Tíminn - 07.05.1950, Blaðsíða 6
B
TÍMINN, sunnudaginn 7. maí 1950
99. blað
TJARNARBID
Ballctt-kvöld |
Heimsfirægir rússneskir ballett-
ar og ballettinn úr Rauðu skón-
um. Tónlist eftir Tchaikowski
og J. Strauss. Bjarni Guðmunds
son blaðafulltrúi flytur formáls
orð og skýringar.
Sýnd kl. 9.
Á Vængjum
Vindanna
Aðalhlutverk:
Anne Baxter
WUliam Holden
Sonny Tufts
Sýnd kl. 5 og 7
REGNBOGAEYJAN
Sýnd kl. 3.
N Y J A B I □
i
Ástarbrcf
skáldsins
Mjög sérkennileg og spenn- ]
|andi ný amerísk mynd.
Aðalhlutverk:
Susan Hayward
Robert Cummungs
I Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Söl uinaður inn
síkáti
með Abbott og Costello
Sýnd kl. 3.
TRIPDLI-BÍÚ
| Fanginn í Zcnda I
I (The Prisoner of Zenda)
•I Amerísk stórmynd gerð eftlr
íhinni frægu skáldsögu Anthony
! Hope, sem komið hefir út 1 ísl.
Sþýöingu. Myndin er mjög vel
Jleikin og spennindi. Aðalhlutv.:
Roland Colman
" Madeleine Carroll
Douglas Fairíanks Jr.
,, David Niven
j Mary Astor
* Reymond Massey
i C. Aubrey Smith
| Sýnd kl. 5, 7 og 9.
„Ár vas alda“
(One Million B. C.) j
Mjög spennandi og sérkennilegj
amerísk kvikmynd, er gerist J
milljón árum fyrir Kristburð á!
tímum mammútdýrsins og risa-!
eðlunnar. — Danskur texti.
Aðalhlutverk:
Victor Mature
Carole Landis
Lon Chaney
Sýnd kl. 5, 7 og 9
—
Litli og Stóri í
hragningum
* Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11 f. h.
__
yerkalýðsftokkarnir'
og Keilsuspillandi...
(Framhald af 5. slOu.)
fullt traust til bæjarstjórn-
armeirihlutans i þessum efn
um, en ekki geta þeir byggt
þaff traust á reynslunni.
Reynslan hefir sýnt það og
sannað, að það fyrirkomulag,
sem hér hefir gefist bezt, er
byggingastarfsemi á grund-
velli laganna um verkamanna
bústaði og samvinnubygging
ar. Að því þarf að vinna eft-
ir beztu getu að tryggja sem
mest f jármagn til slíkra bygg
inga. Því miður hljóta þó slík
fjárframlög að verða miklu
naumari en ella á næstu miss
erum vegna þess, hvernig hald
ið hefir verið á rriálunum
undanfarin ár með fuilum
stuðningi verkalýðsflokk-
anna.
Verkalýðsflokkarnir hafa
ekki þá aðstöðu í þessum mál
um, að þeim farist að kasta
grjóti. f stjórnartíð þeirar var
besta tækifærið, sem fengist
hefir til að Ieysa þessi mál,
látið ónotað, en lúxushallir
reistar í staðinn. Enn hafa
þeir ekki upp á annað en sýnd
jirtillögur að bjóða og að fela
Revkjavíkuríhaldinu a ðal-
framkvæmdirnar. Þrátt fyrir
alla kreppu og erfiðleika er
óhætt að lofa þvf, að meira
skal ávinnast í þessum mál-
um á næstu árum en í góð-
ærinu hjá þeim, nema þeim
takist þau áform að stöðva
hjól framleiðslunnar alveg og
stöðva þannig jafnframt
byggingastarfsemina í land-
inu.
X+Y.
Ástin sigraði
Spennandl, ensk stórmynd í eðli
legum litum, byggð á sam-
nefndri skáldsögu, sem nýlega
hefir komið út á íslenzku.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 9.
Litli Áapolcon
Bráðsmellin sænsk hjúséapar-
mynd eftir Max Hansen.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
BÆJARBÍÖj
HAFNARFIRÐI
Sjon er sögu ríkari
(Smámyndasafn)
Litmynd í 20 skemmtiatriðum,
tekin af Lofti Guðmundssyni.
Au kamynd
Frá dýragarðinum í Kaup-
mannhöfn.
kl. 5, 7 og 9.
Stormur yfir
fjöllnnum
(Mynd úr lífi íbúa Alpafjalla)
Fjallar um ástríður ungra
elskenda, vonbrigði þeirra og.
drauma. — Danskur textt.
Aðalhlutverk:
Geny Spielmann
Mataline Koebel
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Kartöfluinnflutn-
ingur á síðari árnm
(Framhald af 4. síðu.)
Framleiðslan hefir því mið
ur, ekki haft það aðdráttar-
afl nú um skeið, á fjölda
landsmanna, sem þyrfti og
æskilegt væri. Önnur störf
hafa reynst meira lokkandi,
bæði vegna öruggari vona
um tekjur í svipinn og meiri
lífsþæginda, en þetta tvennt
orkar miklu um það hvaða
störf eru valin. Framleiðslu-
störfin skipa, eins og nú stend
ur, ekki þai^n sess í hugum
margra, að þau teljist eftir-
sóknarverð, né eru í þeim
metum er þau verðskulda,
sem undirstaða allrar af-
komu þjóðarinnar.'Á meðan
svo er ástatt, mun á skorta,
að ýmsar þær vörur sem
framleiða má hér á landi,
hrökkvi fyrir þörfinni, og
verður þá sá kostur fyrir
hendi, að flytja þær frá út-
GAMLA Bí□
Nóttin langa
(THE LONG NIGHT)
Hrikaleg og spennandi, ný, am-
erísk kvikmynd, byggð á sann-
sögulegum viðburði. Aðalhlut-
verkin eru framúrskarandi vel
leikin af:
Henry Fonda
, Vincent Price
Barbara Bel Geddes
Ann Dvorak ,
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
| Tciknimyndasafn
| Gamalt og nýtt.
j . Sýnd kl. 3.
Fasteignasölu-
miöstöðin
Lækjargötu 10 B. Síml 6530
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. 1
umboðd Jón Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
löndum ef gjaldeyrisástand-
ið leyfir, svo framarlega sem
þær eru ekki látnar vanta að
meira eða minna leyti.
Jón ívarsson
JOHN KNITTEL:
FRÚIN Á
GAMMSSTÖÐUM
---- 5. DAGUR ---
— Frá Síon! Hinum megin við Lötschberg! Á maður að •
trúa þvi, að hún hafi komið alla þá leið?
— Hún hefir kannske komið með lestinni, sagði Emma.
— Hamingjan góða!
— Lénharður, sagði Röthlisberger, um leið og hann skar
væna sneið af rúbrauðshleifnum. Skrepptu út og sæktu
hana.
Teresa var enn í hinu nýja herbergi sínu. Hún sat á rúm-
stokknum í myrkrinu. Allt i einu heyrði hún þungt fótatak,
og í næstu andrá hrópaði karlmaður úti fyrir: Hvar ertu?
Komdu, Teresa — við erum farin að borða.
Hún lét sjalið á rúmið, fór úr skóm og sokkum og opnaði
dyrnar.
— Komdu, Teresa, sagði hann aftur.
— Ég kem, sagði hún.
Hún gekk berfætt út á hlaðið og fylgdi Lénharði eftir.
— Komdu hér og setztu, sagði Röthlisberger, þegar hún
birtist í dyrunum. Setztu niður og taktu til matar þíns. ída,
Emma og Hanna — færið ykkur, svo að hún komist að!
Teresa.settist, og nú varð dauðaþögn. Allir störðu á ó-
kunnu stúlkuna. Karlmennirnir virtu áfjáðir fyrir sér
grannt mitti hennar og létu sig gruna þrýstin brjóstin, sem
hófust og hnigu undir svartri og slitinni blússunni. Kon-
urnar létu augun dvelja við rifinn blúndukraga. stúlkunn-
ar og dökkjarpt hárið. Það var greitt slétt aftur, og sló á
það dumbrauðum blæ. Yfir mjóu og fölu enninu hringuðu
sig lausir lokkar.
— Og þú sagðir föður þinn sveitamann? sagði Röthlis-
berger. ,
— Já, svaraði Teresa og roðnaði.
— Átti hann jörð? * ;
— Já.
— En nú á hann ekki jörð lengur? ]
— Nei — hann seldi jörðina.
— Svo hefir hann ráðið sig hjá öðrum.
— Já — hann vann að vínyrkjunni. .
— Hvað gerir hann nú?
— Hann er dáinn.
— Hvenær dó hann? spurði Röthlisberger eftir stutta
þögn.
— í síðastliðinni viku.
— Guð komi til! Það var sorglegt.
Teresa svaraði honum ekki. Hún mataðist þegjandi og
reyndi að láta sem minnst bera á því, hve svöng hún var.
En nú var hitt fólkið hætt að gefa henni gætur. Það var
snögglega eins og ekkert væri eðlilegra en hún sæti við
þetta borð. Það hefði meira að segja mátt ætla, að hitt
íólkið væri ekki aðeins landar hennar, heldur kunningjar
hennar og ættmenni. Hún hlustaði á samræður fólksins og
varð þess undir eins áskynja, að mjög var kært með sumu
af því, en hjá öðru virtist samlyndið miður gott. Hún komst
að raun um, að Anton Möller hafði farið með gripi á bú-
fi ársýningu í Thun, og hans var von heim aftur innan
fárra daga. Fólkið talaði lika um Möller yngri — Gottfreð
Sixtus Möller, son Antons, er var við nám -í háskólanum í
Basel.
— Það var nú gaman, þegar Gottfreð Sixtus var hér,
sagði Adrían. Hann ætlaði að telja okkur trú um, að hann
myndi verða- frægur lögfræðingur, og þó gat hann ekki
einu sinni látið fang á heysátu!
— Hann hefir það í höfðinu, sem hann vantar í hand-
leggina, sagði Kosímó.
Teresa var orðin mett. Hún reis á fætur og spurði, hvort
hún mætti fara. Heiðveig sagði, að hún yrði að fá lampa,
því að niðamyrkur væri í herbergi hennar. Fríða áminnti
hana um að slökkva ljósið, jafnskjótt og hún væri háttuð,
og Röthlisberger hrópaði á eftir henni:
— Klukkan fimm í fyrramálið! Góða nótt!
Hún gekk út að brunninum, þvoði sér og fékk sér vatn
að drekka. Siðan háttaði hún. Henni var ekki fyrr farið
að hlýna undir sænginni en hún sofnaði.