Tíminn - 08.12.1949, Blaðsíða 6
’?®r43§j»
' ■*% ■. • „ -: Jw-
TÍMINN, fimmtudaginn 8. desember 1949
263. blað
TJARNARBÍÚ
Bæjarsíjórafrúm 1
I baðar sig
* . s
(Das Bad auf der Tenne)
Bráðskemmtileg og djörf, þýzk :
gamanmynd, tekin i hínum 3
undurfögru Agfalitum.
Aðalhlutverk:
s
Will Dohrn
I
Heli Finkonzeller
SVEND OLAP SANDBERG
syngur i myndinni. .
Sænskur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
> WA'
: Vesliags Ferdinand
(Stakkels Ferdinand)
Bráðskemmtileg sænsk gam- |
anmynd, leikin af beztu gam-
anleikurum Svía. — Danskur
texti.
Aðalhlutverk:
Ake Söderblom
Thor Modéen.
Sýnd kl. 5 og 9.
TA <■"> 1
N Y J A B I □
I
Mamma aiotaði I
lífstykki
(Mother wore Tights)
Hin gulfallega og skemmtilega :
litmynd með:
Betty Grable og
Dan Dailey I
HLJÖMLEIKAR kl. 7.
m»ninm«iin«niim*im»iiii ■ ->•
vw
SKÍIl AÚOTU
'nSF;.
| Ratiði Sttidániim |
GAMLA BI □
'u
Undramaðnrinn 1
(Wonder Man)
Hin óviðjafnanlega skemmti-1
lega gamanmynd i eðlilegum
litum, með skopleikaranum
DANNY KAYE
og dansmærinni
VERA-ELLEN
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Allra síðasta sinn.
BÆJARBID
| HAFNARFIROI
I Hin stórglæsilega litmynd,
Mowgli
Sýnd kl. 9.
| Gög og Gokke í
leynifélagi
Hin fjöruga og sprenghlægi-
lega skopmynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
Hafnarf jarðarbíó
Ueyniskjölin |
Bráðsmellin, f jörug og skemmti-
leg amerisk mynd, um mann,
sem langaði að verða lögreglu-
spæjari og eftirlætið hans.
I
Aðalhlutverk:
Bob Hope
Dorothy Lamour.
Sýnd kl. 7 og 9. — Sími 9249. !
aiiiimitiimimHiiiMiiiitiniiiwmiwimmniuimB
Lyfjaverzlunin
(Framhald af 5. siou).
ferðilegan rétt til að taka
meðalaverzlunina ' í eigin
hendur.
Sé hér nokkuð tilefni til
deilu, þá er það þetta og
annað ekki.
Ö+Z.
f
5 Spennandi og ævintýrarík
: mynd, sem fjallar um, er síð-
E
| asti Tyrkjasoldán Abdul Hamid
: II., var rekinn frá völdum.
I
1 Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
iumumin0muiiKi;uiirii«in'ii,Tnir^iii>rii
Daiismærin
Estella
SÍMI 81936.
I I
S Skemmtileg og spennandi ensk [
| söngva og dansmynd með ó- |
I gleymanlegri músik eftir Johan |
I Strauss og Hans May.
|
s
| Aðalhlutverk:
Chili Boudrier
: Ned Hamilton
: s
Sýnd kl. 5, 7 og 9
I
z
—„iii—iiiiimifimfnt
(Dýrheimar)
Myndin er byggð á hinni heims-
frægu sögu Rudyard Kipplings,
Dýrheimar, og hefir hún nýlega
| komið út á íslenzku.
Aðalhlutverk:
Sabu
Joseph Calliea
Patricia O’Rourke
Sýnd kl. 7 og 9.
Simi 9184.
TRIPDLI-BID
Keppinautar
(Kampen om en Kvinde)
Hin skemmtilega finnska
ástarmynd, gerði eftir skáldsög-
unni „De Möddes ved Lyngen“.
Aðalhlutverk:
Edvin Laine
Irma Leikkula
Olavi Reimas.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 1182.
ALLT TIL AÐ AUKA
ÁNÆGJUNA
Kaupum allar tegundur af
flösfeum og glösum (líka
tóbaksglösum) og töskum
nema stormtau og striga.
Verzlnn lugþórs
Selfossi
/ Tfaanm
»***»**«•«***»*««* »«»«**»»«**»*****««*«tt**tt**«4*****«****«**«*»**«**«<
Saltað tryppakjöt
AF UNGU — VEL VERKAÐ
1
i************************* ***«<
*«»»«»»•»»*******»«*«*<
niiiiiiiiiiimiiiiiiuiiniuiíiiiiiiHimiiiiiiiiiiiMiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiHiiiiii
! |
I Aðalsafnaðarfundur I
s
§ 3
1 í Nessókn verður haldinn sunnudaginn 11. des. að !
| aflokinni guðsþjónustu safnaðarins.
Fundarefni: Aðalsafnaðarfundarstörf.
Sóknarnefndin.
llHIIIHIIlllllllI>11HIMII11• lllIIIIHI• IIIllllllIIII11IIIIIIHllllilllllIIIHllllIIIIIIIIIHIIIIHIIHIIIIIIHIIIIIIHI11IIIIIIHllfTflTttn
Auglýsingasími Tínians 81300
73. dagur
Gunnar Widegren:
Greiðist við mánaðamót
þykkja ráðahaginn eða finnist bókin ekki, af því ein-
hver annar hefir tileinkað sér hana, þá finnst þeim
það óbærileg móðgun.
Þetta ætti að vera honum dálítið umhugsunarefni,
hugsar Stella — bæði bónorðið og hugleiðingar mínar,
sérstaklega þetta um hilluna og bókina. En annars
stendur víst ekki á mér, þegar honum þóknast að seil-
ast eftir bókinni, hvaö lengi sem ég þarf að bíða. En
það er þarflaust, að hann viti það! «
Síðan lýsir hún ferðinni í Óperuna, einkum orðaskipt-
um sínum við Kristinn. Elsu Kuhlhjelm nefnir hún að-
eins lauslega. Herbert verður að geta í eyðurnar.
Hún talar um móður Herberts af meiri virðingu, en
hún í rauninni ber fyrir henni, og loks kemur hún .
að kapítulanum um móður sína. Hún lýsir henni sem
mjög eigingjarnri og viðsjálli manneskju, en guSi sé lof
fyrir, að ég hefi erft þá eiginleika, að því fólk segir,
segir hún. Þú átt móður, sem virðist fyllilega vita, hvað
hún vill. En móðir mín rýkur upp með eitt í dag og annað
á morgun. Við hittumst reyndar sjaldan síðan hún skildi
við föður minn. Og það er ekki nema tuttugu ára munur
á okkur, og stundum þykist hún sjálf of ung til þess aö
eiga fullvaxta dóttur. Af því hefir hún tekið upp á því
að kalla mig frænku sína. Og frænkur erum við raunar,
enda þótt við séum mæðgur. Ég læt hana ráða slíkum
nafngiftum. Það er líka skringilegt að kalla mömmu
manneskju, sem allir álíta, að sé eldri systir manns. Þess
vegna kalla ég hana oftast Teresu — uppkomnar stúlkur
nefna líka mæður sínar oft með nafni nú á dögum....
TUTTUGASTI OG ANNAR KAFLI
Stella vaknar sljó og syfjuð. Öll nóttin hefir verið
endalaus martröð. Hana dreymdi allt, sem gerðist dag-
inn áður: Flaður Refs, símtalið við móður sína og bón-
orð Kalla málara.
Regnið steypist úr loftinu. Það er hrollur í henni,
þegar hún hleypur niður að viðkomustað strætisvagns-
ins og treður sér inn í hann, meðal morgunstyggra
karla og kvenna. Henni finnst það hér um bil eins og
móðgun af hálfu tilverunnar við sig, að litlu seinna
kemur Elsa Kuhlhjelm inn í vagninn. Þegar Stella fer
út úr vagninum, kemur hún á eftir henni, og þær
heilsast.
— Það er vott um í dag, segir Stella — eitthvað verð-
ur hún að segja, fyrst þær þurftu endilega að rekast
þarna saman.
— Já, einmitt, segir Elsa svo iliilega, að tveir menn,
sem ganga hjá, líta undrandi upp úr morgunblöðunum,
sem þeir voru nýbúnir að kaupa.
Stella er ekki fyrr komin inn í skrifstofuna en Ljúfa
og Dúfa ráðast á hana.
— Á laugardaginn átt þú og þær hinar að koma
heim til mín, segir Dúfa. Svanurinn hennar Ljúfu
fer ekki fyrr en eftir helgina.
— Já — við bjóðum ykkur heim, en smjör og brauð-
miða verðið þið að koma með. Kaffi eigum við, og svo
vín skulið þið fá, segir Ljúfa, sem taka vill allt fram
skýrt og skorinort. Þetta verður mikil hátíð.
— Já — maður trúlofast ekki nema einu sinni, segir
Dúfa, Ijómandi af hamingju.
— í einu, bætir Ljúfa við og hlýtur góðar undir-
tektir. Og þú ert velkomin líka, bætir hún við um leið
og hún snýr sér að Löngu-Bertu, sem komið hefir sein-
ust allra, en þó hress í bragði og upplitsdjörf.
Ég þakka fyrir mig, svarar hún. En þá verð ég að
fara fram á það. að ég megi koma'með Unnustann
minn með mér!
— Unnustann þinn? spyr Gústaf undrandi — hvers
konar verkfæri er það?
En Stellu grípur undarleg kennd, líkt og þegar vað-
ið er út í djúpt vatn, unz það tekur manni upp á
miðjan maga.
— Það er Kalli málari, segir Langa-Berta sigri hrös-
andi og hnykkir til höfðinu og hlær hæðnisléga fram-
an í Stellu. Svo að það varð ég, sem innbyrti hann, þó
að þú hafir' lengi verið að gera þig líklega við hann.
Það verður dauðaþögn í skrifstofunni. Engum verður
úr vegi að óska henni til hamingju.