Tíminn - 22.07.1950, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, laugardaginn 22. júlí 1950
-rry-----
158. blað
')t‘á hap til
Útvarpið
Útvarpið um helgina.
I dag: 8.30—9.00 Morgunút-
varp. — 10.10 Veðurfregnir.
12.10—13.15 Hádegisútvarp. 15.30
—16.25 Miðdegisútvarp. — 16.25
Veðurregnir. 19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Samsöngur
(plötur). 19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 220.30 Útvarps-
kórinn syngur; Róbert Abra-
ham stjórnar (plötur). 20.45 Upp
lestur. 21.15 Ljóðskáldakövld.
22.00 Fréttir og Veðurfregnir.
Dagskrárlok.
Siinnudag: 8.30—9.00 Morgun-
útvarp. — 10.10 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju
(séra Jakob Jónsson). 12.15—
13.15 Hádegisútvarp. 15.15 Mið-
degistónleikar (plötur): a) Fiðlu
sónata í A-dúr eftir Sésar
Franck. b) Einsöngur: Pierre
Bernac syngur. c) „Bolero“ eftir
Ravel. 16.15 Útvarp til íslend-
inga erlendis: Fréttir. — Er-
indi (Gísli Kristjánson ritstjóri)
16.45 Veðurfregnir. 18.30 Barna
tími (Ingibjörg Þorbergsdóttir
og Skúli Þorbergsson): a) Sögur
og æfintýri. — b) Söngur með
gítarundirleik. — c) Framhalds
sagan: „Óhappadagur Prillu“
(Katrín Ólafsdóttir les). 19.25
Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar:
Paganini-tilbrigðin eftir
Brahnis (plötur). 19.45 Auglýs-
ingar. 20.00 Fréttir. 20.20
Skemmtiatriði „Bláu stjörn-
unnar“: MIM. 22.10 Fréttir og
Veðíurfregnir. 22.15 Danslög
(piötur). 23.30 Dagskrárlok.
Mánudag: 8.30—9.00 Morgun-
útvarp. — 10.10 Veðurfregnir.
12.10—13.15 Hádegisútvarp (um
kl. 12.35 flytur séra Jóhann Hlíð
ar ávarp um norrænt kristilegt
stúdentamót). 15.30—16.25 Mið-
degisútvarp. — 16.25 Veðurfregn
ir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón
leikar: Lög úr kvikmyndum
(plötur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.20 Tónleikar: „Góði
hirðirinn", svíta eftir Hándel
(plötur). 220.45 Um daginn og
veginn (frú Filipía Kristjáns-
dóttir). 21.05 Einsöngur: Elisa-
beth Shumann syngur (plöötur)
21.20 Ferðaþættir frá Jótlandi
(séra Sigurður Einarsson; —
plötur). 21.40 Tónleikar: Kvar-
tett í Es-dúr op. 125 nr. 1 eftir
Schubert (plötur). 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Létt lög
(plötur). 22.30 Dagsskrárlok.
Árnað heilla
Hjónaband.
1 dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Svanhvít
Ragnarsdóttir skrifstofumær
frá Djúpavogi og Ófeigur Péturs
san rafvirkjanemi frá Skaga-
strönd. Heimili þeirra verður
að Miðtúni 60 í Reykjavík.
Bræðrabrúðkaup að Hjarðar-
holti í Döium.
Þann 13. júlí s. 1. héldu þrír
synir hjónánna í Hjarðarholti,
þeirra Þórðar Jónssonar og
Nönnu Stefánsdóttur, brúð-
kaup sitt, í hinni fögru sóknar-
kirkju þar á staðnum.
Hjónavigslurnar framkvæmdi
sóknarpresturtnn, séra Ólafur
Ólafsson á Kvennabrekku, að
viðstöddum nánustu skyldmenn
um og vinum fjölskyldunnar,
úr Suður-Þingeyjar- og Dala-
sýslúm.
Brúðhjónin voru þessi:
1. Þráinn Þórðarson og Karen
Guðlaugsdóttir, frá Húsavík.
2. Yngvi Þórðarson og Gyða
Bárðardóttir, frá Grænavatni
við Mývatn. 3. Hjalti Þórðar-
son og Inga Aðalheiður Guð-
brandsdóttir, frá Lækjarskógi í
Dölum.
Að loknu brúðkaupinu voru
tvö systrabörn, fjölskyldu- og
tengdafólksins, skírð í kirkj-
unni.
Á eftir hinni fögru kirkjuat-
höfn var veitt af. mikilli rausn,
inni í salarkynnum húsbænd-
anna, og mannfagnaður stóð
fram á nótt.
Úr ýmsum áttum
Ferðafélag íslands.
ráðgerir skemmtiferð um Vest-
u^jand og hefst ferðin 27. júlí.
Farið með bifreiðum til Stykkis
hólms. Haldið til Flateyjar og
ferðast um eyjarnar. Þá til
Brjánslækjar á Barðaströnd.
Farið í Vatnsfjörð og dvalið þar
einn dag í skóginum. Farið ríð-
andi vestur í Arnarfjörð (um
Fossheiði. Komið í Geirþjófs-
keita |
fjörð, inn undir Dynjanda að
Rafnseyri og til Bíldudals. Far-
ið yfir Rafnseyrarheiði til
Þingeyrar (eða sjóveg) og að
Núpi, en næsta dag til ísafjarð
ar. Ferðast um ísafjarðardjúp
í 2 daga á bátum. Frá Arngerð-
areyri haldið Suður Þorskafjarð
arheiði til Kinnarstaða og að
Bjarkarlundi og með bifreiðum
til Reykjavíkur. 8 daga ferð.
Áskriftarlistl liggur frammi og
séu farmiðar teknir fyir kl. 5
næstkom. þriðjudagskvöld.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Ferðaskrifstofan efnir til
eftirtalinna ferða á sunnudag- |
inn: 1. Til Gullfoss og Geysis.
2. Hringferð um Kaldadal, Borg
arfjörð og Hvalfjörð. 3. Ferð í
Þjórsárdal. 4. Ferð austur í
Fljótshlíð. Upplýsingar í síma
1540.
Grasaferð Náttúrulækninga-
félags Reykjavíkur.
Náttúrulækningafélag Reykja
víkur efndi til grasaferðar um
síðustu helgi upp á Hveravelli.
Var lagt af stað. eftir hádegi
laugardag 15. júlí, gist í skála
Ferðafélagsins um nóttina og
þá næstu. Á sunnudaginn var
gengið til grasa. Veður var frem
ur óhagstætt, þurrt og nokkuð
hvasst, en eigi að síður var
grasatekjan góð, og komu marg-
ir með ríflegan vetrarforða
heim með sér af þessum gamla
og góða íslenzka mat, sem er í
senn hollur og ljúffengur. Á
mánudag var haldið heimleiðis
og komið við á nokkrum stöð-
um til að sjá sig um. Þáttakend
ur í förinni voru 22, þeiría á
meðal Jónas læknir Kristjáns-
son, en fararstjóri var Steindór
Björnsson frá Gröf. — Um verzl
unarmannahelgina efnir félag-
ið til skemmtiferðar inn á Þórs
mörk.
Reynivallaprestakall.
Messað að Reynivöllum kl.
2 e. h. sunnudag 23. júlí.
Sóknarprestur.
-A(ö
ornum vecýi -
Saga af tveimur konum
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékkst hann
Bændur! Seljið okkur ullina af kindum ykk-
ar, við tökum við henni eins og hún kemur
fyrir í heilum reyfum, og framleiðum úr
henni gott ullarband, góðan lopa, og hald-
góða og áferðarfallega fatadúka. — Þekk-
ing okkar og margra ára reynsla í ullariðnað-
inum verður ykkur að mestu liði, með því, að
þið verzlið við ÁLAFOSS.
o
o
o
o
Seljið ull ykkar til
Talið við umboðsmenn
Álafoss
Klæðaverksmiðjan Alafoss h.f., Reykjavík
o
O
o
o
O
o
O
o
o
o
o
o
O
o
O
Trésmíðavél
Nýleg og góð bandsög óskast til kaups. Sögin þarf að
geta sagað minnst 10“ hæð. Upplýsingar á trésmíða-
verkstæðinu. —
i
Landssmiðjan
Simi 1680.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 24. júlí til 7. ágúst.
Gólfteppagerðin
Gólfteppahreinsnnin
TILKYNNING
frá Sælgætis- og efnagerðin Freyja h. f.
Frá og með deginum í dag verður verksmiðjan lokuð
um óákveðinn tíma.
Hvar eru skipin?
Skipadeild S. í. S.
M.s. Arnarfell fór frá Kotka
í gær áleiðis til Reykjavíkur.
M.s. Hvassaíell fór frá Flekke-
fjord í Noregi í gær áleinðis til
Reykjavíkur.
Ríkisskip.
Hekla er væntanleg til Glas-
gow i dag. Esja er á leið frá
Austfjörðum til Akureyrar.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á suð
urleið. Þyrill er i Reykjavík.
Ármann fór frá Reykjavík í
gærkveldi til Vestmannaeyja.
Flugferðir
Loftleiðir.
Innanlandsflug: I dag er á-
ætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja kl. 13.30, til Akureyrar kl.
15.30. Þá er og ákveðið að fljúga
til ísafjarðar, Patreksfjarðar og
Hólmavíkur.
Á morgun er áætlað að
fljúga til Vestmannaeyja.
Utaniandsflug: Geysir lagði
af stað til New York kl. 22.50 í
fyrrakvöld.
í Vesturheimsblaðinu Lög-
bergi eru eftirfarandi sögur
sagðar:
Jean Nicol hafði í ellefu ár
verið auglýsingastjóri hinna
miklu gistihúsasamsteypna,
Savoy, Claridge og Berkeley í
London. Starf hennar var að
auglýsa ágæti hluíaðeigandi
gistihúsa og koma í veg fyrir,
að það, sem miður þótti, væri
birt í blöðunum.
Allt í einu sagði hún upp
þessari hálaunuðu stöðu, og fólk
hélt, að hún væri ekki með öll-
um mjalla. En hún svaraði ofur
rólega, er kunningjarnir furð-
uðu sig á þessu í áheyrn henn-
ar: „Ég ætla að kaupa garð í
Cornwall og rækta blóm og
kartöflur. Það er líf. Hér í Lond
on hefi ég gengið í fínum töt-
um og borðað góðan mat» En
ég hefi ekki haft tíma og tæki-
færi til þess að vera ég sjálf.“
Evelyn Gibbs var yfirmaður
kvennadeildar brezka útvarps-
ins. Hún sagði af sér, 38 ára
gömul. Hún sagði: „Ég hefi
unnið við útvarpið í þrettán
ár — með það í huga að fá
þessa stöðu. En dag einn, er
ég var í mesta flýti að ráðstafa
dagskránni, flaug mér í hug:
Hvaða áhrif hefir þetta á mig?
Ég fann, að mér var í nöp við
þá persónu, sem ég var að verða.
Ég hafði það sí og æ í huga,
að ég yrði að vera búin að ljúka
ákveðnu starfi fyrir ákveðinn
tíma. Ég var ekki manneskja
lengur, heldur vél, sem sífellt
var knúin áfram. Ef ég stjórnáði
dagskránni, þá stjórnaði hún
ekki síður mér.“
Þessi kona settist að í litlu
þorpi og stundar þar garðrækt,
hænsnarækt og gæsarækt.
Ef til vill finnst sumum þetta
ekki merkileg saga. En hún varp
ar þó ljósi yfir alvarlegt við-
fangsefni, er nútímamaðurinn
á við að stríða í ríkum mæli.
Maðurinn er búinn að gera þjóð
félögin að vélrænu kerfi, og
hann er orðinn þræll þessa sköp
unarverks síns. Flestir malast
hægt og hægt í þessari myllu,
en stöku menn gera uppreisn,
eins og þessar konur tvær, er
fórnuðu vellaunuðum stöðum
fyrir sálarheill sína.
Skyldi ekki þessi sama kvörn
vera að verki sumstaðar í okk-
ar þjóðfélagi?
J. H.
Fryst lambalifur
er ein eftirsóknarTeréasta fæðutegund, sem til er.
FÆST I REILDSÖLU HJÁ:
£attiíatuf( íáL Aatnúimtífófaqa
Sími 2678
GERIST ASKRIFEISDUR A»
TIMAKUII. - ASKRIFTASIMI 2323.