Tíminn - 16.03.1950, Qupperneq 8
\ W<'éhW\yWlM \7W?f2Wíí W Vh\á~2t
Þjóðleikhúsið vígt 1.
I\ýársi9»HDii. Fjalla-Eyvimiiir og' Islaiuls-
klukkan fyrstu leikirnir
Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri gerði það heyrin
kunnugt í gær, að þjóðleikhúsið yrði vígt á sumardaginn
fyrsta, 20. apríl. Verður Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson
sýnd þann dag og Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sigurjóns-
son daginn eftir, en íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan
Laxness þriðja daginn.
' . AHt verður gert til þess,
að vígsla þjóðieákhússins
fari sem glæsilegast fram.
Á fyrstu sýningunni mun í
þjóðleikhúsið bjóða á!
milli fimm og sex hundruð
I
mönnum, en nokkuð af að-
göngumiðum verður látið
leikurum í té handa vanda
fólki sínu. AIls verða 661
sæti I þjóðleikhúsinu, auk
stúkna.
Meðal boðsgestanna á
vígslusýningunni verður fólk
víðsvegar að af landinu, full
trúar allra stétta og forgöngu
menn á sviði leikmála. Einn
ig verða meðal boðsgesta
þjóðleikhússtjórar allra Norð
urlandanna.
Verð á aðgöngumiðum að
þjóðleikhúsinu hefir verið á-
kveðið 30 kr, 25, 20, 15 og
12 kr. Munur á sætum er þó
ekki eins mikill og verðmun
urinn bendir til, heldur er
þessi skipun höfð á til þess,
að allir geti veitt sér það að
fara í leikhúsið, ef þá lystir.
Á frumsýningu og næstu
sýningu þar á eftir verður
verð miða 50% hærra en ella
og verða fastir gestir á þess-
ar sýningar aö nokkru leyti.
Fá þeír til skiptis aðgang að
frumsýningu. Var þegar í
fyrravor byrjað að spyrjast
fyrir um aðgöngumiða handa
fastagestum. Þó voru ekki
néma 50 beiðnir komnar, er
þjóðleikhússtjóri átti viðtöl
um þetta efni við blöðin s.l.
haustj en síðan hafa 1550
umsóknir borizt.
Með tiíliti til fólks utan af
landjl, mun svo verða tilhag-
að.um helgar, einkum þegar
líður að vori og vegir eru
orðnir greiðfærar, að tveir
eðá þrír leikir verði sýndir
um sömu helgi, svo að þeir,
sem efna vildu til hópferða
til bæjarins til leikhúsfarar,
geti séð fleiri en einn leik í
sömu ferð eða valið á milli.!
Þjóðleikhússtjóri gat þess'
sérstaklega, að allt starfslið j
leikhússins ynni einhuga að
því, að vígsla þess gæti fariö
fram með sem mestum glæsi
brag.,.
Bfður tilkynningar
konungs
Frjálslyndi flokkurinn í
Belgíu hefir tilkynnt, að
hann muni bíða með að taka
afstöðu til heimkomu Leo-
pold konungs þangað til kon
ungur hafi sjálfur látið uppi
ákvörðun sína og vilja í sam
bandi við þjóðaratkvæða-
gréiðsluna.
Jessup kominn til
New York
Jessup sendimaður Banda-
rikjastjórnar í Asíu kom
heim til New York frá París.
Við heimkomuna ræddi hann
við fréttamenn og minntist
meðal annars á ásökun
óamerísku nefndarinnar.
Hefir nefndin sakað hann
um vilhylli við kommúnista
fyrr á árum og krafizt þess
að fortíð hans yrði rannsök-
uð og hann kvaddur til
frásagnar um afstöðu sína
til kommúnista. Jessup lét
þess getið, að ásakanir þess-
ar væru úr lausu Iofti gripn
ar.
Fiskafli Norðmanna
meiri en í fyrra
Samkvæmt skýrslu Fiski-
féiags íslands er vetrarsíld-
veiði Norðmanna nú orðin
um 7,8 miilj. hl, en var 5,5
millj. hl. í fyrra um sama leyti
eða 11. marz. Þorskveiðiafl-
inn var á sama tíma orðinn
46,1 þús. smál, á móti 45 þús.
smál. á sama tíma í fyrra.
Þorskveiðin við Lófót er
mun minni ’ en í fyrra um
þetta leyti enn sem komið
er, en aflinn hefir hins vegar
verið miklu betri í verstöðvum
sunnar í landinu.
Tvær sprengjuflug-
vélar farast
Tvær brezkar sprengju-
flugvélar. af Lincoln-gerð
fórust i Bretlandi i gær. Með
þeim fórust 11 manns. Ekki
hefir enn verið gert kunn-
ugt, hvað olli flugslysi þessu.
sumardai
Skinfaxi kominn út
Aðallega belgaður
landsmwílnu
Skinfaxi, tímarit U.M.F.I,
er nýkomið út og hefir bor-
izt blaðinu. Er þetta hefti að
mestu helgað Landsmóti
U.M.F.Í. að Hveragerði s. 1.!
sumar. |
Hefst ritið á kvæði eftir
Helga Sveinsson, sem hann
nefnir ávarp til æskunnar.
Þá er ræða sú er Eysteinn j
Jónsson ráðherra flutti á mót
inu og ber heitið Hlutverk
ungmennafélaganna. Ræða
prófessors Ásmundar Guð-
mundssonar við sama tæki-
færi er nefnist Kraftur jarð
ar og kraftur himins, en
Daníel Ágústínusson skrifar
lýsingu á landsmótinu. Auk
þess er í heftinu frásögn af
norrænni æskulýðsviku og
minningargrein um Guð-
mund Eggertsson, fréttir af
sambandsþingi, íþróttaþátt-
ur og sitthvað fleira.
Nektarhreyfingin danska
ætlar að stofna sam-
virka nýlendu á Jótlandi
Anðugur Sallisigbiii Itefir gcfið hreyfing-
cmni allar efgnir sínar í |iessu skyni
Auðugur maður í Salling á Jótlandi ákvað nýlega að gefa
ailar eignir sínar til styrktar danskri nektarhreyfingu. Mað-
ur þessi hefir undanfarin ár átt við sjúkdóm að stríða og
gerzt mjög sannfærður fylgismaður nektarhreyfingarinnar.
Um daginn og veg-
inn, eftir Jón í
Yztafelli
ísafoldarprentsmiðja hefir
gefið út ritling eftir Jón Sig-
urðsson, bónda á Ystafelli,
Um daginn og veginn, sex
útvarpserindi.
Ekki voru þó nema fimm
þeirra flutt, þar eð hinu sjötta
var hafnað, og öll eru þau
óbreytt, nema lítilsháttar er
féjlt úr einu erindinu, sem
flutt var.
Erindin fjalla um þjóðlífið
og þjóðlífsvandamálin, og er
ofið inn í þau mörgum
skemmtilegum og skarplegum
athugasemdum um ýms efni.
athugasemdum.
I tilboði því, sem gefand-
inn gerði nektarhreyfingunni,
lagði hann til, að eignum
sínum yrði varið til kaupa
á sveitabýli eða jarðeign, sem
vel væri til þess fallin að vera
bækistöð nektarhreyfingar-
innar. Er nú verið að leita að
slíkum stað í Mið-Jótlandi.
Sjálfur er gefandinn á ferða-
lagi í Þýzkalandi, Sviss og
Ítalíu, þar sem hann kynnir
sér bækistöðvar og nýlendur,
sem nektarhreyfingin í þess
um löndum hefir komið upp.
• Gert er ráð íyrir því, að
hin nýja bækistöð nektar-
hreyfingarinnar dönsku taki
til starfa í vor, og þar á að
gefa öllum sönnum. fylgis-
mönnum hreyfingarinnar
kost á að taka sér bólfestu,
gegn því að þeir taki þátt
í því starfi, sem nauðsynlegt
er til þess að koma nýlend-
unni farsællega á stofn. Fyrst
í stað þykir einkum æskilegt,
að fá handverksmenn í ný-
lenduna, en seinna meir er
ráðgert, að þarna rísi upp
bær, sem að öllu leyti verði
helgaður nektarhreyfingunni
og stefnu hennar og grund-
vallast á fullkominni sam-
virmu og samhjálp íbúanna.
Þegar eru uppi fyrirætl-
anir um íþróttavelli, sund-
laugar. fimleikasali, sam-
komunús og lítil sumarhús.
sem leigð verða sumargest-
um. —
Finnsku söngkon-
unni vel fagnað
Finska söngkonan frú Tii
Niemelá hélt söngskemmtun
í Gamla bíó í fyrrakvöld á
vegum Finnsk-íslenzkafélags
ins hér í bænum. Húsið var
ekki alveg þéttskipað áheyr-
endum, enda voru hljóm-
leikarnir á óhentugum tíma.
Söngkonunni var hins vegar
tekið afburðavel, og varð hún
að endurtaka lög og syngja
aukalög að lokum, enda er
rcdd þessarar söngkonu fög-
ur og þjálfuð. Söngkonunni
bárust og blóm. Maður henn
ar Pentti Koskimes, píanó-
leikari, lék undir af mikilli
prýði.
Frú Niemelá heimsótti í
gær elliheimilið Grund og
söng fyrir vistfólkið þar við
mikla hrifningu. Hefir gamla
fólki og forstjóri elliheimilis-
ins beðið blaðið að færa lista-
hjónunum innilegt þakklæti
fyrir þá ógleymanlegu stund.
Frá kvenfélagasam-
*
bandi Islands
Pólland segir sig úr
alþjóðabankanum
TékkwNlóvakía cina iamiið anslan járn-
tjalds, som enn er aðili að bankanuni
Það var opinberlega tilkynnt í Washington í gær, að Pól-
land hefði sagt sig úr alþjóðabankanum og alþjóða gjald-
eyrissjóðnum. Er PóIIand fyrsta landið sem hættir aðild
sinni að bankanum og krefst endurgreiðslu á framlagi sínu.
Sendiherra Póllands í
Washington sendi stjórn
bankans bréf þessa efnis í
gær og segir í bréfi þessu, að
ástæðan til úrsagnarinnar
sé sú, að Póllandl hafi verið
neitað um 200 millj. dollara
lán úr bankanum til endur-
reisnar landsins, og hafi neit
unin verið rökstudd með þvi
að Pólland hafi neitað að ger
ast aðili að Marshallhjálp-
inni, sem sé tilraun til að
undiroka þjóðir Evrópu und
ir Bandaríkin 1 efnahagslegu
tilliti. Tékkóslóvakía er nú
eina Kominformlandið, sem
enn er aðili að sjóðnum.
Alþjóðabankinn var stofn-
aður árið 1945 og til þess
ætlaður að veita lán til end-
urreisnarstarfsins í Evrópu og
víðar. Samtímis var alþjóða
gj aldeyrisb?,'nkinn stofnaður
í sambandi við bankann og
á hann að auðvelda verzlun
og viðskipti þjóða í milli.
Eins og mörgum mun kunn
ugt tók kvenfélagasamband-
ið upp þá nýbreytni á s. 1.
hausti að ráða til sín ráðu-
naut sem annaðist upplýsing
arstarfsemi á vegum sam-
bandsins. Réði það Halldóru
Eggertsdóttur til þesSa starfs,
og vinnur hún að einum
þriðja fyrir sambandið, en er
annars námsstjóri húsmæðra
skólanna. Halldóra Eggerts-
dóttir hefir á ferðum sinum
til húsmæðraskólanna heim-
sótt allmörg kvenfélög og
haldið fyrirlestra með skugga
myndum.
í janúar var hún til viðtals
í skrifstofu sambandsins
Laugavegi 18, mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, kl.
2—4 e. h. Hún mun nú frá
15.—31. þ. m. vera aftur til
viðtals í skrifstofunni sömu
daga og sama tíma. Getur
fólk snúið sér þangað mð
erindi sin.
Hún mun leiðbeina fólki með
haganlegt fyrirkomulag og
innréttingu húsa, skipulagn
ingu og framkvæmd daglegra
heimilisstarfa, mataræði og
(Framhald ú 2. síðu).