Tíminn - 24.08.1949, Blaðsíða 8
„ERLENT YFIRLIT I DAG:
Ruráttun við Ku KUtx Khm,
33. árg.
Reykjavík
„Á FÖBiVLM VEC1« í DAG:
Lufiasverðið býart.
24. ágúst 19449
176. blað
Frönsku skógarbrunarnir
stórfelldari en búizt var
við í fyrstu
Um 90 maiins hafa látið lífið, hundrnð í-
búðarhúsa og’ sveitabæjja brunnið og 45
þiis. ha. skóglendis eyðilagzt.
Skógarbruninn í frönsku héruðunum Gironde og les
Landes, hefir orðið meiri og kostað fleiri mannslíf en búizt
var við í upphafi. Talið er að farizt hafi milli 80 og 90 manns
af völdum hans. Franska lögreglan telur líklegt að brun-
arnir séu af mannavöldum og sé hér um skemmdarstarf-
semi að ræða. Nokkrir menn hafa verið teknir fastir af
þeim sökum.
Það var ekki fyrr en á
sunnudagskvöld, sem slökkvi-
liði tókst að ná fullkomnu
valdi yfir brunanum, en þá
höfðu meðal annars sex bruna
liðslestir frá París, verið send
ar á brunasvæðin. Eldurinn
var aðeins 10 km. frá Bor-
deaux, þegar tókst að hefta
framrás hans í þá átt. Kom
þá steypiregn, sem varð bruna
liðssveitunum til hjálpar. Tal
ið er að um 45 þús. ha. skóg-
lendis sé eyðilagt af völdum
eldsins. Brunnin hús og sveita
bæir skipta hundruðum, en
nákvæm rannsókn er ekki fyr
ir hendi enn um það.
Lík þau, sem fundizt hafa
eftir brunann eru flest óþekkj
anleg, en flest hafa þau ver-
ið flutt í ráðhúsið í bænum
Cortas. Á sunnudaginn stóðu
(Framhald á 7. síðu)
Jafntefli milli
K. R. og Fram
Reyk j avíkurmótskappleikur
í knattspyrnu fór 1 gær fram
á íþróttavellinum. Kepptu
Fram og K.R., síðari umferð,
og varð jafntefli, eitt mark
gegn einu.
Hurfu við Rúss-
nesku landamærin
Tveir danskir stúdentar,
sem voru á ferð í Finnlandi
í síðustu viku, hurfu á fimmtu
daginn var við rússnesku
landamærin og hefir ekkert
til .þeirra spurzt síöan. Leik-
ur grunur á, að þeir hafi ver-
ið handteknir af rússneskum
landamæravörðum. Stúdent-
ar þessir voru í dvalarbúðum
ásamt 100 öðrum norrænum
stúdentum. Þeir höfðu brugð-
ið sér í stutta hjólreiðaferð
og ætluðu að koma aftur í
búðirnar eftir nokkrar klukku
stundir. Þegar þeir komu ekki
var hafin leit að þeim og
fundust þá hjólin skammt frá
rússnesku landamærunum.
Það þykir að vísu ekki úti-
lokað að þeir hafi farizt en
líklegra að þeir hafi verið
teknir til fanga. Danska sendi
ráðið í Helsingfors hefir skor-
ist í leikinn og sent fyrir-
s purn um þetta til rússneskra
yfirvalda.
María Markan.
María Markan
syngur í Gamla
bíó annað kvöld
María Markan óperusöng-
kona efnir til söngskemmt-
unar í Gamla Bíó annað
kvöld, og mun Fritz Weiss-
happel leika undir. Söngur-
inn hefst klukkan 7,15.
Meðal annars mun María
Markan syngja aríur og ís-
lenzk lög eftir Karl O. Run-
ólfsson, Hallgrím Helgason,
Pál ísólfsson og Þórarin
Guðmundsson.
María Markan var hér síð-
ast árið 1946, og eru liðin
þrjú ár frá því hún söng hér
síðast. Mun því mörgum leika
hugur á að heyra til hennar,
enda er hún meðal þeirra ís-
lenzkra listamanna, er lengst
hafa komizt á erlendum vett
vangi.
SÁÐSTEFM um
INDÓNESÍU
í dag hófst í Haag ráð-
stefna, undir forsæti hol-
lenzka forsætisráðherrans, er
á að fjalla um Indónesíumál
ið. Sitja 150 fulltrúar ráð-
stefnuna. Verður aðallega
rætt um það, að bandaríki
Indónesíu fái senn fullt
sjálfstæði innan hollenzku
krúnunnar.
Hjálp til fólksins
frá Skuggahlíð
Öllum er í fersku minni
hið voveiflega og hörmu-
lega slys, er bærinn að
Skuggahlíð í Norðfirði
brann til kaldra kola,
fimm manns fórust og
þeir, sem eftir lifðu, sum-
ir með svo stór bruna-
sár, að við örkumlum ligg-
ur, misstu nær aleigu sína,
hús og heimili, fatnað og
muni.
Nú hefir þess verið far-
ið á leit við Tímann, að
hann bæri fram þau til-
mæli, að þeir, sem þess eru
umkomnir, hlypu undir
bagga með hinu ógæfu-
sama fólki og léti ein-
hverjar fégjafir af hendi
rakna við það, svo að bætt
verði að nokkru leyti það
tjón, sem það hefir beðið
og bætt verður með fjár-
munum.
Það hefir oft komið
glögglega í ljós, að íslend-
ingar eru örir á fé við þá,
sem hjálparþurfa eru, og
er þess að vænta, að fólk-
ið frá Skuggahlíð megi
finiia, að það á í raunum
sínum samhyggð fólks um
allt land.
Myndarleg samkoma Fram-
sóknarmanna að Ketilási
- í Fljótum
Á fjórða liundrað manns sóttu sainkoin-
ep fór hið bezta fram.
Framsóknarmenn í Fljótum í Skagafirði og á Siglu-
firði, héldu alnienna samlcomu að Ketilási í Fljótum á
sunnudaginn var. Sótti samkomuna hátt á fjórða hundr-
að manns og fór hún hið bezta fram. Veður var hið ákjós-
anlegasta, sólskin og blíoa þegar leið á daginn.
Hermann Jönsson, bóndi á
Yzta-mói, formaður Fram-
sóknarfélags Fljótamanna
setti samkomuná með nokkr-
um ávarpsorðum og stjórnaði
henni. Ræður flúttu þeir Ey-
steinn Jónssoh, ráðherra,
Steingrímur Steíhþórss., bún-
aðarmálastjóri og Þráinn
Valdemarsson, erindreki.
Á milli ræðanna sungu fjór
ar ungar stúlkur frá Siglu-
firði við gítarundirleik. AS
síðustu var dans&tiginn fram
eftir kvöldi.
Samkoma þessi var hin
myndarlegasta í alla staði og
vel til hennar vandað.
Kalda stríðið milii Tító og
Rússa harðnar stöðugt
Svar Júgóslava við síðnstu ásökunnm
Riissa
„Kalda stríðið" milli Júgóslavíu og R^jands færist
nú stöðugt í aukana og undanfarna daga hýpy; ekki geng-
ið á öðru en hvassyrtum orðsendingum á bá^íbóga. Júgó-
slavar hafa nú svarað nýjustu orðsendingu Úfíssa, þar sem
þeir voru sakaðir um, að hafa handtekið og igi^þyrmt rúss-
neeskum borgurum alsaklausum.
Svar Júgóslava.
í svari Júgóslava er þess
krafist, að Rússar hætti að
skifta sér af innanlandsmál-
um þeirra. Júgóslavía sé sjálf
stætt ríkr og afskifti erlendis
frá af innanríkismálum muni
ekki þoluð. Segir að hinir
rússnesku borgarar, sem hand
teknir hafi verið, hafi verið
rússneskir njósnarar, er gerst
hafi brotlegir við júgóslav-
nesk lög. Það sé sjálfsagt, að
senda þessa menn heim til
Rússlands, ef Rússar æski
þess, og ennfremur sé öllum
öðrum rússneskum borgurum
í Júgóslavíu frjálst að snúa
aftur heim, þegar þeir vilji.
„Arftakar Gestapo“
í fyrri orðsendingu Rússa
var Tito og samstarfsmenn
hans kallaðir „fasistar og arf
takar Gestapo". Sagði, að þeir
létu ofsækja saklausa borg-
ara. Enginn gæti nú verið
óhultur um að vera handtek-
inn að ósekju og yfirleitt væri
Tito á góðum vegi með að af-
nema allt frelsi í landinu.
Tito hógværari.
Svar Titos við ásökunum
þessum var mun hógværara,
en þó hvassyrt. Sagði m. a.
T ÍTÓ
að „fjandskapur Rússa í garð
Júgóslava væri J fullu sam-
ræmi við yfirgangsstefnu
þeirra“.
Afneitað.
í Búkarest yoru. allmikil há-
tíðahöld í dag, rí tilefni þess
að 5 ár eru liðin frá því land-
ið var frelsað úr klóm Þjóð-
verja. Utánríkisráðherra
Rúmeníu notaði tækifærið,
og afneitaði Títo í ræðu, fyr-
ir að hafa „gehgið heimsveld-
issinnum á hönd“.
Séra Þorsteinn
Briem jarðsettur
i gær
Séra Þorsteinn Briem var
jarðsettur á Akranesi í gær
að viðstöddu mjög miklu fjöl
menni.
Kveðjuathöfn hafði farið
fram í Reykjavík daginn áð-
ur- Flutti þá séra Friðrik Frið
riksson húskveðju á heimili
hans, en séra Sigurður Páls-
son, Sigurbjörn Einarsson
dcsent og séra Bjarni Jóns-
son þjónuðu í dómkirkjunni.
Síðan báru piltar úr K.F.U.M.
og frændur hins látna kist-
una til skips, en hún var
flutt sjóleiðis til Akraness.
Við útfararathöfnina á
Akranesi þjónuðu séra Frið-
rik Friðriksson, séra Magnús
Runólfsson, séra Jón Guð-
jónsson og séra Sigurjón
Guðjónsson.
Yill einn gjaldmiðil
fyrir V.-Evrópn
Á þingi Evrópuráðsins í
Strassburg í dag var rætt um
efnahagsmál. Þrír fulltrúar
Breta (úr Verkamannaflokkn
um) lögðu til, að einn gjald-
miðill yrði látinn gilda í öll-
um Vestur-Evrópuríkjunum-
— Dalton (Bretland) skýrði
frá því, að frá því 1938 hefði
iðnaðarframleiðslan í Bret-
landi aukizt meira en hjá
nokkru öðru þátttökuriki í
Evrópuráðinu, að Svíþjóð og
Danmörku undanskildum. —
Ennfremur sagði hann, að á
sama tíma hefði útflutningur
Breta aukizt meira en hjá
nokkurri annarri þjóð.
Ritstjórinn var
sýknaður
Ritstjóri þýzka blaðsins
Síiddeutsche Zeitung, sem
sakaður var um að hafa egnt
til Gyðingahaturs og átt hlut
deild í því að koma af stað
óeirðum í Múnchen, svo sem
skýrt var frá hér i blaðinu á
dögunum, hefir verið sýkn-
aður af þeirri ákæru. Uppþot
Gyðinganna verði ekki rétt-
lætt með neinum sakargift-
um á hendur ritstjóranum.