Tíminn - 15.10.1949, Qupperneq 2
l'ÍMINN, laugardaginn 15. október 1949
221. blað
Frá hafi
tiL heiða
Útvarpið
'Útvarpið í kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpstríóiö: Einleikur
og tríó. 20,45 Leikrit: „Alltaf ást-
fanginn'* eftir St. John Hankin.
(Leikendur: Herdís Þorvaldsdótt-
ir og Gunnar Eyjólfsson. — Lpik-
stjóri: Gunnar Eyjólfsson). 21,15
Tónleikar: Boston Promenade
hljómsveitin leikur (nýjar plötur).
21,40 Upplestur: „Skraddarinn
frækni" úr Grimms-cvintýrum, i
'býðingu Jóns Thoroddsen (Karl
ísfeld ritstjóri les). 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,05 Danslög (plöt
ur). 24,00 Dagskrárlok.
Fermingar
Vesprestkall.
Ferming i Kapellu Háskólans,
íunnudaginn 16. október 1949, kl.
2. Séra Jón Thorarensen.
DRENGIR:
Harry Sampsted, Nesvegi 52.
Friðjón Skarphéðinsson, Sjávar-
borg, Bráðræðisholti. Donald Bruce
Jón Ingólfsson, Borgarholtsbraut
48. Sigurjón Adolf Bjarnason,
Faxaskjóli 12. Andrés Sverrir Ing-
ólfsson, Selabraut 10 í Kópavogi.
Kristján Gunnsteinn Reinhardts-
son, Fálkagötu 32. Emil Hilmar
Eyjólfsson, Brúarósi, Fossvogi.
Ragnar Gunnsteinn Zóphoníasson,
Faxaskjóli 16.
STÚLKUR:
Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Kamp Knox G. 9. Björg Sverris-
dóttir, Grenimel 16. Guðlaug Ein-
arsdóttir, Bollagötu 2. Ósk Skarp-
héðinsdóttir, Sjávarborg, Bráð-
ræðisholti, Aauður Hrefna Her-
nannsdóttir, Nesvegi 66, Dóra Haf-
íteinsdóttir, Marargötu 4.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúaross fór frá Reykjavík 10/10.
væntanlegur til Kaupmannahafnar
15/10. Dettifoss fer væntanlega í
ivöld 14/10. til London. Fjallfoss
kom tiT Reykjavíkur 9/10. frá Leith.
Toðafoss fór frá New York 8/10.
:il Reykjavíkur. Lagarfoss fer
/æntanlega í kvöld 14/10. til Breiða
tjarðar og Vestfjarða, lestar fros-
inn fisk. Selfoss fer frá Hólmavík
dag til Skagastrandar, Dalvikur
>g Siglufjarðar, lestar síld og fer
trá Siglufirði til Gautaborgar og
(jysekil. Tröllafoss kom til New
York 9/10. frá Reykjavík. Vatna-
ókull kemur til Reykjavíkur kl.
5,00 í dag frá Rotterdam.
ctíkisskip:
dekla fór í gær frá Álaborgborg
:tl Reykjavíkur með viðkomu í
/estmannaeyjum. Esja er væntan-
eg til Reykjavíkur í dag. Herðu-
jreið er í Reykjavík. Skjaldbreið
■r á Húnaflóa á norðurleið. Þyr-
11 er í Reykjavík.
Sinarsson & Zoéga.
Foldin fer væntanlega frá Leith
kv'ldl, áleiðis til Reykjavíkur.
Lingestroom er i Færeyjum, vænt-
anlegur til Reykjavikur eftir helg-
Vestmannaeyja, Akureyrar, ísa-
fjarðar og Bíldudals.
„Geysir" er væntanlegur frá Lon
don um kl. 18,00 í dag.
Flugfélag íslands.
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Vestmannaeyja, Bl'ndu
óss, Hornafjarðar, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar og ísa-
fjarðar.
í gær var flogið til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Fagurhólsmýrar,
Siglufjarðar, Reyðarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Seyðisfjarðar og
Neskaupstaðar.
Laxaflutning’ar
Framhald af 8. siðu.
annaðhvort veiddir eða tekn
ir til klaks. En alls voru
fimmtíu laxar fluttir upp eft
ir í fyrra.
Laxamerkingar og flutn-
ingar.
Nú er nýlega búið að merkja
aftur fimmtíu laxa, sem
flytja á upp í Flóku og sleppa
í ána til hrygningar framar-
lega í Flókadal. Er að þessu
mikil bót fyrir laxagöngur í
ána, en sú hætta er á ferð-
um, að þar sem áin er leigð
einstaklingi, að gengið verði
of nærri hinum unga laxa-
stofni þegar í byrjun, svo að
verulegt laxamagn nái aldrei
að komast í ána, svo að hún
verði álitleg veiðiá, fyrr en
jarðeigendur í sveitinni hafa
tekið hana í sína vörzlu.
í sumar hefir talsvert kom
ið fram af merktum löxum,
og er það nú eins og fyrr,
að laxarnir koma að heita
má undantekningarlaust
fram í ánum, þar sem þeir
voru merktir eða á sama veiði
svæði. Þó var ein undantekn
ing á þessu í sumar, þar sem
merktur lax úr Korpúlstaða-
á kom fram í Laxá í Kjós.
FuIIkomin klakstöð við
Hvítá nauðsynjamál.
Frá því var skýrt í Tímanm
í fyrrahaust, að ráðgert væri
að reisa fullkomna laxaklak-
stöð við Hvítá í Borgarfirði-
Af framkvæmdum þessum
verður þó ekki að þessu
en allir þéir, sem láta sig
þessi mál miklu skipta, leggja
áherzlu á að klakstöð þessi
komizt upp sem fyrst.
Dósentarnir komn-
ir heim frá Svíþjóð
Jón Jóhannesson dósent og
Steingrímur Þorsteinsson
dósent eru nýkomnir heim
frá Svíþjóð, en þar hafa þeir
dvalið að undanförnu í boði
Svía. Kynntu þeir sér þar eink
um sænska háskóla og fleiri
menntastofnanir.
Heim úr kynnisför
Halldór Fr. Bjarnason frá
Horsens í Danmörku, sem
eftir 38 ára dvöl í Danmörku,
kom hingað í kynnisför í sum
ar, lagði af stað heim í gær
með Drottningunni. Ferðaðist
hann æði mikið um landið, en
dvaldi lengst í Eyjafirði hjá
frændum og vinum. Fannst
gestinum mikið um þá fram
fara-bylgju sem farið hefði
um landið á fjarvistarárum
hans.
Að skilnaði bað Halldór fyr
ir þakkir og kveðjur til vina
og vandamanna, og landi og
þjóð guðsblessunnar.
Hafa þá á þessu ári þrír
landar sem lengi hafa dval-
ist í Danmörku, notið gest-
risni þeirrar sem Þorfinnur
Kristjánsson hér beitist fyrir.
Búist við erfiðri
stjórnarmyndun
Jules Moch ræddi í gær við
leiðtoga stjórnmálaflokka um
myndun ríkisstjórnar og þá
| fyrst og fremst við leiðtoga
1 kaþólska flokksins og radi-
! kala flokksins. Fréttamenn
telja, að stjórnarmyndunin
muni verða Moch erfið og
þótt honum takist að mynda
stjórn má búast við að stjórn
hans verði skammlíf.
Gefið vinsamlegast slrax upp-
lýsingar um kjósendur í Reykja-
vík, sem fjarverandi verða um
kosningarnar, svo atkvæði
þeirra berist nógu snemma.
Gefið ennfremur upplýsingar
um kjósendur utan Reykjavík-
ur, sem verða hér fram yfir kjör-
dag, 23. okt.
Flugferðir *
Loftleiðir.
í gær var flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), Akureyrar, Siglu-
fjarðar, ísafjarðar, Patreksfjarð-
ar.
í dag er áætlað að fljúga til
VONDARVORUR
S.K.T.
Eldrl dansarnlr I Q. T.-húsln®
í kvöld kl. 9. — Húsinu lokað kl,
10.30.
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Síml 3355.
Fóðurlýsí
Sel gott fóðurlýsi
BERNH. PETERSEN, REYKJAVÍK
Símar: 1570 og 3598.
Hjartans þakklæti færum við öllum þeim, sem |
| glöddu okkur á einn eða annan hátt, á 70 og 75 ára |
| afmælisdögum okkar, 9. og 10. október.
Vilborg og Tómas
Auðsholti
s i
S T
iiiiimiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiua
Taka Kanton í dag
Hersveitir kommúnista eru
nú komnar alveg að Kanton
að norðan og hafa tekið járn
brautarstöðvar í úthverfum
hennar. Allar ferðir frá borg
inni hafa lagzt niður bæði á
sjó og landi. Mikið er um
skemmdarstarf í borginni og
ræningjaflokkar hafa haft
sig í frammi. Aðalher komm-
únista mun halda inn í borg
ina og taka hana á sitt vald
í dag.
Húsmóðir hefir komið að máli
við mig og gert að umtalsefni vör-
ur þær, sem nú eru á boðstólum.
— Sumt af matvörunni, sem okk
ur er ællað að kaupa, er alls ekki
mannamatur, sagði hún. Nýlega
var hér strásykur, og er kannske
enn, er var svo óhreinn, að það
bókstaflega flaut upp þykkt lag af
óhreinindum og rusli, ef hann var
látinn í vatn eða kaffi. Þetta er
okkur víst ætlað að nota handa
hcimilum okkar. En þetta er ónot-
hæf vara.
Svipaða sögu mætti segja um
hrísgrjónin, sagði þessi kona. Þeg-
ar ég opnaði um daginn hrísgrjóna
poka, er ég hafði keypt, komu í
ljós hinn argasti hröngull, bland-
aður alls konar sora. Barnið mitt
spurði, hvort það ætti að nota
þetta til þess að pússa hús. Það
heflr sjálfsagt haldið að þetta væri
skeljasandur.
Hvernig stendur á því, að svona
vara er keypt til lands? spurði
þessi húsmóðir ennfremur. Ekki
sést það þó á verðinu, að það sé
gert í sparnaðarskyni. Það er kann
ske illgirni að segja það, en ekki
er mér grunlaust um, að einhvers
staðar kunni að hrökkva orð sem
slík, að það sé líklega helzt eitt
af innflutningssvikunum að kaupa
til landsins úrkast, sem síðan er
selt innan lands fullu verði.
En hvað sem því líður, sagði
húsmóðirin að lokum, þá vil ég
ekki gera mér svona varning að
góðu. Mér finnst það viðurstyggð
að ætlast til þess, að nokkur leggi
sér þetta til munns og krefst lag-
færingar á þessu ásamt mörgu
öðru sem miður fer í verzluninni,
svo að vægt sé til orða tekið.
J. H.
Cripps ræðir um
áhrif gengislækk-
unarinnar
Cripps fjármálaráðherra
Breta ræddi við blaðamenn í
nýl. um áhrif þau, sem geng
islækkunin hefði þegar haft
á verðlag í Bretlandi og sölu
brezkra vara á erlendum
markið. Hann sagði, að verð-
lag mundi mjög lítið hækka
á þessu ári, og vísitalan
mundi mjög lítið hækka
meira en eitt stig til ára-
móta. Ekki yrði hins vegar
hjá því komizt að vöruverð
hækkaði eitthvað meira á
næsta ári.
Hann sagði einnig, að þeg-
ar væri farið að bera á því,
að auðveldara væri um sölu
brezkra vara í dollaralönd-
unum og pantanir til brezkra
framleiðenda hefðu vaxið
nokkuð þegar.
Forðizt eldinn og
eignatjón
Framleiðum og seljum
flestar tegundir handslökkvi
tækja. Önnumst endurhleðslu
á slökkvitækjum. Leitið upp-
lýsinga.
Köld borð og
hcitnr vcizlnmatnr
sendur út um allan bæ.
SlLD & FISKUR
fluglijAit í 7ímahum
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit
Ræða um gengis--
fellinguna
Á flokksþingi brezkra íhalds
manna nýl. var m. a. rætt um
gengisfellingu pundsins og
flutti Anthony Eden fram-
söguræðu. Sagði hann að
gengisfelilngin mundi hafa
miklar fyrirsjáanlegar hækk
anir á lífsnauðsynjum al-
i mennings í för með sér og
þessar hækkanir væru nú
I þegar farnar að koma í ljós.
I Hann sagði einnig, að geng-
! isfellingin hefði verið óafsak-
anlegt flausturspor, sem óaf-
' sakanlegt hefði verið af
I ábyrgri rikisstjórn að stíga
I svo fyrirvaralaust.
Vetraráætlun
Frá Reykjavík til:
! Akureyrar:
| alla virka daga kl. 10,00
| ísafjarijar:
1 alla virka daga kl. 10,00
{ Vestmannaeyjar:
| alla virka daga kl. 14,00
| Siglufjaröar:
1 mánudaga — fimmtud.
I Patreksf jarðar:
| þriðjud. — föstudaga.
| Þingeyrar:
1 miðvikudaga.
| Flateyrar:
| miðvikudaga:
r
| Bíldudals:
| laugardaga:
| Hólmavíkur:
| mánudaga
I Blönduóss:
| þriðjudaga:
| Hellissands:
[ fimmtudaga.
i Áætlun þessi gildir frá 1.
i okt. 1949 til 30. apríl 1950.
'lllllllllltlllllltltllllllllllllllllllllMtllllllllllllllCIIIIIIIUIII
«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiMiiiiiiiaiiiiiiiiii*iiiiiiiiiiiiii*ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMHiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiimimiii1