarklausturs, Fagurhólsmýr-
ar og Hornafjarðar (2 ferðir.
Á morgun (sunnudag) verða
áætlunarferðir til þessara staða:
Akureyrar, Vestm.eyja, Kefla-
víkur og Siglufjarðar. Á mánu-
dag verður flogið til Akureyr-
ar (2 ferðir), Vestm.eyja, Siglu-
fjarðar, ísafjarðar, Ólafsvíkur,
Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar og
Keflavíkur.
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, fór í morg-
un til Kaupmannahafnar með
42 farþega. Flugvélin er vænt-
anleg aftur til Reykjavíkur á
morgun kl. 17.45.
Meðal farþega með Gullfaxa í
fyrradag frá London og Prest-
wick voru dr. Lauge Koch, Jón-
as Þorbergsson, útvarpsstjóri og
nokkrir frjáisíþróttamenn úr
í. R.
Árnað heilla
Hjónaefni:
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Sigurbirni
Einarssyni ungfrú Lilja Gróa
Kristjánsdóttir, Njálsgötu 27 b
og Þorsteinn Stefánsson bókari,
heimili þeirra verður Barmahlíð
52.
Trúlofanir:
Jcnína Ingvarsdóttir, Gili, Ör-
lygsstaðahr. og Hjörtur Skúla-
son, Patreksfirði.
Þorgerður Þorbjarnardóttir frá
Höfnum og Haukur Hersir
Magnússon, bifreiðastj., Kefla-
vík.
Úr ýmsum. áttum
Samsæti.
Að tilhlutun sambands ísl.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«.♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■
Loftleiðir.
í gær var ekkert flogið innan-
lands vegna óhagstæðs veðurs.
í dag verða farnar áætlunar-
ferðir til Vestmannaeyja(2 ferð-
ir), Akureyrar, ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs
bg Fagurhólsmýrar.
Á mörgun verða farnar áætl-
unarferðir til Vestmannaeyja (2
ferðir), Akureyrar og ísafjarðar.
Geysir kom kl. 18.00 í gær frá
Kaupmannahöfn með danska
leiðangursmenn, sem fara héð-
an til Grænlands. Fór aftur til
Prestwick og Kaupmannahafn-
ar kl. 20.00, væntanlegur í dag
kl. 17,00 fullskipaður farþegum.
Faríð verður til London kl. 08.00
i fyrramálið og komið aftur
annað kvöld.
Flugfélag íslands.
Flugvélar Flugfélags íslands
fljúga’i dag til eftirtaldra staða:
Akuréyrar (2 ferðir), Vestm,-
eyja, Keflavíkur (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Siglufjarðar, Kirkju-
barnakennara verður norsku
kennurunum haldið samsæti í
Tjarnarkaffi næstk. þriðjudags-
kvöld kl. 8.30. Kennarar tilkynni
þátttöku sína í síma 5378.
Happdrætti Iláskóla íslands.
Athygli skal vakin á auglýs-
ingu happpdrættisins í blaðinu í
gær. Dregið verður í 7. flokki á
j mánudag, en þann dag verða
engir miðar afgreiddir, og eru
því síðustu forvöð að kaupa miða
og endurnýja í dag og á morgun.
Þeir, sem ætla sér úr bænum um
helgina, ættu að muna eftir því
j að endurnýja, áður en þeir fara.
Bæjarfógetaembættið
í Vestmannaeyjum
hefir verið iaust til umsókn-
ar, og níu lögfræðingar sótt um
það. Umsækjendur eru þessir:
Freymóður Þorsteinsson full-
trúi í Vestmannaeyjum, Sigurð-
ur Helgason fulltrúi á Akureyri,
Þórólfur Ólafsson fultr. í ríkis-
skattanefnd, Jón Eiríksson
skattstjóri í Vestmannaeyjum,
Sigurður Ólason, fulltrúi í fjár-
málaráðuneytinu, Sigurður Guð-
jónsson, bæjarfógeti í Ólafsfirði,
JóhannSalberg, sýslumaður í
, Strandasýslu, Ragnar Bjarkan,
! fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu
! og Gunnar Þorsteinsson, hæsta-
I réttarmálafl.m. í Reykjavík.
Sjóður til minningar um
Hlöðve Örn Bjarnason.
Stofnaður hefir verið sjóður
til minningar um Hlöðve Örn
Bjarnason, sem lézt af meiðsl-
um, er hann hlaut í bifreiðar-
slysi inn við Lágafell á dögun-
um. — Sjóðurinn er stofnaður á
vegum Knattspyrnufélags Kvík-
ur og ber n:.fn hins látna.
Munnhörpur eða gúmmístígvéi?
STEFÁN fSLANDI og GUÐMUNSUR JÓNSSON
hakla
::
♦♦
::
»*
1
*♦♦♦»▼»▼■
*♦♦♦♦♦♦♦
JÁ>öii£jáhemintun
í Austurbæjarbíó mánudaginn 11. þ. m. kl. 7,15.
Við hljóðfærið: Fritz Weisshappel.
Aðgöngumiðar seldir hjá Hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur, Bókaverzl. Eymundsson og Lárusar
Blöndal.
>?♦♦+♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
*♦♦*♦♦' ♦' ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦
S. K.T.
Eldri dansarnir í G. T.-húslntf
í kvöld kl. 9. — Húsinu lokað kL
10.30.
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
S.K.T.
Nýju og gömlu dansarnír í G. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. 9 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
Þjóöræknisfálag íslendinga
t
heldur samsæti til heiðurs Guðmundi Grímssyni, dóm-
ara cg Vilhjálmi Stefánssyni, landkönnuöi, og konum
þeirra, að Hótel Borg fimmtudaginn 14. þ. m. kl. 6 síðd.
Þeir, sem óska að taka þátt í samsætinu, gjöri svo
vel að skrifa sig á lista í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds .
sonar sem fyrst eftir helgina, og ekki síðar en fyrir |
hádegi miðvikudaginn 13 þ. m. og greiði þátttökugjald.
!
■iiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiiiia*i*iiiiii*ii><i*****
I Lokað vegna |
sumarleyfa frá 16. júlí til 1. ágúst |
! Efnagerðin Rekord
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦■
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'
I dag leggur fiskveiðileiðangur
á stað héðan til Grænlands,
síldarflotinn bíður reiðubúinn á
miðunum norðan við land eftir
síldinni, togararnir sækja fiski
vestur á Hala og norður í Hvíta-
haf, dragnótabátarnir stunda
veiðar allt í kringum land og
smærri bátar iínuveiðar. Á þess-
um flota eru þúsundir sjómanna.
sem sækja björg í þjóðarbúið, og
öllum þessum sjómönnum er það
sameiginlegt, að þeir þurfa að
eiga gúmmístígvél, helzt fulihá,
anars verða þeir blautir í fæt-
urna, og það er ekki gott ofan á
allt annað vos. Þetta er ofur ein-
faldur sannleikur, og varla mun
nokkur reyna að mæla honum í
gegn. Það mu.nu einnig flestir
sammála um það, að það sé
hið minnsta, sem hægt sé að
veita sjómönnunum, að láta þá
hafa gúmmístígvél á fæturna.
En nú bregður svo við, að.
gúmmístigvél fást ekki nema af
mjög skornum skammti, og
stundum alls ekki. Til eru út-
gerðarkauptún úti á landi, sem
hafa fengið innan við tug para
af þessum þarfa klæðnaði s. 1.
ár. —
Það mætti því halda, að víð
værum harla illa staddir, fyrst
við getum ekki keypt gúmmí-
stígvél á fæturna á sjómönnun-
um okkar, áður en þeir leggja á
haf út. Það mætti ætla, að
snautt væri um þær vörur aðr-
ar, sem ónauðsynlegar verða að
teljast.
Þótt vöruhallærið sé mikið, er
þó samt ekki svo illa komið okk-
ar hag, að hér sjáist ekki vörur
í búðargluggum, sem ónauðsyn-
legri séu en gúmmístígvél. Und-
anfarna daga hefi ég orðið var
um það, að síldarsjómenn hafa
verið að ganga um bæinn í leit
að gúmmístígvélum, en þessa
sömu daga hefir mátt sjá snotr-
ar munnhörpur í búðargluggum
ásamt ýmsu dóti öðru. Ég hitti
nýlega einn sjómann á götu.
i Við staðnæmdumst framan við
búðarglugga og tókum tal sam-
an. „Ég er að leita mér að gúm-
místígvélum, áður en ég fer á
síldina“, sagði hann. „Én ég hefi
hvergi getað fengið þau enn þá.
Líklega ætlast þeir þó ekki til,
að við sjómennirnir spilum á
munnhörpu til þess að halda á
okkur hita, þegar sjókuldinn
sækir að fótum okkar í sumar“,
bætti hann svo við og benti í
gluggahn, þar -sem munnhörp-
um vár - ráðað' Í' vænán flekk.
A. K.
Akranes—Hreöavatnsskáli
ferðir um helgina:
Föstudag 8. júlí kl. 13.30 e. h.
Laugardag 9. júlí kl. 15,30 e. h.
Sunnudag 10. júlí kl. 9,30 f. h.
Ferðirnar eru í sambandi við Laxfoss.
Þórður b. Þórðarson
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför föður okkar
EINARS EINARSSONAR
frá Gröf í Bitru
Sérstaklega þökkum við vinarkveðju frá sveitung--
um hans.
Börn hins látna.
ULLARIÐNAÐUR
20 þráða spunavél, handsnúin og nýyfirfarin (norsk
gerð), til sölu. Tilboð sendist blaðinu fyrir 20. þ. m.
merkt „Spuni“
i
H