Tíminn - 13.10.1949, Blaðsíða 4

Tíminn - 13.10.1949, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, fimmtudaginn 13. október 1949 219. blað Svörin í Morgunblaðinu Þau ár, sem ég hefi stund- að blaðamennsku að öðrum þræði, hefi ég verið að reyna að fá Mbl. til að ræða um þjóðmál við mig, — með litl- um árangri. Ég hefi því yfir- leitt orðið að tala við fólkið en ekki Mbl., enda ólíkt skemmtilegra. Til þess að forsmá ekki viðléitni Mbl. til að svara mér og Tímanum, þó að í smáu sé, ætla ég nú að fara nokkrum orðum um þau at- riði þeirrar tegundar, sem ég hefi fundið í blaðinu síðustu dagana. Er Framsóknarflokkur- Inn klofinn? Mbl. heldur því fram, að- það sé út í bláinn að segja, að Framsóknarflokkurinn sé ekki klofinn og talar um ' samninginn um Keflavíkur- flugvöllinn og Atlantshafs- bándalagið í því sambandi. Framsóknarflokkurinn er heill og óklofinn um þá stefnu, að íslendingar séu sjálfstæð þjóð, — lýðræðis- þjóð, sem hafi vinsamlegt sámstarf við nánustu frænd- þjóðir og viðskiptaþjóðir sín- ar, en þó þannig, að réttur íslendinga sé ekki skertur. Slíkur flokkur getur komizt í nokkurn vanda og skoðan- ir orðið skiptar innan hans um afstöðu og fylgi við ein- staka samninga. í þvi sam- bahdi er rétt að gera dálit- inn samanburð- r* i » J l t " Stefnumál að semja eða semja ekki. Þeir, sem hafa að stpfnu- máli að semja eða semja ekki við ákveðnar þjóðir, þurfa ekki að hafa heilabrot um hagkvæmni samninga út frá islenzku sjónarmiði. Komm- únistum er það stefnumál að semja ekki um neitt við lýð- ræðisþjcðirnar, nema Rúss- um líki. Þeir eru því ákveðn- ir á móti öllum samningum við Bandaríkin án alls til- lits til íslenzkra hagsmuna. Sjálfstæðismönnum er það líka stefnumál að semja við Bandaríkin án tillits til hags muna íslendinga. Sjálfstæðismenn vildu 99 ára herstöðvasamning. Ég veit, að Gunnar Thor- oddsen sagði svo frá vetur- inn 1945—46, að það væru einir þrír þingmenn Sjálf- stæðisflokksins á móti því að gera 99 ára herstöðvasamn- ing við Bandaríkin. Öll þjóðin veit, að haustið 1946 kom Ólafur Thors for- sætisráðh. fram með á Al- þingi uppkast að samningi um flugvöllinn í Keflavík og lét svo um mælt: „Það er hægt að segja: Ég vil alls engan samning við Bandaríkin. Ég vil fjandskap ast við Bandaríkin. En það er ómögulegt að segja: Ég vil halda vinfengi við Banda- ríkin og þess vegna leysa þörf þeirra ef ég get það mér að meinfangalausu, en neita þó að gera þennan samning“. Forsætisráðherrann full- yrti, að betri samning fyrir íslendinga væri ekki hægt að fá. Annaðhvort yrðu menn að fallast á þetta eina og ákveðna samningsuppkast eða sýna Bandaríkjunum fjandskap. Þessi stóru orð varð Ólafur Thors að éta ofan I sig, af Eftir Halldór Kristjánsson því að Framsóknarmenn fluttu og fengu samþykkt- ar breytingar á samningn- um, íslendingum i hag. Hins vegar þótti þeim öllum og einhuga of skammt gengið í því sambandi, þó að sumir þeirra greiddu atkvæði með honum án frekari breytinga, þegar sýnt var, að ekki náð- ist þingmeirihluti með því, að ganga lengra. Það á ekki að nefna snöru — Mbl. ætti ekki alltaf að vera að minna á undirlægju- hátt sinna manna með því að vera að tala um afstöðu Framsóknarmanna í þessu sambandi. Það ætti líka að hafa vit á að þegja um leyni- makk Ólafs Thors bak við þing og þjóð í stað þess að minna alltaf á það, með grobbi um hina ,,frábæru“ utanríkismálastjórn manns- ins. Vinnubrögð Ólafs Thors í sambandi við Keflavíkur- samninginn og meðferð þess máls, er eitt af meiriháttar slysum í sögu íslenzkra utan- ríkismála- Það á ekki að nefna snöru í hengds manns húsi eða tala um utanríkismálastjórn í blaði Sj álfstæðisflokksins. Minni þeir sem bezt á. Um þátttöku íslands í At- Iantshafsbandalaginu er svip aða sögu að segja. Ég er per- sónulega fylgjandi þátttöku íslands í því bandalagi, en ég skil ekki, hvað gat verið hættulegt við það, að fyrir- varinn um sérstöðu íslands og vopnleyysi hafði verið skjalfestur með sjálfum samningnum. Þvi lengur, sem Mbl. ræð- ir þessi mál, mun það koma skýrar fram, að Framsókn- arflokkurinn er einhuga um að óska fyrir íslendinga hönd lýðræðislegra samn- inga við aðrar lýðræðisþjóð- ir á þann hátt, að frjálsum þjóðum sé traust og öryggi að og réttur íslands sé vel tryggður. Hitt er Framsóknarmönn- um ekki stefnumál, að gera samninga með eða móti nein um sérstökum þjóðum. Varnir brennivíns- forsetans. Fyrir nokkru nefndi ég hér í blaðinu ýms dæmi um spillingu þá, sem þróast hefði í opinberri fjárgæzlu undir stjórn Sjálfstæðis- manna. Minntist ég þar á hin illræmdu áfengisfríðindi einstakra opinberra starfs- manna og skýrði frá þvl, að forseti sameinaðs þings hefði í vetur neitað fjárveitinga- nefnd um upplýsingar um það, hversu mikið einstakir menn hefðu notað þessi fríð- indi. Þetta dæmi nefndi ég, vegna þess, að þá er spilling- in komin nærri hámarki, þegar sá maðurinn, sem sér- staklega er trúað til að vaka yfir sæmd Alþingis, notar að stöðu sína og vald til að fela hneykslin og breiða yfir þau. Það, sem Jón Pálmason hefir til mála að leggja sem svar við þessu er þannig: „Framsóknarflokkurinn hafði orðið sér til lands- þekktrar smánar með því að gera fíflið frá Kirkjubóli að frambjóðanda í Barðastrand arsýslu“. Þannig ver hann nú sóma sinn og þingsins og ekki með öðru. Þetta eru ákveðin orð, en lítið eru þau rökstudd, og þarf ég þá ekki að fjölyrða meira um spekinginn á Akri. Misskilin tilvitnun. Vaxtarbroddur Sjálfstæðis- flokksins, Gunnar Helgason frá Hlíðarenda, flutti út- varpsræðu, sem mjög var rómuð í Mbl. og síðan birt í Heimdalli. Þar segir svo: „í Tímanum hefir í seinni tíð oft verið borið mikið lof á kommúnista. Hafa sálma- skáldið frá Kirkjubóli og Hermann Jónasson aðallega staðið fyrir þeim skrifum. í grein, er birtist í Tímanum nýlega, stendur: „í flokki sósíalista er sundurleit hjörð. Þar eru menn, sem eru ein- lægir samvinnumenn og um- bótamenn á lýðræðisgrund- velli“. Sjálfráð eða ósjálfráð fölsun. Mér er sama hvort heldur Gunnar frá Hlíðarenda er fífl eða fálsari. Þessi orð eiga vitanlega við þá menn „í flokki sósíalista“, sem ekki eru kommúnistar. Hafi Gunn ar ekki skilið það, er hann fífl, en þá getur hann verið heiðarlegt fífl, og er það miklu betra hlutskipti en hinn síðari kosturinn, að hafa að vísu greind til að skilja, en reyna að láta aðra taka þetta öðruvísi en það er meint. Kosið af misskilningi. Ég mun standa við þessi orð um mennina í flokki sósíalista. Ég mun líka standa við það, sem Tíminn hefir sagt, að mikill fjöMi fólks, sem kosið hefir Sjálf- stæðisflokkinn undanfarið, væru einlægir samvinnu- menn. Það fólk hefir kosið með Sjálfstæðisflokknum af misskilningi. Þó að ég fari þannig al- mennum viðurkenningarorð- um um heiðarlegt og óspillt alþýðufólk, sem af misskiln- ingi hefir kosið Sjálfstæðis- flokkinn eða Éósíalistaflokk- inn, fer því alls fjarri, að í því felist nokkurt loforð um samstarf við Ólaf Thors eða Brynjólf Bjarnason, Bjarna Benediktsson eða Áka Jak- obsson. Mér liggur í léttu rúmi þó að skrifstofupiltar íhaldsins skilji þetta ekki. Mér er nóg, ef þjóðin skilur það. Lýðræðissinnaðir umbóta- menn munu læra það, að þeir mega hvorki efla tæki- færissinnaða Moskvumenn eða heildsala og þjóna þeirra til valda í landinu. Þess vegna geri ég ráð fyrir, að þeir muni í stórum stíl snúa frá þessum ógæfuflokkum til liðs við Framsóknarflokkinn. Kveðja til samvinnu- manna. Annars eru alltaf vaxandi vonir um það, að Sjálfstæð- isflokknum takist að drepa (Framhald á 7. síðu) Það er gaman að heyra menn rabba um málin fyrir kosningarn- ar. Nú lesum við í blöðunum und- anfarna daga langar og brenn- andi greinar um áhuga flokkanna á því, að láta öllum líða vel og svo framvegis. Alþýðuflokkurinn vill byggja 200 verkamannabústaði á ári um leið og hann framkvæm- ir 4 ára áætlunina miklu, eykur neyzluvöruinnflutninginn og dreg- ur úr fjárfestingunni. Og Sjálf- stæðisflokkurinn þá — ja — ég veit nú ekki, hver ósköpin hann vill gera. Eitt er það þó, sem Sjálfstæðis- flokkurinn vill ekki. Hann vill ekki setja neinar reglur um að nota I vel og skynsamlega það húsnæði, ' sem komið er. Hann kallar það J mikla illmennsku við Reykvíkinga, j.að Framsóknarmenn hafa viljað jog vilja koma á stóríbúðaskatti, svo að fólk verði annaðhvort að 1 greiða sérstakt gjald til almanna- sjóða eða láta sér lynda hóflegan húsakost. Svo mikil goðgá finnst Sjálfstæðismönnum þessi viðleitni Framsóknarmanna, að þeir kalla það býsn, að slíkur flokkur skuli dirfast að bjóða fram mann í Reykjavík. Hverjir eru Reykvíkingar? Þeg- ar Mbl. talar, eru það víst þeir, sem eiga hús og búa „flott“, sem bera þann titil. Fátæka fólkið er ekki Reykvíkingar. Það eru ekki Reykvíkingar sem verða að hýr- ast í lélegasta húsnæðinu og það eru heldur ekki Reykvíkingar, sem verða að borga okurleigu fyrir hús næði. Þetta fólk heitir „aðkomu- fólk“ á kosningamáli Mbl. En það eru Reykvíkingar, sem stóribúða- skatturinn myndi bitna á. Það er dýrt að byggja og ís- lenzka þjóðin hefir mörgu að sinna. Ég held, að við ættum að keppa að meiri hagsýni í þjóðarbúskap. Þá er fyrst, að gera framleiðslu- störfin arðvænlegri og meira að- laðandi en braskið. Svo er að láta innflutninginn miðast við raunveru legar þarfir. Flytja inn góðar og nauðsynlegar vörur, en ekki gling- ur og óþarfa. Skrautarmbönd, krystalsvörur og vínsett verður þjóðinni dýrt, þegar hún verður að neita sér um ljós, skjólfatnað og verkfæri vegna þessa, en þannig hefir innflutningnum verið hagað og er ennþá, hvað sem Ólafur Björnsson segir. Ég held meira að segja, að við verðum að flytja inn gúmmístígvél á sjómenn og fá- tækra börn áður en húsmæðurn- ar fá rafgengar hrærivélar, þó að góðar séu. En þar sem við þurfum að eyða sem minnstu til daglegrar neyzlu, verðum við að gæta heiðarlegra verzlunarhátta og jafnaðar í dreif- ingu nauðsynja og spara óþarf- ann, og fyrst og fremst vil ég minna á áfengi, en árlegt vinnu- tap af meðferð og neyzlu þess mun sennilega nema 50 milljónum króna. Þar næst nefni ég tóbak, en það er töluleg staðreynd, að tóbaksmenn þjóðarinnar leggja ár- hinn tapaði tóbaksgjaldeyrir er reiknaður til húsaverðs. Svo finnst mér óþarfi að hengja á sig hálsmen og gullkeðj- ur, meðan þúsundir af íbúum landsins fá ekki vatnsleiðslu inn til sin. Dýrustu loðskinn og lúxus- bílar eru líka óskemmtilegar vör- ur fyrir þá, sem ekki fá vasaklút eða skósóla vegna þessa innflutn- ings. Ég held því, að við þurfum fyrst og fremst skynsamlegri sjónarmið og heiðarlegri verzlunarhætti, og það sé þá fyrst, sem eitthvað þýð- ir að auka innflutning neyzluvör- unnar. Og ef við viljum gera vel til allra í húsnæðismálum, er fyrst að nota skynsamlega það húsnæði, sem til er, en þar næst að byggja skynsamlega og haganlega, en þetta verður hvorugt gert nema auðmennirnir séu undir aðhaldi. Starkaður gamli. • • HANGIKJOT nægar birgðir fyrirliggjandL Ný framíeiðsla kemur í hverri viku. REYKHÚS S.Í.S. Sími 4241. KJÓSIÐ B-LISTANN! / / AUGLYSIÐ I TIMANUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.